Morgunblaðið - 14.12.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 14.12.2018, Síða 11
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þegar þáverandi sjávarút- vegsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, lagði til á árinu 2015 að stjórnun makrílveiða yrði lögfest var ekki miðað við upphaflega aflareynslu, það er að segja árin 2008- 2010, heldur aflareynslu árin 2011-2014 þegar kvótanum hafði verið skipt á milli skipa og útgerða sem mörg hver höfðu enga aflareynslu á fyrri viðmiðunarárunum. Var þetta í trássi við álit setts um- boðsmanns Alþingis sem þá lá fyrir. Hæstiréttur hefur nú nýlega komist að sömu niður- stöðu og umboðsmaður og dæmt íslenska ríkið skaða- bótaskylt vegna hagnaðar- missis tveggja útgerða sem fengu of lítinn kvóta. Makrílveiðunum hefur ver- ið stjórnað frá árinu 2011 og kvóta skipt á milli skipa með reglu- gerðum sem gefnar hafa verið út ár- lega. Fram hefur komið að þegar fyrsta reglugerðin var sett fékk Jón Bjarnason, þáverandi sjávarútvegs- ráðherra, ábendingar frá embætt- ismönnum úr ráðuneytinu að reglu- gerðin stangaðist á við lög. Hafa sex ráðherrar komið að stjórnuninni á þessum tíma og hafa væntanlega allir eða flestir fengið sömu ráðgjöf en þó haldið áfram að stjórna veiðunum á sama grunni. Ráðherrarnir eru, auk Jóns, Steingrímur J. Sigfússon, Sig- urður Ingi Jóhannsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og núverandi ráð- herra, Kristján Þór Júlíusson. Steingrímur man ekki eftir að það hafi komið upp í hans ráðherratíð að reglugerðirnar stönguðust á við lög. Hann bendir á það í skriflegu svari til Morgunblaðsins að fyrirkomulagið hafi haldist í öllum aðalatriðum óbreytt frá tíð Jóns og hafi gert síðan. Eitthvað hafi verið unnið með það í ákveðnum reglum,“ segir Sigurður Ingi. Hann segir að það hafi ver- ið skoðun ráðuneytisins að til þess að bregðast við áliti um- boðsmanns og breyta út- hlutun þyrfti að setja lög. Málshöfðun útgerðarfélag- anna var þá einnig hafin. Frumvarpið sem hann lagði fram á vorþingi 2015 um að kvótasetja makríl með tíma- bundinni úthlutun til sex ára mætti harðri andstöðu stjórn- arandstöðunnar og fleiri afla. Meðal annars var efnt til mik- illar undirskriftarsöfnunar um að ekki ætti að úthluta makrílkvóta til útgerðar- manna. Frumvarpið dagaði uppi í nefnd þingsins. „Við vorum komin í pattstöðu sem aðeins þingið gat leyst úr. Þingið neitaði að afgreiða málið,“ segir Sigurður. Í frumvarpinu var miðað við aflareynslu á árunum 2011 til 2014, eins og fyrr segir, en ekki 2008 til 2010. Sigurður segir að það hafi verið álitamál við hvað ætti að miða en mat ráðuneytisins hafi verið það að myndast hefði ný afla- reynsla á þeim tíma sem liðinn var frá því fyrsta reglugerðin var sett. Þröng staða Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segist hafa skoðað það hvort mögu- leiki væri að taka makrílinn sérstak- lega út úr og setja lög um hann. Þá hafi dómsmálið verið hafið og ekki talið ráðlegt að stíga inn á þeim tíma. Einnig hafi sáttanefnd með fulltrúum allra flokka verið komin af stað og ekki rétt að raska grundvelli hennar með einhliða ákvörðun. Sjálf segir hún að eftir lestur dóms Hæstaréttar og álits umboðsmanns sé ekki hægt að rengja niðurstöðuna lagalega. Hins vegar hafi verið þröng staða til að breyta lögunum í hennar tíð. Löggjafarþingið þurfi að leysa úr þessu. ráðuneytinu á árunum 2012 og 2013 hvernig lagaumgjörð gæti orðið um þetta mál til framtíðar litið þegar og ef nýjar tegundir tækju að bætast við í veiðum en það hafi ekki náð lengra og ekki verið í samhengi við makríl- reglugerðina. Voru að tryggja rétt Íslands Í áliti sem settur umboðsmaður Al- þingis sendi frá sér sumarið 2014 er stjórnun makrílveiða sögð stangast á við lög. Sigurður Ingi Jóhannsson var þá sjávarútvegsráðherra. „Ég var eins og forverar mínir að slást við Evrópusambandið og Norðmenn um að fá hlutdeild í þessum stofni og tryggja að sem mest af aflanum færi til manneldis til að okkar rök væru sem sterkust. Segja má að reglugerð- in hafi tryggt það og ákveðið jafnræði í nýtingu á nýrri tegund. Hins vegar eru úthafsveiðilögin sem byggjast á því að þeir sem leggja út í þann kostnað að nýta nýjar tegundir eigi að fá úthlutaðri hlutdeild samkvæmt Töldu að ný afla- reynsla hefði myndast  Makrílfrumvarpið sem lagt var fram 2015 mætti andstöðu 2009-2011 Jón Bjarnason 2013-2016 Sigurður Ingi Jóhannsson 2016-2017 Gunnar Bragi Sveinsson 2017 Kristján Þór Júlíusson 2011-2013 Steingrímur J. Sigfússon 2017 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir RÁÐHERRAR SJÁVARÚTVEGSMÁLA FRÁ 2009 FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Ísland, Noregur og Evrópusam- bandið (ESB) hafa stigið stór skref í loftslagsmálum, að því er segir í frétt á vef norsku ríkisstjórnarinnar. Þar segir að löndin tvö og ESB séu sam- mála um næstu skref til samkomu- lags um að uppfylla losunarmarkmið fyrir árið 2030. Unnið verði sameig- inlega að því að ná þessum mark- miðum. Norðmenn ráði því sjálfir hvernig þeir muni draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Ola Elvestuen, loftslags- og um- hverfisráðherra Noregs, lýsir ánægju með að hafa náð samkomu- lagi við ESB og Ísland um að hefja formlega vinnu að því að ljúka texta samningsins. Það að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins sé háð sam- starfi um að ná markmiðum um los- un gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030. Norðmenn hafa tilkynnt að þeir ætli að losa um 40% minna af gróðurhúsalofttegundum 2030 mið- að við losunina 1990. Samkomulagið við ESB mun leggja línurnar í norskri loftslags- stefnu til 2030. Norðmenn muni ákveða hvaða leiðir verða farnar til að ná þessum markmiðum. Næsta skref verður þegar EFTA- ríkin senda tillögu um texta sam- komulagsins til framkvæmdastjórn- ar ESB. Uppkastið að samningstext- anum mun byggjast á ákvæðum í EES-samningnum. Alþingi Íslend- inga, norska Stórþingið og ráð ESB þurfa að samþykkja samkomulagið áður en það tekur gildi. Elvestuen segir að skýrsla lofts- lagsnefndar SÞ um hlýnun sýni að grípa þurfi strax til aðgerða. Samn- ingurinn sýni að ESB, Ísland og Noregur standi saman að metnaðar- fullri loftslagsstefnu. Samstarf Íslands, Noregs og ESB  Vinna sameiginlega að loftslagsmálum Ljósmynd/Regjeringen.no Loftslagsmál Umhverfisráðherrar Íslands og Noregs og framkvæmda- stjóri loftslagsmála ESB. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við fáum húsnæðið afhent 1. febr- úar og stefnum að því að opna ölstof- una 1. mars, á 30 ára afmæli bjór- dagsins,“ segir Jóhann Guðmunds- son, framkvæmdastjóri The Brothers Brewery í Vestmanna- eyjum. Fyrirtækið, sem rekur brugghús og ölstofu við Vesturveg, hefur verið í húsnæðisvanda allt þetta ár. Í vik- unni skrifuðu aðstandendur þess undir kaupsamning um nýtt hús- næði í bænum. Framtíðarstaður þess verður á Bárustíg 7 þar sem bakaríið og kaffihúsið Stofan hefur verið rekin um langa hríð. The Brothers Brewery verður þar rekið á 530 fermetrum. Keyptu tvær fasteignir „Framleiðslan er löngu sprungin hjá okkur. Við erum í 220 fermetra leiguhúsnæði og leigjum tvo gáma sem geymsluhúsnæði. Svo erum við með dót í geymslum hjá nánast öll- um vinum og kunningjum. Við erum því mjög ánægðir með að þetta sé í höfn,“ segir Jóhann en eins og Morgunblaðið hefur greint frá ósk- aði fyrirtækið eftir að fá að byggja sér húsnæði við höfnina í Vest- mannaeyjum. Því hafnaði bærinn þar eð starfsemin þótti ekki sam- ræmast deiliskipulagi. „Við vissum af þessu húsnæði og vorum búnir að bjóða nokkrum sinn- um í það á síðustu mánuðum. Við enduðum á því að kaupa báðar fast- eignir eigendanna til að greiða fyrir kaupunum og erum búnir að selja hina,“ segir Jóhann. Framleiðslan verður aukin Hann segir að fleiri tankar muni bætast við í brugghúsið og fram- leiðslugeta þess aukin á nýja staðn- um. Þar verður svipuð stemning og á þeim fyrri; ölstofa þar sem hægt verður að sjá inn í brugghúsið og fylgjast með starfsemi þar. Jóhann kveðst vonast eftir að öll starfsemin á nýja staðnum verði komin í gagnið í apríl eða maí. Ljósmynd/Ólafur Einar Lárusson The Brothers Brewery Frá vinstri eru Hlynur Vídó Ólafsson, Hannes Krist- inn Eiríksson, Kjartan Vídó Ólafsson og Jóhann Ólafur Guðmundsson. Bræðurnir flytja í fornfrægt bakarí Brugghús á uppleið » Upphaf The Brothers Brewery má rekja til heima- bruggs árið 2012. Framleiðsla fyrirtækisins hófst svo árið 2016 með formlegum hætti. » Í mars á síðasta ári var opn- uð ölstofa í húsakynnum Brothers Brewery. Á nýju ári er stefnt að því að flytja starf- semina í nýtt, 530 fermetra húsnæði á Bárustíg 7 í Vest- mannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.