Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 3. J A N Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 2. tölublað 107. árgangur
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
VEÐHLUT-
FÖLLIN FARA
LÆKKANDI
HEIÐRAÐUR
Í SEVILLA FYRIR
FRAMLAG SITT
VIÐSKIPTAMOGGINN RALPH FIENNES 62SÉRBLAÐ
Á nýliðnu ári sóttu um 1,3 milljónir
gesta Bláa lónið heim en það er svip-
aður fjöldi og þangað lagði leið sína
árið 2017. Grímur
Sæmundsen, for-
stjóri fyrirtækis-
ins, segir það í
raun ekki
áhyggjuefni þótt
gestum hafi ekki
fjölgað milli ára.
Mestu skipti að
þjónusta fólk vel
og tryggja góða
upplifun. Þá sé
markmiðið það að
hafa meiri tekjur af hverri heimsókn
fremur en að fjölga gestum stans-
laust.
Á nýliðnu ári tók Bláa lónið í gagn-
ið nýtt lúxushótel en þar kostar nótt-
in allt upp í 1,5 milljónir króna. Við-
tökurnar hafa verið gríðargóðar að
sögn Gríms. Tekjur fyrirtækisins
jukust um fimmtung á nýliðnu ári,
mælt í evrum en mun meira í íslensk-
um krónum. »ViðskiptaMogginn
Svipaður
fjöldi og
ári fyrr
Grímur
Sæmundsen
Tekjurnar jukust
um fimmtung milli ára
Stoðkerfisverkir
» Þau ungmenni sem vinna
mikið eru líklegri til að finna
fyrir stoðkerfisverkjum.
» Vinna með skóla virðist
frekar bitna á stelpum að
þessu leyti heldur en
strákum.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ungmenni á aldrinum 13-19 ára sem
vinna mikið með skóla eru líklegri til
að finna stundum eða oft fyrir stoð-
kerfisvandamálum en þau sem ekki
vinna með skóla.
Ný rannsókn Margrétar Einars-
dóttur, nýdoktors í félagsfræði við
Háskóla Íslands, leiðir þessi tengsl í
ljós, en ríflega 50% ungmenna unnu
með skóla veturinn 2017-2018, þar af
þrír fjórðu í fastri vinnu en fjórð-
ungur af og til.
Munur með tilliti til kynjanna
Þegar mælt er fyrir kyni kemur í
ljós að tengsl haldast milli stoðkerf-
isverkja og vinnu með skóla hjá
stúlkum fyrir öllum tegundum stoð-
verkja, en aðeins bakverkjum í til-
viki stráka. „Rannsóknin bendir
sem sagt til þess að það að vinna
með skóla komi harðar niður á stoð-
kerfi stúlkna heldur en stráka. Þetta
er í samræmi við rannsóknir hér-
lendis og erlendis á fullorðnu fólki
sem sýna að vinna almennt bitni
harðar á stoðkerfi kvenna en karla.
Karlmönnum er aftur á móti hætt-
ara við vinnuslysum og flestar rann-
sóknir sýna að strákum sé einnig
hættara við vinnuslysum en stúlk-
um. Þetta skýrist fyrst og fremst af
ólíkum störfum kynjanna,“ segir
Margrét.
Tengsl milli vinnu og verkja
Rannsókn sýnir fram á tengsl stoðkerfisverkja ungmenna og vinnu með skóla
Vinna kemur harðar niður á stúlkum Ríflega 50% ungmenna unnu með skóla
MVið viljum ekki... »4
Bætt heilsa með aukinni líkamsrækt og bættu
mataræði kom við sögu margra áramótaheita,
miðað við reynslu undangenginna ára. Það stað-
festist í aðsókn að líkamsræktarstöðvum og
sundlaugum í gær. Þannig voru margir langir
sprettir teknir á hlaupabrettunum í World Class
í Laugum en aðrir létu duga að ganga hratt.
Fólk ætlaði greinilega að taka líkamsræktina
föstum tökum á nýju ári.
Tekið á því á hlaupabrettum í líkamsræktarstöðvum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reynt að standa við áramótaheitin
Við árslok 2018 voru fimmtíu Ís-
lendingar á lífi sem voru hundrað
ára og eldri og hefur sá fjöldi aldrei
verið meiri. 100 ára Íslendingum
gæti fjölgað enn á allra næstu dög-
um því nú eru 32 Íslendingar 99 ára
og þrír þeirra gætu orðið 100 ára í
janúar. Elsti Íslendingurinn er
Jensína Andrésdóttir, 109 ára. Af
hinum er ein 107 ára, ein 106 ára,
sex 103 ára, fimm 102 ára, þrettán
101 árs og 23 100 ára. »32
100 ára Íslendingar
aldrei verið fleiri
Lögreglu bárust 285 leitarbeiðnir
vegna týndra barna í fyrra. Árið
þar á undan voru leitarbeiðnirnar
249 og árið 2016 voru þær 190.
Guðmundur Fylkisson, aðalvarð-
stjóri hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu, segir að yngri hópur
krakka en áður sé farinn að
sprauta sig með eiturlyfjum. »16
Aldrei leitað fleiri
týndra barna
WIZAR
HÆGINDASTÓLL
Fullt verð frá: 199.900 (Tau)
ÚTSÖLUVERÐ FRÁ 159.920
STILLANLEG
HEILSURÚM
VERÐ FRÁ 264.065
Á ÚTSÖLUNNI
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
20-70% AFSLÁTTUR