Fréttablaðið - 06.05.2019, Page 4

Fréttablaðið - 06.05.2019, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið NÝR RAM 3500 2019 - FRUMSÝNDUR 11. MAÍ UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI VERÐ FRÁ: 6.967.745 KR. ÁN VSK. VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK. ramisland.is ALÞINGI Inga Sæland og Guðmund- ur Ingi Kristinsson, þingmenn Flokks fólksins, vilja að öll raforku- framleiðsla með 2 MW uppsett afl eða meira verði skyldug til að undir- gangast umhverfismat. Í núgildandi lögum er ekki skylt að framkvæma umhverf ismat þegar reisa á vindtúrbínur sem geta af kastað 2 MW eða meira. „Vindtúrbínur með slíkri af lgetu geta náð töluverðri stærð og því verið áberandi í umhverfinu sem eitt og sér getur valdið ýmiss konar röskunum,“ segir í frumvarpi þing- mannanna. Þv í er lag t t il að slíkar fram- kvæmdir verði alltaf háðar mati á umhver f is- áhrifum. – sa Vilja alla vindorku í umhverfismat Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. HEILBRIGÐISMÁL Landspítalinn hefur gripið til þess ráðs nú í nokk- ur skipti að f lytja inn til landsins sænska röntgenlækna til að greina myndir úr skimunum eftir brjósta- krabbameinum hér á landi og hafa þeir unnið um helgar við þessa iðju. Ástæður þessa voru að biðlisti eftir greiningu um brjóstakrabba- mein hafði lengst úr hófi. Það má rekja til þess hversu erfitt er að manna stöður röntgenlækna. Einn- ig herma heimildir Fréttablaðsins að röntgenlæknar frá Akureyri hafi verið sendir suður til að greina myndir. „Það er rétt að eftir að þessi hluti starfsins f luttist frá okkur til Landspítala þá lengdist biðlisti eftir greiningu nokkuð,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, formaður Krabba- meinsfélags íslands. „Hluti af þeirri skýringu má kannski segja að sé skortur á röntgenlæknum til að sinna þessari vinnu. Landspítali hefur því gripið til þess ráðs að fá erlenda lækna til að koma hingað og vinna um helgar.“ Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hafði á tímabili verið eitt- hvað á milli þriggja og fjögurra mánaða bið eftir því að fá úr því skorið hvort um brjóstakrabba- mein væri að ræða hjá konum sem verður að teljast nokkuð langur tími. Halla sagði að staðan nú væri mun betri enda hefði Landspítali gripið til viðeigandi ráðstafana. „Biðlistinn hefur minnkað aftur og unnið hefur verið vel úr stöð- Röntgenlæknar fluttir inn frá Svíþjóð til að stytta biðlistana Landspítali hefur fengið hjálp frá sænskum röntgenlæknum við myndgreiningar á brjóstakrabbamein- um til að stytta biðlista spítalans. Nokkur skortur er á röntgenlæknum hér á landi. Röntgenlæknar líka sendir suður frá Akureyri. Rúmlega tvö hundruð konur greinast árlega með brjóstakrabbamein á Íslandi. Um skeið tók fjóra mánuði að fá úr því skorið hvort um brjóstakrabbamein væri að ræða. NORDICPHOTOS/GETTY unni. Ég myndi segja að staðan væri mun betri nú en hún var á tímabili vegna þessara aðgerða,“ bætir Halla við. Brjóstakrabbamein er sú tegund krabbameins sem er algengust meðal kvenna. Um 210 konur greindust í fyrra með slíkan sjúk- dóm en aðeins fjórir karlmenn. Þessar tölur hafa ekki breyst mikið undanfarin 15 ár og því kemur nýgengi sjúkdómsins Landspítala ekki í opna skjöldu. Árið 2017 f luttist þessi hluti greiningar brjóstakrabbameina frá Krabbameinsfélagi Íslands til Landspítala. Áður höfðu röntgen- læknar á Domus Medica unnið að þessari myndgreiningu með ágætis árangri. sveinn@frettabladid.is Halla Þorvalds- dóttir, formaður Krabbameinsfé- lags íslands. SJÁVARÚTVEGSMÁL Jarðarvinir hafa óskað eftir því að lögreglustjórinn á Vesturlandi taki til tafarlausrar rannsóknar og eftir atvikum sæki forsvarsmenn Hvals hf. til saka þar sem þeir telja veiðileyfi þeirra hafa runnið út árið 2018. Fréttablaðið greindi frá því þann 20. apríl síðastliðinn að Jarðarvinir teldu hvalveiðar Hvals hf. árið 2018 hafa verið ólöglegar. Veiðileyfið hafi í raun runnið út vegna þess að þeir héldu ekkert til veiða árin 2016 og 2017. Lagarök Jarðarvina eru þau að samkvæmt fyrstu grein laga um hvalveiðar sé það skilyrði að fyrir- tæki uppfylli lög um fiskveiðar. Í lögum um stjórn fiskveiða er síðan gerð grein fyrir því að veiði- leyfi í atvinnuskyni falli niður hafi fiskiskipi ekki verið haldið til veiða í 12 mánuði. Í lögum um hvalveiðar segir að brot varði allt að sex mánaða fang- elsi, upptöku á veiðitækjum skips, byssum, skotlínum, skotfærum svo og öllum af la skipsins. Einnig er talað um að kyrrsetja skuli skip sem staðið er að meint- um ólöglegum veiðum þegar það kemur til hafnar og er ekki heimilt að láta það laust fyrr en dómur hefur verið kveðinn upp í máli ákæruvalds gegn skipstjóra skips- ins eða máli hans lokið á annan hátt. „Ákvæði þessi eru skýr og refsi- heimildir ótvíræðar,“ segir í bréfi Jarðarvina til lögreglustjórans á Vesturlandi sem dagsett er þann 29. apríl síðastliðinn. Auk þessarar kæru hefur lög- reglustjórinn á Vesturlandi tvær aðrar kærur til rannsóknar. Hvalur hf. skar aldrei hval innan- dyra eins og átti að gera en talað var um í reglugerð frá árinu 2010 að skera ætti hval á yfirbyggðum skurðf leti. Einnig hefur lögreglustjórinn til rannsóknar meint brot skipstjóra Hvals hf. hvað varðar vanrækslu á skilum dagbóka skipstjóra til Fiski- stofu árin 2014-2018. – sa Óska eftir rannsókn á meintum ólöglegum veiðum Hvals hf. Í Hvalfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 6 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E E -8 5 7 4 2 2 E E -8 4 3 8 2 2 E E -8 2 F C 2 2 E E -8 1 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.