Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Veðmál hvers konar hafa verið ein
tímafrekasta tómstundaiðja Albana.
En spilafíknin hefur leikið marga
albanska fjölskylduna grátt. Oftar
en ekki hefur iðja þessi leitt til
heimilisofbeldis og fátæktar en í
annan stað gefið glæpamönnum vel í
aðra hönd. Afleiðingarnar eru sagð-
ar hrikaleg samfélagsvandamál af
mörgum toga, sem líkja mætti við
plágur, í einu fátækasta ríki Evr-
ópu.
Nú kann að verða breyting á
þessu því Albanir frömdu nokkurs
konar heit fyrir nýliðin áramót um
að láta af ósómanum. Vonast er til
að þjáningum aðþrengdrar þjóðar
linni en mikil ógæfa hefur dunið yfir
marga fjölskylduna vegna veðmála-
fíknarinnar.
Með lögum sem tóku gildi 1. jan-
úar verður um 4.300 veðmálastofum
í landinu lokað. Þær höfðu sprottið
upp á næstum hverju einasta götu-
horni bæja og borga Albaníu. Þar
sem Albanir teljast 2,8 milljónir
jafngildir útbreiðsla veðmálastof-
anna því að 670 manns séu um
hverja þeirra. Er hlutfall þeirra
langtum hærra en í öðrum ríkjum
Balkanskagans og þróaðri ríkjum
Vestur-Evrópu, að sögn hagfræð-
ingsins Klodian Tomorri.
Veðmálabannið gildir einnig um
fjárhættuspil á netinu og spilavíti –
sem mörg hver hafa verið í nágrenni
skóla – verða einungis leyfð í fimm
stjörnu hótelum á sérstökum ferða-
mannastöðum.
Fyrir konur eins og hina 31 árs
gömlu Arta, tveggja barna móður,
eru nýju lögin blessun. Að vísu
ganga þau í gildi of seint til að
bjarga fjölskyldu hennar sem galt
afhroð á altari spilanna. Var hún
lögð í rúst er eiginmaður hennar
stökk fram af stórhýsi eftir að hafa
tapað veðmáli um úrslitaleikinn á
HM í knattspyrnu 15. júlí sl. Lagði
hann allt undir á sigur Belga en
Frakkar unnu leikinn. „Hann veðj-
aði á Belga, en uppskar andlega
vanlíðan,“ sagði Arta með tár á
hvörmum og skjálfandi röddu. Verð-
ur hún nú að láta sér duga um 13
þúsund króna bætur á mánuði til að
framfleyta ungum börnum sínum.
Samkvæmt rannsókn háskólans í
höfuðborginni Tirana hefur fjórði
hver spilafíkill reynt sjálfsvíg að
minnsta kosti einu sinni. Til við-
bótar hafa 70% spilara þjáðst af
streitu og sálrænum vandamálum.
„Við sáum ennfremur mikla fylgni
milli veðmála og heimilisofbeldis,
sem kallað hefur gríðarlega erf-
iðleika yfir marga fjölskylduna,“
sagði Iris Luarasi við AFP-
fréttstofuna, en hún rekur símaráð-
gjöf fyrir fórnarlömb ofbeldis.
Tapa öllu
Ilir Musta, 35 ára gildvaxinn karl-
maður, hefur upplifað slíkar fjöl-
skylduhörmungar frá fyrstu hendi.
„Ég veit ekki hvernig á að komast
út úr þessu, vinsamlegast hjálpið
mér,“ sagði hann lækni í Tirana þar
sem hann leitaði hjálpar við kvíða.
„Spilin gáfu vel til að byrja með, en
nú sit ég uppi með krabbamein. Líf
mitt er tapað; ég hef líka tapað eig-
inkonunni, dótturinni; ég er lifandi
dauður,“ bætti Ilir við í örvilnan.
Hann byrjaði veðmál fyrir aðeins
tveimur árum á sviði íþrótta og þótt-
ist sannfærður um að hann væri við
það að landa þeim stóra, auðgast
mjög. En í staðinn vaknaði hann
einn góðan veðurdag við botnlausar
skuldir og endaði í fangelsi fyrir að
lúberja eiginkonuna er hún fór fram
á skilnað. Þessi sviðsmynd er ákaf-
lega einkennandi fyrir albanskt
þjóðfélag síðustu misserin, tugir
fjölskyldna hafa liðast í sundur
vegna spilafíknar.
Að sögn lögfræðingsins Vjollca
Pustina í Tirana hafa um 70% skiln-
aðarmála sem komið hafa til kasta
dómstóla árið 2018 tengst veð-
málum. Af hálfu ríkisins verða sett-
ar á laggirnar endurhæfingar-
stöðvar fyrir spilafíkla sem neyddir
verða til strangrar meðferðar þar til
að losna úr hreðjatökum fíkninnar.
Ekki eru allir trúaðir á að fyrir-
heitin um endurhæfingu gangi nógu
hratt eftir. „Spilafíkn er sjúkdómur
og verður að meðhöndlast þegar
veðmálastofunum hefur verið lokað.
Sem stendur skortir algjörlega slík-
ar endurhæfingarstöðvar,“ sagði
Menada Petro, prófessor í félags-
fræðum við háskólann í Durres í
Albaníu, við AFP-fréttastofuna.
Glæpir og gróði
Spilafyrirtækin hafa verið gagn-
rýnd fyrir að raka saman fé úr fjöl-
skyldusjóðum í landi þar sem með-
altekjur á mánuði ná ekki 300
evrum að jafnaði. Samkvæmt opin-
berum skýrslum veðja Albanir ár
hvert fyrir sem svarar um 140 til
150 milljónum evra á íþróttakeppni.
Mun það jafngilda um 70% þess sem
meðalfjölskyldur landsins verja til
heilbrigðisþjónustu. Þetta er þó
ekki allt því af hálfu hins opinbera
er áætlað að þegar tekið hefur verið
tillit til ólöglegrar veðmálastarfsemi
sé heildarupphæðin allt að fimm
sinnum hærri, eða sem svarar 700
milljónum evra.
Annað stórmál í augum Edi Rama
forsætisráðherra er að ná að loka
fyrir fjárstreymi til skipulegrar
glæpastarfsemi sem hagnast hefur
mjög á veðmálum og hefur notað
spilafyrirtækin til að þvætta fé.
Hann játar samt að nýju lögin muni
ekki duga til í átökunum við glæpa-
gengin, þau verði ekki upprætt svo
greiðlega. „Styrjöldin heldur áfram
því glæpamennirnir munu hafa
hamskipti og breyta um herfræði,“
sagði Rama nýverið í sjónvarps-
viðtali.
Undir yfirborðið
Fjölda veðmálastofa var lokað í
Albaníu í jólamánuðinum en aðrar
ákváðu að halda út til síðustu mín-
útu í von um vænan gróða í áhlaupi
á stofurnar síðustu daga desem-
bermánaðar, að sögn Artan Shyti,
formanns landssamtaka albanskra
veðmálafyrirtækja.
Næsta stríð mun snúast um að
bæla niður ólöglegar spilastöðvar,
ekki síst á netinu. Veðmálafyrir-
tækin hafa mörg hver flutt starf-
semi sína til Makedóníu, Svartfjalla-
lands og Kósóvó. Að sögn Shyti geta
dótturfyrirtæki þar boðið veðmál á
netinu í ró og næði afskiptalaust.
Reynt var árið 2013 að fækka
spila- og veðmálaklúbbum í Albaníu
en pólitískir hagsmunir og aðrir sér-
hagsmunir komu í veg fyrir að það
gengi eftir.
Með nýju lögunum, sem sett voru
í október, urðu um 8.000 manns at-
vinnulaus um áramótin. „Stjórnvöld
hafa leyft veðmálastarfseminni að
vaxa og dafna en núna knýja þau
okkur fyrirvaralítið til að loka og
það án þess að gera greinarmun á
heiðarlegri starfsemi og óhreinni,“
sagði Arjan Gumi, 47 ára Albani
sem rak lítinn veðmálaklúbb í Tir-
ana síðustu 16 árin. Hann veit ekki
hvað við tekur hjá sér við tímamót-
in, en segist reiða sig á að ríkis-
stjórnin standi við loforð um að að-
stoða þá sem atvinnu sína missa.
„Lokunin er líka harmleikur, fyrir
fjölskyldur okkar, sem við þetta
hafa unnið.“
Það er víðar en í Albaníu sem
menn freista þess að vinna fúlgur
fjár með veðmálum. Það á við um
fyrrum sovétlýðveldið Georgíu. Til
marks um vinsældir veðmála er þar
varið meiri fjárhæðum í spila-
mennsku en í matvörur og aðrar
vöru til heimilishalds. Það er alla-
vega niðurstaða hagstofu landsins,
Sakstat, að sögn fréttamiðilsins Ak-
hali Taoba. Þetta segja andstæð-
ingar veðmálastarfsemi sýna að rík-
isstjórnin þurfi að ná tökum á
greininni sem þróast hefur stjórn-
laust. Þeir segja stjórnvöld hafa
meiri áhuga á að tryggja sér væna
sneið af tekjum veðmangaranna en
að koma böndum á starfsemina.
Í Georgíu er litið á veðmála-
starfsemi sem aðferð til að draga
ferðamenn til landsins við Svarta-
haf. Spilavíti hafa sprottið þar upp
og minna á Las Vegas og Mónakó.
Þar er þungamiðja veðmála-
starfsemi í Mið-Asíu, ekki síst þar
sem þrengt hefur verið mjög að veð-
málastarfsemi í grannríkjunum eða
hún bönnuð, t.d. í Tyrklandi. Því
hafa spilafíklar svarað með því að
streyma til Georgíu. Gert er sér-
staklega út á að laða Tyrki í spilavít-
in og eru þeir tíðir gestir þeirra. Í
stærstu borg landsins, Batumi, er
algengt að helmingur gestanna á
einni helgi sé Tyrkir. Skemmta þér
sér við rúllettur og blackjack-borð.
Alls heimsóttu 750.000 Tyrkir Bat-
umi í fyrra, eða fleiri en af nokkru
öðru þjóðerni. Leið þeirra yfir
landamærin er greið því slakað hef-
ur verið á eftirliti í þágu spilavít-
anna.
Veðmálastarfsemi var óþekkt í
Georgíu fram að falli Sovétríkjanna
en hefur þróast hratt frá 1992, er
fyrsta veðmálafyrirtækið hlaut
starfsleyfi með opinberri ríkis-
stjórnartilskipun. Í henni var kveðið
á um 35% skatt til ríkisins af allri
lottóstarfsemi og annarri spila-
starfsemi þar sem spilað var um
peninga. Ári seinna voru sett lög í
þinginu um tekjuskatta fyrirtækja.
Í þeim var tekjuskattur spilavíta,
veðmálastofa og annarrar veðmála-
starfsemi hækkaður í 70%. Árið
2013 var lagt fram frumvarp á þingi
sem kvað á um bann við öllum aug-
lýsingum á veðmálstarfsemi. Eig-
endur fyrirtækjanna töldu að þetta
myndi bitna verulega á tekjum
þeirra og hagnaði. Lögðust þeir
gegn allsherjarbanni en sögðust
reiðubúnir til að draga úr auglýs-
ingum að einhverju marki. Svo sem
búist var við komust lögin ekki
gegnum þingið og vöxtur starfsem-
innar heldur áfram. Túristum sem
fundið hafa aðdráttarafl í veðmála-
starfseminni í Georgíu fjölgaði á ný-
liðnu ári. Og búist er við að sú
freisting tryggi áframhaldandi
aukningu í ár.
Eymdin
ein í vinning
Albanar skera upp herör gegn fjár-
hættuspilum Veðmálastofum lokað
AFP
Lokað Maður býr sig undir að taka niður skilti á veðmálabúllu í Tirana í Albaníu í lok desember. Frá og með ára-
mótum verður öll veðmálastarfsemi í landinu bönnuð utan að spilavíti verða leyfð í fimm stjörnu hótelum.
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk | S. 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Við útvegum hæfa starfskrafta
í flestar greinar atvinnulífsins
Traust og fagleg starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir