Fréttablaðið - 09.04.2019, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 09.04.2019, Blaðsíða 30
Bindindi í Kúveit, kokteilar í Chicago Kokkurinn Ólafur Örn Ólafsson þvælist heimsálf- anna á milli og tekur meðal annars hús á bakara í Kúveit og barþjóni á þekktum kokteilbar í Chicago. SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Frábært verð PURE COMFORT Fíbersængur PC sæng 140x200 cm 300 gr Fullt verð: 9.900 kr. Vikutilboðsverð: 7.425 kr. PC koddi 50x70 cm Fullt verð: 3.900 kr. Vikutilboðsverð: 2.925 kr. 25% AFSLÁTTUR VIKUTILBOÐ Aðeins 172.425 kr. TIVOLI svefnsófi Tveggja sæta vandaður svefnsófi. Grátt, orange eða dökkblátt áklæði. Stærð: 194 x 103 x 91 cm. Svefnsvæði: 195 x 140 cm Fullt verð: 229.900 kr. 25% AFSLÁTTUR VIKUTILBOÐ Aðeins 74.925 kr. Aðeins 41.175 kr. Stóll Þriggja sæta sófi Slitsterkt áklæði. Blár, grár, brúnn og rauður. Stóll fáanlegur í sömu litum. Stærð sófa: 186 x 77 cm, H: 85 cm. Fullt verð á sófa : 99.900 kr. Fullt verð á stól : 54.900 kr. BOGGIE Stóll og 3ja sæta sófi KLASSÍSK hönnun 25% AFSLÁTTUR BOGGIE Afgreiðslutími Rvk Mánud. til föstud. kl. 11.00–18.30 Laugard. kl. 11.00–17.00 Sunnud. kl. 13.00–17.00 (Smáratorgi) Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði OP IÐ Á SU NN UD ÖG UM Í DO RM A SM ÁR AT OR GI Vikutilboð 4. til 11. apríl Save the Children á Íslandi Þetta er ekki alveg leiðinlegasta vinna í heimi, sérstaklega ekki þegar maður hefur gaman af því að borða, drekka og hitta fólk í útlöndum,“ segir kokkurinn víðförli Ólafur Örn Ólafsson um sjónvarpsþætti sína Kokkaflakk sem hefja nú göngu sína á ný í Sjónvarpi Símans. „Það má segja að mér hafi tekist að búa mér til vinnu sem hentar mér ágætlega.“ Í Kokkaflakki þvælist Ólafur um heiminn og þefar uppi Íslendinga sem víða hafa haslað sér völl með mat og drykk svo eftir er tekið. Í fyrstu þáttaröðinni einblíndi hann á kokka en að þessu sinni koma við sögu vínræktandi í Zürich, bakari í Dúbaí, barþjónn í Chicago, kokkur í Falkenberg og matgæðingur í Los Angeles. „Síðast vorum við bara með kokka en ákváðum að víkka þetta aðeins út og heimsækja Íslendinga í útlöndum sem hafa einhverja tengingu við mat eða drykk,“ segir Ólafur í samtali við Fréttablaðið. Voru kokkarnir þá ekki nógu skemmtilegir? „Jú, jú. Kokkarnir eru alveg frá- bærir og það er til alveg nóg af þeim en það er svo margt fólk að gera alls konar annað, eins og til dæmis vín- gerðarmaðurinn í Sviss og kondi- torinn, eða sætabrauðsdrengurinn eins og þeir kalla hann, sem er í Dúbaí og Kúveit. Þetta er allt fólk sem er áberandi í sínu fagi,“ segir Ólafur um viðmælendur sína að þessu sinni. Ólafur segir fyrstu þáttaröðina hafa fengið það góðar undirtektir að strax hafi verið ákveðið að halda áfram. „Ég er mjög spenntur fyrir því að sýna þetta. Pínu stressaður auðvitað en mjög spenntur. Við erum ánægð með þetta og ég held að við séum að toppa okkur síðan síðast.“ Matur er nefndur „Svona ferða- og matarþættir hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir Ólafur þegar hann er spurður hvað hafi orðið til þess að hann lagðist í kokkaflakkið og bætir við að það sé mjög sniðugt að kynnast fólki, samfélögum og menningu þeirra í gegnum matar- og vínmenninguna í hverju landi fyrir sig. „Enda hafa allir gaman af mat og allir þurfa að borða að minnsta kosti þrisvar á dag. Okkur lang- aði að fanga þessa stemningu sem einkennir svona matar- og ferða- þætti og vefja henni utan um svona „maður er nefndur“ dæmi. Það má segja að ég sé eini fjölmiðlamaður- inn á Íslandi sem sérhæfir sig í að taka viðtöl við fólk yfir máltíð og þar er þetta allt á borðum; fólk, kúltúr og hvað þau eru að gera í líf- inu.“ Vísindaleg drykkja Ólafur smakkaði á ólíkum menn- ingarheimum og þótt vín komi mikið við sögu á ferðlaginu þá fór hann óhjákvæmilega í gegnum þurrkatímabil. „Það eru vínveit- ingar á hótelum og veitingastöðum sem tengjast þeim í Dúbaí. Þannig að það slapp fyrir horn en það var aðeins minna um það í Kúveit. Þar er þetta allt alveg bannað en það er nú allt í lagi. Maður getur alveg farið í nokkra daga til einhvers lands þar sem má ekki drekka brennivín. Síðan fórum við til Chicago að hitta strák sem er barþjónn á The Aviary, einum fræg- asta kokteilbar heims. Hann er þar yfir rannsóknum og þróun. Að búa til nýja drykki og þarna nota þeir alls konar vísindatrix. Þetta er fólk sem er sko ekki sama um drykkina sína. Það var ansi góður dagur þegar ég þurfti að sitja þarna og smakka fjórtán kokteila í röð þannig að við unnum vel í þessu í þeim þætti og unnum upp þurrkinn í Kúveit þannig að þetta núllast út.“ Höfðinglegar móttökur „Okkur var tekið eins og þjóð- höfðingjum alls staðar þar sem við komum. Lentum ekki í neinu veseni neins staðar. Ekki einu sinni í þess- um Arabalöndum þar sem meira og minna allt er bannað. Þar voru allir bara sáttir við okkur enda er þetta alveg 100% ljúft og þægilegt fólk. Ef maður ber virðingu fyrir menningu þeirra þá er maður ekki í neinum vandræðum frekar en annars staðar svo sem. Ef maður ber virðingu fyrir hipstera- menningunni í Los Angeles þá er maður í dálítið góðum málum líka,“ segir Ólafur um þessa einföldu lífs- reglu sem vill þó vefjast fyrir mörg- um. toti@frettabladid.is Skál! Ólafur segist vera í draumastarfinu sem gengur út á að eta, drekka og vera glaður. MYND/HÖRÐUR SVEINSSON Ólafur Örn heldur áfram heimshornaflakki sínu og lítur nú meðal annars inn hjá Íslendingi sem bakar arabísk flatbrauð í Dúbaí og Kúveit og vætir síðan kverkarnar með dýrindis hanastélum í Chicago eftir eyðimerkurþurrkinn. 9 . A P R Í L 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :4 2 F B 0 3 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 5 -2 8 F C 2 2 C 5 -2 7 C 0 2 2 C 5 -2 6 8 4 2 2 C 5 -2 5 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 3 2 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.