Morgunblaðið - 07.01.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.01.2019, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 7. J A N Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  5. tölublað  107. árgangur  FLÉTTAR SAMAN MANNFRÆÐI OG LISTSKÖPUN SMÁHVELI Á EFTIRLAUN LEIKSTÝRA AÐEINS 8% TOPPMYNDA FLYTJA TIL VESTMANNAEYJA 4 HALLAR Á KONUR Í HOLLYWOOD 27HULDA RÓS Í BERLÍN 26 Borinn var eldur að mörgum kestinum í gærkvöld er Íslend- ingar víða um land kvöddu jólin, eins og þeirra er vandi á þess- um tíma árs. Þrettándagleðin var haldin hátíðleg og var dag- skráin margvísleg og að vonum mismunandi eftir stöðum. Eins og sést á forsíðumynd af brennunni við Ægisíðuna fylgdust íbú- ar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíðahverfis þar lotningarfullir með kyndilbera kveikja undir báli því sem markar endalok jólahátíðarinnar um sinn. Sami háttur er hafður á víða um borg og brennur til dæmis haldnar bæði í Grafarvogi og Grafarholti. Nokkuð rigndi á borgara sem lögðu leið sína að eldinum en þeim var þá huggun harmi gegn að fá að orna sér við bjarma eldsins og ekki síður tilhugsunina um nýja tíma. snorrim@mbl.is Sagt bless við blessuð jólin með blysför á brennustað Morgunblaðið/Árni Sæberg  Bónus og Krónan hafa í verslunum sínum sérstaka penna sem strokið er eftir peningaseðlum til að kanna hvort þeir séu gildir. „Við höfum nokkrum sinnum stoppað fólk sem ætlar að nota falsaða seðla. Yfirleitt er það þannig að þegar starfsmaður hringir í vaktstjóra til að láta vita læt- ur viðkomandi sig hverfa. Hefur ætl- að að láta á þetta reyna. En einnig hefur komið saklaust fólk sem fengið hefur falsaða seðla til baka í öðrum verslunum og á engan hlut að máli,“ segir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar. »2 Stoppa fólk með falsaða seðla Andri Steinn Hilmarsson Ómar Friðriksson Hátt í tuttugu fundir eru á dagskrá í vikunni í kjaraviðræðum. Forystu- menn verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins binda vonir við að línur taki að skýrast í vikunni. M.a. verður fundað í deilu VR, Efl- ingar og Verkalýðsfélags Akraness við Samtök atvinnulífsins hjá ríkis- sáttasemjara á miðvikudag. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segja SA þurfa að svara því á fundinum hvort samningarnir gildi frá áramótum. „Ef þeir hafna kröfunni um að samningar gildi frá 1. janúar eða segja að ekkert sé til skiptanna eins og hefur komið fram í máli Samtaka atvinnulífsins og tengdra aðila, s.s. Viðskiptaráðs, þá segir það sig sjálft að deilan endar í dómi fé- lagsmanna,“ segir Ragnar Þór. „Það er félagsmanna að ákveða á end- anum hvort við förum í hart eða ekki,“ segir Ragnar en hann kveðst þó bjartsýnn á að lending náist í kjaraviðræðum. „Við finnum að okk- ar baklandi er misboðið vegna verð- tryggingar, vaxtamála, húsnæðis- mála og hvernig efsta lagið hefur skammtað sér laun,“ segir Ragnar og bætir við að SA hafi ekki gefið verkalýðshreyfingunni svör um hversu mikið sé til skiptanna við gerð nýrra kjarasamninga. Hafa ekki frítt spil Ef viðræður sigla á endastöð þrátt fyrir sáttamiðlun ríkissátta- semjara getur atburðarásin orðið hröð og aðdragandi að átökum stutt- ur. Stéttarfélögin hafa þó ekki frítt spil heldur verða að uppfylla fjöl- mörg skilyrði vinnulöggjafarinnar ef boða á til vinnustöðvunar og það verður ekki gert nema hún hafi ver- ið samþykkt í leynilegri atkvæða- greiðslu meðal félagsmanna. Auk fundarins hjá ríkissáttasemj- ara á miðvikudag eru á dagskrá fyrri hluta vikunnar fundir Samtaka atvinnulífsins með samninganefnd iðnaðarmanna og seinni hluta vik- unnar fundir samninganefndar Starfsgreinasambandsins með SA. Þá eru fundir vinnuhópa iðnaðar- manna, SGS og Landssambands verslunarmanna dreifðir yfir vikuna. „Ég bind vonir við að línur skýrist fyrir vikulok og næsta vika geti farið í úrvinnslu,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA. Vilhjálmur Birgisson segir erfið- an kjaravetur í vændum sé svigrúm til kjarahækkana ekki meira en 1,9%. Mikil törn framund- an í kjaraviðræðum  Hátt í 20 fundir í vikunni  Telja línurnar skýrast í vikunni MÁ annan tug funda »4 og 16 Kjaraviðræður » VR, Efling og Verkalýðsfélag Akraness eiga fund hjá ríkis- sáttasemjara á miðvikudag. » Félögin gera kröfu um að samningar gildi frá áramótum. » Framkvæmdastjóri SA bind- ur vonir við að línurnar í kjara- viðræðum skýrist fyrir vikulok. » Telja erfiðan kjaravetur í vændum sé svigrúm til kjara- hækkana aðeins 1,9%. Stjórnarráðið hefur ekki hlotið jafn- launavottun þrátt fyrir að því hafi verið gert skylt að uppfylla skilyrði vottunarinnar fyrir árslok 2018. Fimm af tíu ráðuneytum eru enn án jafnlaunavottunar. Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, segir ólíklegt að Stjórnarráðið verði beitt dagsektum enda séu þær neyðarúrræði. Einungis 42 fyrirtæki hafa hlotið jafnlaunavottun hingað til en 1.180 atvinnurekendur þurfa að öðlast vottunina. „Ég geri ráð fyrir að þetta komi inn af meiri þunga á þessu ári,“ segir Katrín. »10 Morgunblaðið/Ómar Vottunarlaust Stjórnarráð Íslands. Enn án vottunar  Stjórnarráðið án jafnlaunavottunar  Íslensk forn- leifarannsókn leið- ir í ljós að hestar voru grafnir í kumlum með vík- ingum á Íslandi en ekki hryssur. Rannsóknin var birt í alþjóðlega vísindatímaritinu Journal of Archa- eological Science. Einungis eitt af 19 hrossum sem voru kyngreind var hryssa. Albína Hulda Pálsdóttir dýra- beinafornleifafræðingur segir at- hafnirnar í kringum kuml hafa verið dramatískar og því líklegt að það hafi þótt áhrifameira að fórna hest- um en hryssum. »2 Lítið um hryssur í kumlum víkinga Albína Hulda Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.