Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Ertu klár fyrir veturinn? Við hreinsum úlpur, dúnúlpur, kápur og frakka Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Ekki virðist jólaskreytingaæði landans, sem Morgunblaðið greindi frá í gær, hafa gengið það langt að nágrannar sem telja sig hafa orðið fyrir ónæði hafi kært til lögreglu. „Fljótt á litið get ég ekki stað- fest að ónæði af jólaskreytingum sé neitt sérstakt vandamál né að mörg svona mál komi inn á borð lögregl- unnar. Lögreglan er ekki með neina sérstaka skráningu um ónæði vegna jólaskreytinga,“ segir Gunn- ar Rúnar Sveinbjörnsson, kynning- arfulltrúi lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu. Gunnar Hilmarsson, aðalvarð- stóri hjá lögreglunni við Dalveg í Kópavogi, og Kristján Ólafur Guðnason, stöðvarstjóri við Vín- landsleið, kannast ekki við kvart- anir vegna jólaskreytinga. Það sama á við á Suðurnesjum þar sem lögreglan segir jólaskreytingar gleðja bæjarbúa og að sannkallaður jólaandi ríki í bænum. Fjölmargir hús- og íbúðareigendur skreyta híbýli sín hátt og lágt fyrir komandi jólahátíð Jólaskraut ekki á borð lögreglu Morgunblaðið/Hari Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Konur sitja ekki við sama borð og karlar þegar kemur að búsetuúr- ræðum í kjölfar meðferðar og end- urhæfingar vegna fíknisjúkdóma og það þarf að laga,“ segir Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á sjúkra- húsinu Vogi, við Morgunblaðið. Hún segir meðferð og endurhæfingu fyr- ir konur í boði í 14 mánuði á Vogi, Vík og göngudeild í Efstaleiti og á Akureyri. „Sérstök kvennameðferð hefur verið í gangi hjá SÁÁ síðan 1995. Síðastliðin tvö ár höfum við gert miklar úrbætur á kvennameðferð- inni og á Vík er áfallamiðuð nálgun. Það eru færri sérúrræði fyrir konur og það sárvantar búsetuúrræði fyrir þær,“ segir Valgerður og bendir á að konur séu ekki nógu margar til þess að halda úti sérúrræðum en vissulega þurfi að bjóða upp á slíkt. „Konur í fíknimeðferð og endur- hæfingu eru á mismunandi stað og því er þeim sinnt á mismunandi hátt með persónubundinni þjónustu. Konur eru þriðjungur þeirra sem koma í meðferð og þær eiga auð- veldara með að komast í meðferð- arúrræði en karlar,“ segir Valgerð- ur sem er ósátt við að borgarstjórn hafi 20. nóvember sl. fellt tillögu sjálfstæðismanna sem fól meðal annars í sér opnun á búsetuúrræði fyrir konur með fíknisjúkdóma. Val- gerður segir ríki og borg vita af vandanum sem taka þurfi á. Samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ hófu samtökin rekstur Vinjar bú- setuúrræðis fyrir 24 karlmenn sem lokið hafa meðferð og endurhæfingu vegna fíknisjúkdóma árið 2008. Vin er rekin samkvæmt samningi milli SÁÁ og velferðarsviðs Reykjavík- urborgar, en velferðarráðuneytið greiðir 2/3 hluta samningsins og borgin 1/3. Samningurinn er end- urnýjaður árlega, um leið og fjár- mögnun er tryggð frá velferðar- ráðuneytinu. Afsakar ekki skort á úrræðum „Búsetu- og meðferðarúrræði fyr- ir tíu konur með alvarlega fíkni- sjúkdóma var einn liður í tillögum Sjálfstæðisflokksins um 140 millj- óna kr. aukafjárveitingu til SÁÁ. Við felldum tillöguna vegna þess að við teljum það hlutverk ríkisins að veita heilbrigðisþjónustu og fíkni- meðferð er hluti af henni. Reykja- víkurborg fyrir utan Akureyri er eina sveitarfélagið sem gert hefur þjónustusamning við SÁÁ til að styðja við þá velferðarþjónustu sem borgin á að veita samkvæmt lög- um,“ segir Heiða Björg Hilmisdótt- ir, formaður velferðarsviðs borgar- innar, og bætir við að samstarfssamningur við SÁÁ um rekstur Vinjar sé að mestu fjár- magnaður af ríkinu. Reykjavíkur- borg greiðir 1/3 af samningnum þrátt fyrir að um sé að ræða heil- brigðismál. „Ef ríkið tekur af skarið með sambærilegt búsetuúrræði fyrir konur þá kæmi vel til greina að borgin kæmi að málinu. Konur virð- ast hafa sótt minna í þjónustu en það afsakar ekki skort á úrræðum fyrir þær. Við vinnum nú að því að finna úrræði fyrir konur með tví- virkan vanda, sem haldnar eru bæði fíkni- og geðsjúkdómum,“ segir Heiða og bendir á að borgin sé nýbúin að gera samning við SÁÁ til ársins 2020 og nú fari fram vinna við stefnumótun fyrir heimilislausa og utangarðsfólk þar sem samstarf við ýmsa aðila sé í skoðun. Sárvantar búsetuúrræði fyrir konur Morgunblaðið/RAX Meðferðarheimili SÁÁ telur brýnt að koma á búseturúrræðum fyrir konur sem lokið hafa meðferð og endurhæfingu vegna fíknar sem allra fyrst.  Ríki og borg koma að búsetuúrræðum karla eftir meðferð og endurhæfingu vegna fíknisjúkdóma  Kemur til greina hjá Reykjavíkurborg að koma að slíku úrræði fyrir konur ef ríkið tekur af skarið Ungur karlmaður hefur verið dæmd- ur í 18 mánaða fangelsi fyrir nauðg- un sem átti sér stað í maí í fyrra. Var maðurinn þá 17 ára gamall og fórn- arlamb hans ólögráða, en dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fram kemur í dómnum að stúlkan hafi farið með frænku sinni, kærasta hennar og hinum dæmda í skemmti- ferð austur í sveitir. Þegar til baka var komið fór kærastinn heim til sín en hin þrjú heim til frænkunnar og sváfu þau öll uppi í sama rúmi. Svaf maðurinn upp við vegg, þá brotaþoli og loks frænkan. Öll voru þau klædd bol og nærbuxum. „Brotaþoli kvað þau hafa sofnað en hún hefði vaknað við að ákærði hefði verið að káfa á henni innan- klæða,“ segir í dómnum, en stúlkan kvaðst hafa ýtt manninum frá sér og hætti hann þá og baðst afsökunar. Þau sofnuðu aftur en svo segist stúlkan hafa vaknað „við að ákærði hafi verið búinn að draga nærbuxur hennar niður á læri og hefði verið að reyna að setja liminn inn í leggöngin á henni þar sem hún hefði legið með bakið í hann. Hún kvaðst hafa sofnað aftur en vaknað á ný við það að ákærði var að setja liminn inn í leg- göngin á henni. Þá kvaðst hún hafa „frosið“ og þá hefði ákærða tekist að koma limnum inn og byrjað að hafa við hana samfarir. Hann hefði svo hætt þegar frænkan hefði vaknað.“ Frænkan segir í vitnisburði sínum að hún hafi vaknað við það að rúmið hreyfðist fram og aftur og eins hefði hún heyrt stunur. Fyrst hafi hún ekki skilið hvað var að gerast, en er hún sneri sér við sá hún brotaþola liggja þar stjarfa og tár láku úr aug- unum á henni. Stöðugur framburður hennar Ungi maðurinn neitaði sök í mál- inu og segist ekki hafa haft samræði við stúlkuna eða önnur kynferðisleg afskipti. Dómurinn taldi framburð brotaþola hins vegar trúverðugan og stöðugan frá upphafi. Við ákvörðun refsingar var meðal annars tekið til- lit til ungs aldurs mannsins. Átján mánuðir fyrir að nauðga ólögráða stúlku  Maðurinn neitaði sök fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.