Fréttablaðið - 06.05.2019, Page 40
MAÐUR VELTIR ÞVÍ
FYRIR SÉR HVORT
ÞETTA UNGA FÓLK SEM BÝR Í
ÞESSUM BLOKKUM EIGI EIN-
HVERJA MÖGULEIKA.
The House That Jack Built (ice sub) 17:30
Girl (eng sub) .............................................. 17:45
Yuli-Carlos Acosta Story (ice sub) 20:00
Að sjá hið ósýnilega (icelandic) .. 20:00
The Wild Pear Tree (eng sub) ......20:30
Mug // Twarz (eng sub) ..................... 22:00
Everybody Knows (ice sub) .........22:15
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
Ljósmyndir Spessa frá R iga og Daug vapils í Lettlandi eru nú á sýningu í Ramskram Gallery á Njálsgötu 49. Myndirnar tók Spessi
árin 2014 og 2015. Sýningin nefnist
Módernísk arf leifð og er opin um
helgar frá 14-17. Hún stendur til
19. maí.
Fátækrahverfi
„Ég kom til Riga vegna sýningar
sem ég tók þátt í þegar Riga varð
menningarborg Evrópu. Sýningin
hét Reconstruction of Friendship
og fjallaði um kalda stríðið og ég
hafði unnið verk sem tengdist
Kef lavíkurf lugvelli. Í kjölfarið
ákvað ég að skoða fátækrahverfin
í Riga sem eru í úthverfi borgar-
innar, eins og slík hverfi eru yfir-
leitt. Ég fékk ljósmyndara sem
leiðsögumann og þvældist þarna
um og hitti aðallega unga krakka
sem ég myndaði. Þetta var um
Unglingar í úthverfum
Spessi sýnir ljósmyndir frá Riga og Daugvapils í Lettlandi
Spessi sýnir ljósmyndir sínar í Ramskram Gallery á Njálsgötu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ein af
myndum
Spessa sýnir
þennan unga
dreng sem
býr við óvissa
framtíð.
Séð út um glugga á auðu húsi.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
vetur og árið eftir, um sumar, fór
ég til Daugvapils og myndaði ungl-
inga í úthverfunum þar. Þannig af
helmingur myndanna á sýningunni
er tekinn um vetur í Riga og hinn
helmingurinn um sumar í Daug-
vapils. Myndirnar sýna krakka sem
búa í blokkum sem eru í úthverfum
þessara tveggja borga,“ segir Spessi.
Hverfi sem virka ekki
Spessi sneri síðan heim til Íslands
en hugsanir um blokkirnar létu
hann ekki í friði og þá hvarf laði
hugur hans til Breiðholtsins. „Ég
fór að vinna Breiðholtsverkefni sem
varð að ljósmyndasýningunni 111
sem sýnd var á Listahátíð í fyrra og
samnefndri ljósmyndabók. Mynd-
irnar frá Riga og Daugvapils eru
undanfari Breiðholtsverkefnisins
og sennilega kveikjan að því,“ segir
Spessi.
„Ég hafði nokkuð lengi velt því
fyrir mér hver væri hugsunin á bak
við blokkabyggingar fyrir fátækt
fólk fyrir utan borgir. Þetta hefur
verið gert um allan heim en þessi
hverfi verða eins konar skrímsli
sem virka ekki. Í grunninn er hugs-
unin falleg en maður veltir því fyrir
sér hvort þetta unga fólk sem býr í
þessum blokkum eigi einhverja
möguleika. Langf lest sekkur það
út á jaðarinn og býr við bág efni.
Það virðist vera sósíalísk hugsun
á bak við það að byggja ódýrt fyrir
fátækt fólk en svo er eins og kapít-
alistar hafi gripið hugmyndina og
losað sig við þetta fólk með því að
hrúga því saman fyrir utan borgar-
mörkin. Eftir að hafa hugsað málið
lengi hef ég komist að þeirri niður-
stöðu að þessar blokkabyggingar
séu sprotnar upp úr módernism-
anum. Þess vegna heitir sýningin
Módernísk arf leifð. Hér á Íslandi
eru blokkirnar í Efra-Breiðholti
líklega það sem kemst næst þessu
og það sem við getum kallað okkar
módernísku afleifð.“
6 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
E
-8
5
7
4
2
2
E
E
-8
4
3
8
2
2
E
E
-8
2
F
C
2
2
E
E
-8
1
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K