Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 4. D E S E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 294. tölublað 106. árgangur
Þvörusleikir kemur í kvöld
10
jolamjolk.is
dagar
til jóla
MYND UM
TVEGGJA
HEIMA MANN KSÍ FÆR EKKI KRÓNU
BJÖRGUÐU
HUNDRUÐUM
FLÓTTAMANNA
AFREKSSJÓÐUR ÍSÍ ÍÞRÓTTIR 200 MÍLUR 48 SÍÐURÞVERT Á TÍMANN 36
Þingsályktunartillaga Pírata um
notkun og ræktun lyfjahamps hefur
hlotið neikvæð viðbrögð allra sem
sent hafa Alþingi umsögn um hana.
Tillagan var áður borin fram á
tveimur síðustu þingum en náði
ekki fram að ganga. Hún hlaut
einnig óblíðar viðtökur í heilbrigð-
iskerfinu.
Lyfjahampur er heiti sem þing-
menn Pírata nota yfir kannabis eða
hampjurt í læknisfræðilegum til-
gangi. Í tillögu þeirra er heilbrigð-
isráðherra falið að semja laga-
frumvarp sem heimili notkun og
framleiðslu lyfjahamps.
Í umsögn Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga segir t.d. að af texta
tillögunnar og greinargerðarinnar
megi ráða að verið sé að opna fyrir
almenna notkun og ræktun kanna-
bis hér á landi. »14
Morgunblaðið/Kristinn
Kannabis Þingmenn Pírata tala um lyfja-
hamp þegar jurtin er notuð til lækninga.
Ræktun svonefnds
lyfjahamps fær
dræmar viðtökur
Þorsteinn Víglundsson, þingmað-
ur Viðreisnar, segir „vissulega
greinar í siðareglum alþingismanna
sem heimfæra má með einum eða
öðrum hætti“ upp á mál Ágústs
Ólafs Ágústssonar, þingmanns
Samfylkingar, en hann sýndi af sér
óviðeigandi framkomu í garð konu.
Hann segir málið hins vegar hafa
komið upp utan vinnutíma þing-
mannsins og því sé það t.a.m. ólíkt
Klausturmálinu svonefnda. »2
Heimfæra má reglur
upp á mál Ágústs Ólafs
Íslenska sjávarútvegstæknifyrir-
tækið Naust Marine hefur gengið
frá samningi um framleiðslu vindu-
búnaðar fyrir sex nýja rússneska
togara. Um er að ræða langstærsta
verkefni fyrirtækisins til þessa og
hljóðar samningurinn upp á um tvo
milljarða króna.
Frá þessu greinir Bjarni Þór
Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri
Naust Marine, í samtali við 200 míl-
ur, en blaðinu í dag fylgir 48 síðna
sérblað 200 mílna um sjávarútveg.
Einnig er í samningnum ákvæði
upp á mögulega fjögur skip til við-
bótar að sögn Bjarna Þórs.
Íslensku tæknifyrirtækin í sjávar-
útvegi hafa að undanförnu sótt í
auknum mæli á Rússlandsmið, þar
sem ljóst er að þar í landi er hafin
vinna við að endurnýja úr sér geng-
inn fiskiskipaflota. Markaðurinn er
stór og útgerðirnar og skipin sömu-
leiðis, eins og Bjarni hefur reynt.
„Þessi útgerð sem við erum að
semja við núna er með eina 40 tog-
ara. Það segir ýmislegt. Þetta eru
gríðarlega stórar útgerðir og hafa
farið stækkandi.“
Til samanburðar voru 44 togarar
skráðir hérlendis við lok síðasta árs.
»200 mílur
Vindur fyrir tvo milljarða
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samið Bjarni Þór Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri Naust Marine.
Stærsta verkefni Naust Marine til þessa Sex togarar
Alls voru 6.265 brot afgreidd af
ákæruvaldinu á síðasta ári. Þar af
var ákært í 4.959 málum, eða 79%
brotanna. Þetta er fækkun frá
fyrra ári en árið 2016 voru alls
6.277 mál afgreidd af ákæruvald-
inu. Það ár var ákært í fleiri mál-
um, alls 5.620 málum eða 83%.
Þetta kemur fram í ársskýrslu Rík-
issaksóknara fyrir árið 2017.
Brotum gegn valdstjórninni
fjölgaði úr 63 árið 2016 í 120 á síð-
asta ári. Kynferðisbrot voru tals-
vert fleiri í fyrra en árið á undan,
216 samanborið við 192 árið 2016.
Fjögur brot í flokknum landráð
voru til meðferðar hjá ákæruvald-
inu árið 2017. Öll málin fjögur voru
á endanum felld niður. »22
Ákært í færri mál-
um en árið áður
Messudagur heilagrar Lúsíu var í gær, 13. des-
ember. Þá er til siðs í Svíþjóð og víðar á Norð-
urlöndum að efna til hátíðar. Lúsíudagsins var
minnst í sænska sendiráðinu í Reykjavík í gær-
morgun og sungu stúlkur með kertaljós söng
Lúsíu og sjálf Lúsía var með kertakórónu. Boðið
var upp á hefðbundnar sænskar kræsingar á
Lúsíuhátíðinni. Fyrirsögnin er tekin úr þýðingu
Elsu E. Guðjónsson á söng Lúsíu við ítalskt lag.
Morgunblaðið/Eggert
„Birtir af kertum brátt, blíð mærin eyðir nátt“
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skúli Mogensen, forstjóri WOW air,
segir tengiflug áfram verða lykilþátt
í starfsemi flugfélagsins, þ.e.a.s. að
nota Ísland sem tengistöð. Með
niðurskurði á leiðakerfinu muni far-
þegum félagsins fækka úr 3,5 millj-
ónum í ár í 2,1 milljón á næsta ári.
Það yrði 40% samdráttur milli ára.
Félagið hyggst fækka þotum úr 20
í 11 og er það hluti af samþættingu
leiðakerfis félagsins og væntanlegs
samstarfsfélags, Indigo Partners.
Við þetta fækkar störfum hjá WOW
air um 350 og verða um þúsund.
Skúli segir sókn WOW air til mið-
vesturríkja Bandaríkjanna ekki hafa
borið tilætlaðan árangur. Þá hafi
rekstur breiðþotna flækt reksturinn.
Þær hverfi nú alfarið úr flotanum.
Afturhvarf til fyrri áherslu
Framundan sé uppbygging félags-
ins á þeim grunni sem lagður var
2015 til 2016 er leiðakerfið miðaðist
við að tengja saman vesturhluta
Evrópu og austurströnd Bandaríkj-
anna. Nú verði reksturinn treystur
með sókn.
„Sókn er besta vörnin. Til lengri
tíma litið eru Airbus 321-vélarnar
sem við erum með alltaf að verða
langdrægari. Þannig að í staðinn
fyrir að taka inn breiðþotur, helm-
ingi stærri vélar, þá erum við núna
að nýta okkur og munum nýta okkur
enn frekar nýjustu kynslóð af slíkum
þotum,“ segir Skúli.
„Sókn er besta vörnin“
Skúli Mogensen segir nýja kynslóð langdrægra farþegaþotna skapa tækifæri
WOW air muni reka „harða lággjaldastefnu“ Farþegum fækkar um 40%
Mögulega endurráðið
» Fram kom á starfsmanna-
fundi WOW air í gær að hluti
starfsmanna yrði mögulega
endurráðinn, þ.m.t. flugfreyjur.
» Ferðamálastofa telur ekki
gefið að erlendum ferðamönn-
um á Íslandi muni fækka vegna
breytinganna hjá WOW air.
MWOW air … »4 og 18