Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
ALMAR
BAKARI
BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR
Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari
Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18
SÉRBAKAÐfyrir þig
SALATBAR
ferskur allan
daginn
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fólk er ótrúlega fljótt að ná góð-
um töktum á snjóskautunum. Sumir
læra sportið á einum degi og
treysta sér á fljúgandi fart í brekk-
urnar,“ segir Ingi Freyr Svein-
björnsson á Akureyri. Hann fór á
dögunum með fimm öðrum til Aust-
urlanda fjær sem þar tóku þátt í
Bonefight-mótaröðinni á snjóskaut-
um sem er haldin af Sled dogs
Snowskates, norsku fyrirtæki sem
framleiðir skautana. Fyrra mótið
var haldið í kínversku borginni
Harbin en hið síðara í Pyeongchang
í Suður-Kóreu.
Keppendurnir sem utan fóru
voru auk Inga Freys þau Aþena
Marey Jónsdóttir, Katrín Karítas
Viðarsdóttir, Viktor Smári Eiríks-
son og systkinin Ísak Andri og Erla
Kolfinna Bjarnabörn. Keppendur
komu, auk Íslands, frá Finnlandi,
Austurríki, Ameríku, Ungverja-
landi, Frakklandi, Ítalíu, Bretlandi,
Tékklandi, Kína og Suður-Kóreu.
Náðu átta verðlaunasætum
Tilögun Bonefight-mótsins er sú
að fjórir keppendur fara saman nið-
ur braut á snjóskautum og tveir
fyrstu komast áfram í næstu um-
ferð þar til fjórir standa eftir í úr-
slitaferðina. Keppt er í bæði karla-
og kvennaflokki. Einnig er free-
stylekeppni þar sem keppendur
sýna listir sínar, oftast á stökkpalli.
Óhætt er að segja að íslenski
hópurinn hafi staðið sig vel með
átta verðlaunasæti á mótunum
tveimur. Náðu Íslendingar 1, 5. og
7. sæti í karlaflokki og í kvenna-
flokki 2., 3. og 7. sæti. Í freestyle-
hluta keppninnar sigraði Ingi Freyr
í Kóreu og Ísak Andri varð í þriðja
sæti en bar sigur úr býtum í Kína.
Undir skósólunum
Snjóskautar eru eins konar skíði
sem eru undir sóla skónna. Allt er
þetta létt og lipurt en í því felast
einmitt töfrar íþróttarinnar.
„Snjóskautaiðkun er hvarvetna í
mikilli sókn og Norðmaðurinn
Tommy Syversen, sem hefur verið
brautryðjandi í þessu sporti, sér
fyrir sér að þetta verði innan fárra
ára ein þriggja aðalgreinanna í
snjósporti, næst á eftir skíðum og
brettaiðkun. Sjálfur hef ég farið
víða um lönd með Syvertsen að
kynna íþróttina, sem hefur verið
mjög áhugavert,“ segir Ingi Freyr
og heldur áfram:
„Iðkendum um allan heim fer
fjölgandi og á Íslandi eru þeir ein-
hvers staðar í kringum 60. Hér á
Akureyri er mikil gróska í sportinu
enda höfum við frábærar aðstæður
til iðkunar hér í Hlíðarfjalli og
raunar kemur æði margt í íslensku
vetrarsporti einmitt héðan að norð-
an. Á mótinu Iceland Winter Gam-
es, sem var hér fyrir norðan, var
þetta ein af keppnisgreinunum og
gerði góða lukku. Þetta er komið til
að vera.“
Snjóskautasport slær í gegn
Skemmtun á skósólunum Æfa í Hlíðarfjalli Krakkar að norðan náðu
góðum árangri á mótum í Kína og Kóreu Kynna íþróttina víða um veröldina
Skautasport Á myndinni eru, frá vinstri, Aþena Marey Jónsdóttir, Ísak Andri Bjarnason, Ingi Freyr Sveinbjörns-
son, Erla Kolfinna Bjarnadóttir, Katrín Karítas Viðarsdóttir og Viktor Smári Eiríksson. Hópurinn fór til Austur-
landa fjær á dögunum til að keppa í íþrótt sinni, náði þar virkilega fínum árangri og gerði þar garðinn frægan.
Flug Katrín Karítas sýndi
mikil tilþrif í brekkunum.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
segir í yfirlýsingu um Samherja-
málið að eftir fund sem hann átti
með Gizuri Bergsteinssyni hrl. auk
framkvæmdastjóra gjaldeyriseft-
irlitsins í mars eða apríl 2013 hafi
verið ljóst að Seðlabankanum hafi
ekki verið heimilt að setja málið,
eins og það lá fyrir, í sáttaferli. Mál-
ið hafi talist vera meiriháttar í skiln-
ingi laga um gjaldeyrismál. „Þvert á
móti var það beinlínis embættis-
skylda mín eins og lögin voru að
senda málið áfram til sérstaks sak-
sóknara. Ég tilkynnti Þorsteini Má í
símtali þá niðurstöðu en við höfðum
verið í símasambandi um stöðu
málsins á fyrstu mánuðum ársins
2013,“ segir í yfirlýsingunni.
Már rifjar upp orð sín við fjöl-
miðla 25. nóvember sl. um að hann
hefði látið kanna möguleikann á því
að fara sáttaleið í Samherjamálinu í
stað þess að kæra það til embættis
sérstaks saksóknara eins og var gert
10. apríl 2013. Þorsteinn Már Bald-
vinsson, forstjóri Samherja hf., hafi
sagt í fjölmiðlum að hann efaðist um
að þetta væri satt. Már segir það
engu að síður vera satt.
Már segir að sumarið 2012 hafi
hann rætt við Þorstein Má í síma um
stöðuna í málinu. Þá hafi verið rædd-
ur sá möguleiki að setja málið í
sáttaferli sem fæli m.a. í sér ein-
hverjar breytingar á verklagi hjá
Samherja sem myndu skapa traust á
því að gjaldeyrisskil fyrirtækisins
væru í lagi. Í framhaldinu kvaðst
Már hafa beðið framkvæmdastjóra
gjaldeyriseftirlitsins að kanna þenn-
an möguleika. Hún fékk lögfræðiálit
frá Gizuri þar sem kom fram að
Seðlabankanum væri heimilt að
ljúka máli með sátt væri ekki um að
ræða meiri háttar brot. Bankanum
bæri hins vegar að vísa málum
vegna meiri háttar brota til lögreglu.
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabankinn Kærði Samherja
vegna gjaldeyrismála.
Sáttaferli
var ekki
heimilt
Yfirlýsing frá Má
Guðmundssyni