Morgunblaðið - 07.01.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Veður víða um heim 6.1., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Hólar í Dýrafirði 1 slydda
Akureyri 4 skýjað
Egilsstaðir 2 heiðskírt
Vatnsskarðshólar 5 rigning
Nuuk 0 alskýjað
Þórshöfn 5 alskýjað
Ósló -1 þoka
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Stokkhólmur 1 skýjað
Helsinki -2 skýjað
Lúxemborg 3 skýjað
Brussel 5 skýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 9 súld
London 8 alskýjað
París 5 alskýjað
Amsterdam 6 skýjað
Hamborg 5 súld
Berlín 2 léttskýjað
Vín 2 skýjað
Moskva -8 snjókoma
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 15 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 10 heiðskírt
Aþena 7 léttskýjað
Winnipeg -12 snjókoma
Montreal -2 alskýjað
New York 7 alskýjað
Chicago 4 skýjað
Orlando 16 heiðskírt
7. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:12 15:57
ÍSAFJÖRÐUR 11:50 15:29
SIGLUFJÖRÐUR 11:34 15:10
DJÚPIVOGUR 10:49 15:19
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á þriðjudag Gengur í suðaustan 10-18 með rign-
ingu, en hægari og þurrt um landið norðaustanvert.
Á miðvikudag Suðvestan 15-23 m/s og rigning eða
skúrir en þurrt austantil á landinu. Hiti 5 til 13 stig.
Vestan 8-13 en norðvestan 13-20 austantil síðdegis. Bjart með köflum, en él á norðaustanverðu
landinu fram yfir hádegi. Kólnandi, frost 0 til 6 stig og lægir í kvöld.
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Senn líður að flutningi tveggja smá-
hvela, mjaldra, í athvarf sem komið
hefur verið upp í Klettsvík í Vest-
mannaeyjum. Mjaldrarnir, Litla-
Hvít og Litla-Grá, eiga flug frá
Sjanghæ til Keflavíkur í marsmán-
uði. Allt virðist ætla að fara eftir
áætlun, að sögn Írisar Róberts-
dóttur, bæjarstjóra í Vestmanna-
eyjum.
Kínverskir ríkisfjölmiðlar greindu
frá því um helgina að mjaldrarnir
væru sannarlega á leiðinni en Morg-
unblaðið hefur fjallað nokkuð um
málið frá því tillögur um það voru
kynntar árið 2016. Nú er verið að
leggja lokahönd á þjálfun dýranna
enda er ljóst að þeim mæta framandi
aðstæður, bæði í ferðalaginu sjálfu,
fluginu, og svo á leiðarenda, á fyr-
irhuguðum griðastað þeirra í Klett-
svík.
Um er að ræða hvalaathvarf, hið
fyrsta sinnar gerðar í heiminum,
32.000 fermetra svæði til að synda
um. Þannig verður mjöldrunum
tveimur leyft að búa úti í náttúrunni
en þó með aðstoð manna; eftir hér
um bil ævilanga dvöl í skemmtigörð-
um eru þeir ófærir um að spjara sig
úti í náttúrunni upp á eigin spýtur.
Aðstaða mjaldranna verður mann-
gerð laug þegar kalt er í veðri en
einkavík á betri dögum.
Verið er steypa upp laug við höfn-
ina í Vestmannaeyjum sem verður
dvalarstaður mjaldranna fyrst um
sinn, áður en þeir fá að koma sér fyrir
í sjálfri Klettsvík. Þar er ekki úti-
lokað að þeir lifi til æviloka enda óráð
að sleppa hvaldýrum óstuddum út í
náttúruna eftir svo langan tíma í
dýragörðum. Ekki þarf til stuðnings
þeirri kenningu að leita lengra aftur í
tímann en til Keikó, sem dvaldist á
sama stað í Klettsvík þar til 2002. Þá
var honum sleppt lausum, með þeim
afleiðingum að ári síðar drapst hann
úr lungnasjúkdómi skammt undan
Noregsströndum.
Hvalirnir hvalreki fyrir eyna
„Þetta er einstakt verkefni,“ seg-
ir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í
samtali við Morgunblaðið. Og það
réttilega: aldrei hefur hvölum á
eftirlaunum, sem þessum, verið
gert eins kleift að lifa frjálsir en þó
undir nauðsynlegu eftirliti sérfræð-
inga. Íris segir að Sæheimar,
sjávardýrasafn Vestmannaeyja,
verði færðir niður á höfn og að
þangað verði hægt að koma og
skoða hvalina þegar þeir verða þar í
lauginni.
Á hafnarsvæðinu verður þannig
safn með sædýrum ýmsum en ekki
síður vængjuðum vinum hafsins:
lundanum verður gert hátt undir
höfði á safninu. Í téðri laug við höfn-
ina geta smáhvelin svo haft vetrar-
setu ef þörf krefur, sem ku henda,
enda viðkvæm dýr.
Auk þess að vera jákvætt skref í
verndun dýra segir Íris athvarfið
jafnframt mikilvæga viðbót við það
sem bæjarfélagið hefur að bjóða
ferðamönnum; verkefnið þannig
hvalreki fyrir túrisma á eynni. Ekki
aðeins sé þetta nýjung í ferðaþjón-
ustu á eynni sjálfri heldur líka á Ís-
landi gervöllu.
Ferðalagið áhættunnar virði
Litla-Hvít og Litla-Grá eru tólf
ára gamlar og hafa dvalið í búri í
Kína síðan 2011, þ.e. lungann úr ævi
sinni. Mjaldrar geta náð fimmtugs-
aldri frjálsir á höfum úti og ekki úr
vegi að ætla þessum gestum Íslend-
inga styttri ævi. Klettsvík á að verða
heimili þeirra til æviloka.
Mjaldurinn er 4-6 metrar á lengd
og 500-1.500 kg á þyngd. Kálfar af
tegundinni eru gráir en fullorðin dýr
hvít. Þetta eru ólík dýr háhyrn-
ingum eins og Keikó, að því leyti að
þessi smáhveli eiga erfiðara upp-
dráttar í miklum kulda og miklum
veðrum. Þau hvekkjast auðveldlega
og því þarf að vanda vel til verka
þegar verið er að laga þau að að-
stæðum.
Sem stendur er verið að þjálfa
Litlu-Hvít og Litlu-Grá stíft en þær
eiga framundan þrjátíu klukku-
stunda flugferð, um 10.000 kíló-
metra. Umfangið er því töluvert og
áhættan um leið, en talsmenn fram-
kvæmdarinnar tala um afarkosti í
samtali við Independent: „Þetta er
örðugt verk en hinn kosturinn er að
skilja dýrin eftir í steyputanki í
Sjanghæ.“
Enn eru 3.000 hvalir, höfrungar
og hnísur fangin í búrum víða um
heim og nauðug látin leika listir sín-
ar fyrir mönnum.
Hvalirnir fljúga heim í Klettsvík
Tvö smáhveli fara á eftirlaun undir eftirliti við Íslandsstrendur Mikið lagt í aðbúnað við
Vestmannaeyjar 10.000 km ferðalag frá Sjanghæ til Keflavíkur Hvalreki fyrir túrismann
Reuters
Mjaldrar Mjaldurskálfurinn er grár en fullorðinn verð-
ur hann hvítur. Dýrið er kubbslegt og allþybbið.
Morgunblaðið/RAX
Keikó Háhyrningurinn Keikó dvaldist í Klettsvík 1998-
2002. Honum var þá sleppt lausum og hann drapst ári síðar.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Skrið er komið á kjaraviðræður en á
annan tug funda eru á dagskrá í vik-
unni. Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir mikla vinnutörn
framundan. „Ég bind vonir við að
línur skýrist fyrir vikulok og næsta
vika geti farið í úrvinnslu,“ segir
Halldór.
Á dagskrá fyrri hluta vikunnar
eru fundir Samtaka atvinnulífsins
með samninganefnd iðnaðarmanna
og seinni hluta vikunnar eru á dag-
skrá fundir með samninganefnd
Starfsgreinasambandsins. Fundur
Eflingar, VR og Verkalýðsfélags
Akraness og SA er hjá ríkissátta-
semjara á miðvikudag og vinnuhóp-
ar iðnaðarmanna, Starfsgreinasam-
bandsins og Landssambands
verslunarmanna dreifðir yfir vik-
una.
„Við reiknum fastlega með að fá
svar við spurningu okkar hvort
kjarasamningurinn gildi frá 1. jan-
úar,“ segir Vilhjálmur Birgisson,
formaður Verkalýðsfélags Akra-
ness, um fundinn á miðvikudag.
Hann segir erfiðan kjaravetur í
vændum líti Samtök atvinnulífsins
svo á að svigrúm til launabreytinga
sé ekki meira en 1,9 prósent, en það
er meðalmat félagsmanna SA á
svigrúmi til launahækkana á árinu
2019.
Vilhjálmur segir í samtali við
Morgunblaðið alveg ljóst að kjara-
deilan verði ekki leyst nema með
umtalsverðri aðkomu stjórnvalda.
„Við erum svolítið hissa á aðgerða-
leysi og skilningsleysi stjórnvalda í
deilunni sem framundan er,“ segir
Vilhjálmur og nefnir húsnæðismál,
skattlagningu lágtekjuhópa, vaxta-
umhverfi og verðtryggingu sem mál
er snúa að stjórnvöldum.
Samningar gildi frá áramótum
Kristján Þórður Snæbjörnsson,
formaður Rafiðnaðarsambandsins,
segir að á tveimur fundum iðnaðar-
manna með Samtökum atvinnulífs-
ins á morgun verði byrjað á að fara
yfir launaliðinn. „Við munum ræða
hann aðeins, hver staðan er þar.
Síðan munum við fara yfir sértæk
málefni sem eru þær kröfur sem við
höfum farið fram á að verði breytt í
greinum kjarasamningsins,“ segir
Kristján en átta félög taka þátt í
viðræðum iðnaðarmanna.
„Við höfum verið að funda viku-
lega en erum að setja meiri kraft í
þetta núna. Samningarnir eru runn-
ir úr gildi og við erum að pressa á
að ná samningum með þá kröfu að
þeir gildi frá áramótum,“ segir
Kristján. „Menn eru að tala saman
en það hefur sáralítið komið frá SA
af málefnum inn í samninga,“ segir
hann.
Hjá Starfsgreinasambandinu eru
í dag fundir í undirhópum, bæði hjá
byggingarstarfsmönnum og bif-
reiðaþjónustu. „Maður fer í þetta já-
kvæður,“ segir Arnar G. Hjaltalín,
framkvæmdastjóri Drífanda. „Það
er rólegur gangur í þessu.“
Á annan tug funda á dagskrá í vikunni
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins vonar að línurnar í kjaraviðræðum skýrist fyrir vikulok
Verkalýðsforingi segir harðan vetur í vændum telji SA svigrúm til hækkana ekki meira en 1,9%
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
Vilhjálmur
Birgisson
Arnar G.
Hjaltalín