Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.04.2019, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 09.04.2019, Qupperneq 6
ÍSRAEL Kosið er til ísraelska þings- ins, Knesset, í dag. Benjamín Net- anjahú forsætisráðherra freistar þess að ná fimmta kjörtímabilinu í embætti. Þótt f lokkur hans, Líkúd, mælist ekki stærstur benda kann- anir til að ríkisstjórnin haldi velli. Annar Benjamín, fyrrverandi hershöfðinginn Benny Gantz, leiðir sameinað framboð frjálslyndra flokka undir nafninu Kahol Lavan. Sex af níu skoðanakönnunum dag- ana 4. og 5. apríl benda til þess að framboðið fái f lest sætiMeðaltal kannana sýnir Kahol Lavan með 30 sæti af 120, Líkúd með 28. Samanlagt mælist hægri blokkin hins vegar með 63 til 66 sæti og vinstri blokkin með 54 til 57 sæti. Ísraelska blaðið Haaretz greindi stöðuna sem svo að úrslitin þyrftu að koma stórkostlega á óvart, og úr samhengi við kannanir og söguna, til þess að hægriflokkarnir myndu ekki ná meirihluta og Gantz tæki við forsætisráðuneytinu. Netanja- hú þarf hins vegar að reiða sig á að nokkrir smærri f lokkar skríði yfir 3,25 prósenta þröskuldinn og það gæti mögulega skilað vinstri- og miðjuflokkunum meirihluta. Samkvæmt BBC gæti svo farið að Moshe Feiglin og f lokkur hans, Zehut, ráði úrslitum. Feiglin hefur sagt að sér sé alveg sama hvort Netanjahú eða Gantz verður for- sætisráðherra. Zehut má flokka til öfgaþjóðernishyggjuflokka. Feiglin hefur til að mynda talað fyrir því að Palestínumenn flytji í burtu af Gasa og Vesturbakkanum og að sýnagóga verði byggð á Musterishæðinni, reit sem bæði múslimar og gyðingar telja einn þann helgasta í heimi. Forsætisráðherrann lofaði því á sunnudag að innlima landtöku- byggðir Vesturbakkanum inn í Ísraelsríki ef hann nær endurkjöri. Um 400.000 Gyðingar búa á Vestur- bakkanum en um 2,5 milljónir Pal- estínumanna. Sameinuðu þjóðirnar álíta landtökubyggðirnar ólöglegar. Með loforðinu gerir Netanjahú lík- legra að f lokkarnir yst á íhalds- vængnum styðji áframhaldandi veru hans í forsætisráðuneytinu. Kosningabaráttan hefur meðal annars einkennst af umræðu um spillingarákærur gegn Netanjahú. Ríkissaksóknari segir að forsætis- ráðherrann verði ákærður fyrir meinta mútuþægni og fjársvik. Líkúd hefur hins vegar kallað eftir því að Gantz verði einnig rann- sakaður fyrir spillingu. Líkúd-liðar telja að fyrirtæki Gantz hafi gert ólöglegan samning við lögreglu. Kahol Lavan hafnar alfarið slíku; Netanjahú sé sá sem standi til að ákæra fyrir spillingu, ekki Gantz. thorgnyr@frettabladid.is BANDARÍKIN Donald Trump Banda- ríkjaforseti ákvað í gær að f lokka skyldi byltingarvarðasveitir íranska hersins sem hryðjuverkasamtök. Þetta er í fyrsta sinn, samkvæmt Reuters, sem Bandaríkin f lokka her annars sjálfstæðs ríkis á þann- ig. Áður voru tugir hópa og einstakl- inga innan sveitarinnar á svörtum lista. „Ef þú stundar viðskipti við bylt- ingarvarðasveitirnar ert þú að fjár- magna hryðjuverkastarfsemi,“ sagði í tilkynningu frá forsetanum. Sveitirnar voru stofnaðar stuttu eftir írönsku byltinguna árið 1979. Þær eiga að standa vörð um stjórn- kerf i landsins og veita hinum hefðbundna her ríkisins aðhald. Samkvæmt BBC eru sveitirnar nátengdar æðstaklerknum Ali Khamenei og öðrum valdamönn- um. Sveitirnar eru einnig veiga- miklar í írönsku viðskiptalífi og halda utan um stór styrktar félög. Íranskir þingmenn samþykktu í síðustu viku, þegar fjölmiðlar fjöll- uðu fyrst um að von væri á þessari ákvörðun Trumps, að svara í sömu mynt. Seyed Jawad Sadatinejad, einn þingmanna, sagði við ríkis- fréttastofuna FARS á laugardag að málið væri hið heimskulegasta. Ef Íran svaraði í sömu mynt gætu bandarískir hermenn á svæðinu verið litnir sömu augum og liðs- menn ISIS og al-Kaída. – þea Kosningabaráttan hefur meðal annars einkennst af umræðu um spillingar­ ákærur gegn Netanjahú. RÚMENÍA Ion Iliescu, forseti Rúm- eníu frá 1989 til 1996, hefur verið ákærður fyrir glæpi gegn mann- kyninu. Frá þessu greindi Reuters í gær en ríkissaksóknari Rúmena hefur að undanförnu rannsakað glæpi sem eiga að hafa átt sér stað í byltingu landsmanna gegn komm- únismanum árið 1989. Hundr uð vor u my r t þegar Nicolae Ceausescu var steypt af stóli í desember 1989 en Iliescu hefur lýst sig saklausan af ásökun- unum. Iliescu á, samkvæmt saksóknara, að hafa sett saman hóp byltingar- sinna sem kom svo á ringulreið í landinu og leiddi til þess að 862 létu lífið og 2.150 særðust eftir að Ceau- sescu var steypt af stóli. – þea Ákærður vegna víga í byltingu Íranar svara í sömu mynt Donald Trump Bandaríkja­ forseti. SAMGÖNGUR Bifreiðaeigendum sem eiga ekki erindi á fjallvegi er óhætt að skipta yfir á sumardekk. Nagladekk eru óheimil frá og með mánudeginum 15. apríl. Vakthafandi sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir enga snjókomu í kortunum svo lengi sem spárnar séu marktækar, eða tíu daga fram í tímann. Enn sé of snemmt að spá um veðrið yfir páskana. Það sé þá helst þeir sem eigi leið yfir fjallvegi um páskana sem hefðu afsökun fyrir því að skipta ekki út nöglunum. Í gær var svokallaður grár dagur í höfuðborginni þar sem svifryk fer yfir heilsu verndar mörk í kringum stórar um ferðar æðar. Sólarhrings- heilsuverndarmörkin fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Gildin á Grensásvegi voru á bilinu 51-61 míkrógrömm á rúmmetra eftir hádegi í gær. Svifryksmengun á Akureyri var töluvert meiri, mæld- ist styrkurinn 134 míkrógrömm yfir hádegið í gær, nóttina á undan var styrkurinn 123 míkrógrömm. Kristín Lóa Ólafsdóttir, heil- brigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftir- liti Reykjavíkur, segir skýr tengsl á milli svifryks og nagladekkja. „Það hefur verið sýnt fram á það að naglarnir, þrátt fyrir að vera orðnir miklu betri en þeir voru, tæta upp malbikið. Naglarnir eru eins og tætimaskína. Þó það geti verið grófar agnir þá myljast þær niður af öðrum dekkjum,“ segir Kristín Lóa. Hvetur hún alla á nöglum til að skipta yfir á sumardekk, eða fara yfir á heilsársdekk. „Naglar eiga kannski ekki heima innan borgar- markanna.“ Strætó bauð fólki í gær frían dag- spassa í Strætóappinu. Ekki liggur fyrir hversu margir nýttu sér þetta en meira en 1.400 notendur sóttu sér appið í gær. „Það kom stökk í niðurhali eftir að við sendum út tilkynningu um hádegið á sunnu- daginn, svo kom annað stórt stökk um sjöleytið um morguninn,“ segir Guðmundur Heiðar Helgason, upp- lýsingafulltrúi Strætó. Samkvæmt stjórnstöð Strætó var marktækur munur á umferð síð- degis í gær, lítið var um seinkanir, þar á meðal á leið 14 sem lendir iðu- lega í töfum síðdegis. Samkvæmt talningu Heilbrigðis- eftirlitsins frá því í mars voru 46 prósent ökutækja á negldum dekkjum, sama hlutfall og í janúar. Það er talsvert meira en oft áður, en árið 2015 var hlutfallið 34 prósent. Svo virðist sem borgarbúar trúi því að snjókoman fyrir viku sé það síðasta sem þeir sjái af vetrinum. „Það er búið að vera vitlaust að gera hjá okkur frá því á föstudag- inn. Þá myndaðist löng röð. Það var líka mikið að gera á laugardaginn,“ segir Aron Elfar Jónsson, rekstrar- stjóri Sólningar á Smiðjuvegi. Aron telur að  verkstæðið hafi náð að afgreiða um hundrað bíla fyrri hluta dagsins í gær. Aðspurð- ur hvernig ökumenn eigi að bera sig að segir Aron að best sé að mæta einfaldlega í röðina, best sé að þeir sem þurfi að panta dekk geri það þegar þeir mæti svo dekkin séu til- búin þegar röðin kemur að þeim. Nóg var að gera þegar ljósmynd- ara bar að garði í gær. Aðspurður hvað ökumenn ættu von á að þurfa að bíða lengi segir Aron það yfir- leitt ekki meira en hálftíma. „Við vinnum ansi hratt.“ arib@frettabladid.is Óhætt að fara á sumardekkin Bíleigendum sem ekki eiga erindi á fjallvegi er óhætt að skipta yfir á sumardekk. Svifryksmengun var yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík og á Akureyri í gær. Mikið er að gera á hjólbarðaverkstæðum. Það er búið að vera vitlaust að gera hjá okkur frá því á föstudaginn. Þá myndaðist löng röð. Aron Elfar Jónsson, rekstrarstjóri Sólningar á Smiðjuvegi Það var í nógu að snúast á dekkjaverkstæðinu Sólningu í gær þar sem um eitt hundrað bílar voru afgreiddir fyrri part dagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Líkur á að Líkúd verði ekki stærstur en stýri líklega samt Netanjahú sést hér einn á vinstra plakatinu en Gantz stendur fyrir framan aðra leiðtoga Kahol Lavan á plakatinu til hægri. NORDICPHOTOS/AFP 9 . A P R Í L 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :4 2 F B 0 3 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C 5 -2 8 F C 2 2 C 5 -2 7 C 0 2 2 C 5 -2 6 8 4 2 2 C 5 -2 5 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 3 2 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.