Morgunblaðið - 17.12.2018, Page 23

Morgunblaðið - 17.12.2018, Page 23
1994. Hann sat í stjórn kjarafélags Tæknifræðingafélagsins og sat í stjórn Tæknifræðingafélags Íslands. Henrý og Ingibjörg, eiginkona hans, stunda bæði golf. Hann var for- seti LEK samtaka eldri kylfinga í sex ár og sat síðan í Evrópustjórn eldri kylfinga ESGA (European senior golf association) 2011-2017, en hann var fyrsti Íslendingurinn sem var kosinn til að gegna stjórnarstörfum í Evr- ópustjórn í golfi.. Og á svo bara að setjast í helgan stein þegar þessum áfanga er náð? „Nei, ég fer nú ekki að leggjast með tærnar upp í loftið. Það er svolítið óráðið enn, hvað ég tek mér fyrir hendur. En það er alltaf nóg að gera fyrir tápmikla einstaklinga sem hafa gaman af lífinu og tilverunni.“ Fjölskylda Henrý kvæntist 19.2. 1972 Ingi- björgu Sigurðardóttur, f. 18.3. 1948, kennara. Hún er dóttir Sigurðar Inga Sigurðssonar, f. 16.8. 1909, d. 1.6. 2005, sveitarstjóra og oddvita á Selfossi, og k.h., Arnfríðar Jónsdóttur, f. 30.5. 1919, d. 8.1. 2016, húsfreyju. Ingibjörg varð sjötug í síðastliðnum marsmánuði og saman hlakka þau til að hafa nú meiri tíma fyrir barnabörnin og áhugamálin. Dætur Henrýs og Ingibjargar eru 1) Ásta Huld, f. 24.5. 1972, deild- arstjóri í Garðaskóla, gift Jóni Birni Bragasyni rafmagnstæknifræðingi og eru börn þeirra Henrý Þór, f. 1995, Ragnhildur Katla, f. 1999, og Kolbeinn Ingi, f. 2003; 2) Arnfríður, f. 3.6. 1975, kvensjúkdómalæknir, gift Guðmundi Ómari Hafsteinssyni hrl. og eru þeirra dætur Ingibjörg Gróa, f. 2002, Anna Dagbjört, f. 2007, Elín María, f. 2011, og Helena Ósk, f. 2013; 3) Erla Hlín, f. 5.3. 1987, lyfjafræðingur, gift Hlyni Torfa Traustasyni lyfjafræðingi og eru synir þeirra Henry Trausti, f. .2013, og Hilmir Ingi, f. 2016. Systkini Henrýs: Sonja Margrét Gränz, f. 24.8. 1939, húsfreyja í Garða- bæ; Carl Ólafur Gränz, f. 16.1. 1941, framkvæmdastjóri í Reykjavík; Víó- letta Gränz, f. 12.9. 1945, skrif- stofumaður í Hveragerði; Róbert Gränz, f. 22.5. 1947, d. 13.5. 2017, þús- undþjalasmiður, og Hulda Ósk Gränz, f. 6.7. 1954, forstöðufreyja í Jónshúsi. Foreldrar Henrýs: Ólafur Adolf Gränz, f. 4.3. 1912, d. 14.8. 1960, tré- smíða- og málarameistari í Vest- mannaeyjum, og k.h., Ásta Ólafsdóttir Gränz, f. 8.1. 1916, d. 23.4. 1967, hús- freyja. Úr frændgarði Henrýs Þórs Gränz Henrý Þór Gränz Kristbjörg María Helgason húsfr. í Skoruvík Kristján Þorláksson vitavörður í Skoruvík á Langanesi, frá Skálum Margrét Kristjánsdóttir húsfr. á Sólbergi Ásta Ólafsdóttir Gränz húsfr. í Jómsborg Ólafur Sigfússon sjóm. á Sólbergi á Þórshöfn Guðrún Guðmundsdóttir húsfr. á Læknesstöðum Sigfús Jónsson b. á Læknesstöðum á Langanesi Einar Sigurðsson (Einar ríki) útgerðarm. í Eyjum og í Rvík Sigurður Sigurfinnsson hreppstj. og athafnamaður í Eyjum Sigurður Einarsson forstjóri Ísfélagsins í Eyjum Ágúst inarsson v. alþm., prófessor og rektor á Bifröst E f Ágúst Ólafur Ágústsson alþm. Klara Ólafsdóttir húsfr. í Neskaupstað Jón Karlsson framkvstj. í Garðabæ Pálína Sigurjóns- dóttir fv. hjúkrunarforstj. í Breiðholti Helga Finnsdóttir húsfr. í Mosfellsbæ Bogi Frið- finnsson kaupmaður í Eyjabúð í Eyjum Jóhann Friðfinnsson (Jói á Hól) kaupmaður í Drífanda í Eyjum Friðfinnur Finnsson kafari og sóknarnefndar- maður í Eyjum Ólöf Þórðardóttir húsfr. á Stóruborg Finnur Sigurfinnsson b. á Stóruborg undir Eyjafjöllum Ástvaldur Helgason vörubílstjóri og sundlaugar- vörður í Eyjum Jóhanna Helgadóttir húsfr. í Eyjum Guðrún Helgadóttir húsfr. í Rvík Þórfinna Finnsdóttir húsfr. á Bakka í Eyjum Áki Guðni Gränz málarameistari í Keflavík, listamaður og forseti bæjarstjórnar í Ytri-Njarðvík Herbert Gränz málarameistari á Selfossi Gunnar Gränz málarameistari á Selfossi Carl Jóhann Gränz trésmíða- og málarameistari í Karlsskála á Selfossi Anna Sigríður Guðmundsdóttir saumakona í Rvík frá Stóra- Kambi í Breiðuvík Olav Gränz klæðskerameistari í Rvík, af sænskum ættum Ólafur Adólf Gränz trésmíða- og málarameistari í Jómsborg í Vestmannaeyjum Ingibjörg Leikið við barnabörn. ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018 Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Láttu drauminn rætast. Þorgrímur Þórðarson fæddist íVigfúsarkoti í Reykjavík 17.desember 1859. Foreldrar hans voru hjónin Þórður Torfason, f. 1821, d. 1903, útvegsbóndi þar, og Ragnheiður Jónsdóttir, f. 1826, d. 1906, húsmóðir. Þorgrímur ólst upp í Vigfúsarkoti sem var í norðanverðu Grjótaþorpi en húsið brann 1903 ásamt Glasgow, sem var stærsta bygging á Íslandi. Eiginkona Þorgríms var Jóhanna Andrea Ludvigsdóttir Knudsen, f. 5.6. 1854, d. 30.5. 1932, húsmóðir. Börn þeirra voru Björn bókari í Rvík, Þórður Ragnar Ámundi cand.phil., Ragnheiður, lést 4 ára, Ludvig Árni, lést á 1. ári, Ludvig Árni kennari, drukknaði í Jökulsá, Ragnar skó- smiður í Keflavík, Anna Kristín Kristjana húsfreyja á Kleppjárns- reykjum og Einar forstjóri í Reykja- vík. Stjúpsonur Þorgríms og sonur Jóhönnu af fyrra hjónabandi var Stefán Björnsson kennari, síðar sparisjóðsstjóri í Keflavík. Áður en Þorgrímur kvæntist átti hann soninn Kristin Stein með Jóhönnu Guð- mundsdóttur, en Kristinn lést eins árs. Þorgrímur lauk stúdentsprófi frá Latínuskólanum árið 1880 og lækn- isfræðiprófi frá Læknaskólanum árið 1884. Hann stundaði framhaldsnám í Kaupmannahöfn á árunum 1884- 1885. Þorgrímur var héraðslæknir á Akranesi 1885-1886, í Austur- Skaftafellssýslu á árunum 1886-1905, með aðsetur á Borgum í Nesjum, og í Keflavík til 1929. Þorgrímur var alþingismaður Austur-Skaftfellinga 1902-1908 fyrir Framfaraflokkinn, Framsóknar- flokkinn eldri og Þjóðræðisflokkinn. og var einnig póstafgreiðslumaður 1891-1905. Þorgrímur sat í hreppsnefnd Nesjahrepps 1887-1901, sýslunefnd Austur-Skaftafellssýslu 1891-1904 og amtsráði austuramtsins 1891-1905. Sparisjóðurinn í Keflavík var stofn- aður 1907 á heimili Þorgríms og Jó- hönnu í Norðfjörðshúsinu og var Þor- grímur fyrsti gjaldkeri sparisjóðsins. Þorgrímur lést 5. júlí 1933. Merkir Íslendingar Þorgrímur Þórðarson 95 ára Aðalbjörg Magnúsdóttir Jón Geirmundur Kristinss. 90 ára Bjarney Guðrún Ólafsdóttir Esther Jósefsdóttir 85 ára Guðrún J. Valgeirsdóttir Inga Magnúsdóttir Svanhildur Guðmundsd. 80 ára Eyþór Þórisson Finna Ellý Bottelet Magnús Bjarnason Sveinn S. Guðmundsson Vífill M. Magnússon Þórður Þórðarson 75 ára Ásgeir Kristjánsson Bergljót Hermundsdóttir Ragnar Stefán Thoroddsen Ragnheiður Brynjólfsdóttir Valgeir J.R. Rögnvaldsson 70 ára Auður Edda Karlsdóttir Auður Regína Friðriksdóttir Guðný Kristín Pálmadóttir Gunnar Ólafsson Ólafur Kr. Hafsteinsson Sigrún Skarphéðinsdóttir 60 ára Anna Birna Jensdóttir Ágúst Gunnar Gylfason Birna Bragadóttir Dagbjartur Ingimundarson Gunnar Bergþór Pálsson Hafdís Gunnarsdóttir Jóhann Traustason Kristín Guðmannsdóttir Lilja Viðarsdóttir Rúnar Davíðsson Soffía Sóley Magnúsdóttir Yupha Choeipho Þórhallur Helgi Óskarsson 50 ára Anna Guðrún Gylfadóttir Bára Kristín Pétursdóttir Birkir Jóhannesson Björn G. Sæbjörnsson Guðbjörg Arnarsdóttir Guðfinna Helga Þórðard. Guðmundur Jón Ludvigss. Ingigerður H. Guðmundsd. Matthildur Stefánsdóttir Nael A. M. Zared Páll Ólafsson Sigmar Gunnarsson Sigríður Linda Kristjánsd. Sigurður Einar Þorsteinss. Sigurður Steinn Marcum Valdimar Másson 40 ára Andrés Ingason Aurora Chitiga Brynjar Skjöldur Harðarson Geirfríður Sif Magnúsdóttir Guðni Þór Þórðarson Hafdís Lára Halldórsdóttir Hallur Már Hallsson Hallvarður Níelsson Haukur Baldursson Hermann Þór Þorbjörnsson Marvin Ingólfsson Sigrún Sigurjónsdóttir Valgerður Guðbjörnsdóttir 30 ára Dagný Finnbjörnsdóttir Einar Hrafn Jónsson Guðni Páll Kárason Helgi Fannar Hjartarson Ketill Gauti Árnason Rakel Ósk Jóhannesdóttir Sara Dögg Ólafsdóttir Þórarinn Ólafsson Til hamingju með daginn 40 ára Bjarni býr í Kópa- vogi og ólst þar upp. Hann er nýútskrifaður hugbúnaðarverkfræð- ingur frá Háskólanum í Reykjavík. Dóttir: Anja Björk, f. 2003. Foreldrar: Leifur Krist- jánsson, f. 1959, pípu- lagningamaður og rekur eigið fyrirtæki, og Aðal- heiður Bjarnadóttir, f. 1960, heimavinnandi. Þau eru bús. í Kópavogi. Bjarni Kristján Leifsson 40 ára Linda er Akureyr- ingur, leikskólakennari að mennt og er að ljúka MA- gráðu í menntavísindum við Háskólann á Akureyri. Maki: Birgir Örn Reynis- son, f. 1977, vinnur í Rúmfatalagernum. Börn: Egill, f. 1999, og Hildur Anna, f. 2007. Foreldrar: Egill Grétar Stefánsson, f. 1957, d. 1998, múrari, og Kolbrún Júlíusdóttir, f. 1958, skrif- stofumaður hjá Samherja. Linda Egilsdóttir 30 ára Pálmi er frá Hjarðarhaga í Akrahreppi, Skag. Hann er starfsm. í pökkun hjá Póstdreifingu. Bróðir: Ágúst, f. 17.1. 1988, bókari hjá Íslands- hótelum. Foreldrar: Sigurjón Björn Pálmason, f. 1958, verk- stjóri í Mosfellsbæ, og Hjördís Gísladóttir, f. 1957, verkefnastjóri kennslusviðs Háskólans á Hólum í Hjaltadal, bús. í Silfurtúni í Skagafirði. Pálmi Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.