Morgunblaðið - 17.12.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.12.2018, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sláandi hefurverið aðhorfa upp á hversu valkvætt siðferðismat Rík- isútvarpsins hefur reynst þegar hneykslismál koma upp. Og hvernig það ræður úrslitum hvar pólitíski merkimiðinn ligg- ur. Ríkisútvarpið lítur á sig í reynd sem dótturfélag Samfylk- ingar og Vinstri grænna (eða öf- ugt) og hefur lengi gert svo frá- leitt sem það er. Framganga þessarar „öryggisstofnunar þjóðarinnar“ þegar reynt var að bylta landinu með valdi í kjölfar bankafallsins hefur aldrei verið rannsökuð þótt sjálfsagt væri. Allt var það langt handan við öll siðferðismörk svo ekki sé talað um það sem handfastara er, þau lög sem um þessa stofnun gilda og eru talin réttlæta tilveru hennar og þá mörgu milljarða sem eru snýtt úr nösum almenn- ings til að halda bákninu uppi. Markmiðið var þá að koma Samfylkingu og Vinstri grænn- um til valda og stuðla að ofsókn- um gagnvart þeim sem þóttu standa í vegi þess. Eftir að slík stjórn var mynduð breyttist þessi öryggisstofnun í feimn- islausa áróðursdeild fyrir þá rík- isstjórn. Frægast var það í bar- áttunni um Icesave þar sem Ríkisútvarpið dældi einhæfum hræðsluáróðri yfir þjóðina um þá bölvun sem myndi hljótast af léti þjóðin ekki plata sig og pína til að samþykkja Icesave- hneykslið. Þessi samstæða, „RÚV“, SF og VG var þó ræki- lega rasskellt í þjóðaratkvæði fyrir svívirðilega fram- komu sína. „RÚV“ hefur aldrei tekið á þessari misnotkun og ekki hefur vottað fyrir því að „stofnunin“ kunni að skammast sín vegna hennar. Í seinustu lotu hneykslismála kemst Ríkis- útvarpið að sömu niðurstöðu og síamstvíburinn, Samfylkingin: Vemmilegt og viðurstyggilegt fjas ölvaðra er verra mál en fjas- ið í verki! Ríkisútvarpinu þykir ekkert að því að „dótturfélag þess“ SF hafi stofnað sérstaka þöggunardeild til að koma í veg fyrir að kynferðisbrotamál flokksmanna sem „kærð eru þangað“ komist upp. Þau skuli flokkuð sem ríkisleyndarmál. Páll Vilhjálmsson lýsir þessu réttilega svo: „Fáheyrt þætti að siðanefnd Blaðamannafélags Ís- lands tæki mál fyrir, afgreiddi fyrir luktum dyrum og birti ekki niðurstöðuna. En þetta gerir Samfylkingin. Ef Samfylkingin væri spila- klúbbur væri hægt að réttlæta að brot á siðareglum sé innan- félagsmál. En Samfylkingin er stjórnmálaflokkur og sem slíkur á opinberu framfæri. Þeir sem starfa í flokknum freista þess að fá opinber völd til að móta sam- félagið. Þess vegna getur það ekki verið innanflokksmál þegar flokksmenn brjóta af sér. Trúnaðarnefnd Samfylkingar hlýtur að leggja spilin á borðið og upplýsa um þau fjögur mál sem nefndin hefur fjallað um og hvaða úrskurðir féllu.“ Valkvætt siðferð- ismat blasir við}Bregst jafnan Herforingja-stjórnin í Taí- landi tilkynnti fyrr í þessari viku að hún myndi aflétta banni sínu við kosningabaráttu í aðdraganda þingkosninga, sem fara eiga fram í febrúar á næsta ári. Þótti yfirlýsingin til marks um það að herinn hygðist mögulega opna á það að láta af völdum, en hann hrifsaði þau til sín í maí 2014 í kjölfar mikillar pólitískrar ólgu. Einkenndist hún ekki síst af aukinni misklíð á milli fylkinga, þar sem annars vegar voru fá- tækari kjósendur í norðaust- urhéruðum landsins og hins vegar íhaldssamari og betur stæðir kjósendur í Bangkok og nágrenni. Hafði þá komið til ítrekaðra mótmæla og jafnvel átaka á milli stuðningsmanna þessara afla á götum úti. Thaksin Shinawatra, fyrrver- andi forsætisráðherra Taílands og einn helsti andstæðingur herforingjastjórnarinnar, hefur fagnað því að banninu við kosn- ingabaráttu hafi verið aflétt, og sagðist hann þar vona að það myndi að lokum leiða til þess að Taíland yrði aftur frjálst. Það kann þó að vera ótímabær óskhyggja af hans hálfu. Þó að það sé vissulega já- kvætt skref, að stjórnmála- flokkar landsins fái að kynna kjósendum stefnumál sín fyrir komandi kosningar, er ekki lík- legt að það muni breyta miklu í náinni framtíð. Þannig hefur herinn búið svo um hnútana að efri deild þingsins verður skip- uð en ekki kjörin, og talið er lík- legt að Prayut Chan-O-Cha, nú- verandi yfirmaður herforingja- stjórnarinnar, verði skipaður forsætisráðherra í kjölfar kosn- inganna. Það er því fullsnemmt að segja að lýðræðið sé að halda innreið sína í Taíland á ný, þó að herinn losi tökin örlítið. Mögulega verður þetta litla skref í lýðræðisátt þó til þess að fleiri slík verði stigin. Herforingjastjórnin í Taílandi leyfir kosningabaráttu } Skref í lýðræðisátt E nn jólin og alltaf jafn kær segir í fallegum jólatexta við eitt af mínum uppáhaldsjólalögum. Ég heyrði fyrir nokkrum dögum í ungri konu sem hefur af hlýju og alúð lagt sig fram um að hjálpa okkar minnstu bræðrum og systrum. Hún er ein af mörgum kærleiksríkum manneskjum sem telja ekki eftir sér að berjast gegn fátækt og fyrir því réttlæti sem við svo mörg erum að kalla eftir. Ég var á leið upp í þingsal, dagskrá þingfundarins hófst á þeim dagskrárlið sem við nefnum störf þingsins. Ég vissi hvað ég vildi tala um, þ.e. þau augljósu svik sem ríkis- stjórnin hefur framið á öryrkjum og öllum þeim sem bágast standa í samfélaginu. Ég var og er að reyna að kyngja gallbragðinu sem nýja fjárlaga- frumvarpið orsakaði. Engin kjarabót fyrir öryrkja, engin kjarabót fyrir aldraða. Nei, einungis lögbundin leiðrétt- ing á greiðslum úr almannatryggingum. Forgangsröðun fjármuna sú m.a að lækka frekar bankaskattinn um 63% sem kostar ríkissjóð sjö milljarða króna og veiðigjöldin um 4,3 milljarða króna sem nýtist að mestu leyti stór- útgerð og sægreifum sem sannarlega eru ekki blankir fyrir. Hér er samtals verið að tala um 11,3 milljarða króna. Hugsið ykkur bara hvað hefði verið hægt að ráð- stafa þessu fé okkar á sanngjarnari hátt. Hringingin Klukkuna vantaði 20 mínútur í þingfund þegar síminn minn hringdi. Það var góður vinur sem iðu- lega hefur spilað tónlist fyrir Hjálpræðisher- inn. Hann bað mig að eiga orð við unga konu sem væri mikið niðri fyrir eftir fyrri jóla- úthlutun Hersins í ár sem fram fór daginn áð- ur. Ég og þessi huldukona, sem ég hef aldrei hitt, heilsuðumst og síðan tók hún til máls. Sagði mér hvað hlutirnir hefðu versnað frá því í fyrra, hvað hrikalega margir ættu bágt fyrir þessi jól. Fólk sem hefur 10-15 þúsund krónur á viku til að lifa af. Þetta er fólkið sem kvíðir jólunum. Okkar minnstu bræður og systur sem stjórnvöldum virðist sama um. Það hreinlega þyrmdi yfir mig. Af hverju er þetta svona í öllu þessu yfirlýsta góðæri? Er það kannski bara eintóm lygi eða er það eyrnamerkt græðgi og hagsmunagæslu fárra útvalinna? Svarið er já og aftur já. Lækka skatta og álögur á þá ríku en halda áfram að kúga þá sem minnst hafa. Gleðileg jól Okkur dreymir öll um gleðileg jól í faðmi fjölskyldu og vina. Þess vegna bið ég ykkur sem eruð aflögufær að styrkja það ómetanlega hjálparstarf sem unnið er í þágu þeirra sem eiga bágast í samfélaginu. Eitt er víst: sælla er að gefa en þiggja og við getum með gjafmildi og kær- leika dimmu margra í dagsljós breytt. Guð gefi ykkur öllum gleðilega jólahátíð. Inga Sæland Pistill Margir eiga bágt um jólin Höfundur er formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðm. Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Íslendingar lesa enn bækur,þrátt fyrir harðnandi sam-keppni frá tölvum, sjónvarpiog annarri afþreyingu. Ný könnun, sem gerð var fyrir Miðstöð íslenskra bókmennta, sýnir að 72% landsmanna, 18 ára og eldri, lásu eða hlustuðu á bók að hluta eða í heild síðustu 30 daga. 27,9% sögðust hins vegar ekki hafa lesið neina bók síð- asta mánuðinn. Af þeim, sem lásu bækur sögð- ust 86% hafa lesið hefðbundnar bækur á síðustu 12 mánuðum, 31% hafði lesið rafbækur og 35% hlustað á hljóðbækur. Karlar sögðust lesa að meðaltali 2 bækur á mánuði en kon- ur 3,5 bækur. 14% sögðust lesa bæk- ur daglega og rúmlega 20% sögðust lesa bækur einu sinni til sex sinnum í viku að jafnaði. Eðli málsins sam- kvæmt voru námsmenn einna fjöl- mennastir í hópi þeirra sem lásu mest Mikilvægur stuðningur „Þetta eru ánægjulegar niður- stöður,“ sagði Gréta María Bergs- dóttir, verkefnastjóri hjá Miðstöð ís- lenskra bókmennta. „Það er greinilegt að lestur er ennþá stór hluti af lífi flestra landsmanna, þó vissulega sé áhyggjuefni að fjórð- ungur lesi ekki bækur.“ Fram kemur í könnuninni, að fjórðungur þeirra, sem lesa bækur, les þær eingöngu á íslensku. Um þriðjungur sagðist lesa oftar á ís- lensku en öðru tungumáli og 20% lesa oftar á öðru tungumáli en ís- lensku. Um 2,4% sögðust eingöngu lesa á öðru tungumáli. Gréta María sagði að svo virtist að niðurstöðurnar sýndu jákvætt viðhorf í garð bókmenntanna og að stór hluti aðspurðra, eða um 79%, væri hlynntur því að íslenskar bók- menntir hefðu aðgang að opinberum stuðningi. Er það hærra hlutfall en í sambærilegri könnun frá síðasta ári. Þess má geta að Alþingi af- greiddi fyrir helgina lög um að veita bókaútgefendum tímabundinn stuðning í formi endurgreiðslu á hluta kostnaðar sem fellur til við út- gáfu bóka á íslensku. Yfirlýst mark- mið þessara laga er að efla útgáfu bóka á íslensku. Vísað var meðal annars til þess að verulegur og við- varandi samdráttur hefði átt sér stað hjá bókaútgefendum síðustu níu ár og ástæður samdráttarins mætti einna helst rekja til breyttrar samfélagsgerðar, örrar tækniþróun- ar og annarra þjóðfélagsbreytinga. Tilkoma ýmiss konar afþreying- arefnis, aukið framboð lesefnis og myndefnis á netinu gegn lágu eða engu endurgjaldi, snjalltækja og annarra miðla, hefði leitt til þess að lestur bóka á íslenskri tungu hefur farið minnkandi og velta bókaútgef- enda að sama skapi dregist saman. Ágæt jólabókasala Nú stendur jólabókavertíðin sem hæst. Bryndís Loftsdóttir, starfsmaður Félags íslenskra bóka- útgefenda, sagði að jólabókasalan til þessa hefði verið ágæt og dreifst nokkuð vel á milli bóka þótt nýjasta bókin eftir Arnald Indriðason seld- ist áberandi best. Hins vegar væri of snemmt að segja til um niðurstöðuna, m.a. vegna þess að í ár er Þorláksmessa á sunnudegi. Gréta María Bergs- dóttir segir að til standi að gera kannanir um bók- lestur Íslendinga reglulega héðan í frá til að kortleggja þró- unina betur. Mikill meirihluti les bækur reglulega Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar, sem Zenter gerði fyrir Miðstöð íslenskra bókmennta, fá um 56% svar- enda hugmyndir að lesefni frá vinum og ættingjum, um 40% í umfjöllun í fjölmiðlum, 30% í umfjöllun á samfélags- miðlum, um 26% í bókabúð- um, um 25% í auglýsingum og um 20% á bókasöfnum. Nærri helmingur svarenda taldi mjög mikilvægt að þýða nýjar erlendar bækur yfir á ís- lensku og nærri 30% taldi það frekar mikilvægt. Þá vekur athygli, að helmingur svarenda sagðist aldrei hafa nýtt sér þjónustu bókasafna á síðustu 12 mán- uðum. Eftirlaunaþegar og námsmenn eru lík- legastir til að nýta sér þessa þjón- ustu. Ábendingar áhrifaríkastar HUGMYNDIR AÐ LESEFNI Gréta María Bergsdóttir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jólabækur Sala bóka fyrir jólin hefur gengið vel að sögn bókaútgefenda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.