Morgunblaðið - 07.01.2019, Page 22

Morgunblaðið - 07.01.2019, Page 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019 Ég er stödd á Tenerife og ætla að halda upp á afmælið mitt hérmeð vinum mínum og manni,“ segir Þórdís Sólmundardóttirsem á fimmtugsafmæli í dag. Hún hélt jólin sömuleiðis hátíðleg á Tenerife með eiginmanni, sonum og móður, og kom þangað 22. desember. Móðir hennar og synir eru far- in heim til Íslands en vinirnir komu í staðinn. „Við erum tíu hérna í allt núna.“ Þórdís hefur einu sinni áður haldið jólin erlendis, en þá var hún á Gran Canaria og segir að það hafi verið ljúft þá eins og nú. Þórdís rekur Pylsuvagninn á Selfossi ásamt móður sinni, sem stofn- aði hann árið 1984 ásamt þáverandi maka og fósturföður Þórdísar. Staðurinn fagnar því 35 ára afmæli á næsta ári. Þórdís, sem hefur ávallt búið á Selfossi, sér núna um reksturinn ásamt móður sinni, Ingunni Guðmundsdóttur. „Það hefur ýmislegt breyst á þessum tíma en samt eru hamborgararnir og pylsurnar alltaf vinsælust. Það nýjasta á matseðlinum er fish ’n’ chips, sem var fyrir út- lendingana en Íslendingar eru líka duglegir að kaupa það.“ Eiginmaður Þórdísar er Símon Ingvar Tómasson, fangavörður á Litla-Hrauni, en hann verður sextugur á föstudaginn. Synir þeirra eru Magnús Bjarki, f. 1995, Eyþór, f. 1998, og Sólmundur Ingi, f. 2005. Veitingakonan Þórdís rekur Pylsuvagninn á Selfossi. Fagnaði jólum og afmælinu á Tenerife Þórdís Sólmundardóttir er fimmtug í dag G uðmundur Óli Scheving fæddist í Vestmanna- eyjum 7. janúar 1949 en flutti fljótlega til Reykjavíkur og ólst upp í Grjótaþorpi og miðbæ Reykjavíkur. „Ég er KR-ingur en Vestmanneyingur þegar KR og Vestmanneyingar eru að spila.“ Guðmundur Óli gekk í Miðbæj- arbarnaskólann og fór síðan í Gaggó Vest. Hann lauk svo námi frá Iðnskólanum í Reykjavík og sveinsprófi í vélvirkjun hjá Lands- smiðjunni og meistaraprófi og vél- stjóraprófi frá Vélskóla Íslands. Hann var til sjós í 27 ár og starfaði lengstum sem yfirvél- stjóri. Hann fór síðan í Háskóla Íslands og tók þar nám í að setja upp gæðakerfi fyrir lítil og meðal- stór fyrirtæki. Árið 2003 fékk Guðmundur Óli réttindi sem meindýraeyðir og hefur sinnt því starfi í 15 ár. Árið 2014 gaf hann út bókina Upplýs- ingar og fróðleikur um meindýr og varnir. Guðmundur Óli stofnaði fyrir- tækið Stúdíó Norn ehf. í Tangar- höfða 5 þar sem er hljóðstúdíó og eina sérverslunin fyrir meindýra- varnir á höfuðborgarsvæðinu. Fimmtán ára gamall byrjaði Guðmundur að semja tónlist og ljóð en það var ekki fyrr en árið 2014 að fyrsti diskurinn kom út og núna eru komnir fjórir diskar með lögum eftir hann. Hann notar nafnið Góli á hljómdiskunum. „Þetta var því 50 ára draumur sem hefur ræst en sum laga minna eru orðin þetta gömul. Þetta er mömmu að þakka því hún gaf mér ljóðabókina Svartar fjaðrir eftir Davíð Stefánsson og ég varð fyrir miklum áhrifum af henni. Einn af diskunum mínum, Guðmundur Óli Scheving meindýraeyðir – 70 ára Tónlistarmaðurinn Guðmundur Óli lét 50 ára draum rætast með því að gefa út sinn fyrsta tónlistardisk árið 2014. Meindýraeyðir, söngva- skáld og útvarpsmaður Garðabær Rún Steins- dóttir fæddist 1. febr- úar 2018 kl. 12.14. Hún vó 3.740 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Hildur Símonar- dóttir og Steinn Hildar Þorsteinsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Við notum ekki MSG í súpuna okkar. Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum og stórmörkuðum landsins. Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.