Morgunblaðið - 07.01.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019
Leitar þú að traustu
BÍLAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TÍMAPANTANIR
587 1400
Við erum sérhæfðir í viðgerðum
á amerískum bílum.
Mótorstilling býður almennar
bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mál barna og ungmenna sem eru
í vanda og fá ekki aðstoðina sem
þarf, eru erfiðustu málin sem
hafa komið inn á mitt borð hér,“
segir Ásmundur Einar Daðason
félags- og barnamálaráðherra.
„Fyrstu mánuði mína í embætti
ræddi ég við fulltrúa fjölda sam-
taka sem vinna að velferð barna
til þess að fá innsýn í málaflokk-
inn. Einnig komu hingað til mín
foreldrar barna í neyslu og stund-
um líka ungt fólk sem hafði náð
tökum á neyslu sinni og vildi
segja sína sögu. Þetta voru lær-
dómsrík samtöl sem reyndu veru-
lega á, en sögðu mér líka að sam-
félagið þarf að gera betur í
stuðningi við börn og fjölskyldur
þeirra.“
Ráðuneyti til fyrra horfs
Nú um áramót var sú breyt-
ing gerð að velferðarráðuneytinu
var skipt upp og til fyrra horfs;
annars vegar ráðuneyti heilbrigð-
ismála og hins vegar félagsmála.
Til að skerpa á málum er síðar-
nefnda ráðuneytið einnig kennt
við barnamál og þar stendur nú
yfir vinna þar sem reglur og um-
gjörð alls starfs og þjónustu við
börn er í endurskoðun.
Í þessu tilliti eru lög er varða
börn og barnavernd til endur-
skoðunar í ráðuneytinu. Til að fá
heildstæðari nálgun á málaflokk-
inn þá er þessi vinna undir for-
ystu nefndar þingmanna sem í
sitja fulltrúar allra stjórnmála-
flokka sem sæti eiga á Alþingi. Þá
verður myndaður stýrihópur full-
trúa allra ráðuneyta sem fjalla
um málefni barna, sem ásamt
sveitarfélögum og fleiri er ætlað
að tryggja samræmda fram-
kvæmd og þjónustu við börn, ung-
menni og fjölskyldur þeirra á öll-
um sviðum og markvissa eftir-
fylgni með þeim aðgerðum.
Brjóta niður múra
Fyrstu tillagna frá þessum
hópum er að vænta á vordögum
og gert er ráð fyrir því að frum-
vörp til breytinga á lögum ásamt
stefnu Íslands í málefnum barna,
verði lögð fram á Alþingi á haust-
þingi í ár. Í ráðuneytinu sjálfu
verða málefni barna svo rauður
þráður í allri stefnumörkun.
„Ég tel mikilvægt að brjóta
niður þá múra sem eru í kerfinu
og á milli stofnana. Hvarvetna í
vestrænum samfélögum eru fé-
lagsleg velferðarmál ofarlega á
baugi og þegar börn eiga í hlut er
mikilvægt að taka sem fyrst á
þeirra málum. Hvort sem barn
glímir við líkamleg veikindi, er að
dragast aftur úr í skólanum, er í
vímuefnaneyslu eða annað. Kerfið
þarf að geta tekið á svona málum
sem fyrst; ella getur vandinn und-
ið upp á sig. Valdið barninu og að-
standendum þess þjáningu og
samfélaginu miklum kostnaði á
síðari stigum,“ segir Ásmundur
Einar og heldur áfram:
„Almennt talað þá er gott að
vera vera barn á Íslandi, sé litið
til þátta eins og lágrar tíðni ung-
barnadauða, aðgengis að heil-
brigðisþjónustu, menntun og ann-
arra þátta. Þessi jákvæðu atriði
breyta samt ekki því að gera má
betur. Mér finnst jafnframt mikil-
vægt að börn fá betri tækifæri til
að koma sínum sjónarmiðum á
framfæri. Þannig var fyrsti fund-
urinn sem ég tók á nýja árinu með
tveimur ungum stúlkum sem eru í
ráðgjafarhóp umboðsmanns
barna og höfðu svo sannarlega
margt til málanna að leggja.“
Vilji til góðra verka
Í útvarpsprédikun á jóladag
sagði sr. Agnes M. Sigurðardóttir
biskup Íslands að öll börn ættu að
eiga greiðan aðgang að fagfólki
þegar vandi steðjaði að. Í ávarpi
sínu á gamlárskvöld vék Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra að
réttindum barna og í tölu sinni á
nýársdag gerði Guðni Th. Jó-
hannsson forseti Íslands kvíða,
kulnun og streitu að umtalsefni.
Einnig að sjálfsvíg eru helsta dán-
arorsök ungra karlmanna og
mörg ungmenni háð fíkniefnum
og ávanalyfjum.
„Já, ég veitti þessum ávörp-
um athygli og tek undir þau sjón-
armið um málefni barna sem þar
komu fram. Það er ánægjulegt að
finna mikinn stuðning og vilja til
samvinnu og góðra verka í þágu
barna sem til staðar er í samfélag-
inu, hjá almenningi, fagfólki sem
og í stjórnmálunum. Við verðum
og viljum gera betur; samfélagið
getur ekki horft upp á að sjá ung-
menni fara út af sporinu svo sem
að í viku hverri látist einn af völd-
um neyslu lyfja eða fíkniefna eins
og gerðist á síðasta ári.“
Nýtt félags- og barnamálaráðuneyti er tekið til starfa
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Börn fái betri tækifæri
Ásmundur Einar Daðason er
fæddur 1982 og með B.Sc.-
próf í búvísindum frá LBHÍ.
Hefur sinnt ýmsum félags-
störfum á Vesturlandi, svo
sem í skóla- og íþróttastarfi.
Fjölskyldumaður og faðir
þriggja dætra.
Alþingismaður Norðvestur-
kjördæmis 2009-2016 og síð-
an 2017, fyrst fyrir VG og síðar
Framsóknarflokkinn. Setið í
ýmsum nefndum þingsins.
Félagsmálaráðherra frá 30.
nóvember 2017.
Hver er hann?
Ráðherra Samfélagið getur
ekki horft upp á að sjá ung-
menni fara út af sporinu,
segir Ásmundur Einar.
Það eru umhleyp-
ingar í veðri fram
undan, að sögn
Haralds Ólafs-
sonar, veðurfræð-
ings á Veðurstofu
Íslands. Veður
verður óstöðugt
eins og gjarnan á
þessum árstíma
og það skiptast á
hlýir og kaldir
dagar. Fyrstu
fjórir dagar ársins voru óvenjuhlýir
og það heldur áfram að vera hlýtt
þótt það komi kaldir dagar inn á
milli. Það getur orðið sérstaklega
hlýtt á Austfjörðum á miðvikudag.
Kaldir og hlýir
dagar skiptast á í
óstöðugri veðráttu
Regnhlíf Á Suður-
og Vesturlandi gæti
orðið vætusamt.
Sjúkraflug jókst á nýliðnu ári, eins og
í mörg ár þar á undan. Farið var í 819
flugferðir á árinu 2018 sem er 3%
aukning frá árinu á undan, sam-
kvæmt því sem Bjarni Jónsson, for-
stjóri Sjúkrahússins á Akureyri,
skrifaði í pistli á vef spítalans eftir
áramótin, en sjúkrahúsið sér um
læknisfræðileg mál sjúkraflugsins.
Mýflug annast meginhluta sjúkra-
flugsins. Samkvæmt tilkynningu frá
félaginu fluttu vélar félagsins 882
sjúklinga á síðasta ári í 806 útköllum.
Það er 10 útköllum meira en á árinu
2017.
Stöðugur vöxtur hefur verið í
sjúkrafluginu hjá Mýflugi og nú er
svo komið að þörf er á að hafa tvær
sjúkraflugvélar til taks til að anna eft-
irspurn.
Í hverri ferð í sjúkraflugi er sjúkra-
flutningamaður frá Slökkviliði Akur-
eyrar og sérhæfður læknir frá
Sjúkrahúsinu á Akureyri, þegar um
er að ræða alvarlega veika sjúklinga
eða fólk sem lent hefur í slysum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Bjarna fór
læknir með í liðlega helmingi sjúkra-
flugferða í fyrra, eða 52% útkalla.
Ef litið er til þess tíma sem Sjúkra-
húsið á Akureyri hefur haft umsjón
með sjúkrafluginu, frá árinu 2002,
sést að ferðum í sjúkraflugi hefur
fjölgað nærri þrefalt á þeim tíma.
helgi@mbl.is
Sjúkraflug
eykst stöðugt
Farið í 819 ferðir á síðasta ári
Morgunblaðið/RAX
Sjúkraflug Mýflug þarf orðið að
hafa tvær sjúkraflugvélar til taks.
Frá og með deginum í dag má ekki sprengja flugelda lengur, notkun þeirra
er aðeins heimil frá 28. desember til 6. janúar. Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu þurfti að hnykkja á ýmsum reglum þar að lútandi á Facebook-síðu
sinni um helgina.
Talsverður erill var annars hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um
helgina. Þannig kom upp eldur í nokkrum blaðagámum sem ljóst er að
kviknað hefur af mannavöldum.
Gluggi var brotinn í skóla í Kópavogi aðfaranótt sunnudags og flugeldi
kastað inn en betur fór en á horfðist og tjón óverulegt. Enn fremur kom
upp eldur í ruslageymslu við Engihjalla í Reykjavík. Talsverðan reyk lagði
frá geymslunni og náði inn í íbúðarhús sem þurfti að reykræsta.
Flugeldi kastað inn um glugga í skóla
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Verulegur samdráttur varð í ávís-
unum lækna á ópíóða á árinu 2018.
Þetta kom fram í tilkynningu á
heimasíðu landlæknis. Þar stendur
að ávísunum á ópíóða hafi fækkað
um 13,6 prósent milli ára. Í tilkynn-
ingunni er tekið fram að vakning
hafi orðið meðal lækna um að taka
upp nýjar venjur við ávísanir á
ópíóða og kann það að hafa sitt að
segja í þessari þróun.
Íslendingar nota mun meira bæði
af þunglyndislyfjum og örvunar-
lyfjum en íbúar annarra landa á
Norðurlöndum. Þó er notkun þess-
ara lyfja hvergi algengari en einmitt
þar. Samkvæmt tilkynningunni
halda ávísanir á þunglyndislyf og
geðrofslyf áfram að aukast og Ísland
fjarlægist þannig nágrannalönd sín
enn frekar í þessum efnum.
Færri ávísanir á ávanabindandi
lyf en á árinu 2017
Auk fækkunar á ávísunum á
ópíóða dró í fyrsta skipti úr ávísun-
um á örvunarlyfið methýlfenidati á
milli 2017 og 2018. Notkun þess
hafði stóraukist á Íslandi undanfarin
ár og var árið 2018 þrefallt meiri en
tíu árum fyrr. Þrátt fyrir þessa
fækkun á ávísunum á methýlfenidat
er neysla lyfsins enn miklu meiri
meðal Íslendinga en annarra Norð-
urlandabúa.
Almennt dró úr ávísunum á mörg
ávanabindandi lyf á þessum tíma,
sérstaklega á einstök verkjalyf. Þó
fjölgaði talsvert ávísunum á gaba-
pentín og pregabalín, sem eru notuð
gegn flogaveiki, kvíða og verkjum.
Lítil breyting hefur verið í ávísunum
á svefnlyf, en Íslendingar neyta
einnig svefnlyfja talsvert meira en
aðrir Norðurlandabúar.
Færri ávísanir á ópíóða en áður
Ávísunum á ávanabindandi lyf fækkar en ávísanir á svefnlyf standa í stað
Lyf Dregið hefur úr ávísunum
á methýlfenidat og ópíóða.