Fréttablaðið - 06.05.2019, Qupperneq 36
UTANRÍKISMÁL „Skýrsla Thorvalds Stol-
tenberg markaði veruleg tímamót í nor-
rænu samstarfi á sínum tíma og í tilefni
af tíu ára afmæli skýrslunnar taldi ég
tímabært að meta hverjum af tillögun-
um var hrint í framkvæmd, í heild eða
að hluta,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra um nýja úttekt á Stol-
tenberg-skýrslunni svokölluðu.
Skýrslan fjallar um norræna sam-
vinnu á sviði utanríkis- og varnar-
mála og þar voru settar fram þrettán
tillögur um nánara samstarf Norður-
landanna.
„Það er ánægjulegt að sjá hve margar af
framsæknum tillögum Stoltenbergs hafa
verið framkvæmdar, þar með taldar til-
lögur um norrænt loftrýmiseftirlit við
Ísland og aukna samvinnu utanríkis-
þjónusta Norðurlandanna,“ segir Guð-
laugur Þór.
Nú fari í hönd frekari umfjöllun
um úttektina og segist Guðlaugur Þór
binda vonir við að hún geti orðið leiðar-
vísir um frekari skref í aukinni norrænni
samvinnu á sviði utanríkis- og varnar-
mála. Samkvæmt úttektinni hefur lítill
eða enginn árangur náðst varðandi þrjár
tillögur. Einhver árangur, mismikill þó,
hefur náðst þegar kemur að tíu tillögum.
Það voru alþjóðamálastofnanir á
Norðurlöndunum fimm sem unnu
úttektina. Pia Hansson, forstöðukona
Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands,
er meðal þeirra sem unnu úttektina.
„Það kemur á óvart hvað skýrslan hafði
mikla þýðingu fyrir Ísland. Þegar Stol-
tenberg kynnir skýrsluna fyrir 10 árum
þá erum við á Íslandi að skoða okkar
varnarmál upp á nýtt. Þetta er fljótlega
eftir að Bandaríkjaher er farinn og það
mætti segja að skýrslan hafi sett Ísland á
kortið í samhengi við norræna samvinnu
í varnar- og öryggismálum,“ segir Pia.
Kristin Haugevik, sérfræðingur hjá
Norsku alþjóðamálastofnuninni og
annar ritstjóra úttektarinnar, segir
Stoltenberg-skýrsluna hafa lagt sitt af
mörkum við að skapa nýja umræðu um
norrænt samstarf.
„Ég held að skýrslan hafi verið mjög
mikilvæg vegna þess að hún kom út á
tímapunkti þegar það var kannski þörf
fyrir aukinn kraft í norrænt samstarf.
Þar birtist líka framtíðarsýn og tillög-
urnar voru áþreifanlegar.“
Kristin segir aðstæður í alþjóða-
stjórnmálum hafa breyst mikið frá því
að Stoltenberg-skýrslan kom út 2009.
Samskiptin við Rússland hafi verið
betri, Bretar ekki á leið úr ESB og Obama
nýtekinn við embætti Bandaríkjafor-
seta.
„Heimurinn lítur svolítið öðru vísi út
nú. Það er meiri spenna og fleiri áskoran-
ir, líka í nærumhverfi Norðurlandanna.
Þannig að ef Stoltenberg-skýrslan væri
skrifuð í dag myndi hún fjalla um fleiri
áskoranir,“ segir Kristin.
Það eigi ekki að taka því sem gefnu
að norræn samvinna eigi sér stað á ein-
hvern einn ákveðinn hátt. „Samvinnan
er alltaf í þróun og svona úttektir geta
hjálpað til við að meta hvað virki og hvað
ekki.“ sighvatur@frettabladid.is
Ánægður með framgang
tillagna frá Stoltenberg
Gerð hefur verið úttekt á afdrifum tillagna Stoltenberg-skýrslunnar um norrænt sam-
starf í utanríkis- og varnarmálum. Skýrslan, sem kom út fyrir tíu árum, markaði tíma-
mót. Utanríkisráðherra segist vona að úttektin verði leiðarljós að aukinni samvinnu.
Pia Hansson, forstöðukona Alþjóðamálastofnunar, afhendir Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra úttektina. FRÉTTABLAÐIÐ/
1682 Loðvík XIV, konungur Frakklands, flytur hirð sína til Versala.
1757 Enska ljóðskáldið Christopher Smart er skráður inn á St.
Luke’s-sjúkrahúsið fyrir geðveika í London.
1877 Indíánahöfðinginn Óði Hestur gefst upp í Nebraska fyrir her-
mönnum Bandaríkjastjórnar.
1889 Eiffelturninn er formlega opnaður fyrir almenning á Heims-
sýningunni í París.
1910 George V. tekur við sem konungur Englands eftir andlát
föður síns, Játvarðs VII.
1937 Þýska loftskipið Hinden-
burg verður alelda á svipstundu
í Lakehurst í New Jersey og 36
láta lífið.
1940 John Steinbeck fær Pul-
itzer-verðlaunin fyrir skáldsögu
sína Þrúgur reiðinnar.
1942 Síðustu herdeildir Banda-
ríkjamanna á Filippseyjum
gefast upp fyrir Japönum í
heimsstyrjöldinni síðari.
1960 Yfir 20 milljónir manna horfa á fyrstu beinu sjónvarps-
útsendinguna af konunglegu brúðkaupi er Margrét prinsessa og
Anthony Armstrong-Jones ganga í hjónaband í Westminster Abbey
á Englandi.
1976 Á bilinu 900 til 978 farast og 1.700 til 2.400 slasast í geysi-
hörðum jarðskjálfta á Norður-Ítalíu.
1983 Meintar dagbækur Hitlers eru afhjúpaðar sem svindl eftir
rannsóknir sérfræðinga.
1988 Allir 36 farþegar og áhöfn farast er flugvél hrapar í fjallinu
Torghatten á Brønnøy í Noregi.
1994 Elísabet II Englandsdrottning og François Mitterrand, forseti
Frakklands, eru viðstödd opnun ganganna undir Ermarsund.
1996 Lík Williams Colby, fyrrverandi forstjóra CIA, finnst á árbakka
í Maryland átta dögum eftir að
hann hvarf.
2001 Jóhannes Páll II verður
fyrsti páfinn til að stíga inn í
mosku múslima í heimsókn í
Sýrlandi.
2002 Hollenski stjórnmála-
maðurinn Pim Fortuyn er
ráðinn af dögum eftir útvarps-
viðtal.
2013 Þrjár konur sem saknað
hafði verið í meira en áratug
koma í leitirnar á lífi í borginni
Cleveland í Ohio í Bandaríkj-
unum.
Hindenburg.
Jóhannes Páll II páfi.
Merkisatburðir
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Einarsdóttir
áður til heimilis að
Flókagötu 1, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 1. maí á
hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Fríða Bjarnadóttir Tómas Zoëga
Anton Bjarnason Fanney Hauksdóttir
Bjarni Bjarnason Kristín Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
frá Þingeyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi
þriðjudaginn 16. apríl.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 6. maí klukkan 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins.
Sjöfn Sóley Sveinsdóttir Rögnvaldur Reinharð
Andrésson
Magnea Gerður Sveinsdóttir Ólafur Sigurðsson
Smári Sveinsson Guðmunda Óskarsdóttir
Kristín Linda Sveinsdóttir Skjöldur Vatnar Árnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Eftir tíu ára sigurgöngu kvaddi sjón-
varpsserían Friends með lokaþætt-
inum á þessum degi árið 2004.
„Eftir tíu seríur á stöðinni var loka-
þátturinn vel auglýstur á NBC og mikið
umstang gert í kringum hann. Hann
fór í loftið 6. maí 2004 og voru banda-
rísku áhorfendurnir 52,5 milljónir,
sem varð til þess að þátturinn varð
fjórði vinsælasti lokaþátturinn í sögu
sjónvarps,“ segir um þessi tímamót á
íslenskri Wikipedia-síðu Friends. Þar
kemur einnig fram að Friends hafi
fengið misjafna gagnrýni í fyrstu.
„Á meðan hann var í gangi vann
hann mikið af verðlaunum og var
tilnefndur til 63 Emmy-verðlauna.
Þáttunum gekk einnig vel í áhorfi og
voru alltaf á topp tíu listanum. Friends
hafði mikil áhrif allt í kringum sig og
Central Perk kaffihúsið hefur
veitt mörgum innblástur.
Þættirnir eru endursýndir
um allan heim en hver sería
hefur einnig verið gefin
út á mynddiski. Eftir að
þættirnir kláruðust fór
þátturinn Joey í loftið
og orðrómur um kvik-
mynd kom upp,“ segir
áfram á Wikipedia.
Aðalleikarnir sex
í Friends, Jennifer
Aniston, Courteney Cox
Arquette, Lisa Kudrow, Matt LeBlanc,
Matthew Perry og David Schwimm-
er, uppskáru heimsfrægð fyrir
hlutverk sín í þáttunum.
Upphaflega fengu þau
1.600 dali hver fyrir hvern
þátt en eftir tvö ár hót-
uðu þau verkfalli og er
óhætt að segja að það
hafi borið árangur því
launin voru hækkuð
í 100 þúsund dali á
þátt árið 1996. Árið
2002 kröfðust þau
síðan þess að fá eina
milljón dollara fyrir
hvern þátt.
Þ E T TA G E R Ð I S T: 6 M A Í 2 0 0 4
Lokaþáttur Friends
6 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
E
-7
6
A
4
2
2
E
E
-7
5
6
8
2
2
E
E
-7
4
2
C
2
2
E
E
-7
2
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K