Morgunblaðið - 14.12.2018, Page 37

Morgunblaðið - 14.12.2018, Page 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Ég hef á tilfinningunni að viðséum að lifa efstu dagabókarinnar. Það er ekkibara innihald bókanna sem mætir fálæti heldur er það bókin sjálf sem hlutur. Bókina rekur út á jaðarinn á menningu okkar,“ (161) skrifar Ragnar Helgi Ólafsson í Bókasafn föður míns. Og hann bætir við að bókin sé „úrelt tæki.“ Það má kallast merkilegt að höf- undur sem tjáir jafn myrka sýn á bókina og framtíð þessa forms eða miðils skuli velja að fjalla um það í bók, þessu úrelta tæki. Og það í afar athyglisverðu, fal- lega einlægu, marglaga og vel hönn- uðu bókverki, sem hrífur á margs- konar hátt. En við lesturinn kemur líka smám saman í ljós að höfund- urinn ann bókum, á sinn hátt – hann er líka alinn upp við þær og hefur að einhverju leyti af þeim lifibrauð, sem höfundur og einn okkar fremsti bóka- hönnuður. Hann segir líka að nautnin við bókagerð felist ekki endilega í veraldlegri umbun, kjarninn sé sá að „það er gaman að gefa út bækur, verknaðurinn sjálfur er stærsti hluti launanna“. (140) Á kápu bókarinar er hún sögð sálu- messa og á titilsíðu er bætt um betur: sálumessa (samtíningur). Uppleggið þar með skilgreint; verkið hefur ramma en innan hans rúmast margt æði forvitnilegt. Í upphafi verksins situr höfundurinn í bókaherbergi föð- ur síns og hefur það hlutverk að leysa upp um fjögur þúsund binda fallegt og merkilegt bókasafn, hann á að koma skræðunum út úr húsi, „í verð, í réttan stað eða rangan – allavega eitthvað annað.“ Og höfundurinn ætl- ar ekki að taka neinar bækur heim með sér, hann vill ekki hafa bækur í kringum sig. Það er líka ljóst að um leið og höf- undurinn fer yfir safnið, veltir því fyr- ir sér, flokkar og sendir út úr húsi, þá er hann „að kveðja bókina sem hug- tak og sem hlut.“ (11) Þetta var bókasafn Ólafs Ragn- arssonar bókaútgefanda, föður höf- undarins, og ég kom eitt sinn þar heim að taka af honum myndir og sem unnandi bóka og bókasafna – og jafnframt ástríðufullur bókasafnari! – naut ég samtals um bækur og safnið. Þessi bók er fögur og einlæg sálu- messa yfir Ólafi því um leið og höf- undurinn leysir bókasafn hans upp, fjallar hann af mikilli hlýju um föður sinn sem lést fyrir rúmum áratug úr skelfilegum sjúkdómi, og um forfeður hans á Siglufirði – sem einnig voru ástríðufullir bókamenn. Ólafur og forfeður hans standa hér sem bæði unnendur og vörslumenn bóka- og bókmenningar og höfundurinn skilur þá vel, þótt hann sé svartsýnn á fram- tíð bókarinnar og sjái að verðmæti þeirra fer dvínandi. „Að horfa upp á stæður eftir stæður af óseldum bók- um í lagergeymslum, ár eftir ár, fyllir engan mann tilfinningu fyrir verð- mæti bóka, svo mikið er víst.“ (98) segir hann. Og Ragnar Helgi fjallar listavel um bókasöfn sem fyrirbæri, og um söfn- unina sem getur í sjálfu sér verið skapandi: „Bókasöfn eru líka kom- pósisjón. Það má flokka bækurnar eftir margbreytilegum lögmálum. Bókasafnarinn hefur mikið listrænt frelsi.“ (92) Það kemur höfundinum á óvart hvað bækur um svokallaðan þjóð- legan fróðleik eru stór hluti bóka- safnsins. Hann hefur í upphafi lítinn áhuga á slíkum skrifum, ekki frekar en á skáldsögum, en fer samt að kynna sér bækurnar og endar á því að nota tilvísanir í þær sem stóran, margradda og mjög áhugaverðan hluta að þessari bók. „Og nú langar mig ekkert að lesa nema meira af því sama, meiri þjóðlegan fróðleik,“ (165) segir hann undir lokin. Vissulega er athyglisvert að lesa um upplausn bókasafnsins og til að mynda dvínandi verðgildi bóka. „Framboðið á gömlum bókum eykst veldisvíst á hverju ári. Og eftir- spurnin er neikvæð spegilmynd af því falli,“ (45) skrifar Ragnar Helgi og skiptir sjálfur 22 fullum kössum af bókum fyrir eina bók eftir Karl Ein- arsson Dunganon greifa. Bókasafn föður míns er vel skrifuð og mótuð bók sem hrífur á margskon- ar hátt og vekur lesandann til um- hugsunar um minningar, hefðir og söguna. Þetta er ánægjulestur þó svo að höfundur spái því að lestur „langra texta [verði] varla hversdagsíþrótt í framtíðinni. Líklega verður slík iðja skilgreind sem einhverskonar sérfræðihæfni eða sniðugt hobbí …“ (145). En kannski er einhver von fyrir bókina. Í upphafi ætlaði höfundur ekki að taka neinar bækur með heim en svo rötuðu einhverjar í geymslu hans – og mögulega lengra. Hann skrifar í bókarlok: „Allt í einu finnst mér það einkennileg skylda mín að skilja eftir einhverjar bækur sem börnin mín þurfi að fara í gegnum einn daginn; að annað væri eigin- girni.“ (177) Bókina rekur út á jaðar- inn á menningu okkar Morgunblaðið/Ófeigur Ragnar Helgi Bók hans „hrífur á margskonar hátt og vekur lesand- ann til umhugsunar um minningar, hefðir og söguna.“ Minningasaga Bókasafn föður míns bbbbm Eftir Ragnar Helga Ólafsson. Bjartur, 2018. Innbundin 197 bls. Myndir, bókaskrá og nafnaskrá. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Tilnefningar til Íslensku þýðinga- verðlaunanna voru kunngjörðar í gær. Verðlaunin fyrir vandaða þýð- ingu á fagurbókmenntaverki hafa verið veitt árlega frá 2005 en til þeirra var stofnað til að vekja at- hygli á ómetanlegu framlagi þýð- enda til íslenskra bókmennta. Í ár voru tilnefndar sex þýðingar og sjö þýðendur. Það eru Elísa Björg Þorsteinsdóttir fyrir þýðingu sína á Etýður í snjó eftir Yoko Ta- wada sem Angústúra gefur út; Ingi- björg Eyþórsdóttir fyrir Hin óró- legu eftir Linn Ullmann sem Bjartur gefur út; Gunnar Þorri Pétursson og Ingibjörg Haraldsdóttir fyrir Hinir smánuðu og svívirtu eftir Fjodor Dostojevskí sem Forlagið gefur út; Uggi Jónsson fyrir Sæluvíma eftir Lily King sem Angústúra gefur út; Einar Thoroddsen fyrir Víti eftir Dante sem Forlagið dreifir og Hjalti Rögnvaldsson fyrir Þetta er Alla eft- ir Jon Fosse sem Dimma gefur út. Um þýðinguna á Etýður í snjó segir m.a.: „Fjallað er um hið mann- lega og hið dýrslega, áþján og kúg- un, en um leið er tekist á við stærstu viðfangsefni nútímans… Elísu tekst með næmi og lipurð að færa þessa margbreytilegu menningar- og tungumálaheima yfir á íslensku.“ Um Hin órólegu segir: „Þýðand- inn þarf að takast á við margvísleg form og túlka stórar persónur svo þær fái að lifa (og deyja) án þess að sérkenni verksins glatist. Ingibjörgu tekst það af lipurð …“ Um Hinir smánuðu og svívirtu segir: „Á máli sem er í senn gamalt og nýtt opnar lifandi þýðing Gunn- ars og Ingibjargar 19. aldar Rúss- land upp á gátt fyrir íslenskum les- endum.“ Um Sæluvíma segir: „Textinn sem Uggi tekst á við er líf- rænn, tjáir skynjun og ástand þess sem flýr úr vestrænu menningar- umhverfi í rakan og heitan frum- skóginn. Á yfirvegaðan og sannfær- andi máta tekst Ugga að fella íslensku að heimi sem er flestum okkar fjarlægur.“ Um Víti segir: „Áralöng glíma þýðandans, Einars, við ítalska rím- formið […] er virðingarverð og reynir verulega á þanþol tungumáls- ins. Þótt þýðandinn beri ætíð virð- ingu fyrir upprunaverkinu verður þýðingin á köflum gáskafull og fjörug með óvæntum og oft grín- aktugum tilvísunum …“ Um Þetta er Alla segir: „Þýðing Hjalta virkar áreynslulaus, á látlausu máli sem fellur vel að efni og inntaki sög- unnar.“ Sjö þýðendur tilnefndir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleði Þýðendur veittu glaðir tilnefningum viðtöku í Borgarbókasafni í gær.  Tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna í ár Elly (Stóra sviðið) Lau 15/12 kl. 20:00 182. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Lau 12/1 kl. 20:00 188. s Sun 16/12 kl. 20:00 183. s Fös 4/1 kl. 20:00 186. s Sun 13/1 kl. 20:00 189. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 187. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 14/12 kl. 20:00 24. s Sun 30/12 kl. 20:00 25. s Fös 4/1 kl. 20:00 26. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Fös 4/1 kl. 20:00 aukas. Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas. Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Sun 6/1 kl. 20:00 15. s Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Sun 16/12 kl. 20:00 Lokas. Allra síðasta sýning! Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 15/12 kl. 13:00 7. s Lau 22/12 kl. 13:00 9. s Sun 16/12 kl. 13:00 8. s Lau 22/12 kl. 15:00 aukas. Aðeins sýnt á aðventunni. Ríkharður III (Stóra sviðið) Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s Ég, tveggja stafa heimsveldi Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas. Allra síðasta sýning! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Lífið er ekki nógu ávanabindandi BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fim 20/12 kl. 19:30 Fors. Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 21/12 kl. 19:30 Fors. Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Fly Me To The Moon (Kassinn) Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 16/3 kl. 15:00 15.sýn Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Insomnia (Kassinn) Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Sun 6/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00 Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Viðburðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.