Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 38

Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is FYRIR BÍLINN FJARLÆGIR MENGUN ÁHRIF AUKA SKILVIRKNI HEMLUNAR KREFST EKKI AÐ TAKA Í SUNDUR BREMSU HREINSIEFNI FYRIR BÍLA Töfraborðið Þarna stendur hann á sínum stað í stofunni, þrífættur og glansandi völ- undarsmíð, þögull vinur. Hann er svartur og svo gljáfægður að það má spegla sig í honum. Þar er ekkert spé að finna. Okkar kynni má rekja til árs- ins 1989, bræður hans höfðu þjónað mér, einn af öðrum árin mörg á und- an, allir svartir. Mér finnst að þeir eigi að vera svartir. Það er magnað að hugsa til þess hvað þessi tiltölulega einfaldi kassi hefur mikið aðdráttarafl, er mér ómót- stæðilegur. Hvað er svona merkilegt við hann? kynni ein- hver að spyrja. Mitt svar gæti verið: Hann hefur að geyma næstum öll lög heimsins og getur verið ígildi heillar hljómsveitar. Tónn hans er í eðli sínu hlutlaus, en hann getur brugðið sér í ýmis gervi. Hljómborðið er einskonar töfraborð og kassinn sjálfur fullur af gersemum. Það virðist sem aðeins þurfi að kunna „lykilorðin“ og hafa lag á að laða til sín dýrðina, lokka tónana út og láta þá óma. Fyrir mér er fátt meira ögrandi en opinn, góður nýstilltur flygill og það skemmir ekki að hann standi í fallegu vel ómandi rými. Við eigum daglega náin samskipti þegar ég er heima og oftar en ekki þegar ég fer af bæ, fer ég til að bera okkar samlífi vitni. Hann tekur þessu af hógværð og ótrúlegu umburð- arlyndi sem lýsir sér í því að hann er alltaf jafn tilbúinn að taka í hönd mína og takast á við ný verkefni stór og smá. Maður notar ekki afl eða líkamlega burði í glímunni við tóninn í píanóinu, heldur lag. Það er gott að vera lag- hentur, en það eitt er ekki nóg. Að auki þarf ákveðna snerpu, snögg við- brögð og rétta vigt af öllu tagi í hönd- um, öxlum, örmum og baki til að fá ríkan blæ og réttan styrk í spilið. Tónninn í píanóinu myndast við högg hamars á streng þegar nóta á hljóm- borðinu er slegin. Tónmyndunin er ekki ósvipuð því að gefa kristalsglasi selbita, létt og fjaðrandi. Því sneggra sem slegið er þeim mun sterkari er tónninn. Hér er athyglinni aðeins beint að því hvernig tónninn í hljóðfærinu er vakinn. Síðan hefst látlaus vinna við mótun hans. Það er mikil sköp- unarvinna og hún er síný og endalaus. Að ganga í lið með hömrunum er lítil kúnst þó því sé ekki að leyna að sum viðfangefni krefjast þess. En að fá pí- anóið til að syngja og fá jafna og fal- lega áferð á spilið reynist mörgum erf- itt, jafnvel þótt þeir sitji við ævilangt. Það nægir að líta á sköpulag hand- anna til að sjá hve misjafnt er gefið og slæmt þykir að hafa þumal á hverjum fingri. Slíkar hendur nýtast illa í pí- anóleik. Það þarf fulla einbeitni og skapandi kröfuharða hlustun, mikla al- úð og að því er virðist endalausa vinnusemi, svo hugur og hönd nái að fullu þeirri auðsveipni og þroska sem þarf. Hljóðfærið er harður húsbóndi, en verður trúr vinur sé rétt að farið og ræktarsemi sýnd. Reynslan hefur sýnt að það er hægt að hafa mjúkan, harðan, silkimjúkan, kolharðan, syngjandi, daufan, bjartan, dökkan, fallegan, ljótan tón. Valmögu- leikarnir eru takmarkalausir og það undarlega er að það er not fyrir þá alla. Eins og áður sagði myndast tónninn við högg hamars á streng og svo er eðli hans að hann er sterkastur fyrst en dvínar fljótt þannig að til þess að spila samfellda lifandi sönglínu verða tón- arnir að vera í rökréttum hlutföllum og í fullkominni sátt hver við annan. Síðan bætist við galdur sem ekki verð- ur útskýrður í orðum en gefur línunni inntak. Línan verður að vera lifuð, sungin innra með spilaranum, lituð frásögn og hann þarf að sigla beitivind við hamrana og gildir þá einu hvort leikið er bundið, legato, eða aðgreint, staccato, sterkt, forte, eða veikt, piano. Ekki er farsælt ef línan er stöllótt, þá hljómar hún eins og tungubrjótur. Jafna þarf viðbrögð fingranna og hlusta grannt. Eyrað er ávallt hinn strangi dómari. Það nægir ekki að heyra eða hlusta á tóninn, það verður að „hlusta tóninn!“ Hlusta verður jafn- vel áður en tónn er vakinn því þá er maður strax ögn nær markmiðinu. Þýðingamikill hluti píanósins er pedallinn. Er hugsanlegt að þar sé mikilvægan part af sálinni í hljóðfær- inu að finna? Það er mikill lærdómur að umgangast hann og nota rétt. Notkun pedalans fyllir tóninn, gefur honum flug og fleytir honum. Óná- kvæm pedalnotkun getur drekkt öllu spilinu. Hann þarf að umgangast af nákvæmni, rétt eins og aðra hluta hljóðfærisins. Harpan í hljóðfærinu er heilsteypt grind úr málmi. Það er nauðsynlegt svo spennan á strengjunum, sem nemur tugum tonna, nái ekki að bjaga hana. Það yrði hvellur ef þeir slitnuðu allir í senn! Hljómbotninn er úr sérvöldum viði og má segja höggv- inn úti í skógi af öfum þeirra sem nú smíða. Viðurinn þarf alveg sérstaka meðhöndlun sem tekur langan tíma. Góðir hlutir gerast hægt. Hljómbotn- inn er hugsanlega viðkvæmasti hluti hljóðfærisins, hann gegnir mjög mik- ilvægu hlutverki, ekki að öllu leyti ólíkt þind söngvarans að störfum. Pí- anóið er viðkvæmur gripur sem getur auðveldlega farið í fýlu – jafnvel bestu hljóðfæri. Hljóðfærinu verður að líka spilarinn. Hann má ekki vera grófur eða harðhentur. Það tekur ekki langan tíma „að berja tóninn úr hljóðfærinu“ sé vilja beitt. Að hafa mikinn tón hefur ekkert með krafta að gera, heldur lag og umfram allt stranga hlustun. Píanóið þarf að stilla reglulega, strengina og spilverkið en einnig „inntónera“ sem kallað er, það er að jafna mýkt eða hörku hamranna svo hljóðfærinu líði vel. Aðspurður einhvern tímann í blaðagrein, hvort það hafi ekki verið ótrúleg bjartsýni að leggja fyrir sig píanóleik sem ævistarf, svaraði ég: „Í mínu tilfelli var það ekki nein sérstök bjartsýni, heldur ákveðið afbrigði af heimsku. Ég vissi ekki hvað píanisti var annað en maður sem spilar á pí- anó og satt að segja vakti það enga sérstaka athygli eða aðdáun hjá mér.“ Ég var söngvið barn og hafði yndi af tónlist. Píanóið var tilviljun. Ég hafði ekki snert það þegar ég var fjórtán ára, varla séð píanó. Kynni mín og hljóðfærisins voru hefðbundin. Léttar æfingar og nótna- lestur. Ekki rekur mig minni til þess að lesturinn hafi nokkurn tíma verið mér fjötur, hann er það mörgum. Það er einna líkast því að nemendur verði stjarfir eða frjósi og erfiðið við að lesa og leika samtímis hefur að ósekju komið óorði á það að „þurfa“ að kunna nóturnar. Píanóið var mér stundum afundið. Hvernig átti annað að vera, ég orðinn stífur og klaufi sökum aldurs og fyrri starfa í sumarvinnu við sveitastörf, fiskvinnslu og meira að segja sjó- mennsku. Píanóið mildaðist og gerði sér dælt við mig smám saman en það kostaði vinnu, maður minn! Fræði- lega séð átti ekki að vera mögulegt að ástir tækjust með okkur, hvað þá að nokkur von væri til þess að sambýlið bæri ávöxt. […] Píanóið hefur gefið mér tækifæri til að eignast gríðarlega stóran hóp samstarfsvina. Stærsti hópurinn þar eru söngvararnir blessaðir sem eru orðnir býsna margir á löngum tíma, en einnig píanóleikarar, blásarar og strengjaleikarar og nýir höfundar, ungir og gamlir. Söngvararnir eru mér sérstaklega kærir. Það er mjög nærandi fyrir pí- anóleikara að vinna út frá söngnum. Það verður aldrei meira áberandi ef hljóðfærið syngur ekki en þegar spil- að er með söng. Maður kynnist söngvurunum innan frá ef svo má segja því þeir geyma hljóðfæri sitt innra með sér. Þeir hafa aldrei séð það, en verða að gefa sig því á vald hver og einn. Við hljóðfæraleik- ararnir þurfum hjálp hinna ýmsu hljóðfæra til að gera okkur sönginn mögulegan. Sönginn okkar, því við erum alltaf að reyna að syngja með okkar hætti eða ættum að vera það. Söngurinn er kjarni málsins. Píanistar verða að velja raddir með áslættinum einum og leggja við hlust- ir. Organistar þurfa líka að leggja eyrað við en þeirra er að velja raddir og blæ áður en hafist er handa með því að „registrera“ sem kallað er, eft- ir því sem við á. Þetta er ekki sagt orgelinu til hnjóðs heldur aðeins til að benda á hve eðli hljóðfæranna er af- skaplega ólíkt. Snertingin, áslátt- urinn er líka gjörólíkur. Góðir píanistar spila fimm radda fúgu með þremur mismunandi stefj- um samtímis, þannig að hver rödd syngur sitt stef og lifir sínu lífi með fullu tilliti til hinna. Þetta er mjög flókið en verður að vera átakalaust, með ríkulegt inntak í góðum flutn- ingi. Flutningurinn breytist nánast í helgistund fyrir flytjanda og hlust- anda, sé leikið í réttum anda. Spilið þarf að virka eins og að ekkert sé sjálfsagðara og áferðin eins og að fimm einstaklingar eigi í hlut, hver með sitt stef, allir í senn. Þetta syngja góðir menn með höndum sínum, eyra og hjarta þótt ótrúlegt sé. Hver höfundur hefur í verkum sín- um sinn tón og sitt músíkalska ferli. Píanistinn þarf að vera fær um að skipta um blæ, skipta um hanska ef svo má segja, út í það óendanlega til að vera fær um að nálgast verk meist- aranna, stíl þeirra, blæ og anda hverju sinni. Gefa sig síðan hljóðfær- inu á vald, eigi honum að takast að ná sambandi við höfundinn. Hver höf- undur er heimur út af fyrir sig og svo er ekki síður um verk þeirra. Sérhver sónata Beethovens er sjálfstætt lista- verk sem gerir sínar kröfur, lifir sínu lífi, ber sín skilaboð. Píanóið var tilviljun Jónas Ingimundarson á að baki langt og farsælt starf sem píanóleikari, kennari og kórstjóri. Í bókinni Þankar við slaghörpuna fjallar Jónas um tónlist frá ýmsum sjónarhornum. Morgunblaðið/Ómar Samskipti Jónas Ingimundarson var söngvið barn og hafði yndi af tónlist, en fjórtán ára hafði hann varla séð píanó. Hin árlegu bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana voru afhent fyrr í vikunni í 19. sinn. Íslensk skáldverk 1. Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur 2. Kláði eftir Fríðu Ísberg 3. Þorpið eftir Ragnar Jónasson Ljóðabækur 1. Sálumessa eftir Gerði Kristnýju 2. Smáa letrið eftir Lindu Vilhjálmsdóttur 3. Því miður eftir Dag Hjartarson Íslenskar ungmennabækur 1. Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur 2. Rotturnar eftir Ragnheiði Eiríksdóttur 3. Sölvasaga Daníelssonar eftir Arnar Má Arngrímsson Íslenskar barnabækur 1. Ljóðpundari eftir Þórarin Eldjárn 2. Sagan um Skarphéðin Dungal eftir Hjörleif Hjartarson og Rán Flygenring 3. Þitt eigið tímaferðalag eftir Ævar Þór Benediktsson Handbækur 1. Flóra Íslands eftir Hörð Kristinsson, Jón Baldur Hlíð- berg og Þóru Ellen Þórhallsdóttur 2. Stund klámsins eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur 3. Gleðin að neðan eftir Ninu Brochman og Ellen Stökken Dahl Ævisögur 1. Hasim eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur 2. Hornauga eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur 3. Skúli fógeti eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur 3. Hundakæti eftir Þorstein Vilhjálmsson Þýdd skáldverk 1. Allt sundrast eftir Chinua Achebe 2. Smásögur heimsins Asía og Eyjaálfa eftir ýmsa höfunda 3. Homo sapína eftir Niviaq Korneliussen 3. Etýður í snjó eftir Yoko Tawada Þýddar barnabækur 1. Múmínálfarnir – stórbók eftir Tove Janson 2. Miðnæturgengið eftir David Walliams 3. Handbók fyrir ofurhetjur eftir Elias og Agnes Vahlund Auður Ava Hildur Knútsdóttir Gerður Kristný Ungfrú Ísland besta skáldsagan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.