Morgunblaðið - 17.12.2018, Side 20

Morgunblaðið - 17.12.2018, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018 ✝ Alma Thor-arensen fædd- ist 30. nóvember 1926. Hún lést 8. desember 2018. Alma var dóttir hjónanna Stefáns Oddssonar Thor- arensen, apótekara í Reykjavík, f. 31.7. 1891, d. 31.10. 1975, og konu hans Ragn- heiðar Hannesdóttur Hafstein, f. 4.1. 1903, d. 22.8. 1981. Stef- án var sonur Odds Carls Thor- arensen, apótekara á Akureyri, og konu hans Ölmu Clöru Mar- grétar Schiöth, en Ragnheiður var dóttir Hannesar Þórðar Hafstein, ráðherra og skálds, og konu hans Ragnheiðar Mel- sted. Alma var þriðja í röð sex systkina. Þau eru: Ragnheiður, f. 21.4. 1924, d. 21.12. 2003, Oddur Carl, f. 26.4. 1925, d. 20.12. 2011, Svala, f. 20.5. 1931, Katrín Erla, f. 23.3. 1942, og Þorvaldsson, f. 1981, þeirra börn eru Þuríður Katrín, f. 2011, og Gunnar Helgi, f. 2014; Katrín Alma, f. 1989, sambýlis- maður Anton Örn Elvarsson, f. 1989, og Ragnheiður, f. 1993. Alma ólst upp í Reykjavík. Hún stundaði nám við Mennta- skólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi 1946. Alma vann ýmis störf þar til hún fór til náms við McGill-háskóla í Montreal í Kanada haustið 1948. Eftir heimkomu vann hún í nokkur ár hjá hjá breska sendiráðinu í Reykjavík. Á hjú- skaparárum sínum var hún heimavinnandi húsmóðir en var jafnhliða því stjórnarformaður fjölskyldufyrirtækisins Stefán Thorarensen hf. sem síðar varð Thorarensen-Lyf. Alma og Bjarni bjuggu stærstan hluta ævinnar í Skildinganesi 32 í Skerjafirði, áður nefnt Skerja- nes, allt til ársins 2012. Þá fluttu þau í Hraunvang 3 í Hafnarfirði. Frá sumri 2015 bjó Alma á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Ölmu fer fram frá Garðakirkju í dag, 17. desem- ber 2018, og hefst athöfnin klukkan 15. Elín Hrefna, f. 17.2. 1944. Alma giftist Bjarna Bjarnasyni, löggiltum endur- skoðanda og fyrr- verandi fram- kvæmdastjóra, f. 16.6. 1926, d. 1.8. 2015, 14. ágúst 1952. Bjarni og Alma eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Ragnheiður Erla, f. 7.6. 1953. 2) Helga Hrefna, f. 14.1. 1955, maki Tryggvi Bald- ursson, f. 1951. Þau slitu sam- vistum. Þeirra börn eru: Alma, f. 1983, unnusti Stefán Guð- mundsson, f. 1982, þeirra dæt- ur eru Helga Birna, f. 2012, og Unnur Hrefna, f. 2017; Baldur, f. 1985, sambýliskona Bettina Vass, f. 1988, og Bjarni, f. 1990. 3) Stefán Örn, f. 23.5. 1957, maki Sigrún Þórarins- dóttir, f. 12.7. 1958. Þeirra börn eru Fríður Skeggjadóttir Þormar, f. 1981, maki Kristinn Mamma var einstök kona í alla staði, falleg, greind, örlát, um- hyggjusöm, ákveðin, fyndin og skemmtileg, allt í senn. Hún var hörkutól þótt útlitið gæfi það ekki endilega í skyn. Ævi hennar varð löng og að sama skapi viðburðarík og skipt- ust þar á skin og skúrir. Fyrir ut- an forréttindi okkar allra í fjöl- skyldunni að fá að hafa hana svo lengi hjá okkur var það mikil hamingja að mamma og pabbi skyldu ná langri ævi saman en þau voru gift í 63 ár. Þau voru fal- leg og samheldin hjón. Mamma var þriðja í röð systk- inanna sex á Sóleyjargötu 11 og tvímælalaust foringinn í glæsi- legum og samrýndum systrahópi. Þær systur hafa alla tíð verið bestu vinkonur og gert flestallt saman, t.d. ferðast saman. Við minnumst mömmu oftast með bók eða blað í hendi. Ýmist almennar bókmenntir og kveð- skap eða fræðibækur og heims- fréttirnar en hún hélt sér upp- lýstri m.a. með lestri Time-tímaritsins sem hún var áskrifandi að til margra ára. Það var ekki auðvelt að lenda á móti henni í spurningaleikjum sem tíðkast hafa í fjölskylduboðum til margra ára. Í síðasta jólaboði var hún í vinningsliðinu og átti sig- urinn nánast ein. Já fátt var skemmtilegra en góð kvöldstund í góðra vina hópi ýmist systra og maka eða bernskuvinkvenna og maka þeirra en öll bjuggu þau í Skerja- firðinum. Var þá spilað bridge eða lesin ljóð og náði áhugasviðið allt frá Edgar Allan Poe til Jón- asar Hallgrímssonar. Heimili mömmu og pabba stóð alla tíð öllum opið, gestagangur var mikill, bæði þeirra vina og okkar krakkanna og meira að segja barnabarnanna. Gleðskap- ur ýmiskonar var bara eðlilegur hluti af tilverunni. Rausnarskap- ur var mikill, örlæti, umhyggja og svo almennur áhugi á mönnum og málefnum. Okkur og vinum okkar var tekið sem jafningjum og kynslóðabil fyrirfannst ekki. Mamma var sérstaklega góð við barnabörnin og hefur veitt þeim ómetanlegan stuðning og hvatn- ingu í gegnum árin. Hún hafði áhuga á öllu sem þau tóku sér fyrir hendur og fannst allt jafn spennandi og stórkostlegt. Skipti þá engu hvað það var; lokaein- kunn í áfanga, nýr kjóll eða hæ- laháir skór stelpnanna sem vöktu jafnan mikla hrifningu. Hún kunni að hrósa á réttan hátt og við réttu tækifærin. Hún á klár- lega stóran þátt í því hve góðar manneskjur börnin okkar eru í dag. Elsku mamma okkar hefur nú fengið hvíldina en heilsu hennar hrakaði á síðustu árum, sér í lagi síðustu tvær vikurnar. Það slökkti samt ekki áhugann á Út- svari sem hún horfði á síðasta kvöldið sitt en fram í endalokin hafði hún ánægju af því að láta reyna á heilann og minnið sem þó var farið að bregðast henni undir það síðasta. Mamma naut um- hyggju og alúðar starfsfólks 3. hæðar á Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem hún bjó síðustu þrjú ár ævi sinnar. Systur hennar og systurdóttir hafa svo sannarlega ekki látið sitt eftir liggja í þeim efnum og var litla herbergið hennar löngu orðið að miðpunkti samverustunda stórfjölskyldunn- ar. Við kveðjum elsku mömmu í dag með þökk fyrir allt og allt og trúum því að hún haldi jólin í faðmi pabba einhvers staðar fyrir handan. Ragnheiður (Raggí), Helga og Stefán (Stebbi). Það er vart hægt að hugsa sér flottari konu en ömmu, jafnt að innan sem utan, og teljum við systurnar þrjár okkur vera alveg einstaklega heppnar að hafa átt hana að. Hún amma var ekki bara amma okkar heldur fyrst og fremst vinkona. Hún talaði alla tíð við okkur á jafningjagrund- velli og það var þannig að börn leituðu alltaf til ömmu vegna þessa eiginleika, þar sáu þau í henni vin sem hægt var að treysta og var tilbúinn að hlusta. Amma var sérlega skilnings- rík, sýndi okkur öllum áhuga og stuðning sama hvað við tókum okkur fyrir hendur. Hún var einnig einstaklega hjartahlý og alltaf að hugsa um mann. Ömmu var ekki heilsað án þess að hún lýsti yfir áhyggjum sínum af köldum fingrum og hvað þá ef maður ætlaði að voga sér aftur út í kuldann, þá komu langar ræður um viðeigandi klæðnað. Meira að segja smáfuglarnir voru dekraðir af ömmu sem lét afa kaupa fyrir þá súkkulaðisnúða og fylgdist svo með þeim út um stofugluggann þar sem hún sat iðulega í stólnum sínum að leysa danskar krossgát- ur. Amma var glæsilegasta kona sem við höfum nokkru sinni þekkt. Bleikar Dior-neglur og Chanel no. 5-ilmvatn mun alltaf minna okkur á ömmu. Þegar leið á unglingsárin varð það helsta áhugamál okkar systra að gleyma okkur í fataherberginu í Skerjó við að skoða alla heimsins hælaskó og síðkjóla. Annað eins safn höfum við aldrei séð og dreymdi okkur um tilefni til þess að fá eitthvað af þessu lánað. Amma hafði líka einstaklega gaman af öllum okkar skvísu- skap. Þegar við mættum til henn- ar í fínum skóm þá ljómaði hún öll. Hún gat sjálf ekki gengið í fínum hælaskóm í seinni tíð svo í staðinn mátti maður gjöra svo vel að rétta henni fótinn og svo voru skórnir dásamaðir. Amma var einnig algjör töffari með hár- beittan húmor og sterkar skoð- anir. Það hefur verið fastur liður í okkar fjölskyldujólaboðum að Raggí semji og stjórni spurn- ingakeppni og þar munum við ekki síst sakna þess að hafa okk- ar góðu ömmu sem kallaði upp svörin sama hvaða lið átti leik, við mismikinn fögnuð fjölskyldu- meðlima. Við eigum dýrmætar minning- ar með ömmu og afa á ferðalög- um. Oft var ferðinni heitið til Montreux þar sem ömmu leið ávallt vel í sólbaði úti á svölum. Á seinni árum færðum við okkur til Kanarí og Tenerife og áttum yndisleg jól saman með allskonar sniðugum uppákomum sem skemmtilegt er að minnast. Minningin um sterku, ljúfu og hlýju ömmu lifir í hjörtum okkar. Hvíldu í friði, elsku amma, nú ertu aftur sameinuð afa þar sem þið getið haldið áfram að halda flottustu veislurnar hönd í hönd. Fríður, Katrín Alma og Ragnheiður. Okkur systkinunum er ljúft að minnast ömmu Ölmu í stuttu máli. Amma var með eindæmum góð og umhyggjusöm gagnvart öllu fólkinu sínu og þá sérstak- lega okkur barnabörnunum. Hún var stuðningsrík og hvatti okkur áfram í einu og öllu. Það kom fyrir að við systkinin leit- uðum fyrst af öllum til hennar með vandamál og ef við höfðum komið okkur í vandræði við leik því hún gagnrýndi aldrei heldur kom til bjargar skilyrðislaust. Það voru mikil forréttindi að alast upp í næsta húsi við ömmu og afa í Skerjafirðinum. Hún var ævintýragjörn eins og bogmenn eru gjarnan og ferð- aðist mikið. Glæsileg heimskona með fágaðan smekk og kunni að njóta lífsins lystisemda. Amma kom ávallt vel fyrir sig orði, var víðlesin, klár og sat við löngum stundum að ráða danskar kross- gátur í holinu á Skildinganesinu. Hún hafði mikinn áhuga á kveð- skap og sjálf bjó hún yfir mun meiri hæfileikum á því sviði en margir gerðu sér grein fyrir. Oftar en ekki lauk hinum ýmsu samræðum með óborganlegum endahnút frá henni svo viðstadd- ir grétu úr hlátri. Beitti, svarti húmorinn einkenndi hana og fylgdi henni fram á síðasta dag. Sanngjörn og heiðarleg kven- réttindakona með sterka rétt- lætiskennd sem fannst eðlilegt að húsmæður, á hennar tíma, fengju greidd laun fyrir störf sín innan heimilisins. Töffari, sem á sínum tíma keyrði um á appels- ínurauðum Ford Mustang ’65 og mikil pæja með fulla fataskápa af gersemum sem ungar stelpur fengu ekki leið á að leika sér með og máta. Einn helsti styrkleiki hennar var áræði og staðfesta þegar á móti blés. Líf hennar á seinni stigum var ekki áreynslulaust en hún komst í gegnum hvert áfallið á fætur öðru með einurð og stað- festu og ekki síst fyrir aðstoð afa en einnig barna hennar og systra. Með þeirra stuðningi stóð hún af sér storminn. Jafnvel í síðustu sjúkralegunni, daginn áður en hún kvaddi, var hugs- anlegt að hún myndi ná sér aftur á strik. Það brá engum við það, hún var ótrúleg. Amma og systur hennar voru sérstaklega nánar alla tíð. Þeirra nánd varð okkar nánd og alla tíð hefur samgangurinn verið mikill og stórfjölskyldan verið sem ein kjarnafjölskylda. Heimili ömmu og afa í Skerjó var alltaf mikill samkomustaður fjölskyldunnar og síðar færðist sá samkomu- staður yfir á Hrafnistu. Oftar en ekki þegar amma var heimsótt á Hrafnistu var þar fyr- ir fjöldi fólks – eitthvert barna ömmu, a.m.k. tvær af ömmu- systrunum, frænkur, barnabörn og jafnvel langömmubörn. Fjöl- skyldan sótti í félagsskap ömmu, ekki af skyldurækni heldur var hún ánægjulegur félagsskapur fram á síðasta dag. Við sem eftir sitjum kveðjum með söknuði og þökkum fyrir hlýjuna, stuðninginn og þátttöku ömmu í okkar lífi. Nú er hún komin aftur í fang afa Bjarna sem hún saknaði svo. Minning- arnar eru ótal margar og dýr- mætar. Við horfðum á reynitréð fyrir framan Skildinganesið vaxa með hverju árinu, fórum saman í sumarfrí til Montreux, eyddum áramótum og jólum saman í áranna rás að ógleymd- um öllum hversdagslegu sam- verustundunum. Minningarnar geymir hver fyrir sig og rifjar upp yfir rauðvínsglasi í anda ömmu. Alma, Baldur og Bjarni. Alma Thorarensen  Fleiri minningargreinar um Ölmu Thorarensen bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALTÝR BJÖRGVIN GRÍMSSON, Blómvangi 14, Hafnarfirði, lést laugardaginn 8. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 19. desember klukkan 13. Auður Þórhallsdóttir Helga Valtýsdóttir Sigurður S. Antonsson Hugrún Valtýsdóttir Jón Ingi Björnsson Guðmunda Björk Hjaltested og barnabörn Ástkær faðir minn, afi, bróðir og mágur, BIRGIR ALFREÐSSON málarameistari, lést á dvalarheimilinu Dalbraut sunnudaginn 9. desember. Útförin fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 20. desember klukkan 13. Ingibjörg Jóna Birgisdóttir Sverrir Halldór Valgeirsson Erla Alfreðsdóttir Ásgeir Þorvaldsson Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, INGÓLFS ARASONAR, kaupmanns, Patreksfirði, Espigerði 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar B7 á Borgarspítalanum fyrir hlýja og góða umönnun. Sjöfn Ásgeirsdóttir Fjóla Ingólfsdóttir Björn Garðarsson Arnar Ingólfsson Rannveig S. Þorvarðardóttir Eygló Ingólfsdóttir Kristín E. Ingólfsdóttir Guðlaugur V. Þórarinsson Ástkær unnusti minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL KRISTJÁNSSON, skipstjóri, lést í faðmi fjölskyldu og ástvina á heimili sínu fimmtudaginn 13. desember. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 20. desember klukkan 13. Marianne Johannsson Aðalbjörg Pálsdóttir Steindór Jón Pétursson Björn Pálsson Berglind Lúðvíksdóttir Anna Lilja Pálsdóttir Bjarki Jónsson afa- og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, SÓLRÚN HELGA HJÁLMARSDÓTTIR, Norðurgarði 11, Hvolsvelli, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þriðjudaginn 11. desember. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju þriðjudaginn 18. desember klukkan 16. Jarðsett verður í Langholtskirkjugarði Meðallandi fimmtudaginn 20. desember klukkan 14. Guðrún Ásta Lárusdóttir Guðmundur Pálsson Vilborg Linda Indriðadóttir Jón Þór Stefánsson Helga Björg Dagbjartsdóttir Magnús Einarsson Vigfús Jón Dagbjartsson Guðlaug M. Dagbjartsdóttir Björn Bragi Sævarsson Sveinbjörg M. Dagbjartsd. Sævar Hjálmarsson Dagný Guðmundsdóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR, Mánabraut 11, Þorlákshöfn, lést fimmtudaginn 13. desember. Útför hennar fer fram frá Þorlákskirkju fimmtudaginn 20. desember klukkan 14:00 Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Sigurður Sigurþórsson Úlfar Gíslason Gerður Stefánsdóttir Marta Sonja Gísladóttir Brynjar Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, BRYNDÍS BJARNADÓTTIR frá Húsavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri að morgni föstudagsins 14. desember. Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju, Reykjavík, næstkomandi fimmtudag, 20. desember. Athöfnin hefst klukkan 15. Þórhallur, Bjarni, Sigtryggur og Þórdís Ósk Sigtryggsbörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.