Morgunblaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ávöxtunarkrafa Íslandspósts á rekstrarárinu 2014 var 7,9%. Hvað varðar fjárbindingu félagsins í ein- staka starfsþáttum árið 2014 eru þær upplýsingar trúnaðarmál. Þetta kemur fram í svari Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) við fyrir- spurn Morgunblaðsins. Tilefnið er umræða um fjárhagsstöðu Íslands- pósts og mögulega lánsfjárþörf. Spurði Morgunblaðið um fjárbind- ingu Íslandspósts í einkarétti, sam- keppni innan alþjónustu og sam- keppni utan alþjónustu. Horft var til svars innanríkisráðherra við fyrir- spurn Willums Þórs Þórssonar al- þingismanns frá vorinu 2016. Komu þar fram rekstrartölur fyrir 2014, sem endurbirtar eru hér til hliðar. Í fyrirspurn til PFS hinn 6.12. sl. var spurt hvort hægt væri að fá sömu sundurliðun úr rekstri póstsins árin 2012-2017. Í svari PFS 19.12. sl. kom fram að Íslandspóstur hefði ekki fallist á að sú sundurliðun yrði birt á ný með sambærilegum hætti. „Rök fyrirtækisins eru einkum þau að um sé að ræða upplýsingar beint úr kostnaðarbókhaldi félagsins sem ekki sé skylt að birta,“ sagði þar m.a. Vegna leyfa var PFS ekki unnt að svara frekari spurningum milli jóla og nýárs. Þær upplýsingar fengust frá PFS í gær að beðið væri svara frá Íslandspósti varðandi trúnað á um- ræddum upplýsingum. Bent var á að ávöxtunarkrafa ÍSP væri breytileg milli ára. Ekki væri einfalt mál að reikna út fjárbindingu í starfsþátt- um Íslandspósts. baldura@mbl.is Rekstrartölur trúnaðarmál  Fjárbinding póstsins er sögð vera trúnaðarmál Eignarekstur* Íslandspósts 2014 Gjald fært á starfsþætti,** í þúsundum króna *Eignarekstur: afstemming milli reiknaðs kostnaðar, þ.e. fjárbindingar og raunkostnaðar skv. fjárhagsbókhaldi. **Innifalið í rekstrar- gjöldum viðkomandi starfs- þáttar. Einkarétt ur 129.942 Sam keppni inn an al þjón ustu 257.194 Sam keppni utan al þjón ustu 27.119 Fjár magnskrafa sam tals 414.255 Bók færður fjár magnskostn aður -107.763 Hagnaður af sölu eigna, dótturfélög o.fl. -72.572 Mis mun ur 233.921 H ei m ild : I nn an rík is rá ðu ne yt ið Daníel Bjarnason, tónlistarmaður og hljómsveitarstjóri, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2018. Guðni Th. Jó- hannesson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin og naut við það aðstoðar Vigdísar Finnbogadóttur og Rann- veigar Rist, forstjóra ÍSAL sem er bakhjarl verðlaun- anna. Daníel fékk grip úr áli og eina milljón króna. Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. Morgunblaðið/Árni Sæberg Daníel hlaut bjartsýnisverðlaunin Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Áhafnir björgunarþyrlna og eftirlits- og björgunarflugvélar Landhelgis- gæslunnar sinntu 278 útköllum á síð- asta ári. Er það metár. Alls voru 180 sjúkir og slasaðir fluttir, þar af helm- ingur erlendir ríkisborgarar sem er hærra hlutfall en verið hefur und- anfarin ár. Á næstu vikum og mán- uðum fær Landhelgisgæslan nýrri leiguþyrlur til notkunar næstu árin og áformað er að bjóða út kaup á nýj- um þyrlum sem Gæslan mun eiga. Stöðug aukning hefur verið í út- köllum loftfara Landhelgisgæslunn- ar á undanförnum árum. Þau 278 út- köll sem áhafnir þeirra sinntu á síðasta ári eru 8% fleiri en árið á undan og áður hafa ekki komið jafn mörg útköll á einu ári. Það sýnir þró- unina vel að á árinu 2011 voru útköll- in 160 og hafa því aukist um 74% á sjö árum. Fluttir voru 180 sjúkir eða slasaðir í þessum útköllum. Þar af voru 90 erlendir ríkisborgarar, jafn- margir og Íslendingar. Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram- kvæmdastjóri aðgerðasviðs Land- helgisgæslunnar, segir að sjúkra- flutningar með þyrlum hafi aukist stöðugt. Þá komi stóraukinn fjöldi erlendra ferðamanna fram í þessum tölum. „Þjóðfélagið og þeir sem kalla eftir aðstoð vilja fá sem skjót- astan og öruggastan flutning fyrir veikt fólk og slasað. Vilja láta skjól- stæðinga sína njóta vafans. Við vilj- um líka gera það,“ segir Ásgrímur. Það leiðir til þess að kallað er eftir aðstoð þyrlu af minna tilefni en áður var. Þótt tölur um hærra hlutfall er- lendra ríkisborgara komi fram í þessum upplýsingum verður að líta til þess að einstök mál geta gert samanburð á milli ára villandi. Þannig hleypir björgun fimmtán manna af sementsflutningaskipinu sem strandaði í Helguvíkurhöfn tölu erlendra ríkisborgara upp. Fleiri útköll þyrlna en áður  Loftför Landhelgisgæslunnar sinntu 278 útköllum á síðasta ári  Fluttir voru jafn margir erlendir ríkisborgarar og íslenskir  Endurnýjun þyrluflotans að hefjast Morgunblaðið/Árni Sæberg Að störfum Önnur leiguþyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, verður hér á landi fram á vor en hinni, TF-GNA, verður skilað í þessari viku. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Úrkomudagar í Reykjavík voru óvenjumargir á nýliðnu ári, 261, og hafa aldrei verið fleiri síðan mæl- ingar hófust árið 1921, eða í 97 ár. Þetta kemur fram í bráðabirgða- yfirliti Trausta Jónssonar veður- fræðings. Árið 2018 var úrkomusamt og nokkuð hlýtt, segir Trausti. Hiti á landsvísu var nærri meðallagi síð- ustu tíu ára en þau ár voru sérlega hlý miðað við það sem algengast er hér á landi. Meðalhiti í Reykjavík var 5,1 stig og er árið eitt þeirra 30 hlýjustu (af 148) frá upphafi mæl- inga. Meðalhiti á Akureyri var 4,6 stig og það 14. hlýjasta frá upphafi mælinga. Austur á Dalatanga var meðalhitinn 5,2 stig og hefur aðeins þrisvar sinnum verið hærri. Úrkoma í Reykjavík mældist 1059,2 millimetrar og hefur árs- úrkoma aðeins sjö sinnum mælst meiri frá upphafi samfelldra mæl- inga 1921, síðast 2007. Þetta er tæpum þriðjungi umfram meðallag. Á Akureyri mældist úrkoman 687,2 mm eða um 40 prósent umfram meðallag og hefur aðeins tvisvar mælst meiri á einu ári, 2014 og 1989. Úrkomudagar voru einnig óvenjumargir á Akureyri, 209, og hafa aðeins þrisvar verið fleiri á einu ári, flestir 224 árið 2014. Sólskinsstundir mældust 1.163 í Reykjavík á árinu, rúmlega 100 færri en í meðalári og fæstar á einu ári síðan 1992. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 1.016 og er það í tæpu meðallagi. Alhvítir dagar voru 38 á árinu í Reykjavík og hafa ekki verið jafnfáir frá 2010. Á Akureyri voru alhvítu dagarnir 98, um 20 færri en í meðalári. Nýliðinn desember var hlýr. Meðalhiti í Reykjavík var 2,7 stig, +2,9 stigum ofan meðallags áranna 1961-1990 en +2,2 ofan meðallags síðustu tíu ára. Hann er þriðji hlýj- asti desember (af 18) það sem af er öldinni, hlýjastur var desember 2002, þá var meðalhitinn +4,5 stig, segir Trausti. Úrkomudagar í Reykjavík aldrei fleiri  Árið 2018 var úrkomusamt og nokk- uð hlýtt  Sólskin var undir meðallagi Endurnýjun þyrlukosts Land- helgisgæslunnar hefst í þessari viku. Annarri leiguþyrlunni, TF- GNA, verður flogið til Noregs og í lok mánaðarins kemur nýrri leiguþyrla til landsins. Þjálfun flugmanna er lokið en eftir er að þjálfa aðra í áhöfn og æfa áhöfnina við mismun- andi aðstæður þannig að hún verður ekki útkallshæf fyrr en í mars. Seinni leiguþyrlunni, TF- SYN, verður skipt út fyrir nýrri í maí. Nýju þyrlurnar fá gamal- kunnug kallmerki úr þyrlu- fjölskyldu Gæslunnar, TF-EIR og TF-GRO. Tvær þyrlur hennar hafa áður borið nafnið TF-EIR og þrjár TF-GRO. TF-GNA skil- að í vikunni ENDURNÝJUN HEFST 595 1000 BORGIRNAROKKAR VORIÐ2019 Búdapest, Lissabon eða Prag meðAlbertEiríkssyniogBergþóriPálssyni Frá kr. 139.995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.