Fréttablaðið - 06.05.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.05.2019, Blaðsíða 2
 Það verður mikið tilhlökkunarefni þegar húsið verður fullrisið. Það verður málað í fallegum litum í anda bárujárnshús- anna hér í Hafnar- firði. Rósa Guðbjarts- dóttir, bæjar- stjóri Hafnar- fjarðar Veður Á leið í sund Sumarveðrið sem hélt innreið sína á sumardaginn fyrsta hefur haldið velli á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir lækkandi hitatölur í spákortunum. Þessar tvær fylgdust að á reiðhjólum sínum á Seltjarnarnesi í gær. Miðað við útbúnaðinn virtist förinni heitið í sund. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 ÖLL BRAUÐ Á 25% AFSLÆTTI ALLA MÁNUDAGA • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 • Fálkagötu 18 PREN TU N .IS www.bjornsbakari.is SKIPULAGSMÁL Nýtt fimm hæða timburhús sem kemur til með að hýsa Hafrannsóknastofnum hefur risið hratt síðustu vikur á hafnar- bakkanum á móti miðbæ Hafnar- fjarðar. Húsið var mjög umdeilt og mótmælti hópur íbúa því kröftug- lega. Sögðu það of hátt og byrgja fyrir útsýni yfir Snæfellsjökul. Byggingin er á vegum einkaaðila sem kemur til með að leigja það út til Hafrannsóknastofnunar. Byggingin var kærð til úrskurðar- nefndar umhverfis- og auðlinda- mála sem felldi leyfið úr gildi síð- asta sumar þar sem deiliskipulagið var ekki í samræmi við aðalskipu- lag. Bæjaryfirvöld breyttu síðan aðalskipulaginu og fór því bygg- ingin aftur af stað. Guðmundur Ingi Markússon, íbúi í suðurbæ Hafnar- fjarðar sem hefur mótmælt bygg- ingunni, segir bæinn hafa stundað sýndarsamráð við íbúa. Furðar hann sig á stjórnsýslunni í málinu. „Það var ekkert byggingar- leyfi í gildi síðasta haust, en í milli- tíðinni var gefið út leyfi til að steypa gámastæði á lóðinni sem gerði þeim kleift að klára allan frágang á sökkl- inum þrátt fyrir að það væri ekkert byggingarleyfi. Núna er þetta orðið löglegt og þá eru þeir bara að byggja þetta hús.“ Rósa Guðbjartsdóttir, bæjar- stjóri Hafnarfjarðar, er hæstánægð með bygginguna. „Þetta hefur gengið mjög hratt og vel. Þetta eru innf luttar einingar, mér skilst að þetta verði stærsta timburhúsið í landinu þegar það er komið upp,“ segir Rósa. „Húsið mun falla vel inn í þetta svæði og verður mikil prýði. Það verður auðvitað frábært að fá starfsemi Hafrannsóknastofnunar þarna inn í haust, þeir stefna að því að flytja þarna inn í september.“ Hún segir að húsið komi ekki til með að stækka á næstunni. „Það er byggingarréttur við hliðina, en þetta hús sem er að rísa verður eins og það er. Það er ekki komið neitt framkvæmdaleyfi og það er ekkert farið af stað með að nýta byggingar- réttinn.“ Unnið er að því að endurskipu- leggja hafnarsvæðið og lýkur hönn- unarvinnu arkitekta í sumar. „Það á að stækka bryggjuna og lengja hana fyrir smábáta, þeir færast þá nær miðbænum. Þetta er alþjóðleg þróun, hafnarsvæðin eru heitustu svæðin alls staðar í kringum okkur,“ segir Rósa. „Það verður mikið til- hlökkunarefni þegar húsið verður fullrisið. Það verður málað í falleg- um litum í anda bárujárnshúsanna hér í Hafnarfirði. Þetta verður mjög lifandi hafnarsvæði með áherslu á þjónustu.“ arib@frettabladid.is Stærsta timburhúsið á Íslandi rís við höfnina Íbúar sem mótmæltu harðlega fimm hæða byggingu við höfnina í Hafnarfirði lutu í lægra haldi fyrir bæjaryfirvöldum. Nú rís þar stærsta timburhús lands- ins. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar hlakkar til að sjá það málað í fallegum litum. Byggingin verður máluð í skrautlegum litum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Norðlæg átt, 3-8 m/s, bjart með köflum og yfirleitt þurrt, en austan 5-10 og dálitlar skúrir á Suðausturlandi. Hiti 4 til 13 stig, hlýjast á Suðurlandi og allvíða næturfrost inn til landsins. Hæg breytileg átt og skúrir sunnan- lands á morgun, en léttskýjað fyrir norðan og heldur svalara. SJÁ SÍÐU 18 ÍSRAEL Sam tök her skárra íslam ista úr röðum Palestínu mann hefur í til- kynningu hótað Euro vision-söngva- keppninni að sögn Jeru salem Post. Að stand endur keppninnar segja að hún haldi á fram sam kvæmt á ætlun. „Öryggi er alltaf sett á oddinn hjá EBU,“ segir í til kynningu frá sam tökum evrópskra sjón varps- stöðva vegna málsins. Sam starfinu við ísraelska ríki s út varpið og ísra- elska herinn verði haldið á fram og öryggi allra kepp enda, gesta og starfs manna í Expo Tel Aviv-höll- inni tryggt. Þá kemur fram að fyrsti stóri Euro vision-við burðurinn í landinu hafi verið sleginn af í fyrradag. Þar átti að koma fram Dana Internat- ional, keppandi Ísraels og sigur- vegari árið 1998. Ekkert varð af sam komunni vegna fyrir skipana hersins sem hefur bannað allar fjölda sam komur. Hljómsveitin  Hatari hélt í gær sína fyrstu æfingu á keppnissvið- inu í Tel Aviv og gekk hún mjög vel að sögn liðsmanna íslensku sendi- nefndarinnar. Meðlimir Hatara sátu einnig fyrir svörum á blaðamanna- fundi. Vakti sérstaka athygli að þeir sögðust vonast til þess að her- námi Ísraels í Palestínu lyki. Tók þá stjórnandi blaðamannafundarins fyrir frekari fyrirspurnir frá blaða- mönnum í sal. – oæg Hótanir gegn Eurovision Hatari sat fyrir svörum í gær. MOSKVA Þrettán fórust þegar brenn- andi farþegaf lugvél frá Aerof lot nauðlenti á flugvelli í Moskvu í gær. Myndbönd af farþegum að flýja brennandi vélina birtust á sam- félagsmiðlum. Á meðal hinna látnu eru börn, samkvæmt fréttastofunni Tass. Vitni segja að það gangi kraftaverki næst að einhverjir hafi yfirhöfuð komist lífs af. 78 farþegar voru um borð. Enn er óljóst hvað olli því að kviknaði í vélinni en henni var snúið við um 30 mínútum eftir flugtak. Hún var á leið til Múrmansk. – bg Þrettán fórust Þotan í eldhafi. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 6 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E E -7 1 B 4 2 2 E E -7 0 7 8 2 2 E E -6 F 3 C 2 2 E E -6 E 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.