Fréttablaðið - 06.05.2019, Síða 6

Fréttablaðið - 06.05.2019, Síða 6
Ég ætla að vona að þetta fái góðar viðtökur hjá félagsmönnum. Kristján Þórður Snæbjarnarson, talsmaður samflots iðnaðarmanna Búnaður skynjar er gangandi vegfarendur nálgast gangbraut og kveikir þá á LED-götulýsingu.Víkurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • S: 546 9500 • lofttaekni.is Umboðs og þjónustuaðilar um allt land 25 ára Afmælis tilboð Á VARMADÆ LUM Loft í VATN 12% a f s l á t t u r Loft í LOFT 20% a f s l á t t u r U p p l ý s i n g a r o g v e r ð á l o f t t a e k n i . i s Annast strætóferðir en hafa ekki rekstrarleyfi Hópferðabílar Akureyrar ehf. ekur þrjár leiðir í almenningssamgöngukerfinu á Norðausturlandi. Hefur verið neitað um áframhaldandi greiðslustöðvun. Eyþing fylgist náið með þróun mála til að tryggja almenningssamgöngurnar. Árið 2013 sömdu Hópferðabílar Akureyrar við Eyþing um akstur þriggja leiða í landshlutanum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR BORGARMÁL „Við viljum prófa næsta vetur að taka í notkun nýjustu tækni í gangbrautum, svokallaðar tölvu­ væddar gangbrautir,“ segir Ólafur Kr. Guðmundsson, varaborgarfull­ trúi Sjálfstæðisflokksins. Borgarstjórnarf lokkur Sjálf­ stæðis f lokksins hefur lagt fram tillögu fyrir borgarstjórnarfund á morgun um að fara í tilraunaverk­ efni til að auka öryggi á gangbraut­ um. Ef tillagan verður samþykkt verða fimm gangbrautir valdar þar sem komið verður fyrir búnaði sem skynjar þegar gangandi vegfarendur nálgast gangbraut og kveikir þá á LED­götulýsingu. Verkefnið hefur verið Ólafi hug­ leikið í nokkurn tíma, setur hann þetta í samhengi við snjallvæðingu Reykjavíkurborgar. Verkefnið kemur til með að kosta 10 milljónir króna, eða tvær milljónir á hverja gangbraut. Meginmarkmiðið er að auka öryggi. „Þegar þú ert að nálgast gangbrautarkantinn, þá kviknar lýsing, upplýst gangbrautarmerki og blikkandi ljós. Þá verða gangandi vegfarendur upplýstir eins og á leik­ sviði. Þetta er hugsað fyrir myrkur, sérstaklega í skammdeginu, þá er öruggt að bílstjórar sjái vegfarend­ urna.“ – ab Gangbrautir upplýstar eins og leiksvið Ólafur Kr. Guðmundsson varaborgarfulltrúi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR DÓMSMÁL Dómur verður kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag í máli Sindra Brjáns­ sonar sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps í miðbæ Akureyrar þann 3. nóvember síðastliðinn. Sindra er gefið að sök að hafa ítrekað stungið Elmar Sveinars­ son, bæði í höfuð og búk, sparkað og slegið í hann. Auk áverka eftir stunguvopn hlaut Elmar tvö aðskil­ in höfuðkúpubrot. Elmar krefst rúmra fimm millj­ óna í skaðabætur frá Sindra. Hann hlaut samtals tíu stungusár bæði í andlit og líkama, þar á meðal 7 til 8 sentimetra langan djúpan skurð sem skar í sundur munnvatnskirtil, kjálkavöðva að hluta og olli slag­ æða blæðingu. Elmar mun ávallt bera ör eftir árásina. Í dómaframkvæmd er algeng refsing fyrir tilraun til manndráps fimm ára fangelsi. – aá Dæmt í hnífstungumáli SA MGÖNGUM ÁL Hópferðabílar Akureyrar, sem sjá um almennings­ samgöngur á Norðausturlandi, hafa misst rekstrarleyfi sitt til fólksflutn­ inga. Því var ekið á öðru rekstrar­ leyfi síðastliðinn föstudag. Árið 2013 gerði Hópferðabílar Akureyrar ehf. samning við Eyþing, sem er samband sveitarfélaga í Eyja­ firði og Þingeyjarsýslum, um akstur þriggja leiða í landshlutanum. Um er að ræða samgöngur milli Siglu­ fjarðar og Akureyrar, Húsavíkur og Akureyrar og Egilsstaða og Akur­ eyrar. Fram hefur komið í fréttum í vetur að fyrirtækið óskaði eftir greiðslustöðvun. Fyrirtækið fékk heimildina síðan þann 26. febrúar. Gilti greiðslustöðvunin til 16. mars og því þurfti að taka hana fyrir aftur þá. Það var svo í síðustu viku að fyrirtækið fékk ekki áfram­ haldandi greiðslustöðvun og er nú unnið að því að bjarga því sem bjargað verður. Rekstrarleyfi fyrirtækisins til fólksflutninga í atvinnuskyni, með bifreiðum sem skráðar eru fyrir níu eða f leiri farþega, rann út 2.  maí síðastliðinn og því hefur fyrir tækið ekki leyfi til að aka leiðirnar á sínu rekstrarleyfi. Fjalar Úlfarsson, framkvæmda­ stjóri Hópferðabíla Akureyrar, segir fyrirtækið nú vinna úr þeirri stöðu sem upp er komin. Hann segir að síðastliðinn föstudag hafi aðrir bílar keyrt þessar leiðir undir öðru rekstrarleyfi. Hann vildi ekki gefa upp á hvaða rekstrarleyfi það var gert. Samkvæmt lögum um farþega­ flutninga á landi þarf hver sá sem stundar farþegaflutninga í atvinnu­ sk y ni almennt rek st rarley f i . Óheimilt er að stunda leyfisskylda farþegaflutninga án tilskilins leyfis og getur slíkt varðað sektum. Hilda Jana Gísladóttir, formaður Eyþings, segir samtökin vera að skoða þá stöðu sem upp er komin. „Ég er mjög bjartsýn á að almenn­ ingssamgöngur riðlist ekki í lands­ fjórðungnum og við hjá Eyþingi munum kappkosta að tryggja áframhaldandi akstur þessara leiða,“ segir Hilda Jana. „Við fylgj­ umst náið með gangi mála þar sem okkar verkefni er fyrst og fremst að tryggja áframhaldandi þjónustu við almenning.“ sveinn@frettabladid.is Ég er mjög bjartsýn á að almennings- samgöngur riðlist ekki í landsfjórðungnum. Hilda Jana Gísladóttir, formaður Eyþings K JAR AMÁL „Við töldum okkur ekki komast lengra og við teljum þennan samning vera góðan og í rauninni stór tímamót hjá okkur að ná þessu sem við náðum,“ segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, talsmaður samflots iðnaðarmanna. Samningar við Samtök atvinnulífs­ ins (SA) tókust fyrir helgi og ná til um 13 þúsund manns. „Það er alveg klárlega þannig að menn munu tala fyrir þessum samningum. Ég ætla að vona að þetta fái góðar viðtökur hjá félags­ mönnum,“ segir Kristján. Byggt er á ramma sem mótaður var í lífskjarasamningnum. Kristján segir þó að stórt skref hafi verið stig­ ið í átt að styttingu vinnuvikunnar. „Í lok samningstímans geta iðn­ aðarmenn einhliða náð að stytta vinnutímann hjá sér án þess að vilji fyrirtækjanna sé til staðar sem slíkur.“ Kristján segir að kynningar á samningnum muni væntanlega hefjast í þessari viku. Atkvæða­ greiðslur standa til 21. maí. Í tilkynningu frá SA segir að nú hafi samningar verið gerðir fyrir um 90 prósent starfsmanna á almenna vinnumarkaðnum. Enn eru þrjú mál á borði ríkis­ sáttasemjara en þar eiga í hlut mjólkurfræðingar, f lugfreyjur hjá Icelandair og flugumferðarstjórar. Einar Ágúst Ingvarsson, formað­ ur Mjólkurfræðingafélags Íslands, segir að viðræður félagsins hafi verið settar í bið meðan beðið var eftir samningi iðnaðarmanna. Það liggi nokkurn veginn fyrir að samið verði á svipuðum nótum. – sar Tala fyrir samningunum 6 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E E -9 9 3 4 2 2 E E -9 7 F 8 2 2 E E -9 6 B C 2 2 E E -9 5 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.