Morgunblaðið - 01.02.2019, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019
Dómsmálaráðuneytið segir, að ekki
standi til að hverfa frá fimm ára
skipunartíma lögreglustjóra. Þetta
kemur fram í svari ráðuneytisins við
fyrirspurn Morgunblaðsins.
Úlfar Lúðvíksson, formaður Lög-
reglustjórafélags Íslands, hefur
ítrekað bent á að stuttur skipunar-
tími lögreglustjóra geti haft áhrif á
ákvörðunartöku þeirra. „Lögreglu-
stjórar gefa út flest ákæruskjöl á Ís-
landi. GRECO [Samtök ríkja gegn
spillingu] er að benda á að það sé
óheppilegt, þegar lögreglustjórar
fara jafnframt með ákæruvald, að
skipunartími þeirra sé þetta stuttur.
Það geti haft áhrif,“ sagði Úlfar í
Morgunblaðinu á miðvikudag.
Samkvæmt upplýsingum frá
dómsmálaráðuneytinu hafa stjórn-
völd gripið til ýmissa aðgerða til að
koma til móts við tilmæli GRECO.
„Ýmsar breytingar hafa verið gerðar
undanfarin ár og aðrar eru enn til
skoðunar og í
vinnslu. Stofnun
embættis héraðs-
saksóknara var
m.a. þáttur í því
að koma til móts
við tilmælin,“ seg-
ir í svari ráðu-
neytisins.
Æviráðningar
undantekning
Dómsmála-
ráðuneytið tekur einnig fram að ævi-
ráðningar embættismanna séu ekki
lengur meginregla. „Þá hefur þróun
í starfsumhverfi embættismanna
verið með þeim hætti að horfið hefur
verið frá æviráðningum sem meg-
inreglu og í stað hennar teknar upp
fimm ára skipanir með möguleika á
endurskipun að þeim tíma liðnum.
Frá þessu eru fáar undantekningar
og þarf að meta með sérstökum rök-
um hverju sinni frávik frá þessari
meginreglu. GRECO benti hins veg-
ar á að mikilvægt væri að gagnsæi
ríkti um skipan lögreglustjóra, að
stöður þeirra væru auglýstar en ekki
endurnýjaðar sjálfkrafa.“
Úlfar sagði einnig að GRECO
hefði bent á að vald dómsmálaráð-
herra yfir lögreglustjórum sem
ákærendur væri of mikið. Dóms-
málaráðuneytið bendir á að heimildir
ráðherra til afskipta af ákæruvaldinu
verða að byggjast á skýrum laga-
heimildum.
„Þá er skýrt í lögum að ákær-
endur taka ekki við fyrirmælum frá
öðrum stjórnvöldum um meðferð
ákæruvalds, nema sérstaklega sé
kveðið á um það í lögum. Af þessu
fyrirkomulagi leiðir að þegar lög-
reglustjórar fara með ákæruvald og
yfirstjórn sakamála í umdæmum sín-
um, lúta þeir eftirliti og yfirstjórn
Ríkissaksóknara.“
Skipunartíma lögreglustjóra ekki breytt
Lögreglustjórafélagið segir fimm ára
skipunartíma lögreglustjóra of stuttan
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Ummerki um veggatítlur hafa
greinst í þaksperrum safnaðarheim-
ilis Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. At-
hugun meindýraeyðis á húsinu fyrir
nokkrum dögum staðfesti grun um
þetta. „Hugsanlegt er að fleira og
meira í burðarvirki hússins sé
skemmt. Í versta falli þarf að rífa
húsið en hinn möguleikinn eru við-
gerðir sem gætu kostað tugi milljóna
króna. Þetta tjón er okkur afar
þungbært og við erum nú að athuga
hvað skuli gera,“ segir Einar Svein-
björnsson, formaður safnaðarstjórn-
ar Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, í
samtali við Morgunblaðið.
Safnaðarheimilið er á Linnetsstíg
4; þrílyft timburhús með steyptum
kjallara byggt árið 1920. Þetta er
næsta hús við Fríkirkjuna, en söfn-
uðurinn eignaðist bygginguna árið
1997 og hefur nýtt síðan undir skrif-
stofur presta og félagsstarf.
Veggjatítlur þrífast helst í rökum
viði og í safnaðarheimilinu hefur
lengi verið glímt við vatnsleka með
skorsteini. „Það er hugsanlegt að
lirfurnar hafi grasserað þarna í
marga áratugi og skaðinn gæti því
verið mikill. Fyrstu viðbrögð okkar
eru að eitra fyrir þessari óværu til að
koma í veg fyrir að títlurnar tímgist í
vor. Mikilvægt er að halda því til
haga að engin hætta fylgir þessu fyr-
ir fólk því veggjatítlan smitast ekki
eða ferðast með fólki,“ segir Einar.
Ummerki í kirkjuturni
Þegar skemmdir á safnaðarheim-
ilinu voru ljósar beindust sjónir að
kirkjunni, sem var byggð 1913 og er
einnig úr timbri. Athugun leiddi í
ljós að uppi undir rjáfri í turni má
greina staðbundin ummerki eftir
títlur frá fyrri tíð. „Við munum verja
kirkjuna,“ segir Einar.
Minnst tvívegis hefur greinst
veggjatítla í gömlum húsum í Hafn-
arfirði. Húsið á Austurgötu 36, sem
er skammt frá Fríkirkjunni, er mikið
skemmt af völdum óværu þessarar.
Eigendurnir vilja rífa húsið, sem
stendur autt. Þá þurfti fyrir nokkr-
um árum að rífa allt tréverk innan úr
húsi við Hverfisgötu sem nú hefur
verið endurgert. sbs@mbl.is
Veggjatítlur í
safnaðarheimili
Hús í Hafnarfirði skemmt af óværu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hafnarfjörður Einar Sveinbjörnsson og safnaðarheimilið við Linnetsstíginn í
baksýn. Hugsanlega þarf að rífa húsið vegna skemmda, sem eru talsverðar.
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
og Óli Björn Kárason, hafa hleypt af
stokkunum hlaðvarpsþætti (pod-
cast). Heiti þáttarins er einfalt: Ás-
laug og Óli Björn og hægt er að
nálgast nýjan þátt á hverjum þriðju-
degi í hlaðvarpsforritum (podcast
app) í símum, á Spotify og iTunes.
„Við ætlum að vera með vikulega
þætti um þjóðmálin út frá stefnu
Sjálfstæðisflokksins og hugmyndir
okkar um frelsi, opið, skemmtilegt
og lifandi samfélag,“ segir Áslaug
Arna og leggur áherslu á að mik-
ilvægt sé að koma stjórnmála-
umræðu í fjölbreyttara form og
hlaðvarpsþátturinn sé ein leið til að
ræða málefni með einföldum og
skiljanlegum hætti.
Áslaug Arna og Óli
Björn með nýjan þátt
Nýr þáttur Óli Björn og Áslaug
Arna stilla saman strengi sína.