Morgunblaðið - 17.12.2018, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 7. D E S E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 296. tölublað 106. árgangur
Hurðaskellir kemur í kvöld
7
jolamjolk.is
dagar
til jóla
MYND UM
MATTHÍAS
FRUMSÝND
HUNDELSKAR SKYTTUR
ÍSLENSK TÓNSKÁLD
ERU HÖRKUDUGLEG
OG HÆFILEIKARÍK
SAUMAR SOKKA Á HUNDANA 12 HAFSTEINN ÞÓRÓLFSSON 26ÞVERT Á TÍMANN 27
Fjölgun nákvæmra mælitækja við Heklu á að gera
jarðvísindamönnum kleift að sjá óróleika í eldstöðinni
fyrir með lengri fyrirvara en áður hefur verið mögu-
legt. Sett hafa verið upp alls um 30 tæki við fjallið sem
eru þannig stillt að komi útslag eða einhver óróleiki
fram sést það á skjám á Veðurstofunni aðeins fimm
mínútum síðar.
Einnig fer viðvörunarkerfi í gang ef kemur útslag
sem bendir til gosóróa.
Þetta segir Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvár
á Veðurstofu Íslands. Í dag eru alls fimm eldstöðvar
undir smásjá vísindamanna vegna goshættu; Hekla,
Katla, Grímsvötn, Bárðarbunga og Öræfajökull. Fyrir
nokkrum dögum æfðu vísindamenn, Almannavarnir
og flugumferðarstjórar viðbrögð við gosi í Öræfajökli
eftir þeirri sviðsmynd að aska hefði dreifst bæði til
Kanada og Evrópu – með tilheyrandi áhrifum til dæm-
is á allar flugsamgöngur yfir Atlantshafið.
„Öræfajökull er í gjörgæslu,“ segir Kristín í samtali
við Morgunblaðið í dag. »6
Heklugosin hafi fyrirvara
Mælitækjum fjölgað Fimm eldstöðvar undir smásjá
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hekla Mælum hefur verið fjölgað við eldfjallið.
Opið var í jólaskógi Skógræktarfélags Reykjavíkur
í Heiðmörk um helgina, en þangað gátu fjölskyldur
farið til að höggva eigin jólatré.
Jólasveinninn Pottaskefill, sem kom til byggða á
laugardag, var hinn hressasti og heilsaði vegfar-
endum sem áttu leið um skóginn við Elliðavatn í
gær. Til að auka jólastemninguna var kveikt á varð-
eldi og boðið upp á kakó, kaffi og smákökur.
Morgunblaðið/Hari
Pottaskefill heilsaði skógargestum
Aðeins vika til jóla og fleiri jólasveinar á kreiki
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Samning frumvarps um rekstrarumhverfi
einkarekinna fjölmiðla er langt komin og er
stefnt að því að kynna frumvarpsdrögin í
Samráðsgáttinni í jan-
úar, að sögn Lilju Dagg-
ar Alfreðsdóttur,
mennta- og menningar-
málaráðherra. Hún
stefnir að því að leggja
frumvarpið fram á Al-
þingi í vetur og að end-
urgreiðslur á hluta
kostnaðar vegna fram-
leiðslu á fréttum og
fréttatengdu efni komi
til framkvæmda á næsta ári.
„Það er mjög góður gangur í þessu hjá
okkur,“ sagði Lilja í samtali við Morgun-
blaðið. Hún sagði að stuðningur stjórnvalda
á Norðurlöndum við fjölmiðla væri hafður
til hliðsjónar við samningu frumvarpsins.
Einnig hvaða skilyrði væru sett þar og
hvernig þau ættu við íslenskar aðstæður.
„Við byrjum á endurgreiðslu á ritstjórnar-
kostnaði og það er forgangsmál og verður í
þessu frumvarpi,“ sagði Lilja. „Við erum
einnig að skoða kostnað við textun og tal-
setningu sem tengist því að styðja við ís-
lenskt mál. Líklega verður samið sérstakt
frumvarp um það. Auk þess erum við að
skoða auglýsingamarkaðinn og fleira.“
Nefnd um rekstrarumhverfi einkarek-
inna fjölmiðla skilaði skýrslu í janúar 2018
og gerði hún tillögur í nokkrum liðum, með-
al annars um endurgreiðslu á hluta kostn-
aðar vegna framleiðslu á fréttum og frétta-
tengdu efni, að Ríkisútvarpið fari af
auglýsingamarkaði, að virðisaukaskattur á
sölu og áskriftum í rafrænu formi og hljóð-
og myndefni eftir pöntun verði 11%, að
áfengis- og tóbaksauglýsingar verði leyfðar
og að hluti kostnaðar vegna textunar og tal-
setningar verði endurgreiddur að hluta.
Styðja
við fjöl-
miðla
Frumvarpið verður
kynnt í janúar
Lilja
Alfreðsdóttir
Á fundi bæjarráðs Kópavogs í
síðustu viku var lagt fram erindi
frá sviðsstjóra velferðarsviðs þar
sem óskað var eftir heimild bæjar-
ráðs til að mega leysa Efstahól ehf.
undan samningi um ferðaþjónustu
fatlaðra ásamt erindi Efstahóls ehf.
vegna málsins.
Samþykkt var að leysa fyrir-
tækið undan samningi um ferða-
þjónustu fatlaðra en hefja viðræður
við það um tímabundinn samning
þar til útboð hefur farið fram. Eig-
andi fyrirtækisins segist bjartsýnn
á að hægt verði að komast hjá því
að málið hafi áhrif á akstursþjón-
ustuna.
Bæjarstjóri segir þurfa að verða
miklar breytingar á þeirri þjónustu
sem hin sveitarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu veita í sameiningu til
þess að Kópavogsbær taki þátt í
fyrirkomulaginu. »6
Ferðaþjónusta fatl-
aðra í nýtt útboð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kópavogur Stefnt er að nýju útboði.
„Á næstu árum mun fólki á eft-
irlaunum fjölga meira en fólki á
vinnumarkaði. Kostnaður ríkis-
sjóðs vegna aldurstengdra sjúk-
dóma og þjónustu við aldraða mun
að öllum líkindum aukast. Þeir sem
hætta að vinna geta því ekki búist
við að hið opinbera bæti miklu við
eftirlaunin,“ segir Gunnar Bald-
vinsson, sem ritað hefur bók um
eftirlaunasparnað. Á næstu 10 ár-
um munu 30 þúsund Íslendingar
fara á eftirlaun og að mörgu er að
hyggja fyrir þann hóp. »10-11
Ríkið mun ekki
bæta miklu við
„Af minni hálfu stendur ekki til að styðja
mál sem felur í sér framsal, hvorki á auð-
lindum né á meiri háttar ákvarðanatöku
um lagaumgjörð fyrir okkur. Hins vegar
er því haldið fram að málið mögulega
standist ekki stjórnarskrá. Þetta eru atriði
sem við viljum fara vandlega yfir,“ sagði
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins og fjármálaráðherra, um þriðja
orkupakkann í viðtali við Pál Magnússon,
stjórnanda þáttarins Þingvalla á K100 og
alþingismann Sjálfstæðisflokksins, í gær-
morgun.
Bjarni sagði það rangt að með þriðja
orkupakkanum yrði gert skylt að leggja
rafstreng til Íslands. Þriðji orkupakkinn
myndi ekki breyta því að Alþingi setti
áfram lögin sem giltu á Íslandi. »2
Alþingi setur áfram lög-
in sem gilda á Íslandi