Morgunblaðið - 01.02.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
VELKOMIN Í
URÐARAPÓTEK
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði
fyrstu sögnina á Bridshátíð 2019 sem hófst í
Hörpu í gærkvöldi. Rúmlega 120 bridspör taka
þátt í hátíðinni, þar af á fjórða tug erlendra
para. Meðal erlendra gesta er Zia Mahmood, sem
hér stendur við hlið Jafets S. Ólafssonar forseta
Bridssambands Íslands, en hann hefur oft spilað
á Bridshátíð og unnið. Zia spilar við enska lands-
liðsmanninn David Gould.
Rúmlega 120 pör spila á Bridshátíð 2019 sem hafin er í Hörpu
Morgunblaðið/Eggert
Sagði fyrstu sögnina á Bridshátíð
Helgi Bjarnason
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Lögð er áhersla á að brotastarfsemi
á vinnumarkaði verði stöðvuð tafar-
laust, hvort sem um er að ræða fé-
lagsleg undirboð eða annars konar
brot, í ljósi sameiginlegra hagsmuna
launafólks, atvinnulífsins og sam-
félagsins alls. Samstarfshópur um
undirboð og brotastarfsemi á vinnu-
markaði sem starfaði undir forystu
Jóns Sigurðssonar, skilaði í gær
skýrslu til Ásmundar Einars Daða-
sonar félagsmálaráðherra. Hópurinn
telur brýnast að taka á kennitölu-
flakki.
Markmiðið með tillögum hópsins
er að regluverk á vinnumarkaði verði
skilvirkt og að þær aðgerðir sem ráð-
ist verður í skili tilætluðum árangri.
Að mati hópsins er skýr pólitískur
vilji og stuðningur stjórnvalda for-
senda þess að árangur náist.
Fjölþættar tillögur
„Þarna eru mjög fjölþættar tillög-
ur, sem ég er ánægður með, og einn-
ig hvað allir sem að þessu koma eru
sammála um heildarnálgunina. Það
er mikið ánægjuefni og gefur góða
von um framhaldið,“ segir Ásmundur
Einar um skýrsluna.
Brýnasta verkefnið er að taka á
kennitöluflakki, eins og fyrr segir, og
er lagt til að tillögur Samtaka at-
vinnulífsins, Alþýðusambands Ís-
lands og ríkisskattstjóra verði lagðar
til grundvallar við aðgerðir. Meðal
annars er kveðið á um heimild til að
setja forsvarsmenn fyrirtækja í
tímabundið bann við þátttöku í
stjórnun félaga með takmarkaðri
ábyrgð.
Lagt er til að þau stjórnvöld sem
fara með valdheimildir á vinnumark-
aði geri með sér formlegt samkomu-
lag um skipulegt samstarf gegn
brotastarfsemi. Stjórnvöldum verði
veittar lagaheimildir til að taka á
brotastarfsemi, meðal annars með
þvingunarúrræðum og stjórnvalds-
viðurlögum.
Lagt er til að sett verði skylda til
keðjuábyrgðar í lög um opinber inn-
kaup. Tryggð verði viðeigandi aðstoð
og vernd fyrir fórnarlömb vinnuman-
sals og nauðungarvinnu og upplýs-
ingagjöf til erlendra starfsmanna
verði bætt.
Innlegg í kjarasamninga
Ásmundur Einar segir næstu
skref vera að kynna ríkisstjórninni
skýrsluna formlega og í kjölfarið
verði nánari útfærsla tillagnanna
rædd, svo sem innleiðing og tíma-
setningar. Ráðherra er bjartsýnn á
að skýrslan muni liðka fyrir kjara-
samningum, enda séu félagsleg und-
irboð á vinnumarkaði einn af þeim
þáttum sem mikilvægt sé að taka á.
Tekið verði á kennitöluflakki
Starfshópur um undirboð og brotastarfsemi á vinnumarkaði skilar tillögum til félagsmálaráðherra
Stjórnvöld fái heimildir til þvingunarúrræða og viðurlaga Ráðherra ánægður með samstöðuna
Jón
Sigurðsson
Ásmundur Einar
Daðason
Líkurnar á því að hitaveita Veitna
þurfi að draga úr afhendingu á
heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu
fóru minnkandi í gær. Er því ekki
útlit fyrir að loka þurfi sundlaugum
og fyrirtækjum sem kaupa mikið
heitt vatn með afsláttarkjörum
gegn því að geta átt von á skerð-
ingum.
Í gærmorgun hætti heitavatns-
notkun að aukast á höfuðborg-
arsvæðinu og upp úr hádeginu fór
að draga úr notkun. Það skýra
Veitur meðal annars með því að
íbúar hafi brugðist vel við hvatn-
ingu um að fara vel með heita vatn-
ið. Áfram er spáð kulda og vakta
starfsmenn Veitna stöðuna.
Heitavatnsnotkun á
höfuðborgarsvæð-
inu farin að minnka
Héraðssaksóknari hefur ákært
karlmann fyrir að hafa að næt-
urlagi í ágúst árið 2015 haft sam-
ræði við þáverandi sambýliskonu
sína á heimili þeirra án hennar
samþykkis. Fram kemur í ákær-
unni að maðurinn hafi beitt konuna
ofbeldi og ólögmætri nauðung.
Þess er krafist að maðurinn verði
dæmdur til refsingar og greiðslu
alls sakarkostnaðar. Konan fer
fram á að maðurinn greiði henni 8
milljónir króna í miskabætur ásamt
vöxtum sem og málskostnað.
Ákærður fyrir of-
beldi og nauðgun
Alþýðusamband Íslands fagnar
tillögum starfshópsins, segir
þær í fullu samræmi við
áherslur ASÍ. Gerir Alþýðu-
sambandið þær kröfur að tillög-
unum verði fylgt fast eftir.
Mörgum þeirra megi þegar
hrinda í framkvæmd en aðrar
kalli á frekari vinnu og út-
færslur. Mun ASÍ fylgja þessu
máli eftir við gerð kjarasamn-
inga.
Verði fylgt
fast eftir
ALÞÝÐUSAMBANDIÐ
Skipstjóri eins af leiguskipum Eim-
skips lést nú í vikunni þegar skipið
fékk á sig brotsjó suður af Græn-
landi. Þetta staðfesti Elín Hjálms-
dóttir, framkvæmdastjóri mann-
auðssviðs hjá Eimskip, í samtali við
mbl.is í gær.
Haft var samband við Landhelgis-
gæsluna þegar skipið, EF AVA, var
um 700 sjómílur frá Reykjavík, en
ekki kom til þess að þyrla yrði send.
Erfitt var í sjóinn er atvikið átti sér
stað aðfaranótt þriðjudagsins 29.
janúar. „Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem við höfum þá kom brot á
skipið með þeim afleiðingum að hann
fellur og fær við það höfuðhögg og
lætur lífið í kjölfarið,“ segir Elín.
Skipstjórinn var af pólskum uppruna
og fæddur 1964.
Skipið var á leið frá Nýfundna-
landi til Reykjavíkur þegar atvikið
átti sér stað og lagðist skipið að
bryggju í Sundahöfn um miðjan dag
í gær. Elín segir tildrög slyssins
verða í kjölfarið rannsökuð af viðeig-
andi aðilum. Við komuna til Reykja-
víkur kallaði útgerð skipsins til fag-
aðila til að veita áhöfninni
áfallahjálp.
Morgunblaðið/Hari
Sundahöfn Flutningaskipið EF AVA kom til hafnar í Reykjavík í gær.
Lést er brot kom á skipið
Skipstjóri á leiguskipi Eimskips lést á leið til landsins