Kraftur - 01.01.2018, Qupperneq 32

Kraftur - 01.01.2018, Qupperneq 32
Bl s. 32 Kraftur „Ég man sérstaklega eftir ungum manni sem var nýkominn úr heilaskurðaðgerð vegna krabbameins. Hann kom með alla fjölskylduna“ Viðtal Við borgum aldrei meira en 2200 sænskar eða um 27 000 kr. á ári í lyf og aldrei meira en 1100 sænskar eða um 13 000 kr. á ári í lækna- kostnað. Það var mjög þægilegt fjárhagslega fyrir okkur að búa úti. Við gátum lifað góðu lífi af einum launum og sjúkradag- peningum en hér er þetta óneitanlega mun þyngra og erfiðara að láta enda ná saman. Sjúkradagpeningarnir greiddu u.þ.b. helming af öllum útlögðum kostnaði úti, þ.e. húsnæði, mat og afþreyingu á meðan að þeir ná að greiða u.þ.b. einn sjötta hluta útgjaldanna hér. Olga er menntaður kennari og vann sem slíkur áður en hún veiktist en hún hafði einangrast mikið eftir veikindin og hafði auðvitað ekki þetta stuðningsnet sem hún hefur hér í vinum og vandamönnum. Hún fór fljótlega að taka þátt í starfsemi Krafts og fann sig mjög vel í Ljósinu eftir að hún flutti heim. Þar fann hún fólk sem var í sömu stöðu og hún og henni leið betur að geta talað um sín mál við fólk í svipaðri stöðu og hún var í. Auk þess skiptir miklu máli öll sú starfsemi sem í boði er hvort sem það eru fyrirlestrar, námskeið eða bara að vera með öllu þessu góða fólki sem er í svipaðri stöðu og hún. Svona félagsskapur eins og Kraftur og Ljósið er ekki til í Svíþjóð en það er vonandi að slík starfsemi nái að byggjast upp þar því þessi starfsemi er algerlega ómetanleg og ég á í raun engin orð til að lýsa hrifningu minni á henni. Kraftur og Ljósið auk vina og vandamanna gerir það að verkum að okkur líður öllum betur hér og það verður aldrei metið til fjár þó að ég ætli ekki að gera lítið úr því hvað það er auðveldara að takast á við svona erfiðleika þegar fjárhagsáhyggjur eru ekki til staðar.“ Hvernig hafa veikindi Olgu breytt þér? ,,Ég fullorðnaðist árið 2014 og hef fullorðnast hratt eftir það! Við erum búin að vera saman í tuttugu ár og ég held því fram að ég hafi í raun bara verið fjórða barnið hennar Olgu fram að því en það var ekki í boði lengur eftir að svona mikil og erfið lífsreynsla kom inn í líf okkar. Ég hafði alla tíð unnið allt of mikið og var aldrei í núinu. Núna vinn ég miklu minna, lifi algerlega í núinu og er alltaf hamingjusamur. Ég nýti tímann betur og ég nýt hans betur. Ég finn líka að þó að veikindin hafi stuðlað að því að við erum kannski fjarlægari á ákveðinn hátt en áður hafa þau stuðlað að því að við erum miklu betri vinir en nokkru sinni fyrr. Við höfum það markmið að njóta alls eins og hægt er og við gerum það svo sannarlega.“

x

Kraftur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.