Morgunblaðið - 07.01.2019, Page 32

Morgunblaðið - 07.01.2019, Page 32
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 20 - 50% afsláttur af útsöluvörum 10% afsláttur af nýjum vörum J A N Ú A R Ú T S A L A -20% 20-40% 20 -40% af smávörum af PÚÐUM AFSLÁTTUR AFSLÁTTUR Tved sófi kr. 187.400 NÚ KR. 140.550 Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík í Garðabæ fer í gang á ný á morgun og verða þrennir tónleikar haldnir frá janúar fram í mars, annan þriðjudag hvers mánaðar. Röðin er haldin í samvinnu við KÍTÓN, félag kvenna í tónlist, og fara tónleikarnir fram í sal Tónlistarskóla Garðabæjar, Kirkju- lundi 11, kl. 20. Djasssöngkonan María Magnúsdóttir ríður á vaðið en með henni leika Sara Mjöll Magnús- dóttir píanóleikari og Sigmar Þór Matthíasson bassaleikari. María ríður á vaðið MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 7. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Óvænt úrslit urðu í Dominos-deild karla í körfuknattleik í gær þegar Þór Þorlákshöfn gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Tindastóls að velli á heimavelli sínum í Þorlákshöfn. Íslandsmeistarar KR gerðu góða ferð í Borgarnes og lögðu Skalla- grím, Stjarnan vann öruggan sigur gegn ÍR og Grindavík vann Breiða- blik í framlengingu. »4-5 Óvæntur sigur Þórs gegn toppliðinu ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik vann Hollendinga 27:23 í síðasta leik sínum fyrir heims- meistaramótið sem hefst í Þýska- landi og Danmörku í vikunni. Ísland vann tvo af þremur leikjunum sín- um á fjögurra þjóða mótinu í Noregi sem lauk í gær og hafnaði í öðru sæti á eftir Norð- mönnum. Fyrsti leikur Íslands á heimsmeist- aramótinu verður gegn Króatíu í Mün- chen í Þýska- landi á föstu- daginn. »1-2 Ísland í öðru sæti á æfingamótinu í Noregi Hafþór Hreiðarsson korri@internet.is Skömmu fyrir jól opnaði fyrirtækið Húsavík öl bruggstofu sem er til húsa í gömlu mjólkurstöðinni þar í bæ. Upp á ensku heitir þetta taproom, en það er skilgreiningin þegar brugghús og gestastofa eru undir sama þaki. „Viðtökur hafa verið frábærar og far- ið fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Þorsteinn Snævar Benedikts- son, bruggmeistari og eigandi Húsa- vík öl. Starfsemina segir hann enn vera í mótun en í byrjun verði hún op- in fimmtudags-, föstudags- og laugar- dagskvöld en alla daga á sumrin. Krubbur og Rjúpa Fyrirtækið var stofnað í janúar á síðasta ári og hófst framleiðsla þess í fyrravor. Eru nú bjórtegundir fyrir- tækisins á markaði orðnar á þriðja tug en þar er einungis bruggað öl, það er ekki lagerbjór, mjöður eða annað áfengi. „Ég rúlla þessu aðeins og nýjar tegundir eru sífellt í þróun, bjórinn hefur til þessa aðallega verið í boði á veitingastöðum á Húsavík og á R5 á Akureyri. Þá eru Sjóböðin á Húsavíkurhöfða með bjórinn á boð- stólum fyrir gesti sína,“ segir Þor- steinn Snævar og bætir við að innan skamms verði bjór frá honum fáan- legur á höfuðborgarsvæðinu. Eins og fyrr segir eru nýjar bjór- tegundir stöðugt í þróun hjá Húsavík öl og um jól og áramót var til að mynda hægt að fá Krubb og Rjúp- una. „Krubbur er milkstout-bjór og nafnið á honum kom nú bara þannig til að það var djöfullegt krubbsveður hér þegar ég bruggaði hann. Um Rjúpuna var það þannig að ég auglýsti eftir bláberjum og tvær kon- ur hér í bæ létu mig fá slatta sem ég nýtti í þennan bláberja-„saison“,“ sagði Þorsteinn Snævar. Bætir hann við að sarpur rjúpunnar sé stútfullur af berjum og lyngi eins og þessi bjór og því hafi nafnið Rjúpan bókstaflega blasað við. Leitaði víða að betri bjór Þorsteinn Snævar var á fjórða ári í Menntaskólanum á Akureyri þegar bjóráhuginn kviknaði. „Mér fannst vanta betri bjór og byrjaði strax að ferðast og leita. Flutti til Austurríkis þar sem ég ætlaði í bjórgerðarnám. En svo fór nú að ég nam fræðin í Bretlandi og útskrifaðist frá Brewlab í Sunder- land sem er samvinnuverkefni brugg- húsa og háskólanna í Sunderland og Newcastle á Englandi,“ segir Þorsteinn og heldur áfram: „Ég var alltaf ákveðinn í að koma upp brugghúsi á Húsavík og hvergi annars staðar. Eftir að ég kom heim þurfti ég að vinna og safna peningum í startið og eins huga að húsnæði fyrir brugghúsið. Ég fékk svo mjög góða aðstoð hjá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga sem reyndist mér vel við að koma þessu verkefni af stað – og skál fyrir því!“ Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar Bjór Alltaf ákveðinn í að koma upp brugghúsi á Húsavík og hvergi annars staðar, segir Þorsteinn Snævar. Bruggað í mjólkurstöð  Tugir nýrra bjórtegunda á Húsavík  Brugghús og gestastofa undir sama þaki  Fullt af berjum og lyngi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.