Fréttablaðið - 09.04.2019, Síða 14
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@
frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr
Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Mig hefur dreymt um að verða leikari síðan ég var lítill. Í mér hefur líka
blundað dansari en ég þorði aldrei
að taka skrefið vegna þess að ég
var svo feiminn við stelpurnar og
skorti dirfsku til að dansa við þær,“
segir Sverri Gauti Svavarsson, 19
ára ballettdansari og nemandi við
leiklistarbraut Fjölbrautaskólans í
Garðabæ.
Á sokkabuxum við píanó
Sverrir Gauti var sautján ára þegar
hann rakst á viðtal við Hólmgeir
Gauta Agnarsson sem þá stundaði
ballettnám við Klassíska listdans-
skólann.
„Viðtalið náði til mín og ég fann
að mig langaði að prófa. Ég hafði
því samband við Hólmgeir Gauta
sem sagði einfaldlega: „Það er
skólasetning á miðvikudaginn.
Mættu!“ Ég tók hann á orðinu,
mætti í fyrsta tíma skólaársins og
þannig hófst sagan af því hvers
vegna ég fór í sokkabuxur og
byrjaði að dansa ballett við stöng
og píanóundirleik,“ segir Sverrir
Gauti hamingjusamur.
„Kennarinn sagði að tæknin
gæti virst yfirþyrmandi í fyrstu og
því væri fyrsti tíminn ekki alltaf
skemmtilegur en sannleikurinn er
sá að fyrsti tíminn var sá besti sem
ég hafði á ævinni upplifað. Tón-
listin var svo róandi og enn líður
mér stundum eins og ég sé í jóga.
Maður mætir í tíma, sleppir sér í
dansinum og lætur hugann reika.
Ég hef líka uppgötvað að ballett
er frábær í próflestri því tón-
listin veldur slökun og í dansinum
dreymir mann um allt aðra hluti
en próflestur,“ segir Sverri Gauti
og hlær.
Karlmannlegasta íþróttin
Innan um tignarlegar ballerínur
vantar enn fleiri karldansara.
„Það vantar fleiri stráka í ballett
en þeir þora ekki að taka af skarið
vegna eilífrar pressu um að vera
sterkir og karlmannlegir. Sjálfur
sé ég mikið eftir því að hafa ekki
byrjað í ballett fyrr. Ballett er lang-
karlmannlegasta íþrótt sem ég hef
prófað og ég hef aldrei reynt neitt
erfiðara en ballett sem er ákaflega
agað og strangt listform, hörku-
púl og hrikalega erfitt. Það kemst
maður hins vegar ekki að raun um
nema að prófa,“ segir Sverrir Gauti
sem dró vin sinn, Mikael Bjarna
Gunnarsson, með sér í ballettinn
og sá varð jafn hugfanginn af dans-
inum og Sverrir Gauti.
„Ballettinn hefur tvíeflt mig og
hann gefur mér mikið í öllu sem
ég tek mér fyrir hendur. Ég finn
mikinn mun á mér; er í frábæru
formi, hef meira þol, aukinn lið-
leika, styrk og vöðvamassa, en
áður var helsta hreyfingin sem ég
fékk að hlaupa á eftir strætó. Nú er
ég farinn að borða meira og hollar
og þykir vænna um líkama minn.
Mér líður betur í skrokknum þegar
ég vakna á morgnana og er farinn
að meta tilveruna öðruvísi, njóta
þess að slaka á og staldra við til að
njóta.“
Sverrir Gauti segir gaman að
upplifa viðbrögð fólks þegar það
uppgötvar að hann æfir ballett.
„Áður, þegar ég sagðist vilja
verða leikari var viðkvæðið
gjarnan: „Já, já, ungi maður, þú
vilt verða leikari“, en í ballettinum
lítur fólk meira upp til manns, það
sér að maður tekur hlutina alvar-
lega og ég verð þess áskynja að það
er mikil virðing borin fyrir ballett
sem listformi sem og ballettdöns-
urum, enda útheimtir það mikið
úthald, styrk og hæfileika að ná
tökum á honum.“
Hræddir við að missa kúlið
Þeir sem hafa aldrei dansað ballett
og eru komnir á menntaskólaaldur
fara á undirbúningsbraut áður en
þeir hefja þriggja ára nám á fram-
haldsbraut.
„Fyrsta árið fór ég á undirbún-
ingsbraut og það gjörbreytti bæði
líkama og sál. Ég, sem hafði alltaf
stefnt að því að verða leikari, varð
tvístígandi um hvort ég vildi verða
leikari eða dansari í framtíðinni.
Ég hef mikla ástríðu fyrir hvoru
tveggja en reikna með að leik-
listin verði ofan á þótt ég muni
aldrei sleppa takinu af dansinum
sem kom svo óvænt inn í líf mitt,“
segir Sverrir Gauti sem fann dans-
áhugann fyrst kvikna þegar hann
fylgdi eftir danssporum í upp-
setningum Sönglistar í Borgar-
leikhúsinu þar sem hann stundaði
nám sem barn og unglingur.
„Það er til nóg af strákum sem
kunna að leika en það skortir
mikið stráka sem geta bæði leikið
og dansað. Því er styrkur fyrir
leikara að geta dansað og strákar
sem vilja f leiri tækifæri ættu hik-
laust að prófa ballett,“ segir Sverrir
Gauti sem fær oft boð um að dansa
í verkum og fékk sitt fyrsta hlut-
verk eftir aðeins mánuð í námi við
Klassíska listdansskólann.
„Það er synd hvað strákar eru
hræddir við almenningsálitið.
Svo margir hafa dansinn í sér en
þeir óttast að missa kúlið ef þeir
tækju ákvörðun um að æfa ballett
af kappi. Ég get staðfest að engum
þætti minna til þeirra koma. Þvert
á móti myndu þeir öðlast virðingu
og aðdáun fyrir að taka skrefið og
fara óhræddir sína eigin leið,“ segir
Sverrir Gauti sem reynir reglulega
að hafa áhrif á þrettán ára bróður
sinn að prófa eins og einn ballett-
tíma.
„Ég múta honum með pitsu
og bíóferð því ég vil alls ekki að
hann upplifi það sama og ég, að sjá
eftir því að hafa ekki byrjað fyrr.
Drengurinn harðneitar og vill bara
vera í karate til að verða sterkur
og geta lamið mig, en hverju hafði
ég að tapa, miðvikudaginn sem
frændi minn Hólmgeir Gauti sagði
mér að mæta? Nákvæmlega engu.
Ég hafði allt að vinna en veit að
þegar strákar þekkja ekki hlutina
fara þeir ekki sjálfviljugir af stað
heldur þurfa að hafa einhvern með
sér eða vera ýtt út í það.“
Langar að dansa á táskóm
Karlkyns ballettdansarar dansa
ekki á táskóm eins og ballerínur.
„En ég væri mjög svo til í að læra
að dansa á táskóm til að verða enn
betri ballettdansari og styrkja
ristar mínar og fætur,“ segir Sverrir
Gauti sem er hávaxinn; 194,5
sentimetrar á hæð.
„Það er óvenju hátt fyrir ballett-
dansara en hvorki þykir gott að
vera of lítill né of stór í ballett.
Þannig er léttara fyrir vin minn
að lyfta stelpunum því þær geta
hoppað upp í hans hæð en ég þarf
að lyfta þeim meira og hærra.
Hávaxnir ballettdansarar hafa
þó gert það gott um allan heim og
það lítur hrikalega vel út á sviði
að sjá pas de deux (tvídans) á milli
hávaxins herra og ballerínu sem
dansa með öllum líkamanum af
krafti,“ segir Sverrir Gauti sem
hefur smám saman losnað við
feimnina eftir að dansa við fjölda
ballerína í ballettskólanum.
„Mér þykir skemmtilegt að vera
innan um allar þessar frábæru
stelpur en í fyrstu varð ég enn
feimnari þegar ég þurfti að halda
utan um mitti þeirra í pas de
deux-tímum. Strákar þurfa nefni-
lega að halda afar fast um mitti
stelpna til að þær haldi jafnvægi á
táskóm og í fyrsta tímanum hvatti
kennarinn mig til að halda fastar
og fastar og ég varð dauðhræddur
um að meiða þær. Tvídans kallar
á mikið návígi og sennilega væri
ég minna feiminn ef ég þekkti
allar ballerínurnar til fullnustu
en þetta er allt að koma og maður
bara kýlir á það,“ segir Sverri
Gauti brosmildur en stelpurnar
þurfa að slást um strákana sem
eru of fáir.
„Auðvitað er ósanngjarnt hversu
mikið við strákarnir fáum upp í
hendurnar á meðan stelpurnar
þurfa að vinna miklu harðar að
öllu. Á milli nemenda ríkir vinátta,
samkennd og skemmtileg stemn-
ing en stundum innbyrðis sam-
keppni þegar allir keppast um hrós
frá kennaranum. Það er væntan-
lega eðlilegt því hver og einn vill
uppskera sem mest og gefur því af
sér eins og hann getur.“
Sverrir Gauti segir mikinn styrk fyrir leikara að geta dansað en að nám hans á leiklistarbrautinni hjálpi honum líka mikið í dansinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Það er synd hvað
strákar eru hrædd-
ir við almenningsálitið.
Svo margir hafa dansinn
í sér en þeir óttast að
missa kúlið ef þeir tækju
ákvörðun um að æfa
ballett af kappi. Ballett
er þó langkarlmann-
legasta íþrótt sem ég hef
prófað.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . A P R Í L 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
9
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:4
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
5
-3
2
D
C
2
2
C
5
-3
1
A
0
2
2
C
5
-3
0
6
4
2
2
C
5
-2
F
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
8
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K