Morgunblaðið - 01.02.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 01.02.2019, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ BjarnheiðurBjörnsdóttir fæddist á Efra-Seli í Landsveit 13. febr- úar 1932. Hún and- aðist á Hjúkr- unarheimilinu Hlévangi, Reykja- nesbæ, 15. janúar 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Björn Bjarnason, bóndi í Efra-Seli, f. þar á bæ 29.11. 1902, d. 27.8. 1998, og kona hans, Guðrún Lilja Þjóð- björnsdóttir, f. á Læk í Leirár- sveit 7.5. 1896, d. 2.8. 1972. Systkini Bjarnheiðar eru: Mar- grét, f. 28.4. 1933, maður hennar er Konráð Jóhann Andrésson, f. 7.10. 1932; Gyða Fanney, f. 25.9. 1934, maður hennar Magnús Einarsson, f. 11.10. 1932, d. 17.9. 2010; Indriði, f. 28.5. 1939, kona hans Ásta Pétursdóttir Brekkan, f. 9.8. 1939; Guðbjartur, f. 28.5. 1939, kona hans Ragnhildur Ingibjörg Antonsdóttir, f. 6.3. 1943. Bjarnheiður giftist 5. maí 1956 Eyþóri Sigmundssyni, f. 18.9. 1934, syni hjónanna Sig- mundar Eyvindssonar og Aðal- heiðar Olgu Guðgeirsdóttur. Bjarnheiður og Eyþór skildu. Börn þeirra eru: 1) Lilja, f. 7.12. 1955, maki Einar Þorgeirsson. 2) Sig- mundur, f. 27.2. 1958, maki Hafrún Jónsdóttir. Bjarn- heiður giftist síðan 25. desember 1965 Kristni Erlendi Kal- dal Michaelssyni, f. 5.4. 1934, d. 6.6. 1996. Foreldrar hans voru Michael Sigfinnsson og Arn- heiður Ingibjörg Árnadóttir. Barn Bjarnheiðar og Kristins er Bjarni Thor, f. 2.5. 1967, maki Lilja Guðmundsdóttir. Barna- börn Bjarnheiðar eru nú 10 og barnabarnabörnin sex. Bjarnheiður, eða Heiða eins og hún var alltaf kölluð, óx úr grasi á bæ foreldra sinna á Efra- Seli í Landsveit. Í sínu fyrra hjónabandi bjó hún í Kópavogi og í því seinna flutti hún á Suðurnesin, fyrst til Keflavíkur, þá á Melstað í Garði og loks aftur til Keflavíkur. Árið 2012 fluttist hún á Hjúkr- unarheimilið Hlévang og þar andaðist hún. Auk húsmóður- starfa vann Heiða sem verka- og verslunarkona alla sína starfs- ævi. Útför Bjarnheiðar fer fram frá Kálfatjarnarkirkju í dag, 1. febrúar 2019, klukkan 13. Það skemmtilegasta sem ég vissi þegar ég var lítil í sveitinni var að fá Heiðu frænku í heim- sókn. Ekki bara vegna sælgætis- pokans sem hún kom ávallt með og var ætlaður mér einni, heldur vegna þess að hún var svo ótrú- lega skemmtileg. Ég spurði hana alltaf hvað hún yrði lengi í það skiptið og fékk alltaf sama svarið „sennilega sest ég bara upp hér og fer ekkert aftur“ og barnið ég hugsaði með mér hvað það yrði frábært! Helst af öllu hefði ég vilj- að hafa hana alla daga í heimsókn, alltaf. Það fylgdi henni svo mikil glaðværð, hún var svo fyndin og talaði mikið, hafði sterkar skoðan- ir og kom alltaf með Moggann í sveitina, málgagnið sitt. Hún var haldin smá bíladellu, átti drossíu sem hún kallaði gersemina sína og ók voldug í hlað með sængina í aft- ursætinu og sígóið í veskinu. Þær systurnar, mamma og hún, sátu svo oft fram á miðjar nætur á skrafi og það var eitthvað svo notalegt að hlusta á muldrið í þessum tveimur konum sem mér þótti vænst um í heiminum. Síðan liðu árin, ég var ekki lengur barn en alltaf var Heiða mitt mesta uppáhald. Það eru ófá- ar bækurnar í bókahillunni minni sem eru áritaðar „Til Lilju, frá gömlu konunni“ því hún hélt áfram að gefa mér jólagjafir langt fram eftir aldri. Ég held að elsta dóttir mín hafi verið á þriðja ári þegar síðasta jólagjöfin kom, ég þá rúmlega tvítug. Það er svo margt sem mig lang- ar að segja og skrifa um hana frænku mína en það dugar víst ekki plássið og það var heldur ekki hennar stíll að vera að telja upp endalausa kosti og mæra þá í bak og fyrir. Hún var ekki mikið fyrir að hampa því sem hún gerði. Þó langar mig að allir viti hvað þessi kona var ótrúleg, það þyrftu allir að fá að eiga eina Heiðu frænku. Hún var hvunndagshetja í öllum skilningi þess orðs, vann baki brotnu allt sitt líf, var alltaf til taks fyrir þá sem þurftu á að halda, hún var þeim sérstaklega góð sem minnst máttu sín og það fylgdi henni öryggistilfinning svo manni fannst að allt myndi fara vel ef hún væri einhvers staðar nálægt. Mamma hefur svo oft haft á orði að stóra systir hennar í Keflavík hafi verið hennar stoð og stytta í gegnum sín búskaparár. Þessi granna kona bjó yfir ótrúlegum styrk. Hún var með eindæmum bóngóð og ég held að hún hafi aldrei nokkurn tímann sagt nei við mig, hún tók alltaf minn málstað. Það að vera móðursystir er ákveðið hlutverk, móðursystir er sú kona sem er tilbúin að hlaupa í skarðið ef eitthvað alvarlegt kem- ur upp á og móðirin ekki til taks. Sem betur fer reyndi aldrei á það í minni bernsku en ég fann samt alltaf að Heiða frænka var þarna, hún hefði komið mér til bjargar ef á þurfti að halda. Þannig frænka langar mig að vera, þannig hefur hún verið mín fyrirmynd í þessu sem og svo mörgu. Ég kveð með söknuði frænku mína og er þakklát fyrir allar góðu minningarnar. Ég trúi því að amma og afi í Selinu taki á móti stelpunni sinni og ef himnaríki er til þá verður hún þar á rúntinum á gerseminni sinni með sígó í vesk- inu og sængina sína í aftursætinu. Blessuð sé minning Heiðu frænku í Keflavík. Guðrún Lilja Magnúsdóttir. Bjarnheiður Björnsdóttir ✝ Jóhanna Ólafs-dóttir fæddist 4. febrúar 1927 á Fjöllum í Keldu- hverfi. Hún lést 26. janúar 2019 á Dval- ar- og hjúkrunar- heimilinu Hlíð á Akureyri. Foreldrar henn- ar voru Ólafur Jóns- son, f. 21.11. 1881, d. 19.5. 1953 og Friðný Sigurbjörg Sigurjóns- dóttir, f. 31.8. 1898, d. 27.5.1999. Jóhanna giftist þann 6.11. 1948 Sigurði Jónssyni frá Meiðavöll- um í Kelduhverfi, f. 24.12. 1919, d. 28.12. 2014. Þau eignuðust heiður Magnúsdóttir og eiga þau tvö börn og þrjú barnabörn, Hall- dóra Friðný, f. 19.4. 1962, d. 26.3. 1974. Jóhanna var fimmta í aldurs- röð systkina sinna, en þau voru Héðinn, f. 14.1. 1918, d. 16.7. 1992, drengur, f. 17.6. 1919, d. 11.7. 1919, Ragnheiður, f. 23.8. 1920, d. 22.6. 2002, Jón, f. 1.1. 1925, d. 23.12. 2014, Anna Guðný, f. 5.12. 1930, d. 8.3. 2014. Jóhanna var húsfreyja í Garði II í Kelduhverfi þar sem þau hjón byggðu sér bú og áttu þar heima allt til ársins 2000 er þau fluttu til Húsavíkur. Einnig starfaði hún á sláturhúsum við laxa- og sauð- fjárslátrun og var kirkjuvörður við Garðskirkju meðan þau hjón bjuggu í Garði. Haustið 2015 flutti hún á Dvalar- og hjúkr- unarheimilið Hlíð á Akureyri. Útför Jóhönnu fer fram frá Garðskirkju í dag, 1. febrúar 2019, klukkan 13. fimm börn. Þau eru Ólafur Brynjar, f. 1.4. 1946, kona hans er Kristbjörg Ágústa Magn- úsdóttir og eiga þau tvo syni, fjögur barnabörn og eitt barnabarnabarn; Jón, f. 8.3. 1950, kona hans er Þor- björg Bragadóttir og eiga þau fjögur börn og fjögur barnabörn; Björn Ágúst, f. 4.4. 1955, d. 25.3. 2001, kona hans var Kristín Björns- dóttir og áttu þau fjögur börn og þrjú barnabörn; Sigurgeir, f. 18.8.1956, kona hans er Aðal- Jóhanna tengdamóðir mín frá Garði er fallin frá rétt að verða 92 ára gömul. Ég kynntist Jóhönnu árið 1981 þegar við Jón vorum að draga okkur saman. Jóhanna reyndist mér frá fyrstu tíð hin allra besta tengdamóðir. Ég flutti í sveitina alveg græn á öll bústörf, en þá kom kennarinn Jóhanna mér til hjálpar, Hún kenndi mér að gera slátur, bjúgu, rúllupylsu og kæfu, svo fátt eitt sé nefnt. Fallegu útprjónuðu sokkarnir og vettlingarnir hennar hafa farið út um allan heim. Ekki má nú gleyma besta rúgbrauðinu í heimi, börnin mín runnu yfirleitt alltaf á lyktina þegar amma var að taka rúgbrauðið úr ofninum og borð- uðu þá yfir sig. Hún hafði brennandi áhuga á sveitinni sinni og fólkinu í kring- um sig. Hún varð mjög oft fyrri til að hringja til að fá fréttir af barna- börnunum alveg fram á síðustu viku. Jóhanna var mjög gestrisin og hafði mjög gaman af því að taka á móti fólki. Yfirleitt voru sortirn- ar ekki færri en tíu. Í þau sextán ár sem ég bjó í Garði var alltaf hægt að treysta á góða barnapöss- un, þau amma Jóhanna og afi Siggi voru best. Jóhanna var stál- minnug á menn og málefni svo ég gleymi nú ekki afmælisdögum. Ég held að hún hafi munað afmælis- daga allra í sveitinni og gott betur. Stórt skarð var höggvið í fjöl- skylduna þegar tengdafaðir minn lést fyrir rétt fjórum árum. Þá flutti Jóhanna til Akureyrar á dvalarheimilið Hlíð og lét vel af sér þar, þar sem hún var komin nær sínu fólki. Jóhanna lá ekkert á sínum skoðunum ef henni mislík- aði eitthvað, alltaf hrein og bein. Ég er svo þakklát fyrir allar þær fjölmörgu góðu stundir sem við áttum saman. Fjölskyldunni votta ég mína dýpstu samúð. Þorbjörg Bragadóttir. Amma Jóhanna fæddist í torfbæ og ólst upp til fjögurra ára aldurs. Ég man hvað mér fannst myndin af þeim systkinum fyrir utan gamla bæinn merkileg, því mér fannst amma alls ekki svo gömul. Fyrir nokkrum árum sát- um við að spjalli í eldhúsinu henn- ar á Húsavík og barst talið að hé- góma og útlitsdýrkun. Amma sagði þá að hún væri nú voðalega krumpuð í framan. Aldrei hafði ég tekið eftir því, en þegar ég horfði betur sá ég að hún hafði kannski eitthvað til síns máls. Amma var hins vegar alltaf glaðleg og bros- mild og fínlegar hrukkurnar lýstu andlit hennar upp sem sólar- geislar. Ein af mínum fyrstu minning- um er af ömmu Jóhönnu að lyfta mér upp til að sjá bjarmann af Kröflueldum út um gluggann á eldhúsinu. Ótalmargar æsku- minningar mínar eru úr eldhúsinu í Garði að bardúsa eða fylgjast með ömmu baka, prjóna, elda eða bera á borð kræsingar fyrir heim- ilisfólk og gesti. Aldrei féll henni verk úr hendi, og milli þess að bera á borð einar 6-7 máltíðir, prjónaði hún kannski eins og eitt par af sokkum eða vettlingum, bakaði hjónabandssælu og hlust- aði á mig lesa. Hún prjónaði ótrú- lega hratt og fallega og við fjöl- skyldan höfum svo sannarlega fengið að njóta góðs af í gegnum tíðina. Amma saumaði líka út og hanga fallega innrammaðar myndir eftir hana á veggjum fjöl- margra heimila. Ég naut þeirra forréttinda að fá að eyða talsverðum tíma ein í sveitinni með ömmu og afa, lengst þegar ég var fimm ára. Sá tími var nýttur í að verða fluglæs og var amma dugleg að finna mér bækur og hlusta á mig lesa. Eftir því sem ég eltist grófu þau afi upp fleiri og fleiri bækur við hæfi sem pabbi og systkini hans höfðu átt. Amma var með fallegan blóma- garð bakvið hús, og pottablóm í öllum gluggum. Hún vildi hafa snyrtilegt í kringum sig, nær sem fjær, og fór reglulega í göngu meðfram þjóðveginum að tína upp ruslið sem fólk kastaði út um bíl- gluggana. Þar lærði ég ung að ár- um að rusl sem hent er á víðavangi hverfur ekki. Við spjölluðum mikið saman í síma undanfarin ár. Það var alltaf gott að heyra í ömmu, sem átti ótal reynslusögur að deila með ungri og verðandi móður, sannkallaðar gæðastundir þó stundum hafi liðið lengra á milli. Ég sakna þess að geta ekki tekið upp símann og heyrt í ömmu, fengið fréttir og sagt henni frá litlum sigrum og stórum. Það er komið að kveðju- stund og henni fylgir þakklæti og gleði. Þakklæti fyrir samfylgdina og gleði yfir dýrmætum minning- um. Takk fyrir samfylgdina, amma mín, við sjáumst í Sumarlandinu seinna. Þín Halldóra Friðný. Hún yndislega amma Jóhanna er farin frá okkur, en ég trúi því að hún sé komin til hans afa Sigga og hafi það gott. Nú þegar maður hugsar til baka þá minnist maður þess að amma var alltaf með kjöt- farsbollur og hrísgrjón, enda kall- ast þær í dag ömmukjötbollur og munu alltaf gera. Maður fór held- ur aldrei frá þeim nema að fá alla- vega sleikjó og jafnvel eitthvað meira og til að kaupa sér eitthvað „gott“ á leiðinni suður eins og þau sögðu. Eins minnist ég þess þegar ég fékk að koma til ykkar í viku eða tvær á sumrin. Svaf ég þá á sóf- anum í stofunni því þið voruð flutt í Litla-Hvamm á Húsavík og nú er ég með sófasettið ykkar og allar þær minningar sem fylgja því. Nú á síðustu árum fannst mér mjög gaman að koma til þín án þess að þú hefðir nokkra hugmynd um það, og sérstaklega man ég eftir heimsóknunum í fyrra þegar ég mætti með laxableikt hár og svo bleikt og krullur. Þér fannst þetta bara frekar smart. Enda jafn glys- gjörn og ég. Elskaðir alla björtu litina, helst var allt skræpótt og með glimmeri. Þegar ég fékk þær fréttir að þú værir orðin veik, amma mín, kom texti að einu uppáhaldslaginu mínu upp í hugann og ætla ég að enda þetta á því, – aðeins lagfært fyrir þig. Þú varst drottning í hárri höll. Hljómsveitin! álfar, menn og tröll, lék þér og söng í senn, hún var svo stór- fengleg. Tröllin, þau börðu á bumburnar. Blómálfar léku á flauturnar, fiðlurnar mennskir menn, á mandólín ég. Allir mændum við upp til þín eins og blóm þegar sólin skín. Er þínum faðmi frá, gjafir flugu um allt. Flestum gekk vel að grípa sitt. Glaður náði ég fljótt í mitt, en stóll er steig ég á, stóð tæpt svo hann valt. (Freymóður Jóhannsson) Hvíldu í friði, elsku amma, Sandra Rún. Jóhanna Ólafsdóttir ✝ Guðrún BjörgHarðardóttir fæddist 11. nóvem- ber 1957. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 19. jan- úar 2019. Foreldrar Guð- rúnar eru Svala Steinþórsdóttir, f. 19. júlí 1931, og Hörður Hermanns- son, f. 5. apríl 1930, d. 1. september 2007. Bræður Guðrúnar eru Sigþór, f. 28. október 1956, Hermann, f. 1. október 1959, og Njáll, f. 27. október 1961. Eiginmaður Guðrúnar er Frið- rik Viðar Sverris- son, f. 23. nóvem- ber 1966. Sonur Guðrúnar og Frið- riks er Sindri Snær, f. 27. maí 1997. Guðrún verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag 1. febrúar 2019, klukkan 13.30. Góður starfsfélagi okkar, Guðrún Björg Harðardóttir, er fallin frá, langt um aldur fram. Guðrún Björg var sannkallaður lykilmaður í starfi Norðurorku og áður hjá Rafveitu Akureyrar. Guðrún Björg hóf störf hjá Rafveitu Akureyrar í maí 1987. Í byrjun var Guðrún ráðin á skrifstofu Rafveitunnar en varð síðar ritari rafveitustjóra. Við sameiningu veitnanna á Akur- eyri árið 2000 var Guðrún ráðin sem starfsmannastjóri hins sameinaða félags, Norðurorku hf. Það var einstaklega gott að vinna með Guðrúnu, hún var ekki fyrir að flækja hlutina, var hrein og bein og gekk í öll verk sem þurfti. Guðrún átti gott með að um- gangast fólk, lét til sín taka, og naut þess að vinna með starfs- fólki fyrirtækisins. Guðrún veiktist af krabba- meini á vormánuðum 2014 og tók örlögum sínum hetjulega, gafst aldrei upp og var jafn- framt stoð og stytta margra sem áttu við veikindi að stríða. Árin frá því veikindin komu upp voru Guðrúnu erfið en alltaf reyndi hún að koma til vinnu, skila sínu, væri þess nokkur kostur. Það er sárt fyrir okkur starfs- fólk Norðurorku að sjá á eftir góðum félaga og samstarfs- manni til fjölda ára. Ég votta Friðriki eiginmanni Guðrúnar, Sindra Snæ syni þeirra og fjölskyldu samúð fyrir hönd stjórnar og starfsfólks Norðurorku. Helgi Jóhannesson. Fyrir rúmum 10 árum gekk ég stressuð inn í Norðurorku á leið í atvinnuviðtal. Guðrún starfsmannastjóri fyrirtækisins var annar viðmælandinn. Það kom í ljós strax í þessu fyrsta samtali okkar hversu einstakt lag hún hafði á að bæta líðan manns. Kvíðahnúturinn hvarf á augnabliki. Guðrún var svo sannarlega rétt kona á réttum stað og naut sín í starfi sínu. Hún hafði ómældan áhuga á fólki í jákvæð- ustu merkingu þess orðs, velti gjarnan fyrir sér hvað mótaði einstaklinginn, hvað hefði gert hann að því sem hann væri. Guðrún sá alltaf það besta í fólki og samgladdist heilshugar og af einlægni. Hún talaði oft um það hversu heppin hún væri með fólkið í kringum sig og fannst hún vera „umvafin englum“ líkt og segir í söng Guðrúnar Gunnarsdóttur. Strákarnir hennar, þeir Friðrik og Sindri Snær, voru órjúfan- legur þáttur þeirrar umræðu. Eftir að Guðrún veiktist aftur og var frá vinnu hittumst við reglulega í spjalli. Um leið og við bárum saman svissmokkað á allflestum kaffihúsum bæjarins spjölluðum við um allt milli him- ins og jarðar, fjölskyldulífið, vinnuna, misjöfn verkefni sem fyrir okkur eru lögð í lífinu, veikindin og það óhjákvæmilega sem veikindum Guðrúnar fylgdi. Hún hafði einstakt lag á því að ræða hlutina á mannamáli og full æðruleysis sá hún alltaf já- kvæðu hliðarnar á öllu. „Maður hefur alltaf val,“ sagði Guðrún gjarnan og hún var samkvæm sjálfri sér því hún lifði samkvæmt þessu. Hennar val var að hafa jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi í stað þess að einblína á það neikvæða. Þannig var það alla tíð, líka eftir að róðurinn fór að þyngjast und- ir lokin. Þetta er eitt af fjöl- mörgu sem ég hef lært af Guð- rúnu í gegnum árin og vil tileinka mér. Í dag, líkt og aðra daga, veit ég að ég hef val og ég ætla að velja vel. Því þrátt fyrir að það sé erfitt að kveðja góða vinkonu svo snemma þá ætla ég að brosa í gegnum tárin og þakka fyrir að hafa kynnst Guðrúnu Björgu. Ég sendi samúðarkveðjur til þeirra er nú sakna. Ljós og friður fylgi þér, elsku vinkona. Gunnur Ýr Stefánsdóttir. Guðrún Björg Harðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.