Fréttablaðið - 09.04.2019, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 09.04.2019, Blaðsíða 18
Ananas á pitsuna, já eða nei? Þetta er deilumál víðar en á Íslandi. Svo virðist sem umræða um þetta sé eitt af þeim málum sem fólk deilir hvað mest á netinu þegar rætt er um mat. Tölu­ verð umræða var hér á landi þegar Guðni forseti sagðist alfarið vera á móti ananas á pitsum. Nýlega var gerð könnun hjá YouGov fyrir Peppes Pizza í Noregi þar sem spurt var hvort fólki líkaði að hafa ananas á pitsunni eða ekki. Það kom reyndar á óvart að 59% svarenda voru sátt við ananasinn sem mætti kallast sigur fyrir hann. Niðurstaðan var fengin hjá 1.007 svarendum. Margir sögðust biðja um auka ananas þegar þeir panta Hawaii pitsu sem er með skinku og ananas. Reyndar er Thai Chicken pitsa mjög vinsæl hjá Peppes en hún er líka með ananas. Netmiðillinn VG ræddi við forsvarsmenn Domino’s í Noregi og Dolly Dimples pitsu þar sem staðfest var að ananas á pitsu væri vinsæll. Hjá Domino’s fengust þær upplýsingar að ananas væri mest seldi ávöxturinn sem þeir bjóða á pitsuna. Ein af mest seldu pitsum hjá Domino’s í Noregi er Deluxe pitsan sem er með ananas. Þá segir markaðssérfræðingur Dolly Dimples að 17,5% allra pitsa sem þeir selja séu með ananas. Ananas á pitsuna eða ekki? Pitsa með ananas er bara alveg ágæt. Margar konur forðast líkamsrækt á meðan á blæðingum stendur. Óþægindi í upphafi blæðinga kvenna er hægt að minnka umtalsvert með hreyfingu. Í nýrri rannsókn frá háskólanum St. Mary í Bandaríkjunum, íþrótta­ sambandinu Strava og FitrWoman sem 14 þúsund konur tóku þátt í kemur í ljós að 78% kvenna töldu það hjálpa sér mikið að stunda íþróttir þegar þær byrja á blæðingum. Helstu óþægindi eru í kviðarholi og brjóstum en einnig var kvartað yfir svima og auknum skapsveiflum. Ein af hverjum þremur konum sagðist þurfa að taka veikindadag frá vinnu vegna tíðaverkja. Þær sem stunduðu reglulega líkamsrækt og borðuðu fimm skammta af ávöxtum og grænmeti á hverjum degi fundu ekki fyrir þessum einkennum. Margar konur treysta sér ekki í líkamsrækt á meðan á blæðingum stendur en rannsóknin bendir til þess að það sé einmitt mjög gott að fara í ræktina. Það styrkir kon urnar og þeim líður mun betur, segir for­ svarsmaður rannsóknarinnar við netmiðil Huffington Post. Styrktar­ æfingar eru mjög heppilegar en einnig spinning, sund eða jóga. Hreyfing gegn túrverkjum Danir reykja mest Norðurlandabúa. Danir eru miklir reykinga­menn og Margrét drottning hefur oft verið skömmuð fyrir reykingar á almannafæri. Nú hefur danska svæðisráðið óskað eftir því að sígarettur verði tvö­ faldaðar í verði. Allt of margt ungt fólk reykir í Danmörku og það þarf að stemma stigu við þeirri þróun. Sígarettupakkinn kostar núna 40 danskar krónur, 718 krónur íslenskar, og fer því í rúmar 1.400 krónur ef reglunum verður breytt. Þá er einnig farið fram á að tóbakið verði fjarlægt úr hillum og verði ekki sjáanlegt í verslunum. Þá verði reykingar bannaðar við skóla. Svæðisráðið er þverpólitískt og eru allir meðlimir sammála um að gera þurfti átak til að forða unglingum frá reykingum. Í fyrra létust 13.600 Danir af völdum reyk­ inga. Samkvæmt rannsókn reykja 28,5% ungmenna daglega. Að minnka reykingar hjá ungu fólki er mikilvægt heilsuátak í landinu. Vonast er til að ef sígarettupakk­ inn tvöfaldast í verði muni unga fólkið síður kaupa tóbak, að því er Jyllands­Posten greinir frá. Vilja hækka verð á tóbaki Heilsaðu upp á Maríu á blarapril.is Hún er einhverf og hefur frá ýmsu að segja Einhverfan mín er bara hluti af mér og verður það alltaf 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . A P R Í L 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 0 9 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :4 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 5 -2 4 0 C 2 2 C 5 -2 2 D 0 2 2 C 5 -2 1 9 4 2 2 C 5 -2 0 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 3 2 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.