Morgunblaðið - 14.12.2018, Page 44

Morgunblaðið - 14.12.2018, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Fulltrúa LHG í Róm voru kynntir tveir möguleikar í stöðunni: Fá konuna eða þá sem treystu sér um borð í EZADEEN til þess að drepa á vél skipsins, þá kæmumst við um borð, eða senda þyrlu á stað- inn til aðstoðar við að koma mann- skap um borð í hið nauðstadda skip. Björgunarstöðin í Róm vildi ekki að drepið yrði á aðalvél skipsins en var tilbúin að kalla út þyrlu með tveimur þriggja manna uppgöngu- liðum frá ítölsku strandgæslunni til þess að fara um borð í skipið og einnig að flytja að minnsta kosti tvo menn frá varðskipinu um borð í EZADEEN. Fljótlega eftir samtalið við Róm slokknuðu skyndilega öll ljós um borð í EZADEEN og varð skipið al- myrkvað í nokkra stund, síðan kviknuðu öll ljós aftur en slokknuðu endanlega skömmu síðar. Fljótlega eftir þetta sást að hraði skipsins minnkaði og skipið fór fljót- lega á rek. Þegar ljóst var að skipið var kom- ið á rek breyttust aðstæður og allar líkur á að hægt yrði að senda mann- skap frá Tý yfir í skipið þrátt fyrir að enn væri slæmt veður. Léttbátur Týs var strax mann- aður uppgöngusveit með þeim Gísla Val stýrimanni, Jóhanni bátsmanni, Martin og Magnúsi hásetum og siglt að skipinu. Þegar báturinn var kom- inn að síðu skipsins hlémegin og í skjóli fyrir sjógangi og vindi ókyrrð- ist fólkið mjög þannig að bátsverjum leist ekkert á blikuna og höfðu sam- band og sögðu að þeim litist illa á að komast um borð. Þeir voru hræddir um fólkið myndi jafnvel stökkva í bátinn í einhverri geðshræringu, það var eins og að skipið sjálft væri yfirfullt af fólki, það hékk allt fram af öllum borðstokkum þeim megin sem léttbáturinn kom að skipinu. Léttbáturinn fór einn könnunar- hring hringinn í kringum skipið. Ég bað þá að koma aftur um borð til skrafs og ráðagerða en finna enskumælandi mann áður og full- vissa fólkið um að við værum komin til að bjarga þeim og kæmum aftur fljótlega. Léttbáturinn kom síðan aftur um borð í Tý, farið var yfir málin og nið- urstaðan sú að ekkert væri annað í stöðunni en að reyna aftur, taka þann tíma sem þyrfti og reyna að róa fólkið. Léttbáturinn var síðan aftur sendur yfir að EZADEEN og upp úr kl. 23.00 þetta nýárskvöld komust þessir fjórir menn af varðskipinu um borð í EZADEEN. Hér er lýsing Gísla Vals stýri- manns á aðstæðum þegar þeir fóru um borð í EZADEEN: „Það var þó ákveðið að fara yfir og freista þess að fara um borð. Það var enginn fastur leiðari á skipinu og engin augljós leið um borð. Hins- vegar þar sem fríborðið var lægst, þar sem sett hafði mögulega verið upp landgangsbrú fyrir dýrin, og við ákváðum að láta á það reyna. Jói bátsmaður lét fyrstur vaða enda höfðinu hærri og þar af leiðandi lengri en hinir, og á eftir honum fór ég. Þetta var hálfglæfralegt en það eina í stöðunni. Ég fór ofan á hval- bakinn á léttbátnum og á réttu róli lét ég vaða, stökk yfir og á síðu skipsins. Hékk á höndunum og náði svo að koma hnénu upp á og príla þaðan þannig um borð. Við tókum á móti spotta frá strákunum og dróg- um upp og festum leiðara á bak- borðssíðu skipsins. Það var mikill æsingur í fólkinu þarna um borð og það áttu allir er- indi við okkur virtist vera. Við skipt- um okkur niður tveir og tveir í könnun um skipið. Fólkið um borð sagði að áhöfnin væri farin frá borði og að þau hefðu verið læst í stíunum þar til áhöfnin fór. Eftir að þau fóru, fóru fjölskyldur og barnafólk inn í íbúðir í yfirbyggingu skipsins og kom börnum fyrir í rúmum og þess háttar. Það var allt á öðrum end- anum, bókstaflega, inni í vistarver- unum hafði örugglega flætt upp úr klósettum því þar var allt á floti, í stíunum hafði fólk hreiðrað um sig með teppum og virtist hafa það ágætt. Það gerði greinilega þarfir sínar í einu horninu og út um einn hlerann, sem ég opnaði og sá hvað þar var að finna. Ég og Jói bátsmaður athuguðum vistaverurnar og brúna á meðan Martin og Maggi fóru niður í stíurn- ar og tóku á móti vatni fyrir fólkið. Það loguðu einhver viðvörunarljós í brúnni og það var lítið eftir heillegt þar. Ég fann til dæmis aldrei, eða fann ekki út úr því, hvaða talstöð konan kallaði á okkur úr þegar við komum fyrst að skipinu. Við fórum líka niður í vélarrými og þar var sömu sögu að segja. Það var allt á þýsku þar og við gáfum okkur það svo sem að það yrði ekki fundið út úr neinu þar til að ná vélum í gang og sigla skipinu í land. Við tókum á móti Pétri vélstjóra og þegar hann komst upp leiðarann leiddi ég hann niður í vélarrými. Hann komst að því sama, það væri væntanlega eldsneytislaust. Þá lét ég strax vita svo að hægt væri að hefja undirbúning um borð í varð- skipinu að græja skipið í tog. Við sendum fólk aftur í vistarver- urnar sínar og útskýrðum fyrir því að það yrðu ekki ferjað frá borði og að skipið yrði dregið til hafnar. Það var ótrúlegt hvað ástandið róaðist fljótt við þá upplýsingagjöf og ánægjulegt hvernig fólk tók því. Það var þarna ein kona sem leiddi okkur um íbúðirnar með vatn og sá til þess að allir fengju. Ég spáði í það eftir á að þetta hefði mögulega verið konan í talstöðinni. Einn annar hafði farið niður í vél- arrýmið þegar áhöfnin fór frá borði og leiddi mig og Jóa þangað niður þegar að því kom. Annars voru nokkrir sem fóru ekkert í ró um nóttina, stóðu og mældu okkur út hvar sem við vorum en höfðu sig ekkert frammi og okkur stóð engin ógn af þeim, en við höfðum auga með þeim og vissum hvar þeir voru yfirleitt.“ Skipið virtist fara vel í sjó og var í sjálfu sér ekki í yfirvofandi hættu, enginn leki sjáanlegur, utan smá kjölvatn.Var mjög létt á sjó. Annar björgunarbáturinn var farinn, þ.e. bátadavíðan stjórnborðsmegin var tóm og héngu vírarnir í sjó. Engin áhöfn, einungis flóttamenn. Smyglarar gætu þó hafi falið sig meðal flóttamanna, voru víst með grímur á andlitum að sögn flótta- manna og hurfu svo. Það þarf ekki að taka það fram að vítavert var að senda skipið út á opið haf án áhafnar og nokkurs björg- unarbúnaðar, stjórnlaust og ein- ungis á sjálfstýringu í mikilli umferð eins og þarna er, en hvað gera menn ekki fyrir peninga. Um miðnætti kom þyrlan frá ítalska flughernum og slakaði niður þremur mönnum frá ítölsku strand- gæslunni. Þessir menn fóru rakleið- is upp í brú og héldu sig þar eða svo lengi sem varðskipsmenn voru um borð. Um svipað leyti óskaði björg- unarstjórnstöðin í Róm eftir því að tvö nærstödd skip héldu á vettvang til að veita aðstoð ef þörf yrði á. Tvö flutningaskip komu síðan fljótlega og héldu sig í nágrenni við okkur. Kl. 01.15 tilkynnti Pétur vélstjóri sem sendur var yfir í EZADEEN að engin olía væri eftir á skipinu, allir tankar galtómir og komin skýring á því að skipið stoppaði snögglega og öll ljós slokknuðu. Þar sem ljóst var að skipið kæm- ist ekki áfram af eigin rammleik, sem hefði verið best, og útilokað við þær veðuraðstæður sem þarna voru að flytja fólkið milli skipa, var strax hafist handa við að gera drátt- arbúnað varðskipsins kláran. Um kl. 02.30 kom þyrlan aftur á svæðið og slakaði niður í EZA- DEEN þremur mönnum, þá voru alls komnir sex menn frá ítölsku strandgæslunni um borð. Af einhverjum ástæðum sem ég fékk aldrei skilið fór þyrlan síðan og sótti, að ósk Ítala í björgunarstjórn- stöðinni í Róm, tvo vélstjóra af öðru flutningaskipinu sem var í nágrenni við okkur og flutti þá um borð í EZADEEN til að staðfesta að að- alvél skipsins yrði ekki komið í gang að nýju. Fljótlega eða skömmu fyrir kl. 04.00 staðfestu vélstjórarnir, það sama og okkar vélstjóri hafði sagt, að vélarnar væru gagnslausar án ol- íu sem engin var um borð. Þegar þarna var komið sögu var einnig komið á vettvang skip ítölsku strandgæslunnar, CP-310 og þeir fluttu vélstjórana aftur yfir í skip sitt. Ezadeen tekið í tog Um kl. 04.00 var allt klárt um borð hjá okkur til að taka skipið í tog. Við vorum í sambandi við okkar menn um borð í EZADEEN og báðum þá að fara fram á og vera tilbúnir að ná skotlínu sem við vorum að fara að skjóta yfir í skipið og síðan drátt- artaugar. Eins og fram hefur komið var skipið algjörlega vélarvana og því voru engin tök á því að fá inn spil til að auðvelda vinnu við að hífa dráttartaugarnar um borð. Það eru nokkrar aðferðir til að koma drátt- artaug um borð í vélarvana skip en við þessar aðstæður, mikill vindur og mikið rek á skipinu, kom ekkert annað til greina en að gera þetta einfaldlega á handkraft eins og kall- að er. Ítalirnir sex voru enn uppi í brú og buðust ekki til að fara fram á stefni til aðstoðar. Á þessum tíma vorum við komnir með svokallað „of- urtóg“ kallað dynex, sem er mjög sterkt tóg og létt. Ég lónaði því Tý upp að stefni EZADEEN og reyndi að halda skuti Týs eins nærri og þorandi var án þess að skipin rækjust saman í sjóganginum, til að auðvelda mönn- um dráttinn á dráttartaugum milli skipanna. Þetta yrðu mikil átök þrátt fyrir að ofurtógið væri talsvert léttara en vírar. Veður var enn afleitt eða vindur af norðri, um 15 til 20 m/sek, og mik- ill sjór. Kl. 04.04 var línu skotið með línu- byssu varðskipsins yfir í stefni Leið Ezadeen yfir Miðjarðarhafið frá Sýrlandi til Ítalíu 2. janúar 2015 tekur varðskipið Týr Ezadeen í tog Fer frá Famagusta á Kýpur 19. des. 2014 Týr kemur með Ezadeen til hafnar í Corigliano Calabro á Ítalíu Ezadeen leggur af stað frá Tartus í Sýrlandi Í TA L Í A T Y R K L A N D K Ý P U R G R I K K L A N D M ið j a r ð a r h a f i ð SÝRLAND MV Ezadeen Tegund skips: gripaflutningaskip. Byggt: 1966. Lengd: 73 m. Varðskipið Týr Kallmerki: TFGA. Byggt: 1975. Stærð: 71 m, 923 brúttórúmlestir. Horft til Ezadeen Skipið var fljótt að tæma olíutankana eftir að áhöfnin stakk af.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.