Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.05.2019, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 14.05.2019, Qupperneq 8
… fyrirliggjandi erindi gefi ekki tilefni til frekari athugunar af hennar hálfu. Úr bókun forsætisnefndar www.fakur.is Aðalfundur Fáks verður haldinn miðvikudaginn 15. maí klukkan 20:00 í félagsheimili Fáks að Víðivöllum í Víðidal. Dagskrá fundarinns eru hefðbundin aðalfundarstörf. Hvetjum alla félagsmenn til að mæta, léttar veitingar í boði og heitt á könnunni. Konur vilja heldur snið- ganga Eurovision en karlar samkvæmt könn- un. Menntun og tekjur hafa lítil áhrif á viðhorf til sniðgöngu. Stjórn- málafræðingur segir keppnina hápólitíska og áhrifavald hennar gjarnan notað. SAMFÉLAG Einn af hverjum fjórum landsmönnum vill að Ísland snið- gangi Eurovision-keppnina í Ísrael. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið dagana 10. til 13. maí. „Í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið í rauninni allt frá því Ísrael vann keppnina síðastliðið vor, þá koma þessar tölur í raun- inni ekki á óvart, það er að einn af hverjum fjórum landsmönnum vilji að Ísland sniðgangi keppnina,“ segir Baldur Þórhallsson stjórn- málafræðingur. Eurovision-keppnin virðist hins vegar lúta öðrum lögmálum í hugum landsmanna en mörg önnur dægurmál. Þannig hverfa nánast hin skörpu skil sem gjarn- an birtast í deiluefnum eftir aldri, búsetu, tekjum og menntun þegar kemur að viðhorfum sem tengjast þessu fyrirbæri. Þannig er vart marktækur munur milli viðhorfa landsbyggðarinnar og höfuðborg- arsvæðisins til sniðgöngu. Skörpustu skil milli viðhorfa í einstökum þjóðfélagshópum eru milli kynjanna, en konur eru tölu- vert líklegri til að vilja sniðganga keppnina en karlar. Þá er yngsti aldurshópurinn sem spurður var líklegri til að vilja sniðganga. Baldur segir að viðhorf unga fólksins kunni að skýrast af því að málefni Palestínu hafi verið töluvert mikið rædd á samfélags- miðlum unga fólksins og meðal fylgjenda Hatara. Baldur er meðal frummælenda á hádegisfundi í dag um Eurovision og stjórnmál sem Félag stjórnmála- fræðinga stendur fyrir í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála. Baldur, sem verður í beinni útsendingu á fundinum frá Tel Avív, mun ræða um þrennt. „Í fyrsta lagi mun ég halda því fram að Eurovision sé hápólitísk keppni en þó megi bara boða ákveðna pólitík í keppninni og ekki aðra. Í öðru lagi hvernig mörg smá ríki og veikburða meðalstór eða stór ríki hafa nýtt sér mjúkt vald keppninnar til að bæta ímynd sína bæði heima fyrir og erlendis og í þriðja lagi ætla ég að leyfa mér að fjalla um texta og sviðsetningu Hatara og hvernig íslenskir lista- menn eru í fyrsta skipti að nota sér mjúkt vald keppninnar til þess að koma pólitískum boðskap á fram- færi,“ segir Baldur um erindi sitt. Aðrir frummælendur á fund- inum verða Hildur Tryggvadóttir Flóvenz, ráðgjafi hjá KPMG, og Baldvin Thor Bergsson, dagskrár- stjóri Rásar 2. Málþingið fer fram í Lögbergi í Háskóla Íslands klukkan 12 og stendur í klukkustund. adalheidur@frettabladid.is Fjórðungur landsmanna vill sniðganga Eurovision í Ísrael Mótmælendur á Gaza flýja táragas sem beitt var gegn þeim við landamæri Ísraels á föstudaginn. NORDICPHOTOS/GETTY ✿ Könnun Fréttablaðsins 18-24 ára 25-34 ára 35-44 ára 45-54 ára 55-64 ára 65 ára+ 36% 25% 29% 31% 23% 30% 32% 34% 30% 30% 34% 43% 37% 39% 47% 23% 41% 36% Hversu hlynnt/ur eða andvíg/ur ertu að Ísland sniðgangi Eurovision- keppnina í Ísrael? n Mjög hlynnt/ur 17,4% (162) n Frekar hlynnt/ur 9,9% (92) n Hvorki né 33,0% (306) n Frekar andvíg/ur 13,2% (122) n Mjög andvíg/ur 26,4% (245) Karlar Konur 23% 32% 32% 34% 45% 34% Stuðningur við sniðgöngu eftir kynjum n Hlynnt/ur n Hvorki né n Andvíg/ur n Hlynnt n Hvorki né n Andvíg ALÞINGI Forsætisnefnd Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé tilefni til frekari athug- unar af hennar hálfu í máli Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Sam- fylkingarinnar, sem gekkst við því að hafa áreitt konu kynferðislega. Þetta kemur fram í gögnum á vef Alþingis sem birtust síðdegis í gær. Ágúst tók sér leyfi frá þingstörfum eftir að hafa hlotið áminningu frá trúnaðarnefnd f lokksins vegna áreitni hans gagnvart konunni í miðbæ Reykjavíkur í fyrrasumar. Í lok síðasta mánaðar settist hann svo aftur á þing og kvaðst breyttur maður. Kemur í svari siðanefndar til for- sætisnefndar fram að eins og málið liggi fyrir telji „siðanefndin sér ekki fært að leggja mat á þau álitaefni sem felast í erindi forsætisnefndar til sín“. Er þar meðal annars vísað til þess að erindið hafi ekki verið rökstutt með vísan til tilgreindra ákvæða siðareglna fyrir alþingis- menn. Auk þess hafi sá sem beindi erindi sínu til forsætisnefndar verið alls ótengdur málinu og þá hafi konan sem hátterni Ágústs bitnaði á ekki leitað til forsætisnefndar. Þá verði einnig að hafa í huga sérstöðu slíkra mála. Vegna þessa telur siða- nefnd að málið verði ekki vel rekið fyrir siðanefnd. Taki hún málið til umfjöllunar muni hún m.a. þurfa að af la upplýsinga frá aðila sem ekki hefur óskað eftir afskiptum forsætisnefndar af því. Í bókun forsætisnefndar kemur fram að af fyrirliggjandi gögnum megi ráða að málavextir séu óum- deildir og að Ágúst Ólafur Ágústs- son hafi fallist á niðurstöðu trúnað- arnefndar Samfylkingarinnar. „Þegar litið er til niðurstöðu siða- nefndar og þess áfellisdóms sem opinberlega liggur fyrir í niður- stöðu trúnaðarnefndarinnar, er það hins vegar niðurstaða forsætis- nefndar, að undangengnu heild- stæðu mati, að fyrirliggjandi erindi gefi ekki tilefni til frekari athugunar af hennar hálfu.“ – oæg Nefndin mun ekkert aðhafast Ágúst Ólafur Ágústsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI MENNTAMÁL Skólastarf mun hefj- ast að nýju í Seljaskóla í Breiðholti í dag en starfsmenn skólans nýttu daginn í gær í hreinsun á skólanum eftir umfangsmikinn bruna sem varð í skólanum um helgina, en þetta staðfestir Magnús Þór Jóns- son, skólastjóri í samtali við mbl.is. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá er tjónið á byggingunni þar sem eldurinn kom upp gífurlegt, bæði vegna elds- og vatnsskemmda, en 140-150 nemendur stunda nám í sex skólastofum álmunnar þar sem eldurinn kom upp. Seljakirkja og félagsmiðstöðin Hólmasel hafa boðið skólastjórn að hýsa hluta af kennslu næstu vikurnar á meðan unnið er að við- gerðum á álmunni. – oæg Skólastarf hefst á ný eftir eldsvoða Svona var ástandið á Seljaskóla í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F C -5 7 2 C 2 2 F C -5 5 F 0 2 2 F C -5 4 B 4 2 2 F C -5 3 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.