Kraftur - 01.01.2018, Síða 39

Kraftur - 01.01.2018, Síða 39
B ls. 39 Kraftur Raunkostnaður er hærri en verðskrá SÍ kveður á um. Þingsályktunartillaga um að endurskoða ætti greiðslu- þátttöku ríkisins vegna tæknifrjóvgunarmeðferðar var samþykkt árið 2016 og átti endurskoðun að ljúka fyrir árslok síðasta árs. Henni er ekki enn lokið. Í þessari tillögu var meðal annars lagt til að greiðslu- þátttaka sjúkratrygginga nái til fyrstu glasafrjóvgunar- meðferðar hjá fólki óháð því hvort það eigi barn fyrir, en í dag nær þessi þátttaka aðeins frá annarri til fjórðu meðferðar hjá pörum og einstaklingum sem eiga ekki barn fyrir. Hins vegar er tekið þátt í fyrstu meðferð para og einhleypra kvenna ef um er að ræða yfirvofandi ófrjósemisvandamál konunnar vegna fyrirsjáanlegrar lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergsflutnings. Þá endurgreiða Sjúkratrygg- ingar Íslands 65% útlagðs kostnaðar vegna ástungu á eista og frystingu sáðfruma þegar um er að ræða karlmenn með yfirvofandi ófrjósemisvandamál vegna fyrirsjáanlegrar lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergsflutnings. Í þeim tilfellum er Sjúkratrygging- um Íslands heimilt að greiða 90% útlagðs kostnaðar vegna geymslugjalds á frystum fósturvísum/sáðfrum- um, þó að hámarki í tíu ár. Þá fer greiðsluþátttaka eftir verðskrá Sjúkratrygginga Íslands, en sú verðskrá hefur ekki verið uppfærð síðan árið 2011 og er ekki í samræmi við verðskrá þeirra stofnana sem framkvæma frjósemismeðferðir. Eins og kemur fram í þingsályktunartillögunni er því raunkostnaður við frjósemismeðferðir umtalsvert hærri en verðskrá Sjúkratryggina Íslands kveður á um. Að mati flutningsmanna tillögunnar er Ísland nokkur eftirbátur nágrannalanda okkar og þeirra landa sem við viljum almennt bera okkur saman við á þessu sviði. Tekin eru dæmi um að í Danmörku og Svíþjóð nái greiðsluþátttaka ríkisins yfirleitt til fyrstu og þriðju meðferðar. Ekki unnt að uppfæra gjaldskrá vegna fjárskorts Mannlíf sendi fyrirspurn til heilbrigðis- ráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, um þetta greiðsluþátttökukerfi og hvar endur- skoðun þess stæði. Eftirfarandi svör bárust frá ráðuneytinu: Í reglugerð um greiðsluþátttöku vegna tæknifrjóvgana stendur að endurgreiðsla miðist við gjaldskrá SÍ. Sú verðskrá hefur ekki verið uppfærð síðan 2011 og tekur því ekki mið af verðlagsbreytingum. Af hverju hefur sú verðskrá ekki verið uppfærð? Svar: Verðskráin hefur tekið mið af þeim fjármunum sem hafa verið til ráðstöfunar og framlög hafa ekki verið aukin þannig að unnt væri að uppfæra gjaldskrána. Verðskrá SÍ og verðskrá stofnana sem sjá um frjósemismeðferðir eru tvær ólíkar verðskrár. Stendur til að samræma þessar verðskrá að einhverju eða öllu leyti? Svar: Ekki eru áform um að samræma gjaldskrá SÍ og einkarekinna fyrirtæk- ja sem sinna þessari þjónustu, þar sem ekki hafa tekist samningar milli SÍ og viðkomandi aðila. Sem fyrr segir hefur þetta einnig með fjárframlög að gera. Enginn samningur er á milli íslenska ríkis- ins og stofnana sem sjá um frjósemis- meðferðir. Stendur til að koma á slíkum samningi? Ef já, hvar er það statt í ferlinu? Ef nei, af hverju ekki? Svar. Já, það er stefnt að því að semja um þessa þjónustu. B ls. 39 Grein

x

Kraftur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.