Morgunblaðið - 07.01.2019, Page 25

Morgunblaðið - 07.01.2019, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019 Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú færð tækifæri til að leita ráða hjá einstökum aðila í dag. Ef vin þinn vant- ar peninga, skaltu lána honum þá. Þér eru allir vegir færir. 20. apríl - 20. maí  Naut Taktu öllum tilboðum sem þú færð í dag og vit er í. Mundu að ekki hafa allir sömu skoðanir á hlutunum og það ber líka að virða. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Tilhneiging þín til að hugsa um of gæti verið vandamál. Hristu upp í rútínunni, talaðu við ókunnuga, skoðaðu bókabúðir, farðu á námskeið eða gerstu sjálfboðaliði. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Óvænt uppákoma sem tengist nán- um vini eða maka gerir þig glaða/n. Þú færð tilboð sem þú ert hugsi yfir. Settu þér markmið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einhver ókunnugur leitar til þín og biður um þitt álit. Þér finnst þú hafa of mikið á þinni könnu, fækkaðu þá verk- efnum, deildu þeim á fleiri og lífið verður gott. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er viturlegra að biðja um hlutina kurteislega en krefjast þeirra með ein- hverjum þjósti. Settu heilsuna í forgang – þú hefur tíma ef þú vilt það. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vinur þinn þarfnast skilnings og góðra ráða. Gefðu honum tíma. Veikindi hrjá fjöl- skylduna en þau ganga hratt yfir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt hlutirnir hafi litið vel út fyrir nokkrum dögum, kann að hafa orðið breyting á. Hvað ætlar þú að gera varðandi markmið þín á þessu ári? 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það kann ekki góðri lukku að stýra að láta fjármálin reka á reiðanum. Fólk leggur sig sérstaklega fram við að gera þér til hæfis og öfugt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Samræður við vini þína eru glað- legar og uppörvandi. Dragðu inn andann áður en þú gagnrýnir og leyfðu öðrum að fá sitt svigrúm. Farðu í ferðalag. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Næstu vikur henta því vel til að gera upp gömul deilumál. Þú hittir mann- eskju sem var stór hluti af lífi þínu áður fyrr. Mundu að stunda þakklæti. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu það vera að flýta þér um of því það býður hættunni heim og þú skilar verri vinnu fyrir vikið. Fjölskyldan er sam- hent og það væri tilvalið að skella sér í bú- stað. Á fimmtudaginn skrifaði SigurlínHermannsdóttir að sér fyndist „frammistöðuvandi“ koma sterk- lega til greina sem orð ársins 2018: Sagt að þungum sökum bæri sjálfan bóndann Þór því frammistöðuvandinn væri verulega stór. Sigrún Haraldsdóttir sagði fleiri orð koma til greina: Á fölleitri húðinni fínlega var farið að bera á gulnun, hann sat yfir kollu á sorglegum bar sárlega þjáður af kulnun. Sigurlín svaraði: Kallagrobb kallast víst hrútskýring sá kulnaði gróf sig í strútskýring en er ferðin var farin á fámennan barinn stunduð var eftir-á-stútskýring. „Eitt orð til,“ sagði Sigrún: Hann skort‘alla skerpu og frumkvæði og skapaði alstaðar vandræði. Hann fræðingar skeindu og fjölmargir reyndu að finn‘onum varanlegt úrræði. Fía á Sandi orti Öfugmælavísu: Séð hef ég káta kú með hatt ketti stígvél máta þrætublækur segja satt og svindlarana játa. Helgi Ingólfsson gaf þetta ára- mótaheit á Boðnarmiði: Um áramót uppgötvar raftur hvar innra með honum býr kraftur. Það ég staðfastur veit og því strengi ég heit að stunda loks reykingar aftur. Vegna umræðu um sölu ríkis- eigna rifjaðist upp fyrir Dagbjarti Dagbjartssyni ein gömul síðan eitt- hvað kom til tals að selja Símann: Fráleitt verður flanað að neinu sem Framsókn er bagi. Síminn verður seldur í einu – samkomulagi. Indriði Aðalsteinsson á Skjald- fönn svaraði: Nú er illt í efni, Bjartur. Út við hafsbrún mökkur svartur. Hvernig fer með formannsskinn, ef Framsókn gleypir Miðflokkinn? Pétur Stefánsson er á klassískum nótum: Áfram tifar æviklukkan, aflið minnkar, gránar hár. Gefi ykkur guð og lukkan gleðiríkt og farsælt ár. Ármann Þorgrímsson segir: „Tíminn heldur áfram“: Að ósi rennur ævifljót ég aldurs kvótann fylli enn samt koma áramót en orðið stutt á milli. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Orð ársins og kýr með hatt Í klípu „HVER ER STAÐAN Á HNETUPOKANUM?” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „KONAN HANS LEYFIR HONUM ALDREI AÐ HORFA Á ÞENNAN ÞÁTT!” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita að þú nýtur stuðnings. KATTAHÁR Á FERÐ OG FLUGI! EINS GOTT AÐ ÞETTA SÉ EKKI KÖNGULÓIN ÉG VONA AÐ ÞÚ HAFIR GÆTT ÝTRASTA HREINLÆTIS OG ÞVEGIÐ ÞÉR UM HENDURNAR! ENGAR ÁHYGGJUR, ÉG FER MJÖG VARLEGA OG PASSA AÐ FÁ EKKERT AF ÞESSU SULLI Á MIG! SLETT SNARK Framundan var íþróttamót hvarvænta mátti hundraða barna; lífs- glaðra og leikinna með boltann. Sjálf- sagt var að geta þessa í Morgun- blaðinu með myndum og skemmti- legri frásögn, því svona efni er vinsælt meðal lesenda og hvetjandi fyrir krakkana. Í samtölum blaða- manns við skipuleggjendur mótsins mátti þó greina hik í huga varðandi myndatökur með vísan til nýrra reglna um persónuvernd. Inntak þeirra er réttur og svigrúm fólks til að fela sig í fjöldanum og vera nafnlaust; einskonar Nebúkadnesar Nebúkad- nesarsson eða NN, svo vísað sé til frægrar smásögu Laxness. x x x Niðurstaðan af samtali þessu varðsú að fólk skyldi spara áhyggjur uns á reyndi. Ljósmyndari Morgun- blaðsins fór á staðinn og spurði bolta- börnin hvort hann mætti taka af þeim myndir til birtingar. Allir sögðu já og létu sér vel líka. Sama gildir þá vænt- anlega um foreldra og ömmur og afa sem klippa myndir af krökkunum út úr Mogganum og festa á ísskápinn. Ef einhver hefði sagt nei við mynda- töku hefði það ekki verið neitt vanda- mál. Annaðhvort gengur viðkomandi út úr hópnum eða myndatöku er sleppt. x x x Að mati Víkverja er sturlun líkast efmyndataka af börnum til dæmis í boltaleik, á skólahljómleikum eða skrúðgöngu kallar á skriflegt leyfi foreldra, eins og ýtrustu reglur gera ráð fyrir. Reglur eftirlitsþjóðfélagsins stuðla því í reynd að vantrausti fólks á meðal. Það er vond þróun. x x x Víkverji hefur hér aðeins gert per-sónuverndarreglur svonefndar að umtalsefni en fleira sambærilegt mætti tiltaka sem einfaldlega stuðlar að leiðinlegra samfélagi. Þegar öllu er á botninn hvolft þá er beinlínis ömur- legt þegar settar eru formlegar regl- ur um alla skapaða hluti og það jafn- vel talið bráðnauðsynlegt. Sem alls ekki er raunin. Sjálfsögð kurteisi, al- menn skynsemi, að biðja um leyfi, málamiðlanir, brosa og bjóða góðan daginn. Slíkt dugar í mörgum málum og ekkert þarf regluverkið. vikverji@mbl.is Víkverji Viska er fyrir öllu, aflaðu þér visku, kostaðu öllu til að afla þér hygginda. (Orðskviðirnir 4.7)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.