Morgunblaðið - 17.12.2018, Page 22

Morgunblaðið - 17.12.2018, Page 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is silestone.com Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið Katrín Eyjólfsdóttir, hermaður í Hjálpræðishernum, á 75 ára af-mæli í dag. Hún hefur lengi verið viðloðandi Hjálpræðisher-inn en varð hermaður fyrir 20 árum. „Maður gengst þá undir ákveðin skilyrði. Það má til dæmis hvorki reykja né drekka en það var ekki vandamál fyrir mig því ég er búin að vera í Góðtemplara- hreyfingunni frá því ég var unglingur.“ Hjálpræðisherinn seldi Herkastalann fyrir nokkru og er nú með starfsemi sína í Mjóddinni á meðan verið er að byggja nýtt hús við Suðurlandsbraut. Jólamáltíðin á aðfangadagskvöld verður því í Ráð- húsinu en hún var þar líka um síðustu jól. Katrín tekur virkan þátt í starfsemi Hjálpræðishersins. Meðal ann- ars sér hún um Heimilasambandið sem er hluti af kvennastarfinu. Svo er í mörgu öðru að snúast hjá Hjálpræðishernum fyrir jólin. „Við vorum með basar í nóvember til fjáröflunar fyrir innbúið í nýja húsið og svo var núna í vikunni verið að pakka inn gjöfum fyrir fanga og svo þarf að pakka inn jólagjöfum fyrir þá sem koma til okkar í mat á aðfangadagskvöld en þá fá allir pakka. Einnig er hægt er að sækja um aðstoð til að geta gert jólainnkaupin og núna þarf fólk að gera grein fyrir tekjum sínum áður en það fær úthlutun.“ Katrín vann við bókhald lengstan hluta starfsævi sinnar, meðal annars hjá Globus og síðustu tíu árinn vann hún hjá kristilegu út- varpsstöðinni Lindinni. Hún á von á systkinum sínum og mökum í heimsókn í dag í tilefni afmælisins. Eiginmaður Katrínar er Ármann Gunnlaugsson bifvélavirki og rak Suzuki-verkstæðið. Þau eignuðust tvö börn, Eyjólf og Ragnheiði Jónu, en hún lést fyrir sjö og hálfu ári. Hún eignaðist þrjá syni og býr einn þeirra hjá Katrínu og Ármanni. Hjónin Stödd á þrettándagleði hjá Hjálpræðishernum. Í nógu að snúast hjá Hjálpræðishernum Katrín Eyjólfsdóttir er 75 ára í dag H enrý Þór Gränz fæddist í Vestmannaeyjum 17.12. 1948 og ólst þar upp í foreldrahúsum, í Jómsborg. Hann var í Barnaskóla Vestmannaeyja, lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja 1965, stundaði nám við Iðnskólann í Vestmannaeyjum, lærði trésmíði hjá Nýsmíði og síðar hjá Innréttingastofunni, hjá Hlöðveri Pálssyni. Henrý stundaði nám við Tækni- skóla Íslands og síðan í Odense Tekn- ikum og lauk þaðan BSc-gráðu í bygg- ingatæknifræði 1978. Síðar stundaði hann nám við Markaðsháskólann í Osló og lauk þaðan námi sem mark- aðshagfræðingur 1988. Hann lauk kennsluréttindanámi við KHÍ árið 2000. Henrý stundaði fiskvinnslu og sjó- mennsku í Eyjum þar til hann fór í iðnnám. Hann var umdæmistækni- fræðingur hjá Fasteignamati ríkisins 1979-92 og síðar umdæmistæknifræð- ingur hjá Vegagerðinni 1992-99. Hann hefur verið framhaldsskólakennari frá 1999 var fyrstu 15 árin hjá Iðnskól- anum í Hafnarfirði eða þar til skólinn var sameinaður Tækniskólanum, Skóla atvinnulífsins, árið 2015 og til 2019. Henrý og fjölskylda fluttu í Borg- arnes er hann kom frá námi í Dan- mörku, 1979, og þar bjuggu þau til 1992 er fjölskyldan flutti í Kópavog þar sem þau hafa búið síðan. Henrý starfaði í Rotaryklúbbi Borgarness um skeið, var formaður Norræna félagsins í Borgarfirði 1979- 92, var formaður skipulagsnefndar Borgarness 1979-87, sat í ferða- málanefnd Borgarness, var virkur í Golfklúbbi Borgarness og formaður þar eitt kjörtímabil, var virkur í Golf- klúbbi Odds og Oddfellowa frá 1992 og hefur starfað í Oddfellowreglunni frá Henrý Þór Gränz framhaldsskólakennari – 70 ára Fjölskyldan samankomin Henrý og Ingibjörg með dætrunum þremur, tengdasonum og barnabörnunum. Tápmikill Eyjapeyi Undurfagra ævintýr ágústnóttin hljóð Eyjapeyinn stoltur af æskuslóðunum. Mosfellsbær Nökkvi Hrafn Elvarsson fæddist 11. janúar 2018 kl. 9.08. Hann vó 3.562 g og var 50 cm langur. For- eldrar hans eru Kolbrún Halla Ingólfsdóttir og Elvar Þór Grétarsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.