Morgunblaðið - 07.01.2019, Page 26

Morgunblaðið - 07.01.2019, Page 26
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það er ekki skrítið að það skuli vera stutt í samfélagsrýnina í verkum Huldu Rósar Gunnarsdóttur. Hún lauk jú gráðu í mannfræði áður en hún fór í meistaranám í gagnvirkri hönnun hjá Middlesex University og síðan í BA-nám í myndlist hjá LHÍ. Lesendur ættu að þekkja Huldu Rós fyrir verk á borð við myndina Kjötborg, sem hún gerði með Helgu Rakel Hrafnsdóttur um bræðurna Gunnar og Kristján og verslun þeirra á Ásvallagötu; eða myndina Keep Frozen þar sem rýnt er í erfið störf löndunarmanna í Reykjavíkur- höfn. Samhliða gerð listrænna heimild- armynda hefur Hulda Rós unnið að alls kyns verkefnum og síðast tók hún þátt í samsýningunni „Exclus- ively Inclusive“ í Gerðarsafni, „Bas- ed on a True Story“ í Meetfactory í Prag, og núna í janúar verður hún með einkasýninguna „All is Full of Love“ í Künstlerhaus Bethanien í Berlín frá 17. janúar til 10. febrúar. Þó að hún hafi verið meira eða minna búsett í Berlín í röskan ára- tug beinir Hulda Rós núna aftur sjónum sínum að íslensku atvinnu- lífi. Í þetta skiptið er það ferðaþjón- ustan sem er kominn tími til að skoða frá ýmsum hliðum. Áður en lengra er haldið er samt vissara að fræða lesendur um Künstlerhaus Bethanien þar sem Hulda Rós hefur haft aðsetur und- anfarið ár. Um merkilega myndlist- arstofnun er að ræða og ekki lítil upphafning fyrir íslenskan lista- mann að hafa verið valinn þar inn. Lítill hópur listamanna fær að starfa í húsinu og skiptast á að halda einkasýningar í rými sem er á jarðhæðinni. „Stofnunin var sett á laggirnar árið 1974 og það góða orð- spor sem hún hefur áunnið sér varð ekki til á einni nóttu“ útskýrir Hulda Rós. Fjöldaframleiðsla verður list Þó að sýningin „All is Full of Love“ hefjist 17. janúar vill Hulda Rós líta svo á að verkefnið hafi byrj- að miklu fyrr, eða þegar hún setti í loftið hópfjármögnunarherferðina „#puffinlove“ hjá Karolina Fund. „Árið 2019 er runnið upp og netið er orðið opinbert rými, og fannst mér spennandi að opna sýninguna þar – reyna að hefja samtalið utan við hefðbundið sýningarrými,“ útskýrir hún og bætir við að það hafi verið af ásetningi gert að velja hópfjár- mögnun sem upphafspunkt: „Virði samtímalistar virðist oft eiga að fel- ast í því að viðhalda einhverri „mys- tík“ – að hún sé bara ætluð fáum út- völdum – en hópfjármögnun er andhverfa þess.“ Með hópfjármögnuninni, og sýn- ingunni sjálfri, bregður Hulda Rós m.a. á leik með eðli fjöldaframleiðslu en hún lét framleiða þúsundir lunda- bangsa fyrir verkefnið og verða þrjátíu þeirra valdir úr fjöldanum, merktir sérstaklega og númeraðir og þannig gerðir að listaverkum frekar en ódýrum minjagrip: „Það koma nokkrir þræðir saman í þessu verki og sumir ná jafnvel þrettán ár aftur í tímann. Ég gerði fyrst lundaverk í Listaháskólanum árið 2006 á meðan ég var skiptinemi í Berlín. Kveikjan var sú að ég hafði tekið eftir risastórum lundabangsa fyrir utan verslun á Akureyri og villtist síðan inn í búð í Reykjavík þar sem var til sölu bleik reglustika fyrir stelpur þar sem lundinn var gerður í senn barnalegur og tælandi á einhvern pervertískan hátt,“ út- skýrir Hulda Rós. „Ég sá þarna m.a. tengingu við þá ímynd sem hafði orðið til af íslenskum lista- mönnum í útlöndum; sem einhvers konar barnalegum sakleysingjum í miklum tengslum við náttúruna – hálfgerð villibörn í anda eftir- nýlendukenninga – sem samt um- breytast eftir miðnætti í frjáls- lyndar kynferðisverur sem Iceland- air notar sem efni í auglýsingar um „One Night Stand“ í Reykjavík. Það sama hafði verið gert við lundann og við listamanninn.“ Fagurfræði fyrri stétta Tæpum tíu árum seinna, við gerð Keep Frozen-myndarinnar, tók Hulda Rós síðan eftir því hvernig hefðbundin sjávarútvegsstarfsemi við Reykjavíkurhöfn var að víkja smám saman fyrir verslunum, þjón- ustu og lundabúðum. „Ákveðin orð- ræða var farin af stað um að „færa líf í höfnina“, en ferlið allt bar skýr einkenni heldrunar (e. gentrifica- tion) og minnti á hvernig Grayson Perry hefur fjallað um hið svokall- aða stéttahlaup í Bretlandi: Þar fær- ist fólk á milli stétta á einni kynslóð eða tveimur en heillast áfram af fag- urfræði þeirra stéttar sem það kom úr, t.d. verkamanna-fagurfræðinni – og vill samt aðgreina sig á einhvern hátt og búa til eigin fagurfræði sem sýni svo ekki verður um villst að þeim hafi tekist að færast ofar í stig- anum.“ Þótti Huldu Rós upplagt að nota lundann sem upphafspunkt í n.k. sjálfsskoðun á þróuninni sem er að eiga sér stað á Íslandi og hvernig gamlar atvinnugreinar víkja fyrir nýjum. Um leið gafst henni tækifæri á að kafa ofan í heillandi heim fjöldaframleiðslu: „Það var mikil- vægt að ég myndi ekki hanna lunda- bangsann sjálf og leiddi leitin mig til Alibaba þar sem ég setti mig í sam- band við tíu framleiðendur og átti við þá stórskemmtilegt samtal. Ég uppgötvaði, til dæmis, að þó að allir tíu ættu myndir af lundabangsa þá átti aðeins einn sýnishorn til að senda mér.“ Hulda Rós komst líka að því að ekkert minna en 3.000 bangsa pönt- un myndi duga til að fá að stíga fæti Í gegnum linsu lunda-bangsans  Hulda Rós sá í lundanum enduróm af þeirri mynd sem er- lendir fjölmiðlar drógu upp af íslenskum listamönnum sem barnalegum sakleysingjum  Sýnir í Künstlerhaus Bethanien 26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019 Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Lang- vinsælastur hollusta í hverjum bita Lítið hefur farið fyrir hljómsveit- inni Hjaltalín hin síðustu ár en hún sneri óvænt aftur nú í byrjun árs og sendi frá sér lag sem finna má á Spotify. Þá var einnig til- kynnt á föstudaginn var að hljóm- sveitin myndi halda tónleika í Eldborgarsal Hörpu laugardags- kvöldið 7. september. Lagið nýja heitir „Baronesse“ og er eftir Hjört Ingva Jóhanns- son, hljómborðsleikara hljóm- sveitarinnar, og hefur einnig verið gert myndband við það en Andrea Björk Andrésdóttir sá um gerð þess. Lagið má finna á Spotify á slóðinni sptfy.com/baronesse og myndbandið á slóðinni youtu.be/- 1NvLs9kVEBs. Hljómsveitin vinnur nú að nýj- um lögum og eru frekari útgáfur á árinu 2019 áætlaðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá sveitinni. Hjaltalín boðar tón- leika og gefur út lag Ljósmynd/Kári Björn Endurkoma Hljómsveitin Hjaltalín er risin úr dvala, gaf út lag fyrir helgi og tilkynnti að hún myndi halda tónleika í Eldborgarsal Hörpu í haust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.