Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Skúli Halldórsson sh@mbl.is Í samtali við 200 mílur segir Guð- björg ánægjulegt að sjá að sjávarútvegur hér á landi skapi sífellt meiri verðmæti, þrátt fyrir stöðugan afla. Hún segist fyrst hafa kynnst Ís- lenskum sjávarútvegi með almenni- legum hætti þegar hún hóf störf við vöruþróun fiskvinnslubúnaðar hjá Marel. „Ég fór að skilja betur hvað hann er verðmætur fyrir okkur sem þjóð- félag,“ segir Guðbjörg, en spurð hvort hún verði þess vör að sam- félagið meti ekki sjávarútveg og tengdar greinar sem skyldi, miðað við þau verðmæti sem þar eru á ferð, nefnir hún dæmi um könnun sem Marel hefur látið gera um við- horf hérlendis gagnvart fyrirtæk- inu. „Í 98% tilvika er fólk jákvætt eða mjög jákvætt gagnvart Marel. En svo þegar spurt er hvers vegna, þá er viðkvæðið oft „fiskur“ eða „hug- búnaður“. Svarið verður einhvern veginn miklu óljósara. Fólk veit því greinilega að þetta skiptir máli en ég hugsa að það sé ekki endilega að kafa mikið dýpra,“ segir hún. „Á sama tíma er ferðaþjónustan mjög áberandi og um leið áhrifin af vexti þeirrar greinar á samfélagið. Ég hugsa því að fólk sé almennt já- kvætt gagnvart grósku í sjávar- útvegi en hafi ekki endilega dýpri þekkingu en sem því nemur. Það er heldur ekki endilega auðvelt að tala um tækni og nýsköpun ýmiss konar. Það er ekki beinlínis umræða sem fólk stekkur inn í, enda er hún ef til vill ekki oft á nógu miklu manna- máli.“ Í fararbroddi í hvítfiskvinnslu Guðbjörg segist finna að erlendur sjávarútvegur horfi til Íslands þegar kemur að tæknivæðingu í veiðum og vinnslu. „Hvítfiskvinnslan er til að mynda lengst komin hér á landi, miðað við vinnslur í öðrum löndum. Sú reynsla og þekking sem byggst hefur upp í hvítfiskinum nýtist síðan þegar litið er til vinnslu á annars konar sjávarafurðum,“ segir Guð- björg. Þannig séu Íslendingar í far- arbroddi í vinnslu á hvítfiski. „Ég hugsa að það fari fáir í heim- inum að vinna hvítfisk að ráði án þess að frétta hvað er að gerast á Ís- landi. Sjávarútvegurinn hefur alltaf verið mjög mikilvægur fyrir þjóð- arhag Íslands, og hann stendur ennþá undir 40% af vöruútflutningi frá landinu.“ Verðmæti í tækni og þekkingu Hluti af starfsemi Marels byggist á sjálfvirknivæðingu fiskvinnslu og bendir Guðbjörg á að víða sé þeirri tækni jafnan sýndur mikill áhugi, sérstaklega þar sem launakostnaður er hár. Aðspurð segir hún að nýsköp- unarumhverfið á Íslandi sé heil- brigt, og að svo virðist sem stjórn- völd séu sífellt meðvitaðari um mikilvægi nýsköpunar í heild. Marel finni fyrir miklum meðbyr og sam- talið um nýsköpun hér á landi sé nokkuð jákvætt. Þá finnist henni skemmtilegt að sjá, á sama tíma og útlit sé fyrir að aflamagn við Íslandsstrendur muni ekki endilega aukast á komandi ár- um, að sjávarútvegur hérlendis sé samt sem áður að skapa sífellt meiri verðmæti. Annars vegar með betri nýtingu afurða, með hjálp tækninn- ar, og hins vegar með útflutningi á sjálfri tækninni og þeirri þekkingu sem þar býr að baki. „Og við eigum svo mikið inni. Þekkingin verður alltaf meira og meira virði. Það er svo ótrúlega víða sem sjálfvirknivæðingin á í raun enn eftir að eiga sér stað. Þannig er staðan í mörgum löndum í kringum okkur. Það bíður okkar því fjöldi tækifæra þar sem við lítum svo á að við eigum mikið fram að færa.“ Beingarður skorinn með vatni Guðbjörg segir FleXicut-lausnina, sem hún leiddi fyrir nokkrum árum, vera æðislegt dæmi um sjálfvirkni- væðingu. „Í margar aldir hafa menn skorið beingarð úr fiskflaki með höndum. Og nú er það gert með vatni. Fram- leiðendur ná fram miklu betri nýt- ingu og það er miklu meira magn sem getur farið í gegnum vinnsluna. Þú þarft ekki að þjálfa starfsfólk í störf sem eru ekki eftirsótt. FleX- icut er ótrúlega gott dæmi um hvað sjálfvirknivæðing getur haft mikið að segja.“ Spurð hvaða byltingu Marel muni næst leiða fram á sjón- arsviðið bendir hún á nýjungar hjá fyrirtækinu á borð við að nota mikið magn miðlægra gagna til að spá um viðhald og varahlutaþörf tækja sem búið er að selja notendum. „Hér áður fyrr gastu ef til vill fengið skýrslu frá hverju tæki fyrir sig að degi loknum, þegar gögnin voru búin að hlaðast upp. En núna, með hjálp 4G-nettækninnar og síðar 5G, þá geta allar upplýsingar flætt í rauntíma inn á skrifstofuna, þar sem vinna má með þær um leið. Þarna er Marel – með stærsta hugbún- aðarhús landsins – með ótrúleg tækifæri í höndunum.“ Framfarir í sjóntækni eru þá einnig í deiglunni, segir Guðbjörg. „Ef þú ætlar að sjálfvirknivæða, þá þarftu að sjá. Vélin getur ekki tekið ákvörðun um eitthvað upp úr þurru, hún þarf að geta séð hvað hún er að vinna með. Hérna er til dæmis hægt að nota gervigreind til að vinna úr upplýsingum sem koma frá mynda- vél, sem getur þannig tekið betri ákvarðanir í vinnslunni og með meiri áreiðanleika.“ Hanna fiskvinnslu framtíðar Guðbjörg bendir loks á að í ár séu fjörutíu ár liðin síðan fyrsta raf- eindavogin sem hönnuð var af stofn- endum Marels leit dagsins ljós. „Það er í raun ótrúlegt hvað þeir voru framsýnir og nútímalegir í hugsun, þar sem vogin safnaði einn- ig gögnum sem síðan voru notuð til að bæta vinnsluna, minnka sóun og auka virðið. Við höfum frá fyrsta degi horft á gögn sem uppsprettu virðisaukningar. Enn í dag byggjum við á þessum grunni, auk þess sem við erum að taka helstu tækninýj- ungar samtímans og færa þær í vél- ar fyrirtækisins,“ segir hún. „Verkefnið er ærið og verðugt. Við erum að tryggja að matvæli séu framleidd á hagkvæman og sjálf- bæran máta. Aðeins þannig getum við tryggt að nóg verði til þegar mannkynið verður tíu milljarðar ár- ið 2025. Það er verkefnið fyrir fisk- vinnslu framtíðarinnar og hana er- um við að búa til í Marel, í samstarfi við viðskiptavini okkar.“ Stofnendurnir ótrúlega framsýnir Í sjávarútvegi erlendis er horft til Íslands þegar kemur að tæknivæðingu í veiðum og vinnslu. Þetta segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, sem tók við stöðu fram- kvæmdastjóra Marels í september. Morgunblaðið/Eggert Framkvæmdastjóri „Við höfum frá fyrsta degi horft á gögn sem uppsprettu virðisaukningar. Enn í dag byggjum við á þessum grunni,“ segir Guðbjörg Heiða. Hvítfiskvinnsla Frá sýningu Marels í Kaupmannahöfn, sem haldin er árlega. Guðbjörg hefur starfað hjá Marel frá árinu 2011 og er með meist- aragráðu í iðnaðarverkfræði auk prófs í verðbréfaviðskiptum. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórn- un, vöruþróun og nýsköpun en áður en hún tók við starfi fram- kvæmdastjóra stýrði hún vöruþróunarstarfsemi félagsins á Íslandi og Bretlandi í tvö ár. Einnig starfaði Guðbjörg í vöruþróun fiskvinnslubúnaðar þar sem hún var verkefnastjóri eins stærsta vöruþróunarverk- efnis Marels undanfarin ár, FleXicut-vatnsskurðar- lausnarinnar, sem sögð er munu umbylta hvítfiskvinnslu á heims- vísu. Muni umbylta fiskvinnslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.