Morgunblaðið - 17.12.2018, Side 8

Morgunblaðið - 17.12.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018 Franskir gulvestungar fóru útá götur nú á laugardag, þann fimmta í röð. Þeir voru töluvert færri en áður, en all- fjölmennir þó og stjórnvöld höfðu uppi mikinn viðbúnað.    Macronforseti hefur þó gert eins og aðrir forsetar í seinni tíð, gefið eftir gagnvart mótmælendum. Fyrst gaf hann eftir nýja bensínskattinn, sem var kveikjan að mótmælunum, en svo hélt hann áfram og lét undan ýmsu öðru. Óvíst er hvort það dugar, en það virðist þó hafa slegið á. Þó kann að vera að fækkunin í mótmælendahópnum stafi einnig af þreytu og því að jólin nálgast.    Svo getur verið að forsprakkarmótmælanna séu farnir að ganga fram af fólki. Í Frankfurt- er Allgemeine Zeitung er fjallað um mótmælin og sagt að þau hafi tapað sakleysi sínu. Vísað er til þess að þegar öfga- og ofbeldis- maðurinn myrti fólk og særði á jólamarkaðnum í Strassborg hafi forsprakkar gulvestunga haldið því fram að það hlyti að hafa ver- ið að undirlagi Frakklandsforseta til að dreifa athyglinni frá mót- mælunum. Einn forsprakki gulra hafi meira að segja efast um hryðjuverkin og gefið í skyn að hryðjuverkamaður hefði látið til skarar skríða á fjölmennu Champs-Elysées breiðstrætinu en ekki í fámenni fjarri höfuðborg- inni.    Málstaður gulvestunga varskiljanlegur í upphafi, en þeir hafa reynst lakari fyrirmynd eftir því sem tíminn líður þó að einhverja hér á landi langi að líkja eftir hinum áköfustu í París. Gulvestungar glata sakleysinu STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Vínylplötumarkaður var haldinn um helgina á Ingólfsstræti 5, þar sem verslun Víðis var síðast til húsa, til fjáröflunar fyrir Maístjörnuna, styrktarsjóð Sósíalistaflokksins. Er sjóðnum ætlað að styrkja þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Markaðurinn var vel sóttur en plöturnar komu úr safni Ólafs Sig- urðssonar, annars af skiltakörl- unum, en Óli er einn af allra stór- tækustu plötusöfnurum landsins, á um og yfir 50 þúsund plötur. Í boði voru alls konar plötur; ís- lenskar sem erlendar; jólalög, gam- alt rokk og nýtt, barnaplötur, klass- ísk tónlist, soul, blús, diskó, djass og hvaðeina. Innan um voru fágætar gersemar. Auk vínylplatna voru einnig til sölu geisladiskar, plötuspil- arar, magnarar og hátalarar; allt úr safni Óla. Vínylplötumarkað- urinn vel sóttur Morgunblaðið/Hari Vínylplötur Dr. Gunni var einn þeirra sem litu inn og skoðuðu safnið. Korn var ræktað á 2.473 hekturum lands í ár. Er það örlitlu minna en á árinu 2017. Hins vegar tvöfald- aðist ræktun á repju og öðrum ol- íujurtum en er þó enn á innan við 100 hekturum. Búnaðarstofa Matvælastofnunar hefur greitt út jarðræktarstyrki og landgreiðslur fyrir árið 2018. Eins og sést á meðfylgjandi grafi er mest greitt út á grænfóð- urrækt og endurræktun túna. Grasrækt þar sem tún eru end- urræktuð hefur dregist talsvert saman frá fyrra ári. Einnig er töluvert land tekið undir korn. Það minnkar örlítið á milli ára en talsverður samdráttur hefur þó orðið í kornrækt á síð- ustu árum. Ástæðan er sú að akr- arnir gefa litla uppskeru sum árin. Rúmlega helmingur kornakranna er á Suðurlandi, 1317 ha, og tæp 15% í Eyjafirði, 262 ha. Nokkur ræktun er einnig á Vesturlandi, í Skagafirði og Húnavatnssýslum en minni annar staðar. Ræktun á olíujurtum er í sókn en er enn afar lítil. Þá eru greiddir jarðræktarstyrkir út á garðrækt, svo sem ræktun á kartöflum og grænmeti í útigörðum. Jarðræktarstyrkirnir nema um 38 þúsund krónum á hvern hekt- ara. Greitt út á stærð túna Styrkirnir eru greiddir sam- kvæmt ákvæðum í búvörusamning- um bænda og ríkisins. Á árinu 2018 nema jarðræktarstyrkirnir 380 milljónum króna. Þá fá bænd- ur hluta stuðnings síns samkvæmt búvörulögum út á stærð túna, svo- kallaðar landgreiðslur, í stað greiðslna út á framleiddar afurðir. Þær nema 255 milljónum króna í ár. helgi@mbl.is Jarðræktarstyrkir 2017 og 2018 Hektarar 2017 2018 Garðrækt 504 563 Gras, endurræktun 3.666 3.143 Grænfóður 3.990 3.962 Korn 2.602 2.473 Olíujurtir 49 97 Samtals 10.811 10.238 Heimild: Búnaðarstofa Mast Helmingur korns á Suðurlandi  Olíuræktun enn undir 100 hekturum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.