Morgunblaðið - 01.02.2019, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019
Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 | heimilioghugmyndir.is
Bernharð Sigursteinn Haraldsson, fyrrverandi skólameistariVerkmenntaskólans á Akureyri, fagnar áttræðisafmæli ídag. Bernharð kenndi við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar
1966-67, Gagnfræðaskóla Akureyrar 1960-62 og 1967-83 og var
skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri 1983-99.
Undanfarin ár hefur Bernharð unnið að ritun ábúendasögu
Skriðuhrepps hins forna á nítjándu öld. Þar er rakin ábúendasaga
ríflega sextíu bæja í Hörgárdal og Öxnadal frá 1801-1901. Þetta
verk er nú á lokastigi og verður væntanlega tilbúið til útgáfu síðar
á þessu ári.
Jafnframt allri þessari vinnu og stífum lestri kirkjubóka og ann-
arra heimilda frá nítjándu öld hefur afmælisbarnið haft vökult
auga á frammistöðu Wolverhampton Wanderers – Úlfanna í ensku
knattspyrnunni en það gagnmerka lið hefur Bernharð stutt dyggi-
lega síðan fyrir fermingu.
Eiginkona Bernharðs er Ragnheiður Hansdóttir, tannlæknir og
sérfræðingur í bitlækningum, og eiga þau fjögur börn, Harald,
Hans Braga, Arndísi og Þórdísi. Sjöunda barnabarnið fæddist í nóv-
ember og var nú í janúar gefið nafnið Sigursteinn Norðfjörð Þór-
dísarson. Þar fékk sveinninn ungi nafn afa síns, Bernharðs Sig-
ursteins, langafa, Haralds Norðfjörð Ólafssonar, og langalangafa,
Sigursteins Steinþórssonar, bónda á Efri-Vindheimum og víðar í
Hörgárdal.
Bernharð og Ragnheiður eru búsett í Reykjavík en í tilefni af-
mælisins halda þau til Akureyrar með fjölskyldu sinni til að gleðj-
ast þar með vinum og ættingjum.
Grúskar í Hörgdæl-
ingum nítjándu aldar
Bernharð Haraldsson er áttræður í dag
Hjónin Ragnheiður og Bernharð ætla að halda upp á afmælið á
Akureyri, sínum gömlu heimaslóðum, ásamt fjölskyldu sinni.
B
jörn Jón Bragason
fæddist í Reykjavík 1.
febrúar 1979 og ólst
upp í Langholtshverfi.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík árið 2000, BA- og meistara-
prófum í sagnfræði frá HÍ 2003 og
2006 og BA- og ML-prófum í lög-
fræði frá HR 2012 og 2016. Björn
leggur nú samhliða stund á doktors-
nám í lögfræði við HR og sagnfræði
við HÍ.
„Kannski ég flaggi í tilefni dags-
ins. Ég hef lengi verið þeirrar skoð-
unar að 1. febrúar eigi að vera fána-
dagur, því Íslendingar fengu
heimastjórn á þessum degi fyrir
réttum 115 árum. Í nokkur ár hélt
ég heimastjórnarfögnuð á afmælis-
daginn en er alveg hættur að halda
upp á afmælið mitt. Ég var þó bú-
inn að lofa nemendum mínum í
Verzlunarskólanum að koma með
tertu í skólann og verð að standa við
það.“
Björn Jón starfaði með námi við
Verslun Guðsteins Eyjólfssonar frá
árinu 2000 og var viðloðandi þá
verslun til ársins 2018. Þá var hann
um tíma framkvæmdastjóri Sam-
taka kaupmanna og fasteignaeig-
enda við Laugaveg. „Miðbæjarmálin
hafa verið mér hugleikin og líka
skipulagsmál almennt í Reykjavík.
Mér er mjög annt um það að við
getum byggt upp öfluga verslun í
miðbæ Reykjavíkur.“ Björn Jón er
höfundur nokkurra stuttra
heimildarmynda um skipulagsmál í
borginni og þá situr hann í stjórn
Miðbæjarfélagsins.
Björn Jón Bragason, lögfræðingur og sagnfræðingur – 40 ára
Morgunblaðið/Rósa Braga
Afmælisbarnið Björn Jón kveðst hafa mesta ánægju af lestri íslenskra fræðibóka og ævisagna.
Með nýja og óvenjulega
bók í prentsmiðjunni
Rithöfundurinn Björn Jón áritar
bók sína, Gjaldeyriseftirlitið.
Írena Lind
Marinósdóttir og
Freydís Sæmunds-
dóttir héldu tom-
bólu fyrir utan versl-
unina Kost í
Reykjanesbæ og
gáfu Rauða kross-
inum afraksturinn.
Hlutavelta
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is