Morgunblaðið - 14.12.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
ol pium 350Nú jóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
ym
maxipodium 500
b
Veður víða um heim 13.12., kl. 18.00
Reykjavík 8 rigning
Hólar í Dýrafirði 7 alskýjað
Akureyri 8 alskýjað
Egilsstaðir 7 súld
Vatnsskarðshólar 8 rigning
Nuuk -6 skýjað
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló -5 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Stokkhólmur 0 snjókoma
Helsinki -2 alskýjað
Lúxemborg -1 heiðskírt
Brussel 1 heiðskírt
Dublin 6 rigning
Glasgow 3 heiðskírt
London 2 heiðskírt
París 2 léttskýjað
Amsterdam 1 léttskýjað
Hamborg 2 léttskýjað
Berlín 2 rigning
Vín -1 þoka
Moskva -1 snjókoma
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 7 skúrir
Barcelona 10 skýjað
Mallorca 13 rigning
Róm 7 léttskýjað
Aþena 7 skýjað
Winnipeg -4 skýjað
Montreal -14 léttskýjað
New York 0 rigning
Chicago 0 þoka
Orlando 19 alskýjað
14. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:15 15:31
ÍSAFJÖRÐUR 12:00 14:56
SIGLUFJÖRÐUR 11:45 14:37
DJÚPIVOGUR 10:54 14:51
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag Suðaustan 10-18 og skúrir vestantil,
talsverð rigning suðaustanlands. Hiti 1 til 6 stig.
Á sunnudag Austan og norðaustan 5-13. Rigning
eða slydda, en þurrt á Suðvestur- og Vesturlandi.
Suðaustan 8-13 m/s og úrkomulítið, en bætir í vind þegar líður á daginn með rigningu, einkum
suðaustanlands. Suðaustan 13-20 í kvöld, hvassast sunnan- og austantil. Hiti 1 til 7 stig.
breytast?“ spyr Skarphéðinn en með
tengiflugi vísar hann til farþega sem
millilenda á Íslandi, án þess að koma
inn í landið. „Það er líka spurning
hvernig aukningin hjá Icelandair
skilar sér. Það var ójafnvægi í leiða-
kerfinu. Það vantaði talsvert upp á
afkastagetuna til Evrópu. Þeir eru
að mæta því ójafnvægi með því að
auka framboð á flugi til Evrópu. Ice-
landair hefði allt eins getað brugðist
við þessu ójafnvægi með því að
draga úr Ameríkuflugi. Það eru því
horfur á auknu framboði á mörk-
uðum, eins og Þýskalandi, sem voru
talsvert að gefa eftir. Það mun skila
fleiri sætum fyrir ferðamenn á leið
til Íslands,“ segir Skarphéðinn.
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur
hjá Landsbankanum, segir ekki
sjálfgefið að gengi krónu muni gefa
eftir vegna erfiðleika WOW air.
Óvissan hafði áhrif á gengið
Óvissan í ferðaþjónustu, einkum
vandi WOW air, sé meginskýringin á
að gengi krónunnar hafi gefið eftir í
haust. Sú óvissa hafi einnig haft
áhrif á hlutabréfamarkaðinn.
Hann segir aðspurður „ekki ólík-
legt“ að hægt verði á uppbyggingu
hótela vegna þessarar aðlögunar. Á
móti komi að vísbendingar séu um
minni notkun á Airbnb-íbúðum.
Uppgangur WOW air hefur haft
mikil áhrif á Suðurnesjum.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, segist hafa
verið í sambandi við Vinnumála-
stofnun vegna stöðu WOW air.
„Við höfum velt fyrir okkur hvort
ástæða sé til að setja saman að-
gerðahóp. Það hafa ekki verið tekn-
ar ákvarðanir um það. Menn hafa
vonast til að þetta gengi til baka. Nú
er staðfest að það verða fjölda-
uppsagnir í fluginu. Þá fara menn að
bregðast við því,“ segir hann.
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir ekki ljóst hvernig leiða-
kerfi WOW air verður. Því sé ótímabært að greina áhrif breytinganna.
„Við hjá Isavia erum að fara yfir þær áætlanir og aðgerðir sem WOW air
greindi frá. Ekki er komið á hreint hvaða áhrif fréttirnar hafa á starfsemi
Isavia. Ekki er komið fram hvert endanlegt leiðakerfi verður, eða á hvaða
tímum er áformað að flogið verði frá Keflavíkurflugvelli. Þetta mun skýr-
ast á næstu vikum og þar með áhrif þessa á starfsemi okkar og farþe-
gaspá Isavia fyrir næsta ár,“ segir Guðjón og víkur að þeim áformum
Isavia að verja á annað hundrað milljörðum í uppbyggingu flugvallarins á
næstu tíu árum. Spáir Isavia að farþegum fjölgi úr 10 milljónum í ár í 14,5
milljónir um miðjan næsta áratug.
„Hvað varðar framkvæmdaáform okkar til næstu ára þá er unnið að
hönnun og undirbúningi fyrir næsta hluta þeirra, þ.e. gerð tengibygg-
ingar milli norður- og suðurbyggingar flugstöðvarinnar og þar með
breikkun gamla landgangsins sem áætlað er að verði lokið 2023. Undir-
búningsvinna og hönnun halda áfram og hefur verið gert ráð fyrir að
framkvæmdir hefjist haustið 2019. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er allt of
lítil fyrir þá starfsemi sem fer þar fram óháð þeim ákvörðunum sem WOW
air kynnti í dag,“ sagði Guðjón síðdegis í gær.
Áform um stækkun óbreytt
ÁFORMUÐ UPPBYGGING Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Mikil óvissa í ferðaþjónustu
Ferðamálastjóri segir óvíst að ferðamönnum fækki með niðurskurði WOW air
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir myndun aðgerðahóps vera til skoðunar
Brottfarir frá Keflavíkurflugvelli 2003-18 og mögulegar sviðsmyndir 2019-20
2,5
2,0
1,5
1,0
0,5
0
Milljónir erlendra ferðamanna Rauntölur um fjölda ferðamanna*
Fjöldi ferðamanna miðað við óbreytta fjölgun*
Miðað við árlega fækkun ferðamanna
5% 10% 15% árleg fækkun
2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
0,31 0,35
0,36 0,40
0,46 0,47 0,46 0,46
0,54
0,65
0,78
0,97
1,26
1,77
2,20
2,32
2,45
2,21
2,09
1,97
2,59
2,10
1,88
1,68
*Miðað við að í des. 2018 og allt árið 2019 og
2020 verði sama fjölgun og 2017–2018 eða 5,6%
240.000 færri ferða- menn
menn færu um Keflavíkurflugvöll á næsta
ári miðað við 5% fækkun í stað óbreyttrar fjölgunar
1.000.000 færri ferðamenn færu um Keflavíkurflugvöll samtals
á næstu tveimur árum miðað við 10% árlega fækkun
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Mikil óvissa er um fjölda erlendra
ferðamanna á næsta ári. Greinendur
hafa almennt spáð áframhaldandi
fjölgun ferðamanna næstu ár. Hún
verði þó hægari en síðustu ár.
Útlit er fyrir rúmlega 2,3 milljónir
erlendra ferðamanna í ár, eða rúm-
lega milljón fleiri en 2015.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
spáð 3-5% vexti í ferðaþjónustu á
næsta ári. Ef vöxturinn verður rúm-
lega 5% næstu tvö ár mun erlendum
ferðamönnum fjölga í um 2,6 millj-
ónir árið 2020. Fækki þeim aftur á
móti um sama hlutfall, eða meira,
verður bilið milli áætlaðrar aukn-
ingar og raunfjölda mikið.
Þessi tölfræði er hér sýnd á
myndrænan hátt en tekið skal fram
að um ímynduð dæmi er að ræða.
Ekki er víst að ferðamönnum fækki.
Fram kom í Morgunblaðinu í fyrra-
dag að áformað er að taka 15 hótel í
notkun í Reykjavík á næstu tveimur
árum. Er þeim ætlað að mæta eftir-
spurn vegna fleiri ferðamanna.
Hátt hlutfall tengifarþega
Fram kemur í samtali við Skúla
Mogensen, forstjóra WOW air, á
viðskiptasíðu Morgunblaðsins í dag
að farþegum félagsins muni fækka
úr 3,5 milljónum í ár í 2,1 milljón á
næsta ári, eða um 40%.
Hann væntir þess að hlutfall
tengifarþega – þeirra sem fara ekki
út af Keflavíkurflugvelli á leið yfir
hafið – verði áfram hátt.
Hvaða áhrif þessar breytingar á
farþegafjölda WOW air hafa á fjölda
erlendra ferðamanna á Íslandi mun
skýrast á nýju ári.
Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri segir ekki sjálfgefið
að erlendum ferðamönnum muni
fækka með breyttri flugáætlun
WOW air. Icelandair hyggist auka
framboð á flugi verulega á næsta ári,
ásamt því sem önnur flugfélög geti
fyllt í skarðið. „Það er spurning hver
nettóáhrifin verða. Það mun koma í
ljós hvernig þetta vegur hvað á móti
öðru,“ segir Skarphéðinn.
Þekkja ekki samsetninguna
Hann segir aðspurður of snemmt
að svara því hvort spár um vöxt
ferðaþjónustunnar á næsta ári séu
raunhæfar. Ekki sé rétt að draga
miklar ályktanir fyrr en meiri
upplýsingar liggja fyrir.
„Við vitum ekki hver samsetn-
ingin í flugi hjá WOW air verður.
Félagið var komið með yfir 70% af
sinni starfsemi í tengiflugi. Mun það
Indigo tjáir sig ekki
» WOW air er í viðræðum við
Indigo Partners um samstarf
en WOW air boðar tíðindi af
viðræðunum fljótlega.
» Talsmaður Indigo Partners
vildi ekki tjá sig um málið.
Fari svo að WOW air nái samn-
ingum við Indigo um fjárfestingu
þess síðarnefnda í flugfélaginu, þá
fyrst fær Icelandair alvöru sam-
keppni. Þetta eru orð viðmælenda
Morgunblaðsins á flugmarkaði.
Eins og Skúli Mogensen, eigandi
og forstjóri Wow air, sagði í tölvu-
pósti til starfsmanna í gær, þá við-
urkenndi hann mistök í rekstrinum,
og sagðist hafa „misst einbeit-
inguna“. Félagið hyggist nú, sem sé
hluti af þeim skilyrðum sem sett
eru í áframhaldandi viðræðum við
Indigo, fara aftur í ræturnar og
verða ofur-lággjaldaflugfélag, með
einsleitari flugflota, sem saman-
standa mun í byrjun af 11 flug-
vélum, en í dag er flotinn 20 vélar.
„Það jákvæða við þetta er að þetta
sýnir að viðræður við Indigo eru
enn í gangi,“ segir einn heimild-
armaður blaðsins.
Ekkert líktist lággjaldafélagi
Vandamál Wow air var, að mati
viðmælenda Morgunblaðsins, ná-
kvæmlega það sem Skúli viður-
kennir nú að hluta, að ekkert í
rekstri þess hafi í raun líkst því sem
einkennir alvöru lággjaldafélög,
hvað þá ofur-lággjaldafélag eins og
nú er stefnt að.
Hafa aðilar á flugmarkaði til að
mynda furðað sig á því að „ofur-
lággjaldafélag“ sé með skrifstofur
á mörgum hæðum í einni dýrustu
skrifstofubyggingu á landinu, turn-
inum í Katrínartúni. Heimildir
Morgunblaðsins herma að félagið
hafi nú, sem hluta af þessum að-
gerðum, sagt upp skrifstofu-
húsnæði sínu á sjöundu hæð í turn-
inum fyrir ofan Hamborgara-
fabrikkuna og hyggist flytja allar
skrifstofur í turninn við hliðina, þar
sem félagið er líka með skrifstofur.
Eins og tíundað hefur verið í
fréttum af Wow síðan í gær, þá
sagði félagið upp 111 fastráðnum
starfsmönnum í gær, auk verktaka
og starfsmanna með tímabundna
ráðningu, alls um 350 manns. Segja
heimildir Morgunblaðsins að upp-
sagnirnar hafi náð þvert á félagið,
og fólk á flugrekstrarsviði, í við-
haldsdeild og á upplýsinga-
tæknisviði hafi misst störf sín.
Annað dæmi um það hvernig fé-
lagið hafði misst sjónar á uppruna
sínum sem lággjaldafélag er að
sögn heimildarmanns það að í upp-
lýsingatæknideild unnu nálægt 80
manns, sem sé meira en helmingi
fleiri starfsmenn en gengur og ger-
ist hjá sambærilegum félögum.
tobj@mbl.is
Sam-
keppnin
harðni
Wow air skilar
skrifstofuhúsnæði