Morgunblaðið - 03.01.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019
Um áramótin eins og svo oftáður mátti sjá að forystu-
menn Evrópusambandsflokkanna
íslensku hafa ekkert lært og engu
gleymt þegar kemur að helsta
hugðarefni sínu,
að koma Íslandi
inn í ESB.
Þessi áhugi erstundum
settur í búning
alþjóðlegrar samvinnu eða al-
þjóðasamstarfs þegar ekki þykir
þorandi að nefna Evrópusam-
bandið á nafn, en öllum er ljóst
hvað við er átt.
Þess vegna er ekki við því aðbúast að það breyti neinu fyr-
ir íslensku ESB-flokkana að hug-
veitan CEBR, Centre for Econo-
mic and Business Research, spái
upplausn evrusamstarfsins.
Á mbl.is sagði um þetta í gærað í spánni kæmi fram „að
ólíkar aðstæður innan evrusvæð-
isins muni annaðhvort leiða til
efnahagslegs samruna innan svæð-
isins eða til þess að það liðist í
sundur.
Þá segir CEBR að hugsanlega
væri hægt að fresta vandanum um
eitt eða tvö ár en taka þyrfti á
honum fyrr en síðar. Er þar ekki
síst vísað til stöðu mála á Ítalíu.“
Samkvæmt þessu er ekki víst aðevrusvæðið liðist í sundur á
þessu ári, það gæti dregist fram á
næsta ár.
Nema ef leiðtogum ESB ogskriffinnum í Brussel tekst
að færa enn stærri hluta fullveldis
aðildarríkjanna til Brussel. Að því
hefur lengi verið unnið með þeim
afleiðingum að ýta undir óánægju
innan ESB. Mikið óráð væri að
reyna að þrýsta íbúum álfunnar
lengra í þá óheillaátt.
Eitt til tvö ár eftir?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Á nýliðnu ári seldust rétt tæplega
22 milljónir lítra af áfengi í Vínbúð-
unum. Það er 0,54% aukning frá
árinu 2017 og mesta magn sem selst
hefur til þessa. Ef skoðaðir eru
helstu flokkar þá minnkaði sala á
rauðvíni um 0,49%, á hvítvíni minnk-
aði salan um 2,42%, sala á bjór jókst
um 0,48% og munaði þar mest um
að sala á öðrum bjór en lagerbjór
jókst um 6%, að því er fram kemur á
heimasíðu Vínbúðanna. Sala á
blönduðum drykkjum
jókst um 26% en það
eru drykkir sem
byggjast á sterku
áfengi.
Mikill áhugi hefur
verið á kampavíni en
það er undirflokkur
freyðivíns. Sala á freyðivíni í heild
jókst um 20% og salan á kampavíni
sérstaklega um nærri 25%. Seldir
voru 14.389 lítrar af kampavíni en
metinu frá 2007 hefur ekki verið
náð, en þá seldust 15.920 lítrar.
Viðskiptavinir voru 4.996 þúsund
og fjölgaði um 1,6% frá árinu 2017,
en þá voru viðskiptavinirnir rúm-
lega 4.919 þúsund og 4,7 milljónir
2016.
Færri vindlingar,
meira af neftóbaki
Í tóbaki var salan þannig að
ÁTVR seldi um 882 þúsund karton
af vindlingum sem er 3% minnkun
frá 2017. Alls seldust um 4.478 þús-
und vindlar á nýliðnu ári sem er
7,4% minnkun frá 2017, af reyktób-
aki seldust 7.642 kg en það er 9,9%
minnkun frá 2017 og loks seldust
44,671 kg af neftóbaki sem er 18,7%
aukning frá 2017. Í þeim flokki varð
5,8% samdrátur árið 2017, en tób-
aksgjald á neftóbak var hækkað
verulega í upphafi árs 2017.
aij@mbl.is
Sala á kampavíni nálgaðist 2007
Aldrei meira selt af áfengi en á nýliðnu ári Fimm milljón viðskiptavinir
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
ÚTSALAN
er hafin
Beinn kostnaður Ríkisútvarpsins
vegna Áramótaskaupsins 2018 var
um það bil 34 milljónir króna. Það
er svipað og undanfarin ár, sam-
kvæmt upplýsingum frá dagskrár-
stjóra RÚV, Skarphéðni Guð-
mundssyni. Þegar leitað var að
framleiðanda skaupsins kom fram
að Ríkisútvarpið greiddi honum 32
milljónir króna til að standa
straum af kostnaði við framleiðslu
verksins. Það var fyrirtækið
Glassriver sem hreppti hnossið.
Leikstjóri Skaupsins var Arnór
Pálmi Arnarson.
Fyrstu áhorfstölur benda til þess
að áhorfið hafi verið meira en und-
anfarin ár. Samkvæmt bráða-
birgðatölum var meðaláhorfið 73%,
uppsafnað áhorf 75% og hlutdeild,
hlutfall þeirra sem voru að horfa á
sjónvarp á sama tíma og Áramóta-
skaupið var sýnt og með stillt á
RÚV, 98%. Áhorfið er meira en tvö
síðustu ár þegar fyrstu tölur sýndu
um 70% meðaláhorf. Búast má við
því að endanlegar áhorfstölur verði
um 80%, þegar tekið hefur verið
tillit til hliðraðs áhorfs sem er
áhorf utan línulegrar dagskrár.
Að vanda voru landsmenn mis-
ánægðir með Áramótaskaupið en
Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona og
einn af handritshöfum skaupsins,
sagði í samtali við mbl.is að hand-
ritshöfundarnir hefðu reynt að
gæta jafnvægis og sanngirni við
gerð Skaupsins.
„Við mátum það þannig að við
værum ekki að gera einhverjum
hátt undir höfði og við reyndum að
vera hlutlaus. Við vorum sex hand-
ritshöfundar og höfðum örugglega
misjafnar skoðanir og gátum
dempað hvert annað,“ segir Ilmur.
„Þannig að ég held að það hafi ver-
ið jafnvægi. Við pössuðum okkur á
að það hallaði ekki um of á ein-
hvern einn aðila.“
Skaupið kostaði
34 milljónir króna
Meira áhorf en undanfarin ár
Skaupið Atriðið um blóðgjöf
homma vakti mikla athygli.