Fréttablaðið - 09.04.2019, Page 32

Fréttablaðið - 09.04.2019, Page 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jóns Sigurðar Eyjólfssonar BAKÞANKAR Ég var einsog villuráfandi sauður þegar ég kynntist Pálu. Ekki af neinum sjúk- leikum heldur vegna þess að ég einblíndi á aukaatriðin og var gjör- samlega blindur á lífið sjálft. Ég var óhamingjusamur enda fannst mér ég ekkert kunna nema kannski að yrkja eftir hefðbundnum bragar- háttum sem kom sér ekkert sér- lega vel þar sem ég var að vinna í sumarskóla fyrir einhverf börn. Samstarfsmennirnir voru orðnir þreyttir á mér þar sem ég átti það til að klæða Gunnar í sokkana hennar Gunnu, setti hlutina aldrei á sinn stað, drakk af djús sem var ekki minn og skráði allt rangt sem ég gleymdi ekki að skrá. En svo kom nýi yfirmaðurinn: Pála. Ekki leist mér á blikuna þegar hún sagðist ætla að fylgjast með okkur í viku og leggja svo línurnar. Mér fannst ég lítt gæfulegur til úttektar. Vikan var ekki liðin þegar hún kallaði mig á sinn fund. Það sem gerðist á þessum fundi, og það sem í raun einkenndi allt hennar starf, var uppljómun fyrir mig sem markaði mig til lífstíðar. Hún taldi mér trú um að ég gæti reynst gæfa fyrir börnin sem ég var að vinna með. Það voru ekki aðeins orðin sem opnuðu manni nýja veröld heldur einnig kraftur- inn og kærleikurinn sem stafaði af þessum heiðbláu augum. En svo f lutti hún til Danmerkur og ég til Grikklands og ég sá hana aldrei meir. Tíminn leið og svo les ég andlátsfrétt sem fær mig til að pæla: Páll var verkfæri sem gerði okkur kleift að rækta jörðina sem síðan greiddi götu okkar til sið- menningar. Pála var álíka vegsemd fyrir mig þar sem hún kenndi mér að yrkja á akri sálarinnar. Er þá of seint að segja takk? Pála Allir í bátana! 0 9 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :4 2 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 5 -1 5 3 C 2 2 C 5 -1 4 0 0 2 2 C 5 -1 2 C 4 2 2 C 5 -1 1 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.