Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Skólar & námskeið fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 4. janúar NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir fimmtudaginn 20. desember. SÉRBLAÐ Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu valkosti sem í boði eru fyrir þá sem stefna á að auka þekkingu sína og færni. –– Meira fyrir lesendur Hve lengi menn hafa reynt að búa til fullkomið samfélag fyllt réttlæti þar sem allir búa við jafnræði er ekki gott að segja. Samt er ljóst að hugsunin er fráleitt ný og ekki ólíklegt að hafi gengið lengi með mannkyni. Markinu er ekki enn náð og verið að gera tilraunir að fyrirmyndarsamfélagi og er hið daglega viðfang á hinu háa Alþingi Íslendinga sem ræður mestu um. En hefur eitthvað áunnist af allri þessari vinnu? Sjáum við ár- angur? Fer eftir því hver svarar. Sanngirnin segir: „Alveg hik- laust.“ Um aldamótin 1900 var fátt um opinber kerfi sem tóku á mál- efnum fólks eins og í dag. Fáir og engir opinberir staðir voru þá til né sjóðir sem menn gátu komið til og leitað sér aðstoðar hjá, hvort sem var í formi íbúða eða fjár- hagslegs stuðnings. Þá eins og nú fóru menn aldursins vegna, og heilsunnar, af vinnumarkaði og fátt til ráða nema þiggja aðstoð skyldmenna sem tóku fólkið að sér og var partur samfélags þess tíma. Ekki alvont kerfi. Til sveita, og líka í þéttbýlinu, kom oft í hlut eldra fólks að gæta yngstu barnanna á meðan yngra fólkið sá um vinnuna sem býlið bauð. Eng- inn gerði neina athugasemd. Enda um aldagamalt fyrirkomulag að ræða sem ríkið engan veginn kom að en auðvitað studdi þó hvergi væri lagabókstafur til um verkið. Var kerfið vont eða gott? Svarið er að slíkt skipti engu máli í dag af þeirri ástæðu að hlutirnir eru ekki lengur gerðir með þessum hætti og spurningin því út í blá- inn. Um aldamótin 1900 er enn nokkuð um ólæsi og má vera að þeir eldri, sem þá voru læsir, hafi kennt barnabörnunum að draga til stafs og lesa og notað innitímann í verkið á meðan fólkið enn vann útistörfin. Tuttugasta öldin, alltént á Ís- landi, er afskaplega róttæk öld í sögunni því á henni fæddist margt sem við enn njótum góðs af og höfum frá þeim tíma þróað og gert sumt að vissri fegurð sem með árunum gagnast öllu fólki, þó að til að byrja með hafi verkið allt verið, segi ekki í skötulíki, en því sem næst. Samtrygging- arkerfin koma um og eftir 1920. Þau gefa samfélaginu færi á að breytast og að svara kalli tímans og samfélagsins. Þá komu grunnskólar og leikskólar. Barnaheimili, dagvistun, voru og reist sem taka við krökkum frá heimilum landsmanna að ákveðnum aldri og gæta þeirra á meðan foreldrar sinna starfi sínu á vinnumarkaði sem tekur stakka- skiptum. Allar þessar breytingar gera kröfu á ríkisvaldið um sinn þátt. Margt fylgdi. Til að mynda skólaskyldan með því að skólarnir höfðu krakkana tiltekinn tíma dagsins og notuðu tímann til að kenna þeim lestur, draga til stafs og reikna og önnur fög sem talið var brýnt að vita skil á. Fyrir tíma grunnskóla og lagabókstafs- ins var þessi litla kennsla sem fyr- ir var mest á höndum einstaklinga heima fyrir. Grunnskólinn tók við verkinu. Fram að honum var kennslan svona „hipsum haps“ og fráleitt gengið skipulega til verks en það breyttist með inngripum ríkisvaldsins og lögum Alþingis. Í samfélaginu er skylda ríkis veruleg og felst mest í að gera grunna til frekari brúks. Ekkert ríkisvald er til af því bara heldur hefur það skyldum að gegna gagn- vart fólki því sem landið byggir. Ríki sem ekki stendur sig um vissa grunnþætti hefur gleymt skyldu sinni og hlýtur því að starfa í óþökk Guðs sem segir, Rómverjabréfið, 13. kafli, vers 4: „Því að þau (ríkisvaldið, innskot höfundar) þjóna Guði þér til góðs. En ef þú gerir það sem illt er þá máttu óttast, yfirvöld bera ekki sverð sitt ófyrirsynju. Þau þjóna Guði og er skylt að refsa þeim sem illt fremja.“ – Skýrt kveðið. Hér sjáum við visst skipulag sem krefur ríkið um sitt og okkur þegnana um okkar þátt og að hvort tveggja starfi saman í ein- ingu. Við sjáum að ríkið getur ekki verið sett fram gegn fólki né fólkið gegn eigin ríki eins og mik- ið er í tísku í dag að gera hvort sem er í orði eða verki. Það stafar af aukinni vanþekkingu á Jesú. Hefur enda ríkið skatttekjur af vinnu fólksins og landslög kveða á um að svo sé. Sum verk eru óframkvæmanleg og óheppileg komi ríkið ekki að málum. Ríkið lifir okkur öll. Einstaklingur deyr og með honum verk hans sem með tímanum molna og hverfa. Ríkið og starfsemi þess er áfram. Á tuttugustu öld eygja menn loks aðskilnað við dönsku krúnuna og fara að hugsa stærra. Smám saman byrja verkin að tala hærra og til meiri heilla þessari þjóð en mögulegt var á tímum einokunar- innar. Við hana var oftast talað fyrir daufum eyrum, eins og gerist þegar fólki er „slétt sama“. Hér kemur fram mikilvægi sjálfstæðis landa. Að þurfa að bera allt undir aðra er deyfandi til lengdar. Tuttugasta öldin gaf Íslend- ingum fullt sjálfstæði af sjálfstæð- isbaráttunni sem staðið hafði í nokkurn tíma og var dropinn sem holaði steininn og klauf. Verulegur ávinningur hefur orðið af öllu þessu streði forvera okkar sem í stóðu og við í dag búum enn að með kerfum þeim sem af fæddust og landsmenn geta sótt í og fengið aðgang að og nýtt. Hvort nóg sé gert er annað mál. Skyldur ríkis og þegns Eftir Konráð Rúnar Friðfinnsson » Þá eins og nú fóru menn aldursins vegna, og heilsunnar, af vinnumarkaði og fátt til ráða nema þiggja aðstoð skyldmenna sem tóku fólkið að sér. Konráð Rúnar Friðfinnsson Höfundur starfar í kirkju og við kirkjuleg málefni. Það verður nú að segjast að það hefur verið hjákátlegt að fylgjast með umræð- unni um Klausturs- þingmennina svoköll- uðu. Hræsnin hrein- lega lekur af fólki þegar það ræðst gegn þingmönnunum og heimtar höfuð þeirra. Þingmennirnir eru í ómögulegri stöðu, þeir geta ekki beð- ist afsökunar rétt, ekki hjálpar ef þeir taka launalaust leyfi til íhugunar (kostar það þó Gunnar og Bergþór fleiri hundruð þúsund). Virðist krafan vera sú að þau missi vinnuna, öll sem eitt, fyrir að talað var með ljótum hætti í samsæti þeirra, jafnvel burt- séð frá því hverjir létu orðin falla. Ef fólk ætti að missa vinnuna fyrir að tala ógætilega eða verða vitni að slíku þá væri eflaust um fjórðungur lands- manna atvinnulaus hverju sinni. Fólk keppist við að lýsa yfir hneykslun sinni og heilagleika vegna þess að enginn eigi að tala svona. Sannleikurinn er hinsvegar sá að steinarnir fljúga úr glerhúsum lands- manna. Margir geta ekki einu sinni setið á sér í orðbragði á sama tíma og þeir lýsa frati á þessa sex þingmenn sem sátu Klaustursfundinn fræga. Einstaklingurinn er gáfaður, en hópurinn ekki. Það er þekkt að þegar einhver lendir í vandræðum og hópur fólks er viðstaddur þá hikar fólk við að hjálpa og gerir jafnvel ekkert, þetta kallast sjónarvottaáhrifin (e. Bystander effect). Það þýðir ekki að fólk sé vont, það eru aðrir þættir sem hafa þar áhrif. Við höfum að sama skapi flest tekið eftir því að í hóp get- ur umræða stigmagnast. Fólk getur sagt sterkari hluti í skjóli þess að ein- hver annar talaði í líkum dúr og þannig getur umræða stigmagnast, ég tala nú ekki um þegar áfengi skerðir dómgreind. Ekki ætla ég að réttlæta tal Klausturshópsins en ég skil hinsvegar að umræðan geti hafa farið fram úr þeim. Flestir hafa orðið vitni að óhefluðu orðbragði þegar fólk í skjóli „einrým- is“ talar ógætilega um aðra, breytir engu máli í hvaða flokki það fólk hef- ur verið. VG, XB, XD, XP og XS, eng- inn af þessum flokkum hefur verið svo heilagur að ekki hafi menn þar innanborðs talað frjálslega og ógæti- lega í trausti þess að það sem þeir segi komi ekki fram opinberlega. Það hefur ekki skort mannfyrirlitningu af hálfu margra réttsýnisriddara gagn- vart þeim sem hafa aðrar skoðanir en þeir, menn hafa jafnvel opinberlega sakað samstarfsmenn sína á þingi um að hata annað fólk, vera glæpamenn og þaðan af verra, allt í nafni „rétt- lætis“. Það virðist vera þannig að ef þú hefur „rangar“ skoðanir þá megi gefa út skotleyfi á þig. Það þýðir ekki að fólk sé vont, það þýðir bara að við séum mannleg. Aðstæður orðræðu skipta máli. Að vera í ákveðnum aðstæðum þar sem umræðan magnast upp getur verið snjóbolti sem viðstaddir hafa enga stjórn á. Ég hygg að slíkt hafi hent í tilfelli Klaustursþingmanna. Ég hef ekki trú á því að þau séu öðrum verri, þau gera mistök eins og aðrir og gleyma sér í að- stæðunum. Slíkt hið sama virðist vera að gerast í opinberri um- ræðu um þingmennina. Það hoppa allir á vagn- inn og leyfa sér sífellt stigmagnaðri orð um þetta fólk, það nýjasta er að þau séu ofbeld- ismenn. Það er sorglegt að sjá samfélagið for- dæma þá og fara svo í sama pyttinn til að ganga frá þeim. Að draga samræður úr kvöldi yfir í dagsbirtu mun sjaldnast fá sann- gjarna meðferð. Fólk gleymir sér svo mikið að horfa á trén í þessu máli að það sér ekki skóginn. Hvað er það sem skipt- ir höfuðmáli? Vissulega töluðu þessir þingmenn með ósæmilegum hætti, en við skulum ekki gleyma aðilanum sem með einbeittum brotavilja sat í yfir þrjá klukkutíma að hlusta á og taka upp einkasamræður fólks, það er eftir minni bestu vitund lögbrot sem nauðsynlegt er að bregðast við sem fordæmi fyrir framtíðina. Hún bítur svo höfuðið af skömminni og sendir upptökurnar á fjölmiðla sem bregðast ábyrgðarhlutverki sínu og birta fréttir úr þessum upptökum. Fjölmiðlar hafa í þessu máli brugðist ábyrgðarhlutverki sínu og dottið í hlutverk gulu pressunar og Gróu á Leiti. Þetta eru ekki fréttir sem eiga upp á borð almennings. Eina sem telja má að ætti erindi var gáleys- islegt tal Gunnars Braga um veitingu sendiherraembættis, allt annað er slúður sem enginn heiðvirður fjölmið- ill hefði átt að birta. Með þessu hafa átt sér stað ákveð- in griðrof í þjóðfélaginu. Fólki finnst þetta í góðu lagi þar sem þetta eru jú þingmenn og starfa hjá þjóðinni, allt skal uppi á borðum og þau skulu enga friðhelgi eiga, þrátt fyrir að vera venjulegt fólk. Það sem fólk gleymir í þessu samhengi er að þegar búið er að rjúfa þessi vé þá er enginn óhultur. Það má alltaf réttlæta upptökur og birtingar með einhverjum hætti ef vilji er til. Það er nauðsynlegt að þessi þróun sé stöðvuð. Ég vona að við berum gæfu til að sjá stærsta málið í þessu og það eru griðrof upptökunnar og birting henn- ar. Það er þróun sem við verðum að stöðva, við getum ekki samþykkt þess háttar vinnubrögð. Því miður er það svo að fólki finnst of gott að smjatta yfir óförum annarra og fagn- ar þangað til röðin kemur að því, þá allt í einu verður veröldin ósanngjörn. Reynum að læra áður en það gerist og leyfum ekki fjölmiðlum að gera sér mat úr efni sem á ekkert erindi upp á borð. Húrrandi klikkuð umræða Eftir Ólaf Hannesson Ólafur Hannesson » Við skulum ekki gleyma aðilanum sem með einbeittum brotavilja sat í yfir þrjá klukkutíma að hlusta á og taka upp einka- samræður fólks. Höfundur er framkvæmdastjóri. Var þessi afsökunarbeiðni þá dauð og ómerk? Varst þú ekki að biðjast afsökunar fyrir hönd þingsins? Maður fer ekki að lögsækja þann sem maður biður fyrirgefningar. Var þjóðin ekki beðin afsökunar? Eða er Bára Eymundsdóttir ekki hluti af þjóðinni!? * Og umræddir þingmenn þá ekki hluti af þinginu!? Elísabet Jökulsdóttir Fyrirspurn til forseta Alþingis Höfundur er skáld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.