Fréttablaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 12
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@frettabladid.is
Í ljósi þess að
þungunarrof
er komið til
að vera þá
skiptir öllu
að konum sé
tryggð besta
mögulega
heilbrigðis
þjónusta.
Ísland er eitt
af síðustu
vígjum villta
laxins vegna
þess að hér
hefur ekki
verið sjókvía
eldi á iðn
aðarskala.
Okkur ber
skylda til að
verja þetta
vígi.
Merkasti náttúruverndarsinni okkar tíma er Sir David Attenborough. Þessi aldni höfðingi hefur tekið að sér það mikilvæga
hlutverk að vera rödd þeirra sem geta ekki tjáð sig
sjálf: dýra og plantna, gjörvalls lífríkis jarðar sem
stendur frammi fyrir áður óþekktri ógn af hálfu
mannkyns.
Í nýrri skýrslu nefndar á vegum Sameinuðu
þjóðanna kemur fram að um milljón tegundir dýra
og jurta eru í útrýmingarhættu og að það séu aðferðir
mannsins við að skapa orku og búa til matvæli sem
er helst um að kenna. Niðurstöður skýrslunnar
eru skýrar. Við verðum að breyta hegðun okkar og
neyslu, annað er ekki í boði.
Nýir náttúrulífsþættir Attenboroughs á Netflix
eru sláandi vitnisburður um þá gereyðingarvegferð
sem mannkynið er á. Í þáttunum talar hann beint til
okkar og af meiri þunga en nokkru sinni fyrr. Þessi
framganga er ekki sjálf bær. Þessari ábyrgðarlausu
umgengni við náttúruna verður að linna.
Meðal þess sem Attenborough hefur gert að
umtalsefni er sú hætta sem villtum laxastofnum
stafar af sjókvíaeldi á laxi. Kringum 1970 voru um tíu
milljón villtir laxar í Norður-Atlantshafinu og hafði
fækkað hratt áratugina á undan. Nú er þessi tala
komin í um þrjár milljónir. Með sama áframhaldi
mun villtur lax verða ein af þeim tegundum sem
mannkynið útrýmir, einsog varað er við í skýrslu SÞ.
Eins og Attenborough bendir á hefur mannkynið
um langa hríð farið illa með náttúruleg heim-
kynni laxastofna í ám og hafinu. Nýjasta ógnin er
stóraukið sjókvíaeldi á laxi en erfðablöndunin við
eldislax dregur mjög úr getu villtra stofna til að lifa
af í umhverfi sem er þeim nú þegar fjandsamlegt af
manna völdum.
Það er löngu tímabært að við snúum af þessari
óábyrgu braut í umgengninni við náttúruna. Ísland
er eitt af síðustu vígjum villta laxins vegna þess
að hér hefur ekki verið sjókvíaeldi á iðnaðarskala.
Okkur ber skylda til að verja þetta vígi. Þegar Sir
David talar, þá eigum við að hlusta.
Hlustum á Attenborough
Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn
af einni rafhlöðu sem skilar ai
til þess að slípa, er léttari en
snúrurokkur í sinni stærð.
Sveigjanlegt rafhlöðuker
sem virkar með öllum
Milwaukee ® M18™ rafhlöðum.
Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu)
M18 FLAG
Alvöru slípirokkur
frá Milwaukee
vfs.is
Ingólfur
Ásgeirsson
félagi í náttúru-
verndarsjóðn-
um Icelandic
Wildlife Fund
Þungunarrof er og verður hluti af sam-félagsgerð okkar, því ef við höfum raun-verulegan áhuga á því að búa í samfélagi þar sem jöfnuður milli kynjanna ríkir og er í hávegum hafður og virðing er borin fyrir sannfæringu, samvisku og
sjálfsákvörðunarrétti einstaklingsins, þá er ómögu-
legt fyrir aðra en konuna sjálfa að hlutast til um það
hvernig meðganga hennar fer. Ábyrgðin er hennar,
valið er hennar, afleiðingarnar eru hennar að eiga við.
Þungunarrof er óneitanlega hluti af því samfélagi
sem freistar þess að veita konum tækifæri til að fara
með ákvörðunarvald yfir eigin lífi, til að skipuleggja
líf sitt, til að vera meira en bara mæður. Í ljósi þess að
þungunarrof er komið til að vera þá skiptir öllu að
konum sé tryggð besta mögulega heilbrigðisþjónusta.
Sú þjónusta þarf að byggja á sannreyndum vísindum,
á leiðbeiningum þeirra sem þekkja til málaflokksins,
og auðvitað á manngæsku og virðingu.
Merk tímamót urðu í gær þegar Alþingi samþykkti
eina framsæknustu löggjöf heims um þungunarrof.
Frumvarpið er vitnisburður um nútímalegt sam-
félag sem viðurkennir rétt kvenna til að ráða yfir
eigin líkama; samfélag sem treystir konum til að taka
ákvarðanir um eigið líf. Málið var afgreitt af yfirveg-
un, virðingu og með ítarlegum hætti á öllum stigum.
Forsendur þess byggja á bestu mögulegu þekkingu á
þessu sviði, og í þinglegri meðferð var víðtækt sam-
ráð haft.
Þar með er ekki sagt að umræðan um málið í þing-
sal hafi alfarið verið uppbyggileg, þar sem þingmenn
fjölmenntu í pontu til að dásama sjálfsákvörðunar-
rétt kvenna yfir eigin líkama, en vildu síður treysta
þeim til að sýna þennan sjálfsagða rétt í verki með
því að styðja frumvarpið.
Fjórða grein frumvarpsins, sem mælir fyrir um
heimild konu til að rjúfa þungun að hennar beiðni
til loka 22. viku meðgöngu, byggir á tillögum og
athugasemdum sérfræðinga. Engar vísbendingar og
engar rannsóknir eru til staðar sem benda til þess að
konur fari frekar í þungunarrof þegar miðað er við 22.
viku. Slíkur málflutningur, sem margir andstæðingar
frumvarpsins á þingi hafa haldið á lofti, er fáránlegur
í alla staði og ber vott um það litla traust sem þeir
bera til kvenna, sannfæringar þeirra og ábyrgðar á
eigin gjörðum.
Raunar er það óheppilegt að tímamörk séu yfirleitt
til staðar um þungunarrof, því ef við treystum konum
til að taka upplýsta ákvörðun, og til að bera ábyrgð á
þeirri ákvörðun sinni, þá er engin ástæða til að setja
þeim skorður um það hvenær sú ákvörðun er tekin.
Lagalegur fyrirvari um tímasetningu þungunarrofs
færir þannig áhersluna frá ákvörðun og vilja konunn-
ar og á líffræðilegan þroska fóstursins og lífvænleika
þess, sem er háður síbreytilegum samfélagslegum og
tæknilegum þáttum.
Á Alþingi í gær voru skýr skilaboð send konum: Við
treystum ykkur til að bera ábyrgð, til að taka ákvarð-
anir um líkama ykkar, til að taka afstöðu til þess máls
sem þið einar eigið að eiga lokaorðið um.
Lokaorðið
Tvennutilboð á 22. viku
Fimm-átta-átta-fimm-fimm-
fóstureyðing. Nú er þungunar-
rof bara orðið eins og að panta
sér pitsu! Sannkallað tvennutil-
boð á 22. viku. Steingrímur J. sló
í bjölluna að lokinni atkvæða-
greiðslu í gær og Oprah birtist
og hóf að benda á og gera hróp
að konunum sem fjölmenntu á
þingpallana. „Þú færð þungun-
arrof og þú og þú og þú!“
Hver þingmaður er einungis
bundinn af sannfæringu sinni.
Synd er að svo margir eru líka
bundnir eigin vitleysu líka.
Við bindingar getur nefnilega
margur komið sér í klandur og
af umræðunum á þingi í gær að
dæma höfðu margir komið sér
í fjötra og hefðu þó betur múl-
bundið sig og kef lað.
Vísvitandi misskilningur
Það var verið að laga löggjöfina
að veruleikanum. Það var verið
að auka réttindi móðurinnar
til að koma að ákvörðuninni
lengur, ekki skerða rétt fóst-
ursins. Fyrir atkvæðagreiðsluna
í gær var heimilt að fara í fóstur-
eyðingu á 22. viku meðgöngu.
Eftir að frumvarpið var sam-
þykkt er það óbreytt.
Persónuleg skoðun einstaka
þingmanna á fóstureyðingum
almennt hafði afvegaleitt
umræðuna í kringum frumvarp-
ið og vísvitandi misskilningur
og rangfærslur með gífuryrðum
var látinn viðgangast allt of
lengi. mikael@frettabladid.is
1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
C
-3
E
7
C
2
2
F
C
-3
D
4
0
2
2
F
C
-3
C
0
4
2
2
F
C
-3
A
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K