Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is „Tíminn er grunnþemað í myndinni, sem byrjar í draumi næturinnar og endar á því að Matthías lýkur við ljóð undir miðnættið. Í lokin brjót- umst við út úr hringtíma dags- ins og til ársins 2012; teygjum okkur út úr þess- um tímaramma sem við vorum stödd í – þessum eina degi um aldamótin síð- ustu,“ segir Er- lendur Sveinsson kvikmyndagerð- armaður, annar tveggja framleið- enda heimildamyndarinnar Þvert á tímann, sem fjallar um skáldið og ritstjórann Matthías Johannessen. Myndin verður frumsýnd kl. 13.30 sunnudaginn 16. desember í Há- skólabíói og er það eina sýning hennar í kvikmyndahúsi. Þótt ekki hefði þurft að kynna Matthías fyrir Íslendingum réðst Erlendur ásamt Sigurði Sverri Pálssyni kvikmyndatökumanni í gerð myndarinnar aldamótaárið 2000. Í lok þess árs lét Matthías af störfum sem ritstjóri Morgunblaðs- ins eftir 41 ár. Í ritstjórastóli gat hann sér orð fyrir að standa dyggan vörð um íslenska menningu og tungu og bera hag bókmennta og lista fyrir brjósti. Á sama tíma sendi hann frá sér fjölda ljóðabóka, þá fyrstu, Borgin hló, árið 1958, skáld- sögur, leikrit, ritgerðir, ævisögur og samtalsbækur. Og hann er enn að, ljóðabókin Enn logar jökull, er ný- komin út. Matthías er 88 ára. Einn dagur Kvikmyndin hverfist um heim rit- stjórans og heim skáldsins. „Við fé- lagarnir förum ákveðna leið í gerð heimildamynda, ekki þessa venju- legu, sem allir búast við í slíkum myndum. Til dæmis eru engir við- mælendur í myndinni um Matthías, ekki einu sinni hann sjálfur. Hlut- verk okkar kvikmyndagerðarfólks er að reyna að finna myndrænar lausnir til að segja sögur þar sem áhorfendur geta sett sig í spor þess sem um er fjallað og fengið innsýn í líf hans og störf.“ Þótt myndin lýsi bara einum degi, er hún tekin upp á mörgum dögum. Kúnstin felst í frásagnartækni kvik- myndagerðarmannanna sem er á mærum leikinna mynda og heim- ildamynda. Þeir Erlendur og Sig- urður Sverrir eru engir nýgræð- ingar. Erlendur, sem er forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands, á yfir- gripsmiklar heimildamyndir að baki og hafa þeir Sigurður Sverrir unnið saman að þeim öllum. Af þeim má nefna myndaflokkinn Verstöðina Ís- land og Ísland þúsund ár. Árið 2001 gerði hann kvikmyndina Málarinn og sálmurinn hans um litinn, sem fjallar um föður hans, Svein heitinn Björnsson listmálara. Myndin er hvorki ævisöguleg né listfræðileg. Ekki frekar en myndin um Matt- hías, Þvert á tímann. Tvær systurmyndir „Þegar við vorum að vinna að myndinni um föður minn, fengum við áhuga á að gera mynd um Matt- hías. Þeir voru góðir vinir og ég hef alltaf litið á þessar tvær myndir sem nokkurs konar systurmyndir, enda aðferðafræðin á svipuðum nót- um.“ Að sögn Erlends tók Matthías vel í að þeir Sigurður Sverrir gerðu um hann kvikmynd. „Ég fann strax að hann treysti okkur. Hann hafði séð hvernig við unnum í Málaranum og svo höfðum við báðir skrifað um kvikmyndir í Morgunblaðið. Hann virti fyrri verk okkar og var aldrei með afskiptasemi. „Erlendur, þetta er þín mynd,“ sagði hann ævinlega þegar verkið bar á góma. Markmið okkar var að búa til mynd sem lýsti Matthíasi eins og hann kom okkur fyrir sjónir á þeim tíma sem myndin er gerð. Og hugmyndin að Matthías fengi að vera eins mikið hann sjálf- ur og hægt væri – ritstjórinn og skáldið.“ Vegna erfiðleika í fjármögnun seinkaði myndatökunni árið 2000 frá vori til hausts, sem var þó ekki viðlíka seinkun og á endanlegum frágangi myndarinnar til sýningar. Sautján ár eru liðin frá því þeir fé- lagar tóku upp skáldahlutinn. En það er önnur saga. Í millitíðinni, eða árið 2009, varð mikil breyting á lífi Matthíasar þegar eiginkona hans, Hanna Ingólfsdóttir Johannessen, lést. Þau hjónin höfðu verið svo náin og samrýnd að þeim Erlendi og Sig- urði Sverri þótti nauðsynlegt að bregðast við. Eins og fluga á vegg „Árið 2012, sama ár og Matthías sendi frá sér ljóðabókina Söknuð, tókum við því upp viðbótarefni, sem við tvinnuðum síðan inn í myndina. Með þessu brjótumst við út úr spennitreyju eins dags, þar sem rit- stjórinn og skáldið slást um tímann og bætum við nýjum efnisþætti þar sem skáldið eitt ræður ríkjum.“ Margir sem enn vinna á Morg- unblaðinu muna þegar Sigurður Sverrir elti Matthías á röndum með upptökuvélina, var eins og fluga á vegg á fundum og reyndi aug- ljóslega að láta alls staðar lítið fyrir sér fara. „Sverrir vann að mestu einn að þessum upptökum og sá bæði um hljóðupptöku og lýsingu. Eftir nokkra daga voru starfsmenn farnir að venjast þessum þögla, langa manni, sem sniglaðist um og varð fljótlega hluti af þeirra daglega vinnuumhverfi.“ Heimur ritstjórans og skáldsins fléttast saman myndina út í gegn. Upphaflega stóð til að draga upp eins skörp skil og hægt væri á milli þessara tveggja heima, bæði mynd- rænt og efnislega, og nota tvenns konar tækni í því skyni. „Við ætluðum að taka skáldahlut- ann upp á super 16 mm filmu en rit- stjórahlutann með stafrænni tækni. Þar sem okkur tókst ekki að fjár- magna myndina almennilega urðum við að taka hana alla stafrænt. Þetta var í árdaga stafrænnar kvikmynda- gerðar og því vorum við ekki með öll þau tæki sem núna þykja ómiss- andi. En útkoman er alveg prýðileg. Til þess að gera skilin milli heim- anna tveggja sýnileg, tókum við skáldahlutann upp með sama hætti og við værum að taka á filmu; spar- lega og alla myndina nákvæmlega eftir handriti. Ennfremur skiptum við stjórn myndarinnar á milli okk- ar, ég stjórnaði skáldahlutanum og Sigurður Sverrir ritstjórahlutanum. Og til að undirstrika muninn á rit- stjóranum og skáldinu enn frekar, er ritstjórinn í svarthvítu og skáldið í lit.“ Sýsl við raunveruleikann Spurður hvort Matthías og þeir sem sjást í bakgrunni ritstjórahluta myndarinnar hafi verið meðvitaðir um að verið væri að kvikmynda þá, segir Erlendur að svo hafi ekki ver- ið nema kannski í blábyrjun. Matt- hías hafi til dæmis leikið sjálfan sig afar vel og þeir Sigurður Sverrir verið afskaplega ánægðir með frammistöðu hans. Í ljósi þess sem Erlendur áður sagði um að Matthías hefði fengið að vera sem mest hann sjálfur er hann spurður hvort ekki séu öf- ugmæli að tala um „leik“. „Í myndum af svipaðri gerð, sem stundum hafa verið kallaðar stýrðar heimildamyndir, leikur fólkið sjálft sig, en lýtur um leið stjórn kvik- myndagerðarmannsins og gerir það sem það er beðið um að gera. Kvik- myndagerðarmenn eru að sýsla með raunveruleikann, nema þeir ákveði að vera eins og hlutlausir áhorf- endur. Það finnst mér ekki skemmtilegt. Kvikmyndin er galdur þegar áhorfendur sogast inn í þann heim sem hún speglar og trúa á hann. Ef sá heimur er ekta fyrir þá finnst mér björninn unninn – að galdurinn hafi orðið til,“ útskýrir Erlendur og bætir við að vitaskuld séu þeir Sigurður Sverrir alltaf bún- ir að rannsaka viðfangsefnið áður. „Við erum ekki að búa til eitt- hvað óekta. Auk þess erum við í myndinni Þvert á tímann að gefa innsýn í veröld sem var. Þar sem Morgunblaðið var áður í Kringl- unni eru öll ummerki þess horfin. Matthías hefur fyrir löngu staðið upp úr ritstjórastólnum, en skáldið lifir enn, frjótt og hugmyndaríkt sem aldrei fyrr. “ Skáldið Matthías stóð upp úr ritstjórastólnum fyrir mörgum árum, en hefur fjarri því sagt skilið við skáldskapinn. Ritstjórinn Matthías á ritstjórnarfundi á Morgunblaðinu. Frá vinstri: Björn Vignir Sigurpálsson, Guðrún Hálfdánardóttir og Karl Blöndal. Tveggja heima maður  Þvert á tímann er kvikmynd eftir Erlend Sveinsson um skáldið og ritstjórann Matthías Johannessen  Myndin verður frumsýnd kl. 13.30 sunnudaginn 16. desember í Háskólabíói Erlendur Sveinsson SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl. PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir fimmtudaginn 20. desember fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn 2. janúar 2019 Heilsa& lífsstíll

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.