Fréttablaðið - 09.04.2019, Qupperneq 12
ÍR - Stjarnan 85-76
ÍR: Kevin Capers 32, Matthías Orri Sig-
urðarson 20, Gerald Robinson 15, Sigurður
Gunnar Þorsteinsson 12, Sigurkarl Róbert
Jóhannesson 6.
Stjarnan: Hlynur Elías Bæringsson 22, Ægir
Þór Steinarsson 15, Antti Kanervo 12, Collin
Anthony Pryor 11, Brandon Rozzell 9.
Staðan í einvígi liðanna er jöfn 1-1 en liðin
mætast í þriðja leik sínum á föstudaginn.
Nýjast
Domino’s-deild karla
Haukar - Valur 20-24
Haukar: Berta Rut Harðardóttir 5, Karen
Helga Díönudóttir 5, Maria Pereira 4, Hekla
Rún Ámundadóttir 2, Ramune Pekarskyte 2.
Valur: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4,
Sandra Erlingsdóttir 4, Íris Ásta Pétursdóttir
4, Ragnhildur Edda Þórðardóttir 3, Morgan
Marie Þorkelsdóttir 3.
Valur er þar með komið í 2-0 í baráttu
liðanna um að komast í úrslitaeinvígið.
Hafa þarf betur í þremur leikjum.
ÍBV - Fram 29-34
ÍBV: Ester Óskarsdóttir 8, Arna Sif Páls-
dóttir 6, Greta Kavaliuskaite 6, Sandra Dís
Sigurðardóttir 3, Sunna Jónsdóttir 3.
Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 13, Steinunn
Björnsdóttir 7, Þórey Rósa Stefánsdóttir 6,
Unnur Ómarsdóttir 3, Karen Knútsdóttir 2.
Fram komst með þessum sigri 2-0 yfir í
einvígi liðanna en vinna þarf þrjá til þess að
komast í úrslitaviðureignina.
Olís-deild kvenna
Undanúrslit
Undanúrslit
Ég er vanur því að
spila undir pressu
og þannig líður mér best.
Það hræðir mig ekkert að
vera með boltann þegar
mikið er undir.
Martin Hermannsson
Enska úrvalsdeildin
Chelsea - West Ham 2-0
1-0 Eden Hazard (24.), 2-0 Eden Hazard (90.).
KÖRFUBOLTI Martin Hermannsson
og liðsfélagar hans hjá þýska liðinu
Alba Berlin leika til úrslita í Evr-
ópubikarnum í körfubolta en and-
stæðingur liðsins þar er spænska
liðið Valencia. Martin hefur leikið
einkar vel á sínu fyrsta keppnis-
tímabili með Berlínarliðinu en auk
þess að vera komið í úrslit á þessum
vettvangi tapaði liðið á sárgræti-
legan hátt í úrslitaleik þýsku bikar-
keppninnar fyrr á leiktíðinni og er í
toppbaráttu í þýsku deildinni.
Þetta er í annað skipti sem Alba
Berlin fer í úrslit keppninnar en
liðið laut í lægra haldi fyrir einmitt
Valencia vorið 2010. Valencia er öllu
reynslumeira á þessu sviði en þetta
er sjötti úrslitaleikur spænska liðs-
ins í keppninni. Liðið hefur þrisvar
sinnum farið með sigur af hólmi og
tvisvar tapað í úrslitum. Alba Berlin
bætir upp fyrir reynsluleysið með
því að hafa afar reynslumikinn
mann í brúnni.
Það er hinn 72 ára gamli Aito
Garcia Reneses sem er í brúnni en
hann hefur þjálfað marga af bestu
leikmönnum Evrópu og Martin ber
honum afar vel söguna. Segir hann
mikinn kennara og hafsjó af fróð-
leik um körfubolta. Þá sé hann
snillingur í að stilla spennustigið
rétt fyrir jafna, spennandi og mikil-
væga leiki. Martin hefur blómstrað
undir stjórn Reneses en hann
hefur skipt sköpum í leikjum liðsins
í vetur og sýnt stáltaugar á lokamín-
útum í mikilvægum leikjum liðsins.
Vegna forfalla í leikstjórnendasveit
liðsins verður ábyrgðin, sem var
mikil fyrir, enn meira á hans herð-
um í komandi leikjum í baráttunni
um Evrópubikarinn.
„Það er auðvitað gríðarlega
spenna sem fylgir því að fara í svona
stóra leiki, en það er kannski það
jákvæða við mig að ég er lítið að
pæla í því hversu umfangsmiklir og
stórir þessir leikir eru. Fyrir mér er
þetta bara eins og hver annar leikur
og það er kannski ekki fyrr en eftir
að ég spila svona leiki að ég fer að
hugsa um hversu þýðingarmiklir
leikirnir eru. Ég er vanur því að
spila undir pressu og þannig líður
mér best. Ég ákvað það strax og ég
kom hingað að mig langaði til að
bera ábyrgð á því að liðinu gengi
vel og það hræðir mig ekkert að
vera með boltann í höndunum
þegar mikið er undir og það sé
undir mér komið hvort að liðið
vinni eða tapi,“ segir Martin sem
frá unga aldri hefur verið í lykilhlut-
verki í þeim liðum sem hann hefur
leikið með.
„Það hefur verið leitað til mín á
ögurstundum í vetur og það er við-
búið að ég verði í stóru hlutverki í
leikjunum gegn Valencia. Það eru
forföll í leikstjórnandastöðunni
hjá okkur þar sem einn af þeim er
meiddur og annar má ekki spila þar
sem hann hefur spilað með öðru liði
í Evrópubikarnum fyrr á leiktíð-
inni. Ég fékk hvíld í deildarleiknum
okkar um helgina til þess að búa
mig undir það að spila í allt að 40
mínútur í þessum þremur leikjum.
Það hefur verið mikið álag á okkur
undanfarið en næstu daga getum
við einbeitt okkur alfarið að leikj-
unum við Valencia,“ segir hann um
komandi verkefni en leikið verður í
Valencia í dag, Berlín á föstudaginn
og svo aftur í Valencia á mánudag-
inn kemur ef þess þarf.
„Ég mun þar af leiðandi vera í
róteringunni bæði sem fyrsti leik-
stjórnandi og í bakvarðasveitinni
og ég hlakka mikið til að axla þessa
miklu ábyrgð. Valencia er á svip-
uðum stað og Malaga í spænsku
deildinni og við slógum Malaga
út í átta liða úrslitum keppninnar.
Ég held að þetta sé bara 50/50
leikur þar sem bæði lið eiga jafna
möguleika á að vinna. Það var auð-
vitað stefnan hjá okkur sjálfum að
fara alla leið en við erum að koma
öðrum á óvart með að vera komnir
svona langt. Keppnin er mjög sterk
að þessu sinni og ég er mjög stolt-
ur af að eiga möguleika á að vinna
hana,“ segir þessi hæfileikaríki
Vesturbæingur sem getur bæst í hóp
með fyrrverandi liðsfélaga sínum,
Jóni Arnóri Stefánssyni, sem er eini
Íslendingurinn sem hefur borið
sigur úr býtum í keppninni.
„Það er mikil stemming fyrir
þessum leikjum í Berlín og ég finn
það vel hjá stuðningsmönnum
okkar að það er spenna fyrir
heimaleik num á föstudag inn
kemur. Vonandi náum við að vinna
í kvöld til þess að geta klárað þetta
fyrir framan okkar fólk í höllinni
okkar. Foreldrar mínir, systkini
og systir mömmu verða á svæðinu
í heimaleiknum okkar og þá hafa þó
nokkrir Íslendingar sett sig í sam-
band við mig með það í huga að fá
miða á leikinn í Berlín,“ segir lands-
liðsmaðurinn augljóslega spenntur.
hjorvaro@frettabladid.is
Rík ábyrgð á herðum Martins
Martin Hermannsson verður í stóru hlutverki hjá Alba Berlin sem mætir Valencia í úrslitum Evrópubik-
arsins í körfubolta. Einvígið hefst í dag en hafa þarf betur í tveimur leikjum til þess að hampa titlinum.
Martin leikur í úrslitum Evrópubikarsins næstu daga. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í knattspyrnu mætir Suður-
Kóreu í öðrum vináttulands-
leik liðanna á fjórum dögum ytra
en íslenska liðið hafði betur 3-2 í
viðureign liðanna á laugardags-
morguninn. Nú mætast liðin á
nýjan leik á Chuncheon Songam
Stadium sem er glæsilegur leik-
vangur og tekur um það bil 20.000
manns í sæti.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir,
sem leikur sem lánsmaður frá
Breiðabliki hjá hollenska liðinu
PSV Eindhoven þessa stundina,
kom íslenska liðinu tveimur mörk-
um yfir á laugardaginn. Hún hefur
nú skoraði fjögur mörk í þeim 38
landsleikjum sem hún hefur spilað.
Að sögn Jóns Þórs Haukssonar,
þjálfara Íslands, var leikur liðsins
helst til kaflaskiptur. Slæmur kafli
í seinni hálf leik varð til þess að
Suður-Kórea jafnaði metin. Það
var svo Rakel Hönnudóttir, leik-
maður Reading, sem skoraði sigur-
mark íslenska liðsins en hún var að
leika sinn 98. landsleik og skora átt-
unda markið sitt þegar hún tryggði
íslenskan sigur í leiknum.
Leiki Fanndís Friðriksdóttir, leik-
maður Vals og framherji íslenska
liðsins, í þessum leik verður hún
áttundi leikmaðurinn til þess
að leika 100 leiki eða f leiri fyrir
Íslands hönd.
Elísa Viðarsdóttir, Arna Sif
Ásgrímsdóttir og Svava Rós Guð-
mundsdóttir voru ekki með í fyrri
leiknum en Jón Þór vonast til þess
að Elísa og Arna Sif verði klárar í
leikinn sem fram fer í dag. Hæpn-
ara er hins vegar að Svava Rós verði
búin að hrista af sér meiðsli sín.
Jón Þór ýjaði svo að því að hann
myndi gera nokkrar breytingar
á byrjunarliðinu en hann sagðist
í samtali við heimasíðu KSÍ vilja
taka með sér jákvæða hluti úr fyrri
leiknum, ná heilsteyptari leik í
seinni leiknum og fá ferska fætur
inn á völlinn.
Suður-Kórea er að búa sig undir
þátttöku liðsins á heimsmeistara-
mótinu í sumar en leikurinn er
liður í undirbúningi Íslands fyrir
fyrstu leiki sína í undankeppni EM
2021. Íslenska liðið hefur leik í und-
ankeppninni um mánaðamótin
ágúst og september í haust en þá
koma Ungverjaland og Slóvakía í
heimsókn á Laugardalsvöllinn. Auk
þessara liða eru Svíþjóð og Lettland
í F-riðli undankeppninnar. – hó
Ísland freistar þess að fylgja sigrinum eftir
Ísland hafði betur í fyrri
leik liðanna 3-2 en það var
þriðji sigurinn í fimm
leikjum á þessu ári.
Berglind skoraði tvö mörk fyrir Ísland á laugardaginn. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Tottenham Hotspur og
Manchester City munu gjörþekkja
hvort annað þegar apríl rennur sitt
skeið. Liðin mætast þrisvar sinnum
í mánuðinum en fyrsta viðureignin
er í kvöld þegar liðin mætast í fyrri
leik sínum í átta liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu karla.
Liðin leiða saman hesta sína
á nýjum heimavelli Tottenham
Hotspur í kvöld. Eftir að rimma
þeirra í Meistaradeildinni verður
leidd til lykta mætast þau svo í
deildinni. Bæði lið slógu þýsk
lið úr leik í 16 liða úrslitunum en
Tottenham Hotspur fór nokkuð
öruggulega áfram í einvígi sínu við
Borussia Dortmund og Manchester
City gjörsigraði Schalke.
Þá mætast Liverpool og Porto á
Anfield en liðin mættust í 16 liða
úrslitum keppninnar síðasta vor.
Þá lagði Liverpool grunninn að því
að komast áfram með 5-0 bursti í
Porto. Að þessu sinni vann Porto
Roma í 16 liða úrslitum og Liver-
pool lagði Bayern München að velli
á sama stað. – hó
Porto-liðið á
harma að hefna
Mo Salah, leikmaður Liverpool.
9 . A P R Í L 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
9
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:4
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
5
-3
7
C
C
2
2
C
5
-3
6
9
0
2
2
C
5
-3
5
5
4
2
2
C
5
-3
4
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
3
2
s
_
8
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K