Morgunblaðið - 01.02.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019
Fréttablaðið var með litríka ogsláandi mynd á forsíðu sinni í
gær.
Ekki hafa ennborist nein-
ar upplýsingar
um viðbrögð við
henni.
En allir velviljaðir menn hljótaþó að binda vonir við að blaðið
hafi tryggt að það bærist ekki inn á
skrifstofur Seðlabankans fyrir mis-
tök í útburði.
Enn er í fersku minni að nýráð-inn starfsmaður gerði kröfu
um það að tekin yrði niður mynd
Gunnlaugs Blöndals, eins af önd-
vegismálurum þjóðarinnar, sem
hangið hafði á sama skrifstofuvegg
í tæp 40 ár án þess að nokkur mað-
ur gerði athugasemd.
Ekki hefur verið upplýst hverstarfsmaðurinn er og virðist
bankinn líta á þann fróðleik sem
bankaleynd eins og á við um nánast
allt sem bankinn er spurður um.
Vonandi hefur bankinn þó tryggtað enginn starfsmaður álpist
til Flórens og standi skyndilega
frammi fyrir einni frægustu styttu
af mörgum sem Michelangelo
meitlaði.
Þar er engu leynt.
Rangli starfsmenn bankans svo íVatíkanið hefur vonandi verið
sett í starfsreglur hans að þeir sem
lendi óvart inni í Sixtínsku kapell-
unni skuli góna á gólfflísarnar uns
út er komið og líti á loftið sem hluta
af íslenskri bankaleynd.
Nakinn sannleikur
lýtur bankaleynd
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Karlmaður á sjötugsaldri fannst
látinn í Vaðlaheiðargöngum sl.
miðvikudag. Maðurinn lést skyndi-
lega og ekki er talið að andlátið
hafi borið að með saknæmum
hætti.
Þetta sagði Bergur Jónsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn yfir rann-
sóknardeild hjá lögreglunni á
Norðurlandi eystra, við mbl.is í
gær þegar leitað var fregna um at-
vikið. Maðurinn, sem var 62 ára,
starfaði sem málari og var að vinna
í svokölluðu tæknirými í göngunum
þegar hann féll frá. Aðspurður
sagði Bergur ekkert benda til þess
að hann hefði orðið fyrir eitrun eða
einhverju slíku sem tengdist
vinnunni. Ekki var talin þörf á að
kalla í Vinnueftirlitið.
Lögreglunni barst tilkynning um
að maðurinn, sem er íslenskur
ríkisborgari, hefði fundist í aust-
asta hluta ganganna um hálffjög-
urleytið í gær.
Göngunum lokað að hluta
Göngunum var í framhaldinu
lokað í aðra áttina í um tíu mínútur
til þess að viðbragðsaðilar hefðu
aðgengi að svæðinu.
Ekki er hægt að segja til um
hvernig maðurinn lést fyrr en að
lokinni krufningu.
Fannst látinn í Vaðlaheiðargöngum
Málari á sjötugsaldri lést skyndilega
við vinnu sína í tæknirými ganganna
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Vaðlaheiðargöng Göngunum var
lokað í aðra áttina. Mynd úr safni.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Rækjuvinnslan Hólmadrangur á
Hólmavík hefur farið fram á fram-
lengda greiðslustöðvun til næstu
þriggja mánaða. Á kröfuhafafundi í
vikunni var ekki gerð athugasemd
við þá tilhögun og segist Viktoría
Rán Ólafsdóttir, stjórnarformaður
Hólmadrangs og kaupfélagssstjóri
Kaupfélags Steingrímsfjarðar, gera
sér vonir um að dómstjóri samþykki
framlengda greiðslustöðvun í dag.
Upphaflega fékk fyrirtækið
þriggja vikna greiðslustöðvun í októ-
ber og var hún síðan framlengd um
þrjá mánuði í lok þess mánaðar.
Verði greiðslustöðvun samþykkt í
þrjá mánuði til viðbótar rennur hún
út í lok apríl.
Viktoría segir að með ágætu sam-
starfi við Arion banka hafi vinnslan
verið keyrð á fullum afköstum í verk-
töku og vel hafi gengið að greiða nið-
ur afurðalán til bankans. Fyrirtækið
skuldar enn 120 milljónir í langtíma-
lán til Byggðastofnunar og um 150
milljónir í skammtímaskuldir. Tekist
hafi að safna fjármagni upp í kröf-
urnar og fáist greiðslustöðvunin
framlengd þá er áætlað að sú upp-
hæð hækki enn frekar, segir Vikt-
oría.
Burðarás í atvinnulífi
Undanfarnar vikur hefur 21
starfsmaður unnið hjá Hólmadrangi,
sem er burðarás í atvinnulífi á
Hólmavík. Líðandi tímabil hefur ver-
ið nýtt til að taka inn hráefni frá fjór-
um fyrirtækjum, sem Hólmadrang-
ur átti áður í samstarfi við. Fyrir-
tækin eiga hráefnið í öllu vinnslu-
ferlinu og sjá um sölu þess, en njóta
góðs af alþjóðlegum vottunum á
vinnslu Hólmadrangs.
Viktoría segir að miðað við árang-
urinn síðustu vikur hafi stjórnendur
Hólmadrangs fulla trú á því að
reksturinn muni vinna sig út úr þess-
um erfiðleikum.
Full afköst undanfar-
ið hjá Hólmadrangi
Farið fram á lengri
greiðslustöðvun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hólmavík Rækjuvinnsla á vegum
Hólmadrangs skiptir miklu máli.