Morgunblaðið - 17.12.2018, Side 32

Morgunblaðið - 17.12.2018, Side 32
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is Gullsmiðir HÁLSMEN ARMBÖND EYRNALOKKAR HRINGIR Mikið úrval af trúlofunar- og giftingahringapörum caratskartgripir carat.acredo Ekkert jólastress Hjá okkur er opið allan sólarhringinn á carat.is Á jólatónleikum í Breiðabólsstað- arkirkju í Fljótshlíð kl. 20 annað kvöld, þriðjudagskvöld, koma fram Sigríður Aðalsteinsdóttir altsöng- kona, Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari, Guðjón Halldór Óskarsson orgel- leikari og Kirkjukórar Breiðabóls- staðarprestakalls. Á efnisskránni eru hátíðleg verk, m.a. eftir J.S. Bach, Vivaldi og Albinoni. Jólatónleikar í Breiðabólsstaðarkirkju MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 351. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Enginn vafi leikur á að franska kvennalandsliðið í handknattleik er það besta um þessar mundir. Það varð heimsmeistari fyrir ári og í gær vann það Evrópumeistaratit- ilinn í fyrsta sinn. Þar með feta Frakkar í spor norska kvennalands- liðsins sem var handhafi heims- og Evrópumeistaratitilsins á sama tíma fyrir tveimur árum. »2 Frakkar fetuðu í spor Norðmanna ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM „Ég var spennt þegar ég heyrði að þetta væri Spánn. Öll liðin sem við gátum fengið eru gríðarlega góð, en það voru mismiklir möguleikar á að geta strítt þeim. Þetta var með því betra sem við gátum fengið. Þetta er spennandi verkefni á móti góðu liði,“ segir Þórey Rósa Stef- ánsdóttir, fyrirliði íslenska lands- liðsins í handknattleik, sem dróst á móti Spáni í um- spilsleikjum um farseðilinn á HM sem fram fer í Japan eftir 11 mán- uði. Leikir fara fram í vor. »1 Með því betra sem við gátum fengið Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Jólaandinn var allsráðandi á að- ventukvöldi sem fram fór í Linda- kirkju í Kópavogi í gærkvöldi þar sem kór Lindakirkju söng fjölbreytt jólalög og sálma undir stjórn Ósk- ars Einarssonar að 900 gestum við- stöddum. „Ég hef aldrei haft eins stóra aðventuhátíð áður. Það eru yf- ir 100 manns á sviðinu, kórar og fólk sem tengist Lindakirkju,“ segir Óskar. Kór Lindakirkju, unglinga- gospelkór Lindakirkju og nýstofn- aður barnakór Lindakirkju komu fram á tónleikunum. Aðspurður hvort sviðið rúmi svo marga segir Óskar að kirkjan sé vel undir það búin og bætir við að hún sé orðin mjög vinsæl fyrir tónleika- hald, enda sé hún búin frábæru hljóðkerfi og nýjum flygli. „Ég mun spila í fimm guðsþjón- ustum og messum um jólin, þremur á aðfangadag,“ segir Óskar og bætir við að tímabilið sé skemmtilegt. Jólin eru háannatími hjá Óskari, einungis í desembermánuði tekur hann þátt í 18 tónleikum, þar má nefna Jólagesti Björgvins, sem hann hefur tekið þátt í síðastliðin 11 ár. Þar leiðir hann Gospelkór Reykjavíkur. Óskar viðurkennir að álagið sé mikið í desember. „Þetta er mjög góður tími en jafnframt fylgir því mikið álag, það er alltaf hreint troðfullt út úr dyrum á tónleikunum. Ég er alltaf glaður þegar jólin eru búin, þá fæ ég nota- lega tilfinningu og get loksins slak- að á. En maður væri ekki að þessu nema vegna þess að þetta er gam- an.“ Til að takast á við álagið stundar Óskar crossfit-líkamsrækt alla morgna. „Ég held heilsunni með því að stunda líkamsrækt og borða hollan mat. Svo skiptir miklu máli að vera skipulagður,“ segir Óskar og bætir við að undirbúningur jólatónleik- anna hafi hafist í október. Þegar desember komi sé allt nokkurn veg- inn tilbúið. Í dag spilar Óskar einkum í kirkjum og í útförum. Hann segir að fólk kunni meira og meira að meta léttan söng í útförum og óski eftir honum í auknum mæli. – Hvað er það sem heillar við gospeltónlist? „Lögin eru skemmtileg, þetta er náttúrlega poppsöngur með kristi- legum textum. Síðan finnst mér þessi söngstíll svo heillandi, það er ákveðin raddbeiting sem heillar fólk fljótt. Það heyrist í frægum lögum, til dæmis með Michael Jackson eða Maríu Carey, þegar gospelradd- irnar koma inn, þá fá allir gæsa- húð.“ Morgunblaðið/Hari Jólatónleikar Óskar Einarsson stjórnaði kór Lindakirkju í gærkvöldi á tvennum jólatónleikum, fyrir fullu húsi. Gospelsöngurinn kallar fram gæsahúð  Óskar Einarsson stjórnaði kór Lindakirkju á fjölsóttu að- ventukvöldi kirkjunnar  Tekur þátt í fjölda jólatónleika

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.