Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018FÓLK Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com TIL SÖLU Einkahlutafélag sem á og rekur tvær ísbúðir í Reykjavík og Hafnarfirði. Upplýsingar veitir Óskar Traustason í síma 659 2555. Haukur Páll Finnsson var ekki lengi að kveikja á perunni þegar hann frétti að fyrirtækið Þykkvabæjar sæti uppi með kynstrin öll af kart- öfluskræli sem engin not væru fyrir. „Forstjóri Þykkvabæjar nefndi þetta við mig, og sagði í framhjáhlaupi að úti í heimi hefði vín og jafnvel bjór verið gerð úr kartöflum. Ég greip hugmyndina á lofti enda mjög áhuga- samur um að draga úr matarsóun og líka mikill áhugamaður um bjór,“ segir Haukur glettinn. „Ég held til fundar við hana, Báru Hlín Kristjánsdóttur, og við ráðumst í að gera frumathugun á hvort að væri fýsilegt að brugga bjór úr ís- lenskum kartöflum. Fyrstu útreikn- ingar litu vel út og næst bættist Þór- gnýr Thoroddsen í hópinn. Þórgnýr hefur fengist við bjórgerð í mörg ár og er formaður Fágunar, félags áhugafólks um gerjun.“ Sjaldgæft er að bjór sé bruggaður með kartöflum og lýsir Haukur því að sögur af kartöflubjór hafi verið sveipaðar hálfgerðum goðsagnablæ. „En Þórgný tókst að leysa ráðgátuna og þróaði uppskrift sem blandar saman kartöflum, byggi og humlum. Verður að segjast eins og er að allra fyrsta tilraunin heppnaðist ekkert sérstaklega vel en bragðgæðin juk- ust með hverri atlögu og á endanum varð útkoman afskaplega góður ljós bjór. Við kynntum afrakstur erfiðis- ins á fundi með félögum Fágunar og fengum þar mjög góð viðbrögð sem sýndu að við værum á réttri braut.“ Haukur, Bára og Þórgnýr stofn- uðu saman félagið Álfur brugghús (www.alfurbeer.com) og tóku á dög- unum þátt í keppninni um gulleggið þar sem þau komust í topp-10 hópinn og hlutu sérstaka viðurkenningu KPMG. Að sögn Hauks er margt sem gef- ur Álfs-bjórnum sérstöðu: bjórinn er t.d. sá eini þar sem innlent hráefni, annað en vatn, er að staðaldri notað í uppskriftina, en aðrir bjórar sem framleiddir eru hér á landi hafa al- mennt verið bruggaðir úr innfluttum humlum og byggi. Þá er verið að búa til verðmæti úr kartöfluskræli sem fram til þessa hefur verið dreift á sandana nálægt Þykkvabæ til að stemma stigu við jarðrofi. Hráefnið sem Álfur brugghús nýt- ir verður til við framleiðslu á frönsk- um kartöflum og tilbúnum soðnum kartöflum, og er um að ræða n.k. kartöfluduft. Svo mikið magn fellur til bara á Þykkvabæjarsvæðinu að Haukur segir að það myndi duga til að brugga 40 milljónir lítra af bjór á ári. „Við höfum gert samning til fimm ára um að fá kartöfluskrælið án endurgjalds og dregur það úr hráefniskostnaði enda mynda kart- öflurnar tvo-þriðju hluta uppskrift- arinnar á móti byggi og humlum.“ Kerfið mætti vera sveigjanlegra En að stofna brugghús er hægara sagt en gert. Haukur segir að mikla hjálp hafi verið að fá hjá íslenska bruggsamfélaginu og hvert sem að- standendur Álfs hafi leitað hafi allir verið fúsir að veita leiðsögn og ráð- leggingar. Fyrirtækið hafi aftur á móti rekist á ýmsar flækjur og hindranir í kerfinu sem gera nýsköp- un erfiðari og kostnaðarsamari. Þannig fylgi ýmis gjöld áfengisfram- leiðslu sem íþyngi vöruþróun og kynningarstarfi. Það kostar nærri 170.000 kr að fá leyfi til að framleiða bjór, og þarf umsækjandi að skila inn þykkum bunka af skjölum. „Það kom líka á óvart að þó við fengjum inni í hús- næði í Kópavogi sem þegar hefur verið vottað og fengið leyfi fyrir framleiðslu matvæla þá þurftum við að sækja sérstaklega um leyfi fyrir brugguninni okkar, m.a. fá eftirlits- mann í heimsókn, framvísa teikn- ingum og fullnægja ótal forms- atriðum. Er leiðinlegt að láta mikinn tíma, orku og fjármuni fara í það að fást við kerfið frekar en að þróa vör- una og koma fyrirtækinu á fram- færi.“ Haukur ólst upp í matvælageir- anum og sýnist að regluverkið sé orðið töluvert flóknara en það var. „Ég er ánægður með að einhver fylg- ist með því að matvæli séu framleidd með öruggum hætti, en öllu má of- gera og væri rétt að skoða hvort að sýna mætti nýjum og litlum framleið- endum meiri sveigjanleika.“ Framundan er áframhaldandi vöruþróun og kynningarstarf og er Haukur bjartsýnn á framtíðina. Álfs- bjórinn þykir aðgengilegur en um leið áhugaverður og er að mati Hauks hentugur upphafsreitur fyrir þá sem vilja stíga sín fyrstu skref inn í heim handverksbjórsins. „Við gæt- um þess að koma sögu okkar og sér- stöðu vel á framfæri og hanna fal- legar umbúðir sem hæfa drykknum,“ segir hann og bætir við að gott væri að byrja á útflutningi til Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar ef tækifæri gefst. „Okkur langar að taka þátt í Startup Tourism viðskiptahraðlinum og nota sem stökkpall fyrir sölu á al- þjóðamarkaði, samhliða því að þróa einhvers konar bjórtengda upplifun fyrir ferðamenn. Gæti útfærslan t.d. verið að leyfa gestum að skoða sig um í brugghúsi í nágrenni Þykkva- bæjar. Miklu skiptir síðan einfald- lega að koma bjórnum að á börum og veitingastöðum, því að ef hann er fá- anlegur þá selst hann alltaf í ein- hverjum mæli.“ Gera góðan bjór og draga úr matarsóun Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Álfur brugghús nýtir kartöfluskræl sem áður fór til spillis og bruggar úr því fyrirtaks ljósan bjór. Mikinn stuðning er að fá hjá íslenska bruggsamfélaginu en flókinn gjalda- og leyfafrumskógur hægir á áfengistengdri nýsköpun. Bára, Þórgnýr og Haukur hafa þróað reksturinn langt á skömmum tíma. Kartöflu-bjórinn hefur vakið hrifningu. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Bara á Þykkvabæjar-svæðinu fellur til nóg af kartöfludufti til að brugga 40 milljón lítra af bjór. Til þessa hefur duftið aðallega nýst sem n.k. áburður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.